Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
8. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Clinton vísar
ákæru á bug
Bill Clinton
Washington. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
vísaði í gær formlega á bug þeim
ákæruatriðum sem hann þarf að
svara fyrir frammi fyrir ríkisrétti í
öldungadeild Bandaríkjaþings.
Sagði hann í
skriflegu svari
við stefnu frá
réttinum, sem
var settur síð-
astliðinn
fimmtudag, að
vísa ætti málinu
frá á þeirri for-
sendu að ákæru-
atriðin uppfylltu
ekki ákvæði
stjómskipunarlaga um stórfelld af-
brot.
Clinton viðurkenndi í hinu 13
síðna langa svarbréfi að hafa gerzt
sekur um ótilhlýðilega hegðun í
hneykslismálinu sem kennt er við
Monicu Lewinsky, íyrrverandi
starfsstúlku í Hvíta húsinu, en
ákæmatriðin gegn sér réttlættu
ekki kröfu um afsögn sína.
Málflutningur hefst
á fimmtudag
Svar Clintons, sem verjendur
hans útbjuggu, barst innan setts
frests, sem var sá fyrsti af mörgum
sem varða hvert skref réttarhald-
anna samkvæmt samkomulagi um
tilhögun þess, sem einróma sam-
þykki náðist um í öldungadeildinni
sl. föstudag. A fimmtudag hefst
formlegur málflutningur í fyrsta
réttarhaldinu til embættismissis
forseta Bandaríkjanna, sem sett
hefur verið í 131 ár. Saksóknarar
hefja málafærslurnar, en þeir era
13 fulltrúadeildarþingmenn re-
públikana. Þeir vora í gær önnum
kafnir við undirbúning málflutn-
ingsins.
Samkvæmt ákæraatriðunum
tveimur til embættismissis, sem
fulltrúadeild þingsins samþykkti í
desember, er Clinton sakaður um
að hafa framið meinsæri og lagt
stein í götu réttvísinnar er hann
reyndi að breiða yfir ástarsamband
sitt við Monieu Lewinsky.
Til þess að knýja Clinton til af-
sagnar þarf öldungadeildin, sem
gegnir hlutverki kviðdóms í réttar-
haldinu, að sakfella hann með
tveimur þriðju hluta atkvæða, en
ólíklegt er talið að sá meirihluti sé
fyrir því. Oldungadeildarþingmenn
repúblikana eru 55 talsins, 45 era
demókratar.
r-vv iT.'í-si. ■ ‘ ,1- .. - •,'
- ■ 'T* . • ý ■ . '
't;>. ,/u
% „r-'SS
**£..
■
Skæruliðar Kosovo-Alb-
ana krefjast fangaskipta
Genf, Belgrad. Reuters.
TALSMENN Frelsishers Kosovo,
KLA fóru í gær fram á að níu félag-
ar þeirra, sem Serbar tóku höndum
fyrir mánuði, yrðu látnir lausir í
staðinn fyrir átta júgóslavneska her-
menn, sem teknir vora til fanga í
héraðinu á fóstudag.
Knut Vollebæk, utanríkisráðherra
Noregs sem nú er yfirmaður ÖSE,
Öryggis- og samvinnustofnunar Evr-
ópu, skoraði á KLA að sleppa öllum
mönnunum og jafnframt hvatti hann
stjómvöld í Serbíu til að hrapa ekki
að neinu. Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, varaði við því að tíminn
væri að renna út áður en gripið yrði
til stórtækra aðgerða.
Einn forystumanna KLA, sem
kallar sig Rakhman, gaf sig fram við
eftirlitsmenn ÖSE í Kosovo í gær og
krafðist þess að níu KLA-félagar,
sem voru teknir höndum í desember
er þeir voru að reyna að smygla
vopnum yfir landamærin, yrðu látnir
lausir í staðinn fyrir gíslana. Fyrr um
daginn hafði Bardhyl Mahmuti, tals-
maður KLA í Evrópu, sagt í Genf að
líklega yrði einhverjum sleppt þá síð-
ar um daginn eða í dag en ekld öllum.
Léti stjórnin í Belgrad hins vegar
lausa einhveija af þeim Kosovo-Alb-
önum, sem hún er sögð hafa í haldi,
þá yrði fleirum sleppt.
Morð eykur spennu
Morð sem framið var í gær á ein-
um kunnasta talsmanni Kosovo-Alb-
ana jók spennuna enn. Enver
Maloku, yfirmaður upplýsingamið-
stöðvar Kosovo, sem rekin er af
samtökum Kosovo-Albana sem
Ibrahim Rugova fer fyrir í héraðs-
höfuðstaðnum Pristina, var skotinn
fyrir utan heimili sitt og lézt á
sjúkrahúsi skömmu síðar.
Reuters
Frosnir
Niagara-
fossar
HIÐ mikla frost sem barst með
heimskautalofti yfir Great
Lakes-svæðið á landamærum
Kanada og Bandaríkjanna hef-
ur valdið því að myndazt hefur
þykk „ísbrú“ á milli landanna
við Niagara-fossana heims-
kunnu. Sagt er að ísinn sé um
fimmtán metra þykkur. Nær á
myndinni sést hinn bandaríski
hluti fossanna, Ijær sá kanad-
íski, sem nefndur er „Skeifu-
foss“.
Barist í Freetown
Uppreisn-
armenn á
undanhaldi?
Freetown. Reuters.
HERSVEITIR ríkja Efnahags-
bandalags Vestur-Afríkuríkja
(ECOWAS) sögðust í gær hafa
náð forsetabyggingunni í
Freetown, höfuðborg Sierra
Leone, á sitt vald að nýju og
sögðu að uppreisnarmennirnir í
borginni væru á undanhaldi.
Yfirmenn hersveita ECO-
WAS, sem eru undir stjóm
Nígeríumanna, sögðu að þeim
hefði tekist að hrekja uppreisn-
armennina frá forsetabygging-
unni, en áður höfðu þeir neitað
því að uppreisnarmennimir
hefðu lagt hana undir sig.
Ekki var hægt að fá staðfest-
ingu á þeirri fullyrðingu
ECOWAS að hersveitir banda-
lagsins hefðu yfirhöndina í
átökunum þar sem símasam-
bandslaust hefur verið við
Freetown frá því á fóstudag.
Flestir erlendu fréttaritararnir
eru farnir úr borginni eftir að
bandarískur fréttamaður beið
bana á sunnudag og annar
særðist alvarlega.
Framkvæmdastjdrn ESB verst ásökunum Evrópuþingmanna um spillingu
Þingleiðtogar segja stuðn-
ing háðan virkara eftirliti
Strassborg. Reuters, The Daily Telegraph.
FORSVARSMENN tveggja
stærstu þingflokkanna á Evrópu-
þinginu, þingi Evrópusambandsins
(ESB) í Strassborg, sögðu í gær að
þeir myndu ekki greiða tillögu um
vantraust á framkvæmdastjórn
sambandsins atkvæði, en slík tillaga
var borin upp á þinginu í gær vegna
þrálátra deilna milli þingsins og
framkvæmdastjórnarinnar um mis-
ferlis- og spillingarásakanir á hend-
ur meðlimum hennar. Þeir settu þó
það skilyrði, að komið yi’ði á virkara
eftirliti með því hvernig meðlimir
og starfsmenn framkvæmdastjóm-
arinnar fara með fjármuni sam-
bandsins.
Pauline Green, formaður þing-
flokks evrópskra jafnaðarmanna,
sem 214 af 626 fulltrúum á Evrópu-
þinginu tilheyra, sagði í umræðum
um tillöguna að þingflokkurinn
myndi standa gegn samþykkt van-
Reuters
JACQUES Santer og Gerhard
Schröder brostu breitt á blaða-
mannafundi í Bonn f gær.
trausts svo fremi sem fram-
kvæmdastjómin samþykkti óháða
rannsókn á ásökununum, sem snúa
aðallega að tveimur af 20 meðlimum
hennar.
Wilfried Martens, fyrrverandi
forsætisráðherra Belgíu, fer fyrir
næststærsta þingflokknum, skipuð-
um fulltrúum hófsamra hægri-
flokka. Hann sagði flokksmenn sína
ekki myndu styðja vantraust að því
gefnu að nýju kerfi virks eftirlits
yrði komið á, sem tryggði að fram-
kvæmdastjórnin gerði hreint fyrir
sínum dyrum.
Ottast um framkvæmd
umbótaverkefna
Atkvæðagreiðsla um tillöguna fer
fram á fimmtudag, en fram-
kvæmdastjórnin er þá aðeins lög-
formlega knúin til afsagnar ef van-
traust er samþykkt af tveimur
þriðju hlutum þingheims. Margir
þingmenn halda því hins vegar fram
að ef einfaldur meirihluti styddi
vantraust þýddi það þvílíkan póli-
tískan álitshnekki fyrir fram-
kvæmdastjórnina að hún yrði að
segja af sér.
I ávarpi sínu við upphaf þingum-
ræðunnar í gær reyndi Jacques
Santer, forseti framkvæmdastjórn-
arinnar, sitt bezta til að sannfæra
þingmenn um að rétt væri að lýsa
stuðningi við hana. A því ylti að
metnaðarfull verkefnaáætlun sam-
bandsins kæmist í framkvæmd.
Fyn- um daginn hafði Gerhard
Schröder, kanzlari Þýzkalands, lagt
opinberlega til að sérstakri eftirlits-
nefnd yrði komið á fót í sameigin-
legu umboði allra þriggja helztu
stofnana ESB - ráðherraráðsins,
framkvæmdastjómarinnar og Evr-
ópuþingsins. Nefndin myndi hafa
það hlutverk að kanna til hlítar allai’
þær ásakanir sem eru uppi á borð-
inu gegn framkvæmdastjóminni.
Þýzka stjórnin tók við formennsku í
ráðherraráðinu um áramótin.
„Ég vona að þingið og fram-
kvæmdastjórnin taki sér tak og
leysi þetta,“ sagði Schröder eftir
viðræður við Santer í Bonn.