Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 8

Morgunblaðið - 17.11.1998, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Lífíð heldur áfram ÞAÐ sem enginn sér er nýút- komin bók Gunnhildar Hrólfs- dóttur. Aðalsögupersónurnar eru tveir krakkar á þrett ánda ári, þau Laufey og Benni, sem eiga heima í blokk í Breiðholt- inu. Hér er á ferð ellefta bók Gunnhildar fyrir börn og ung- linga og að þessu sinni tekur hún á erfiðum málum eins og kynferðislegri misnotkun, óreglu á heimili og föðurmissi. „Þetta eru viðkvæm og erfíð mál en eins og kemur fram í sögunni má þó leysa þau með góðum vilja og sameinuðum kröftum,“ segir hún. Við vinnslu bókarinnar naut Gunnhildur aðstoðar starfs- manna Stígamóta og Unglinga- athvarfs, kennara og annars fagfólks. „Mig langaði til að lyfta þessu aðeins upp, vegna þess að lífið heldur áfram og við höfum alltaf einhver spil eftir á hendi sem við verðum að spila úr. Samt sem áður er ekki hægt að þurrka út upplifunina og lífs- reynsluna, þannig að þá er auð- vitað mjög mikilvægt að hafa fagfólk sem getur stutt,“ segir hún. „Með þessu langar mig til að benda unglingum á að það eru til aðrar leiðir, því við höf- um alltaf einhver spil á hendi.“ Aðspurð segir Gunnhildur að bókin fjalli um tilfinningar, hún reyni að skyggnast undir yfir- borðið og gefa innsýn í líf þeirra Laufeyjar og Benna þar sem skiptist á skin og skúrir. Boðskapurinn sé fyrst og fremst sá að lífið haldi áfram þrátt fyr- ir erfiðleika og í raun og veru geti manneskjan ráðið miklu um það sjálf, jafnvel þó að hún sé barn eða unglingur. Að undanförnu hefur Gunn- hildur farið um og lesið upp úr bók sinni fyrir fólk og segist hún hafa fengið gríðarlega mik- il viðbrögð. „Það eru svo margir sem koma til mín og spyija hvort þeir megi aðeins tala við mig. Svo kemur bara frásögn beint frá hjartanu,“ segir hún og bæt- ir við að margir hafí spurt hvers vegna ekki hafi verið skrifuð svona bók fyrir löngu. „Það er ýmislegt sem enginn sér.“ Hún segist fá viðbrögð frá fólki á öllum aldri, körlum og konum. „Þetta virðist vekja um- ræðu,“ segir Gunnhildur. Gunnhildur Hrólfsdóttir Ut, hún varð að komast út. Gluggarnir voru lokaðir og reykjar- og áfengisstybba lá eins og þykk ábreiða yfir öllu. Þegai’ hún hugsaði um mat kúgaðist hún. Borgin var að vakna og umferðin að aukast. Án þess að líta á klukkuna klæddi hún sig, tók skólatöskuna, opnaði útihurðina og steig út í nýjan dag. Afmælisdaginn. Frostnæðingur strauk blokkina og hrollur fór um grannan líkama henn- ar þegar hún gekk hægt í áttina til skólans. Enginn var mættur, þögn og kyrrð yfh' lokuðum dyrum svo hún ráfaði út af lóðinni og gekk hægt eftir gangstéttinni. Ekki stíga á strik, ekki stíga á strik. Ein brotin hella, önnur brotin hella, ekki stíga á strik. Hönd hennar sem hélt um skólatöskuna var orðin ísköld og hún sneri við og hélt sömu leið til baka. Ekki stíga á strik, ekki stíga á strik. Hún hímdi í skjóli þar til skólinn var opnaður og var fyrst inn í stof- una. Ur Það sem enginn sér. Nýjar bækur Trú á tækni og framfarir • RAFMAGNS- MAÐURINN - Nú birtir í býlunum lágu er fyrsta skáldsaga Sveins Einarssonar. Undirtitill bókarinnar er sóttur í Vorvísur Hannesar Hafstein frá 1911. Um síðustu aldamót er ungur piltur að vaxa úr grasi austur í Skaftafellssýslu. Hann er settur til mennta og lætur hrífast af fyrir- heitum upprennandi tæknialdar. Hann kemst utan og verður rafmagnsverkfræðing- ur í Berlín. Sögu hans og ferli er lýst í bréfum milli hans og foreldra hans, sem selja ofan af sér kotið svo hann geti lært, milli hans og bernskuvina úr sveit- inni og milli hans og vina sem hann kynnist í námi og starfi í Þýskalandi. En leikur- inn berst líka til Skotlands og Kanada. I kynningu segir að þetta sé saga af alda- mótakynslóðinni sem lifði í þeirri trú að framfarir mannkynsins væru óendanlegar og tæknin myndi þjóna okkur að eilífu. Sveinn Einarsson hefur skrifað um íslenska leiklist og samið nokkur leikrit, s.s. Fjöreggið, Ég er gull og gersemi, sjónleikinn Amlóða sögu og leikritið Dóttir skáldsins sem frumflutt var í Lund- únum sl. vor. Barnasögur tvær hef- ur Sveinn samið, Gabríelu í Portú- gal og Dordingul, en sú fyrrnefnda var verðlaunuð sem besta bamabók ársins 1985. Útgefandi er Ormstunga. Bókin er 288 bls., prentuð hjá Steinholti og Fiatey annaðist bókband. Soffía Árnadóttir hannaði kdpu. Verð er 3.590 kr. Sveinn Einarsson BÆKUR Endiii'minningar STEINGRÍMUR HERMANNSSON Ævisaga I eftir Dag B. Eggertsson. 333 bls. Vaka-Helgafell. Prentun: Oddi hf. Reykjavík, 1998. STEINGRÍMUR Hermannsson var löngum þekktur maður og um- deildur. Ævisögu hans hefur því verið beðið með eftirvæntingu. Hvað segir hann? Og hvað segir hann ekki? Þannig er að vonum spurt. Ef átt er við orð og athafnir á stjómmálaferli sjálfs hans er svars ekki að vænta fyrr en í seinni hluta því að þessu fyrra bindi lýkur við upphaf þess ferils. Það tekur semsé til bernsku og æsku og yngri ára og getur þar með kallast uppvaxtar- saga, saga mótunar og þroska. Steingrímur ólst upp á nægtaheim- ili á tímum kreppu og allsleysis. Margur lét þá baslið smækka sig. En pilturinn naut þess að eiga glæsilegan og valdamikinn föður. Og móðir hans hafði alist upp við öryggi og þar með notið alls hins besta undirbúnings íyrir veglegt húsmóðurhlutverk sem hæfa þótti ungri konu í þá daga. Hún var líka af efnuðum komin, átti sjálf nær þrjátíu þúsund krónur í peningum þegar þau Hermann giftu sig sem þá var stórfé. Og húsgögnin og bús- áhöldin lagði hún sjálf til heimilis- ins. Síst að furða þó þvílíkum eign- um væri haldið á hennar nafni með kaupmála þar sem brúðguminn var eignalaus. Arið 1934 urðu mikil tíðindi hjá fjölskyldunni. Hermann vinnur stórsigur yfir Tryggva Þórhallssyni í Alþingiskosningunum í Stranda- sýslu. Og frami hans varð skjótur. Að kosningum loknum verður hann forsætisráðherra í stjórn hinna vinnandi stétta. Jónas Jónsson frá Hriflu var þá nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins og átti því venju samkvæmt að setjast í það sæti. En svo varð ekki. Jónas var útilokaður. Hver bægði honum frá? Um gang þessara mála segir Stein- grímur: »Alþýðuflokkurinn brást vel við hugmyndum um stjórnarmyndun en hafnaði því hins vegar algerlega að Jónas yrði í forsæti.« Hér er af- dráttarlaust að orði kveðið. Víst er þó að ekki stóðu kratar einhuga að þessari höfnun, samanber ævisögu Hagalíns, Þeir vita það fyrir vestan. Skipulagður og sigurviss Steingrímur Dagur B. Hermannsson Eggertsson Því hefur oft verið haldið fram, einkum manna á meðal, að Her- mann og Eysteinn hafi haft í frammi leynileg bolabrögð gegn Jónasi, beðið krata að hafna forsæti Jónasar. Aldrei hefur sú skoðun þó fengist staðfest né heldur mun hún vera á rökum reist. Allt um það olli þessi fræga stjórnarmyndun sár- indum og síðar klofningi. Alllöngu síðar, þegar Jónas var horfinn úr flokknum, varð honum tíðrætt um Hermann og vandaði honum síst kveðjurnar. Þótt Steingrímur fari fögrum orðum um hæfileika Jónas- ar sýnist ekki örgrannt að hann taki nú upp þykkjuna fyrir fóður sinn. »Varla verður fundinn ófyrirleitnari andstæðingur en Jónas,« segir hann til dæmis. Það eru þung orð. Og nafngiftin Hriflu-Jónas, sem kemur fyrir nokkrum sinnum? Var hún ekki aðeins viðhöfð í niðrunarskyni af andstæðingum Jónasar meðan hann var og hét? Nú ber flestum saman um að Jónas hafi verið bæði ráðríkur og skapmikill auk þess sem hann var eldheitur hugsjónamaður. Líkast til eru þeir eiginleikar ekki sem heppi- legast veganesti fyrir stjórnmála- mann. En miklu réð hann meðan völd hans voru mest. Meðal annars því að Hermann og Eysteinn urðu það sem þeir urðu! Það viðurkennir Steingrímur. En stöldrum sem sagt við árið 1934 þegar Hermann sest í valda- stólinn og fjölskyldan flyst í Ráð- herrabústaðinn við Tjarnargötu. Næstu árin eru stjórnmálin samofin heimilislífinu. Róðherrasonurinn er orðinn sex ára og tekur að festa í minni fólk og atburði. »í æsku minni var mamma skjólið en pabbi hetjan,« segir hann. Hermann var vel að manni, og meir en svo, lands- frægur glímukappi. »Ég varð vitni að því þegar pabbi og gestkomandi lögregluþjónn reyndu með sér í jafnfætis-stökki upp á ríkisstjórnar- borðið í Stjórnarráðinu,« segir Steingrímur. Og ráðheiTasonurinn mátti sjálfur bregða á leik með vin- um sínum í virðulegasta húsi lands- ins: »Feluleikir fóru fram um allt hús og stráka mátti finna uppi á hanabjálka, ofan í kjallara eða undir hjónarúmi foreldra minna.« Það var ekki fyrr en þeir tóku að fela sig í fataskápnum bak við samkvæmis- kjóla ft'úarinnar að hastað var á ólátabelgina! Alvara lífsins var enn fjarri. Lex- íuna þá fékk pilturinn síðar í bréfi frá föður sínum, þá kominn vestur um haf (skáletrað í bókinni): »Lífið hefur aldrei verið og verður ekki - þess dæmi eru ljós nú - neinn leikur heldur barátta og þeir, sem ekki skilja það í tíma, verða undir.« Nógu kappsamur og fylginn sér var ungi ráðherrasonurinn. En hann var jafnframt ærslafenginn og upp- átækjasamur og leiksvæðin voru jafnt kjallari hússins, ef ekki húsið allt, Tjörnin og næstu götur og garðar. Leikfélaganna minnist Steingi'ímur hlýlega, lýsir þeim eins og þeir voru þá og getur þess einnig hvað um þá varð síðar. Vorið 1940 hófst stríð og hernám. Það kom í hlut föður hans að mótmæla land- göngu breska hersins sem Stein- grímur segir að haft hafi lítil áhrif á sig. Nokkru síðar hvarf faðir hans úr ráðherrastóli. Fjöiskyldan flutt- ist úr ráðherrabú- staðnum, unglingurinn gekk fyrh' gafl og sett- ist í menntaskóla og þar með hófst í raun annar og annars konar kapítuli í lífshlaupinu. Menntaskólakafl- amir eru í raun skemmtilegasti hluti bókarinnar. Stein- grímur minnist áranna þar með sól í sinni. Hann þurfti engan að öfunda, honum gekk vel í náminu, hann eignaðist góða vini og féll vel við rektor og kennara. Að lokum var hann kosinn inspector scholae með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða. Kveður hann vináttuna frá ámnum þeim hafa enst mun betur en kunningskap þann sem stofnað var til í pólitíkinni löngu síðar. Á sumrin var hann í vegavinnu norður á Stóra-Vatnsskarði undir stjórn Jóhann Hjörleifssonar. Jóhanns hefði hann mátt minnast nánar því hann var landskunnur eins og aðrir vegaverkstjórar á þeim árum; mik- ils háttai’ maður í sjón og raun. Að stúdentsprófi loknu hélt Steingrímur til náms í Bandaríkjun- um og dvaldist þar næstu árin. Mjög reyndi sú dvöl á þolgæði hans um það er lauk og dró síðan langan slóða persónulegra erfiðleika. Heim kominn hóf hann svo störf sem tengdust verkfræðimenntun hans en tók jafnframt smásaman að fikra sig í átt til stjórnmálanna. Hann minnist vinstri stjórnarinnar 1956- 58 sem faðir hans veitti forstöðu. Hann minnist samtaka ungra fram- sóknarmanna og átakanna í þeim herbúðum. Þetta voru tímar upp- gjörs og deilna. Nokkrum árum seinna kom t.d. fram harðsnúinn hópur ungra flokksmanna, Möðru- vellingar svo kallaðir. Þeir munu flestir hafa verið pólitískir farfuglar sem tylltu sér á stefni Framsóknar- skútunnar á leið sinni til hærri met- orða hjá öðrum flokkum þar sem betri tækifæri buðust. Sem ungum manni og upprennandi var Stein- grími boðið þriðja sætið á flokkslist- anum á Vestfjörðum. Ekki leist honum á það. Syni fyrrverandi for- sætisráðheiTa þótti lítt sigurstrang- legt að láta þannig skipa sér í eitt- hvert varalið! En þarna steig sögu- hetjan í raun inn fyrir þröskuld Is- landssögunnar. Frá framhaldi þess verður væntanlega sagt í siðara bindi. Þótt þetta sé persónusaga fyrst og fremst gengui' pólitíkin eins og blá- þráður í gegnum fi’ásögnina. Einkalíf sögumanns! Varla getur það talist merkilegi'a en annarra. En landslag stjómmálanna, sem hvarvetna blasir við í bakgrunni, lyftir sögunni til þess sem hún er. Sá hlutinn skarast við sögu þjóðarinnai'. Það er mergurinn málsins. Til hennar verður vitnað þegar stundh' líða. Það hefur höfund- urinn sýnilega gert sér ljóst. Þess vegna hefur hann vandað til verksins eins og kostm- var. Tilvitnanh- eru margar og heimildaski’ái' ítarlegar. Og þeir sem lásu yfir handrit og leið- beindu eru, samkvæmt því sem segir í eftirmála, flem en talið verði á fingrum sér, miklu fleh-i. Höfundur- inn, sem sýnist vera gæddur prýði- legu sjálfstrausti, hefur því gert sér fullijóst að eftir þessari bók yrði tek- ið! Skemmtigildi er svo sér á blaði og algerlega einstaklingsbundið. Ef undirritaður á að lýsa skoðun sinni þá er hún þessi: Bókin er notaleg af- lestrar og næsta áhugaverð, einkum hvað stjómmálasöguna áhræm-. Myndirnai-, margai1 og fjölbreytileg- ar, minna á að sögumaður hefur oft og víða staðið í sviðsljósinu, um- kringdur fólki. Að öðru leytinu kynnir hann sig sem hlédrægan mann og iðjusaman, unnanda ljóða og óspilltrar náttúru. Og löngum stundum hefur hann unað sér við hefilbekkinn með verkfæri í hendi! Steingrímur er ekki fullkominn. En hann er sennilega engum líkur! _ Að lokum smáathugasemdir: í texta og nafnaskrá er farið rangt með nafn Páls Eggerts Ólasonar; hann er sagður Ólafsson. Á bls. 102 segir frá einhverjum Sveinbirni: »Eg fór í íslenzkutíma hjá Svein- birni.« Ekki er auðráðið hver sá Sveinbjörn er og ekki er hans getið í nafnaskrá enda þótt þar séu að sönnu Sveinbirnir tveir. Erlendur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.