Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.12.1998, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA c 1998 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER BLAÐ Thompson setti tvö heimsmet JENNY Thompson, sundkona frá Bandaríkjunum, setti tvö heimsmet á heimsbikarmóti sem lauk í Texas í gær. Fyrst í 100 metra flugsundi er hún synti á 56,90 sekúndum en gamla metið átti hún sjálf, 57,97 sek., frá því á móti í Stokkhólmi 1997. Hún synti 100 metra skriðsund á 53,53 sek., og bætti heimsmetið um 0,46 sekúndur. Eldra metið var 53,99 sek. og það setti þýska stúlkan Birgit Meineke fyrir rúmlega ellefu árum. Þá bætti hún eigið landsmet í 50 metra flugsundi, synti á 26,05 sekúndum. Thompson er 25 ára og er að hefja undirbúning fyrir Ólympíuleikana íSydney árið 2000. Hún á fimm gullpeninga frá Ólympíuleikum og virðist ætla að íjölga þeim eitthvað í Ástralíu ef marka má þennan frábæra árangur hennar. „Þetta hefur verið ólrúlegt mót og árangurinn segir að æfingarnar hafi gengið vel,“ sagði Thompson. KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR ÞESSI skemmtilega mynd var tekin er Galatasaray og Juvent- us mættust í Meistara- deild Evrópu í Istanbúl á miðvikudagskvöldið. Rúmeninn Gheorghe Hagi (10) er búinn að taka aukaspyrnu, Leikmenn Juventus sem mynda „múr“ fyr- ir framan hann eru Antonio Conte (8), Jacelyn Bianchard, Fil- ippo Inzaghi, Zinedine Zidane og Paolo Montero. Ekki tókst Hagi að skora úr auka- spyrnunni, leiknum lauk með jafntefli 1:1. AKreð til Magdeburg Alfreð Gíslason, þjálfari Hameln í 2. deild í Þýskalandi hefur verið ráðinn þjálfari þýska handboltastór- veldisins Magdeburg. Hann tekur við liðinu eftir líðandi keppnistímabil og er samningurinn út tímabilið 2001. Margir þjálfarar voru kallaðir, þar á meðal Georgi Swiridenko, sem varð Ólympíumeistari með rússneska landsliðinu í Seoul 1988 og nú þjálfari 2. deildar liðsins Spandau í Þýska- landi, Sead Hasan, þjálfari Pivovama Celje í Slóvaníu og Velimir Kljaic, landsliðsþjálfari Króatíu, en félagið vaidi Alfreð og verður hann með í ráðum þar til hann tekur við í vor. „Þetta hefur verið að þróast undan- farnar vikur en nú hefur verið gengið frá öllum smáatriðum og aðeins á eft- ir að skrifa undir,“ sagði Alfreð við Morgunblaðið. „Ég er mjög ánægður með að fá þetta tækifæri og þótt því fylgi gífurlegt álag er það skemmti- legt álag. Þegar WassiH Kudinow meiddist hjá okkur í fyrra hrundi allt og við féllum en hjá Magdeburg er mjög stór og sterkur hópur, mikil breidd og mikil barátta um stöður.“ Magdeburg hefur verið í hópi efstu liða í Þýskalandi undanfarin ár en ekki náð takmarkinu. „Ávallt hefur vantað herslumuninn og mér er ætlað að ná honum en allir vita að sam- keppnin er mikil og ekkert er sjálf- gefið í þessu,“ sagði Alfreð. Lands- liðsmaðurinn Ólafur Stefánsson leik- ur með Magdeburg en fyrir líðandi tímabil gerði hann samning til þriggja ára við félagið. Alfreð sagði að hann yrði áfram og bætti við að þótt hópurinn væri öflugur yrði hann styrktur fyrir næsta keppnistímabil. „Þegar er frágengið að markvörður- inn Christian Gaudin fari með mér frá Hameln og síðan eru tveir aðrir leikmenn sem áhugi er að fá en ekki er tímabært að nefna nöfn.“ Alfreð tók við Hameln í íyrrasumar og er með liðið á toppnum í norður- riðli 2. deildar. Efsta liðið fer beint upþ en liðið í öðru sæti leikur um sæti í 1. deild. „Þetta er barátta tveggja liða en markmiðið er að koma liðinu upp áður en ég flyt til Magdeburgar þar sem ég á spennandi verkefni fyrir höndum." Reuters samdi við Blackburn BRIAN Kidd var í gær ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvals- deildarliðsins Blackburn og skrifaði hann undir samning sem gildir út júní 2002. Kidd tekur við af Roy Hodgson, sem var látinn fara eftir að liðið tapaði heima fyrir Sout- hampton en við tapið fór Blackburn í neðsta sæti deild- arinnar. Kidd hefur verið aðstoðar- maður Alex Fergusons hjá Manchester United síðan í ágúst 1991, en hann hóf feril- inn hjá United og skoraði m.a. í 4:1 sigri á Benfica í úrslita- leik Evrópukeppninnar á 19 ára afmælisdegi sínum 29. inaí 1968. „Ég er ánægður með að Brian tók tilhoði okkar því við vilduin helst fá hann,“ sagði Jack Walker, eigandi Black- burn. Manchester United vildi ekki sleppa Kidd og Ferguson sagði að félagið missti mikið ef hann færi. Hann vildi ræða við Blackburn, gerði það að fengnu leyfi í gær og ekki þurfti lang- an tíma til að ná saman. Blackburn mætir Charlton á inorgun og sér Tony Parks um undirhúninginn og stjórnina í leiknum en Kidd verður kynnt- ur fyrir stuðningsmönnum fyr- ir leik og hann mætir á blaða- mannafund að leik loknum. Jolin Williams, framkvæmda- stjóri Blackburn, sagði að mikl- ar væntingar væru gerðar til Kidds. „Hann hefur mikla reynslu, er ákafur og færir okkur vonandi mörg stig.“ Brían Kidd HANDKNATTLEIKUR: SÓKNARLEIKUR LANDSLIÐSINS / C2,C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.