Morgunblaðið - 03.01.1999, Page 2

Morgunblaðið - 03.01.1999, Page 2
10 ráð frá Heilsuhúsinu til betri heilsu á nýju ári 1. Hreyfðu þig reglulega. Reyndu á líkamann minnst 3 x í viku 20 mínútur í senn. Notaðu hugmynda- flugið og reyndu eitthvað nýtt. Við stingum upp á sundi, afríkönskum dönsum, tennis, skokki, yoga, kín- verskri leikfimi, borðtennis, badminton eða einfaldlega röskum göngutúrum. 2. Endurskoðaðu mataræðið. Dragðu úr kaffineyslu. Nú er í boði fjöl- breytt úrval af jurtatei sem getur kom- ið í staðinn fyrir kaffi, einnig Ijómandi gott kaffilíki eins og Bambu. Prófaðu þig áfram. Auktu neyslu á grænmeti, ávöxtum og fiski. Hvernig væri að prófa baunir? Við erum með upp- skriftabæklinga sem gefa þér góðar hugmyndir. Minnkaðu neyslu á kjöti, harðri fitu og sykri. Það hefur hjálpað mörgum sem vilja minnka sykurneyslu, að taka cromium picolinate. Það jafnar blóðsykur og heldur sykurátsskrímslinu í skefjum. 3. Dekraðu við húðina. Burstaðu húðina á hverjum degi. Með því örvar þú blóðrásina, sogæðakerfið og vinnur gegn appelsínuhúð. Farðu í bað með jurtabaðolíu eða ilmolíum og berðu svo á þig gott húðkrem. Heilsu- húsið er með mikið úrval af vönduðum jurtasnyrtivörum. Þetta ættu karlmenn líka að athuga, því hvaða kona fúlsar við stinnum og silkimjúkum karlmanni. 4. Drekktu vatn. Það hjálpar líkamanum að hreinsa sig og er mjög gott fyrir húðina. Hafðu flösku af vatni hjá þér í vinnunni. 5. Taktu vítamín. Rannsóknir sýna, að jafnvel þegar heil- brigt fólk sem sýnir engin einkenni vítamínskorts tekur fjölvítamín, minnka tilfelli smitsjúkdóma hjá því stórlega. Ef þú reykir þarftu meira C-vítamín. Einnig væri gott fyrir þig að taka önnur andoxunarefni, svo sem beta-karótín, E-vítamín og selen. 6. Brostu. Notaðu hvert tækifæri til að brosa og hlæja því þá framleiðir líkaminn endor- fín. Endorfín styrkir ónæmiskerfið, ver þig gegn sýkingum og er sársauka- deyfandi. Hugsaðu jákvætt því það hefur áhrif á líkamlega líðan þína. Sum- ir segja kímnigáfuna vera 6. skilningar- vitið. 7. Slakaðu á og sofðu vel. Að kunna að slaka á er lífsnauðsynlegt til að geta notið lífsins. Hraði og streita nútímalífs er líkama okkar óholl og veikir ónæmiskerfið. Finndu út við hvernig aðstæður þú slakar best á. Farðu t.d. í heitt bað með baðolíu, við kertaljós og Ijúfa tónlist. Hitaðu þér góðan tebolla og lestu bókina sem þú varst búin að hlakka svo mikið til að lesa. Reyndu að fara fyrr að sofa, lík- aminn þarf hvíld. Ef við fáum ekki nægan svefn, kemur það niður á heils- unni fyrr eða síðar. 8. Víkkaðu hugann. Farðu á námskeið eða lestu bók um eitthvað sem þú þekkir lítið sem ekkert. ( dag er boðið upp á ótal námskeið í nánast hverju sem er. Heilsuhúsið er með heilmikið úrval af bókum um heil- brigða lífshætti. 9. Nýttu birtuna til útiveru. Þar sem dagsbirtu nýtur svo stutt hér á norðurhveli á þessum árstíma, þurfum við að vera meðvituð um að nýta okk- ur hana til útiveru. Dagsbirta er nauð- synleg líkamanum til framleiðslu á D-vítamíni og vinnur gegn skammdeg- isþunglyndi. Þar sem þorri þjóðarinnar vinnur úti á meðan bjart er, þarf að nýta helgarnar þeim mun betur. 10. Sýndu væntumþykju. Faðmaðu þína nánustu, því það er hollt fyrir líkama og sál. Fáðu þér góða nuddolíu og bjóddu maka þínum nudd. Það eflir kærleika og samkennd og gef- ur báðum aðilum andlega og líkamlega næringu. □ Ólífuolía er afbragð ví aðgengilegri sem hinar ólíklegustu matvörutegund- ir verða, þeim mun meiri verða kröfurnar. Segja má að þær gangi aðallega í tvær áttir. Annars vegar er krafan um sem ódýrastar vörur sem hefur verið mjög áber- andi og skiptir enda sköpum fyrir barnmargar fjölskyldur og önnur fjölmenn heimili. í allt aðra átt ganga kröfur þeirra vandlátu sæl- kera sem tilbúnir eru að greiða mun hærra verð fyrir vörur sem taka öðrum fram í gæðum. E.t.v. er hinn mikli munur á ódýrri vöru og þeirri sem hærra er verð- lögð einna greinilegastur á léttvín- um. Erlendis má víða kaupa ódýr- ustu vín fyrir um kr. 100,- flöskuna, en vandaðri vín nálgast það verð sem ódýrasta léttvín kostar hér- lendis. Sé um verulega góð vín að ræða getur verðið hlaupið á þús- undum króna fyrir flöskuna. Til að leiðbeina almenningi um gæði vandaðri vína, eru gefnar út bækur sem fjalla skipulega um þau og gefa þeim einkunnir. Til eru matvörutegundir sem lúta svipuðum lögmálum og vínin. Ein er sú sem hvað mestrar hylli nýtur hjá sælkerum víðast hvar, en það er ólífuolía. Ólífan er einhver mikil- vægasti ávöxtur landanna um- hverfis Miðjarðarhafið. Hún er not- uð heil eða maukuð, ein sér eða í margvíslegum réttum. Tilbrigði við ólífuna í matargerð eru raunar ó- tæmandi. En sú afurð ólífunnar sem mestri útbreiðslu hefur náð er ólífuolían. Olían skiptist aðallega í tvo hópa. Annars vegar er venjuleg olía á lágu verði, sem yfirleitt er framleidd af stórum fyrirtækjum í miklu magni, þar sem lágt verð skiptir höfuðmáli. Hins vegar er : svonefnd Extra Jómfrúar ólífuolía (Extra Virgin Oil), kaldpressuð olía ! með sýrustigi undir 1 %. Ólífutréð hefur fylgt manninum i árþúsundir og um þetta sígræna : siifurgljándi tré hafa spunnist sagn- ir og þjóðsögur. Þegar grísku guð- irnir deildu um yfirráð yfir ákveðnu svæði, ákvað Seifur að sá skildi fá stjórnina sem færði íbúunum eitt- : hvað óforgengilegt sem kæmi þeim að sem mestum notum. Aþ- ena sigraði þessa deilu með því að j færa þeim ólífutré sem hún plant- aði, svo að ávöxtur þess mætti veita þeim lífsnauðsynlega nær- ! ingu, en jafnframt vera balsam þeirra til að viðhalda fegurð hör- undsins, smurningsolía við helgiat- hafnir og uppistaða í ilmolíum til hátíðabrigða. ( bók bókanna grein- ir frá því að þegar syndaflóðið rén- aði, hafi Nói sent út dúfu sem kom til baka með ólífugrein til tákns um að líf væri komið í eðlilegt horf á jörðinni aftur. Hefur dúfan með ó- lífugreininni orðið að tákni friðar og Picasso gert þessa táknmynd fræga. Þótt einu ólífutré svipi til annars og allar ólífur séu fyrst grænar en verði svartar með auknum þroska, er olían úr þessum undursamlega ávexti miðjarðarhafslandanna margbreytileg í bragði, lykt og lit. Því ræður tegund ólífunnar, veður- far, jarðvegur, loftslag, uppskeru- tími og ótal aðrir þættir. Endanlegt útslag um gæði olíunnar gerir meðhöndlun við vinnslu hennar. Nú hafa menn tekið sig til og gefið út bók með svipuðum leiðbeining- um um ólífuolíuna og áður hefur tíðkast um vín. Valdar voru 115 bestu ólífuolíurnar frá Grikklandi, Ítalíu, Frakklandi, Spáni og Portú- gal, allt Extra Jómfrúar ólífuolíur framleiddar í heimahéraði ólífunn- ar, þar sem einn aðili fylgist með öllu ferlinu. Yfirleitt koma slíkar ol- íur frá fjölskyldufyrirtækjum eða litlum samvinnufyrirtækjum þar sem ein kynslóð sömu fjölskyldu hefur tekið við af annarri, kynslóð fram af kynslóð. í umræddri bók eru síðan valdar 10 olíur sem sér- staklega skara fram úr, 10 bestu ólífuolíur sem fáanlegar eru að mati þeirra sem að bókinni unnu. Svo skemmtilega vill til að ein þess- ara tegunda fæst í Heilsuhúsinu, ó- Hér kemur uppskrift af sérlega hollum og góðum hrísgrjónarétti frá Norður -Ítalíu. Risotto Parmigiano Forréttur eða létt miltíð 41« d| grænmetissoð (t.d. Planta- force) 1 laukur, fínt saxaður 4 msk smjör 1/2 dl ólffuolía til steikingar 21/2 dl Arborio hrísgrjón 1/2 dl Parmesan, niðurrifinn svartur pipar úr kvörn 1/2 dl ólífuolía Leysið 1 tening af grænmetiskrafti upp í 41/2 dl af vatni. Bræðið smjörið í pott- inum. Bætið 1/2 dl af ólífuolfu i pottinn og svitið laukinn í þessari blöndu þar til að hann er orðinn mjúkur. Setjið hrís- grjónin í pottinn og léttsteikið þau þangað til að þau fara að skipta um lit. Bætið svo hægt og rólega grænmetis- soði í pottinn, 1/2 dl í einu. Þegar hrís- grjónin hafa dregið í sig vökvann er meira soði bætt í pottinn. Þetta tekur um það bil 15 mínútur. Potturinn er nú tekinn af hellunni og ostinum hrært vel saman við hrísgrjónin og þau krydduð með svörtum pipar. Hrísgrjónin eru skömmtuð á diska og ólífuoliu hellt yfir. lífuolía frá ítalska fjölskyldufyrir- tækinu Crespi & Figli sem hefur framleitt ólífuolíu í 5 kynslóðir. Umrædd olía er úr ólífu sem heitir Taggiasca og vex eingöngu á litlu svæði í Liguria nálægt landamær- um Frakklands, í um 200-700 m hæð. Bragðið er milt með keim af kryddjurtum, eilítið sætt og örfínt eftirbragð af beiskum möndlum. Þetta gróna fjölskyldufy ri rtæki framleiðir jafnframt einhverja bestu sólþurrkuðu tómata í kryddolíu sem völ er á, pestósósu með kröftugra basilbragði en ann- ars þekkist, auk nokkurra annarra hliðstæðra afurða. Þar er höfuðá- hersla lögð á gæði, enda láta fræg- ustu sælkeraverslanir heims eins og Fouchon í París og Harrods í London þetta litla fyrirtæki fram- leiða vörur undir sínum merkjum. Hérlendis fást vörur þessa ítalska framleiðanda í Heilsuhúsinu. í löndunum í kringum Miðjarðar- hafið eru hjartasjúkdómar fátíðari en í Norður-Evrópu. Vísindamenn telja að ein ástæðan fyrir því sé hin mikla neysla þessara þjóða á ólífu- olíu. í Suður-Frakklandi, ftalíu, Grikklandi og á Spáni er ólífuolía snar þáttur í allri matargerð. Nýtt líf á nýju ári Nú þegar nýtt ár gengur í garð, stíga menn á stokk og strengja sín heit. Áramótaheitin ganga oft út á það að laga lífsmunstrið, hætta að reykja, draga úr óhollustu, vanda fæðuvalið, auka þrekið með aukinni hreyfingu, stuðla markvisst og meðvitað að betra lífi. í aldarfjórðung hefur markmið Heilsuhússins verið að hafa gott úrval af bestu fáanlegu hollustuvörum og að veita ráðgjöf um þessar vörur og neyslu þeirra. í þessu blaði eru fróðleiksmolar um þessar vörur og nokkur ráð sem stuðlað geta að bættri heilsu. Vanti þig upplýsingar um ákveðnar hollustuvörur eða viljirðu leita ráða, vinsamlega leitaðu til starfsfólks Heilsuhússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.