Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 7

Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 B 7 BÆKUR F r æ ö i r i t STÚLKUR í INNHEIMUM um sagnaskáldskap Vigdísar Gríms- dóttur eftir Kristfnu Viðarsdóttur. Bókmenntafræðistofnun Háskdla Is- lands. Ung fræði 1. Reykjavík 1997. 133 blaðsíður. ÁÐUR en lengra er haldið er ástæða til að geta þess að ritgerð sú sem hér verður fjallað um er fyrst til birtast í nýrri ritröð Bókmennta- fræðistofnunar sem fengið hefur nafnið Ung fræði. Þar verða fram- vegis birtar framúrskarandi lokarit- gerðir í bókmenntum við Háskóla Islands. Óhætt er að fullyrða að hér sé vel að verki staðið bæði í útliti og innihaldi og verður vonandi fram- hald á því. Einnig vill gagnrýnandi koma því á framfæri að samning þessa ritdóms hefur dregist úr hömlu og biðst hann velvirðingar á því. Getur verið að listin sé hluti af hinu illa, að hún beri í sér óreiðu sem vinni gegn skynsemi og skipu- lagi guðs og valdi merkingarhruni hins „sanna“ og „hreina“ heims? Ef svarið við þessari spurningu væri jákvætt og í anda heimspekingsins Platons: að listin væri andstæða skynseminnar og ætti ekkert erindi í fyi'irmyndarrikinu - þá væri hún í hlutverki líkamans sem ógnar stjórn hugans og hýsir hið órök- ræna, synduga og dýrslega: allt það sem leiðir manninn af réttri braut sannleikans og guðs, gi-efur undan vissu hans og villir honum sýn. (KV: 71-73) Umræðan um listaverkið og skáldskapinn, hlutverk listarinnar, stöðu listamannsins og höfundarins í heiminum setur lifandi mark sitt á Að leita sjálfs sín í öðrum þá umfjöliun og grein- ingu sem birtist í rit- gerð Kristínar Viðars- dóttur um skáldsögur Vigdísar Grímsdóttur. Umræðan sem vitnað er til hér að ofan er sótt í einn frjóasta hluta ritgerðarinnar: um Stúlkuna í skógin- um (1992) og til að ljúka henni í bili er ekki úr vegi að vitna aftur til orða Kristínar þegar hún (þ)ræðir saman af kunnáttu kenningar Platons og Juliu Ki'istevu um hlutverk listarinnar. Platon taldi listina hefta þroska mannsins og áleit hana leik sem ekki bæri að taka alvarlega, meðal annars vegna þess að hún gerði til- finningum of hátt undir höfði. A hinn bóginn lítur Kristeva á listina „sem birtingarmynd hvata og þrár sem séu óhjákvæmilegir hlutar af sjálfsveru mannsins en menningin leitist við að bæla og þá ekki síst í tungumálinu." (KV:72) í ritgerð sinni beinir Ki-istín sjón- um sínum að þremur eftirtöldum skáldsögum Vigdísar Grímsdóttur: Ég heiti ísbjörg Ég er ljón (1989), Stúlkan í skóginum (1992) og Grandavegur 7 (1994). Að auki dregur hún vissa þætti úr fyrstu verkum Vigdísar, Tíu myndir úr lífi þínu (1983), Eldur og regn (1985) og Kalda- ljós (1987) inn í umfjöll- un sína. Aðferð hennar er fólgin í því að tengja saman texta þessara verka, skapa samræðu þeirra á milli með það að markmiði að skýra þá hugmyndalegu þró- un sem á sér stað frá verki til verks. Einkum er athyglinni beint að „innri heimi“ aðalper- sóna og hvemig þeim tekst eða tekst ekki að greina sig frá eða fella sig að hinum „ytri heimi“ sagnanna. Heiti ritgerðarinnar er einmitt sótt í þessar móthverfur: til stúlkna í inn- heimum sem loka sig af, „skapa sér kima eða sérheim sem þær geta horflð til [og] upplifa sig heilar, þar staðfesta þær tilveru sína [. . .] þar sem manneskjan kemst út fyrir lík- amlega tilveru sína og þær skorður sem henni eru settar í mannlegu samfélagi." (KV:12-13). Ennfremur segir Rristín: Verk Vigdísar Grímsdóttur fjalla gjarnan um persónur sem skera sig úr fjöldanum og eru á jaðri samfé- lagsins í einhverjum skilningi, utan- garðsfólk og einfara sem eiga ekki eða telja sig ekki eiga samleið með öðru fólki. Þannig er Grímur í Kaldaljósi ofurnæmur og viðkvæm- Kristín Viðarsdóttir ur listamaður sem fer sínar eigin leiðir og fellur að lokum saman við myndheim sinn, ísbjörg er „öðru- vísi“ en annað fólk [. . .] í stöðugri uppreisn [...] samhliða því sem hún reynir á öivæntingarfullan hátt að standast þær kröfur sem gerðar eru til hennar, og Guðrún í Stúlkunni í skóginum er utangarðsmanneskja [...] líkamlega fötluð og „afbrigði- leg“ í útliti og litin hornauga af sam- ferðafólki sínu. [...] Einfríður, aðal- persóna Grandavegar 7, sker sig einnig úr því hún sér það sem aðrir sjá ekki; hún er skyggn stúlka sem ferðast um í fylgd látinna íbúa húss- ins að Grandavegi 7. (KV:12) I greiningu sinni á sögum Vigdís- ar beitir Kristín þeirri póst- módernísku aðferð að skoða og skil- greina „textann“ sem hluta af lif- andi neti texta þar sem engin ein „rödd“ eða merking er yfirskipuð heldur tjáir textinn margradda veruleika óháð viðhorfi eins höfund- ar eða skapara. Textann má þannig skilja sem „lífrænt" fyi-irbrigði sem kallast stöðugt á við aðra texta í sögum Vigdísar og utan þeirra, vís- ar til og sækir sér efni og hugmynd- ir í aðrar bókmenntir, og annan vei-uleika. Með þessari aðferð skap- ar Ki'istín Viðarsdóttir frjóa sam- ræðu við sögur Vigdísar Grímsdótt- ur. Hún les með textanum, hefur sig yfir hann, skyggnist undir yfirborð- ið, kafar ofan í hann og kemst ansi langt inn að kjarnanum - ef til vill í líkum tilgangi og sögupersónur Vig- dísar: „að leita sjálfs sín í öðrum.“ (KV:105). Að minnsta kosti er um- fjöllun hennar, gi-eining og túlkun glögg og ber jafnt vott um öguð, ná- kvæm og vísindaleg vinnubrögð og lifandi og frjóa sýn á innihald verk- anna. Jón Özur Snorrason Nýjar bækur Sögur af villtum íslenskum dýrum • VARGATAL er eftir Sifrfús Bjartmarsson. I bókinni er brugðið upp mynd af íslensku vörgum og sagðar sögur af harðneskjulegu lífi þessara dýi'a: Hvíta- björn, valur, minkur, brandugla, tófa, svart- bakur, landselur, útsel- ur, kjói, hrafn, smyrill, skúmur, haförn, há- hyrningur, sílamáfur, brúnrotta, snæugla. í kynningu segir: „Sigfús Bjartmarsson hefur lengi verið í fremstu röð íslenskra Sigfús Bjartmarsson rithöfunda og hefur áður sent frá sér smá- sagnasafn, ljóðabæk- ur og þýðingar. Þetta er kjörgi'ipur fyrir alla unnendur ís- lenski'ar náttúru, veiðigarpa og þá sem kunna að meta ís- lenska frásagnarlist." Útgefandi er bóka- útgáfan Bjartur. Bók- in er 180 bls., prentuð í prentsmiðjunni Gu- tenberg. Kápugerð annaðist Snæbjörn Arngrímsson. Verð er 3.280 kr. Kunnar persónur lifna á ný • ALDREI að vita! er barnabók eftir Guð- rúnu Helgadóttur. Aðalpersónur sþg- unnar, þau Eva, Aki og Ari Sveinn, eru lesend- um að góðu kunnar úr fyrri bókum Guðrúnar, Ekkert að þakka! og Ekkert að marka! Að þessu sinni fara krakk- arnir í heimsókn út á land þar sem þeir kom- ast á snoðir um gi-un- samlegar mannaferðir í kringum slysavarna- skýli. Áður en þeir vita af eru þeir lentir í æsispennandi ævintýrum um miðjar nætur. Guðrún Helgadóttir hefur um árabil verið einn vinsælasti barna- bókahöfundur landsins og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, bæði hér heima og erlend- is, þar á meðal Nor- rænu barna-bókaverð- launin. Bækur hennar eru hátt í tuttugu tals- ins og hafa verk henn- ar verið gefin út víða um lönd. í kynningu segir: „Aldrei að vita! hefur allt sem prýða má góða sögu: atburðarásin er spennandi, uppá- komurnar spaugilegar og persónurnar lifandi. Það gengur á ýmsu hjá Evu, Áka og Ara Sveini og það er aldrei að vita hvað gerist, því hugmyndaríkum krökkum dettur margt í hug.“ Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er 120 bls., prentuð í Noregi. Myndir í bókinni eru eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur sem einnig hannaði bókarkápu. Verð: 1.980 kr. Sveinn Einarsson „Orlögin eru stundum undarleg“ BÆKUR Viðíalshok LÍFSGLEÐI VII Frásagnir og minningar. Þórir S. Guðbergsson. Viðmælendur: Halldór S. Gröndal, Jóna Rúnar Kvaran, Rannveig Böðvarsson, Róbert Arn- finnsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. 167 bls. Ljósmyndir: Nærmynd, Reykjavík, Prentvinnsla Oddi hf. Hörpuútgáfan 1998. GÓÐVILD og umburðarlyndi virðast áberandi hjá viðmælendum Þóris S. Guðbergssonar í bókinni „Lífsgleði“ sem er ný- komin út hjá Hörpuút- gáfunni. Viðmælendur eru fimm og eiga það sam- eiginlegt að í frásögn- um þeirra felst hug- þekk lífsskoðun, sem getur verið lærdómsrík lesendum á öllum aldri. Áföll og sorgir hafa mætt hverjum og ein- um þótt í ólíkum mynd- um sé. Aðstæður í bernsku hafa verið ólíkar: „Við komum bæði úr brostn- um aðstæðum,“ „Allt frá bernsku- og æskuár- um blasti lífið við mér sem seiðandi og ögi-andi afl.“ Svo ólík geta spor- in til manndómsáranna verið. Mikil trú á mátt bænarinnar og guðlega handleiðslu varpar sterk- um, hugljúfum blæ á frásögn: „Bænin er mikill leyndardómur og getur verið dásamleg trúarreynsla sem á stundum er á mörkum hins yfirnáttúrlega." Hin mikla örlagatni þjóðarinnar blandast víða í frásagnir: „Það er enginn vafi á því að við áttum að mætast og vinna saman úr ákveðn- um þáttum tilveru okkar.“ Viðhorf viðmælanda til hinna öldruðu og lífsreyndu, sem voru þeim sam- ferða á bernsku- og æskuárum ber hér að sama brunni: „Amma var hlý í viðmóti og veitti mér mikið ör- yggi og gott athvarf." Lífssýn byggist á visku, þegar horft er til baka: „Hamingjan er ekki eingöngu fólgin í velgengni, hún fæst oft með erfiðri fjallgöngu þar sem ekki er æðrast en haldið áfram á brattann eða með þreng- ingum sem við komumst í gegnum og sigrumst á.“ Þótt lífsafkoma og skilyrði til þátttöku í spennandi lífi, sem eykur víðsýni og hamingju, lýsi upp sum viðtölin í byrjun, dregur ský fyrir sólu fyrirvaralaust. „Mér var skyndilega kippt út úr hi'ingiðu mann- lífsins." Að mati lesanda eru þessi viðtöl líkleg til þess að vekja til vitundar um það hve höfundur tilveru beit- ir miklum jöfnuði þegar ástvina- missir og lífsreynsla eru annars vegar. Enginn verður þar útundan. Þetta er sjöunda viðtalsbók Þór- is S. Guðbergssonar í bókaflokkn- um „Lífsgleði“. Þær hafa allar sannað gildi sitt. Hönnun og frá- gangur eru til fyrirmyndar. Jenna Jensdóttir Þórir S. Guðbergsson. Nýjar bækur • GEFÐU mér veröidina aftur - Um sjálfsævisöguleg skrif íslend- inga á átjándu og nítjándu öld með hliðsjón af liugmyndum Michels Foucault er eftir Eirík Guð- mundsson. Bók- in er 55. bindi í ritröð Bók- menntafræði- stofnunar Studia Islandica, en rit- stjóri er Vé- steinn Ólason. Bókin fjallar um ólík viðhorf til sjálfs og heims eins og þau birtast í íslenskum sjálfsævi- sögum og bréfum á átjándu og nítj- ándu öld. Eru textamir einkum skoðaðir í ljósi greiningar Michels Foucault á sjálfsveru mannsins og sögu þekkingar. I kynningu segir: „Túlkun mannsins á sjálfum sér og heimin- um tekur róttækum breytingum á þeim fáu áratugum sem skilja að meinlæti Jóns Steingrímssonar og nístandi efa Konráðs Gíslasonar. Líf Fjölnismanna einkennist frem- ur af grun en vissu, eins og eitthvað hafi glatast eða orðið úti. Tungu- málið kemur upp á milli manns og heims. Mannhverf hugsun nútím- ans jafnt sem kristin sjálfsafneitun og píslarvætti setja mark sitt á það hvernig maðurinn breytir lífi sínu í texta.“ Eiríkur Guðmundsson er með MA-próf í íslenskum bókmenntum og er bókin unnin upp úr lokaverk- efni hans við Háskóla íslands. Útgefandi er Bókmenntafræði- stofnun Háskóla íslands og Há- skólaútgáfan. Bókin er208 bls. með ágripi á ensku. Verð: 2.100 kr. • RIST í' mold og mar eru æviminningar Ragnars Þorsteins- sonar skipstjóra, bónda og rithöf- undar en han er nýlátinn. I kynningu segir: „Æviminningar Ragnars Þor- steinssonar greina frá harðri lífsbaráttu og miklum kjarki óvenjulegs manns. Átta ára tekur Ragnar að vinna fyrir sér hjá vandalausum. Sextán ára er hann orðinn erf- iðismaður á ísa- firði, þar sem hann tekur þátt í að sjá stórum systkinahópi farborða. Senn hefst viðburðaríkur sjómennsku- og skip- stjórnarferill, sem ekki linnir fyrr en hann, árið 1943, kaupir jörðina Höfðabrekku í Mýrdal og lætur gamlan draum um að yrkja jörðina rætast. Þá hefst nýtt tímabil, sem lýsir linnulausri baráttu við óblíð náttúruöfl, ekki síst stórfljót og sanda Suðurlands, en höfundur var um árabil fonnaður björgunai'sveit- ar SVFÍ í Vík. Sextugur bregður hann búi og tekur að njóta lífsins í ríkum mæli. Hann kvænist æskuást sinni, hefur eigin útgerð og ferðast til 40 landa.“ Ragnar Þorsteinsson er höfundur fjölda bóka, skáldsagna, ljóða og barnabóka. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 295 bls., prentuð í Singapore. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Verð: 3.480 kr. • FÓRNFÚS ást er eftir Bodil Forsberg í þýðingu Skúla Jenssonar. í kynningu segir að höfundur sé löngu kunnur fyrir bækur sínar sem einkennast af hraða, spennu og ást. Ung stúlka neyðist til að flýja föðurland sitt. Á flóttanum verður hún fyrir voðaskoti og missir sjónina. Hún þarf að berjast við myrkrið og óttann sem umlykur hana hvert sem hún fer. Hún lifír fyrii' vonina um að fá sjónina aftur. Sá sem elskar hana veit að hún er ætluð öðrum. Útgefandi er Hörpuútgáfan á Akranesi. Bókin er 182 bls., prentuð í Odda hf. Verð: 2.180 kr. Eiríkur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.