Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rúm 5 kíló af hassi fund
ust við komu Breka VE
Langstærsti fíkniefnafundur
í Vestmannaeyjum til þessa
V estmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FÍKNIEFNIN sem fundust við komu Breka VE til Eyja.
LÖGREGLA og tollgæsla í Eyjum
fundu rám fímm kíló af hassi og lít-
ilræði af maríjúana við komu Breka
VE til Vestmannaeyja á laugar-
dagsmorgun en skipið var að koma
úr sölutúr til Þýskalands.
Tryggvi Kr. Ólafsson lögreglu-
fulltrái sagði í samtali við Morgun-
blaðið að lögreglan hefði fengið
upplýsingar í haust um að hugsan-
lega yrði reynt að smygla fíkniefn-
um með skipum frá Eyjum sem
væru í siglingum. Það hefði því ver-
ið fylgst grannt með Breka er hann
kom til Eyja aðfaranótt laugardags-
ins 9. janúar.
Grunur hefði beinst að einum
skipverjanum á Breka og sambýlis-
konu hans, sem var með í sölutúrn-
um, og fyígst með er þau fóru frá
borði. Kona sótti þau á bíl og var bif-
reiðin stöðvuð skömmu eftir að hún
ók frá skipinu með sambýlisfólkið.
Hefði fólkið verið fært á lögreglu-
stöðina og við leit á því fundist 33
grömm af hassi og lítilræði af
maríjúana á manninum. Við leit í
bílnum hefðu síðan fundist fímm kíló
af hassi í tösku sem var í bílnum.
Við yfirheyrslur játaði maðurinn
að hafa flutt efnið inn en ekki hefur
verið upplýst hvort hann er eigandi
þess og játning þar að lútandi ligg-
ur ekki fyrir. Aðild kvennanna að
málinu liggur ekki fyrir en er í
rannsókn. Eftir að efnin fundust í
bílnum og á manninum var fenginn
leitarhundur frá fíkniefnalögregl-
unni og leitaði hann bæði um borð í
skipinu og á heimilum sambýlis-
fólksins og bílstjórans. Ekki fannst
meira af efnum en áhöld til neyslu
fundust á báðum heimilum.
Lögreglan í Eyjum óskaði eftir
gæsluvarðhaldi yfír fólkinu og var
maðurinn dæmdur í varðhald til 30.
janúar, sambýliskona hans til 20.
janúar og bílstjórinn til 16. janúar.
Fólkið sem hér um ræðir er á aldr-
inum 35 ára til ríflega fertugs. Kon-
urnar hafa kært gæsluvarðhaldsúr-
skurðinn til Hæstaréttar en hann
hefur ekki kveðið upp úrskurð í
málinu.
Tryggvi segir nokkuð ljóst að
efnið sem fannst hafí ekki allt verið
ætlað til sölu í Eyjum heldur hafí
hluti þess örugglega átt að fara til
sölu uppi á landi. Fíkniefnafundur-
inn í Eyjum er langstærsti fundur
fíkniefna þar til þessa og meira
magn en allt það magn sem lögregl-
an í Eyjum hefur gert upptækt
gegnum árin.
Karl Gauti Hjaltason, sýslumað-
ur í Eyjum, sagði í samtali við
Morgunblaðið að í haust hefði lög-
reglan í Eyjum lagt aukna áherslu
á fíkniefnarannsóknir. Hefði það
verið gert í kjölfar umræðu um að
aukið magn efna væri komið í um-
ferð og neysla hefði aukist í Eyj-
um. Lögreglan hefði viljað rann-
saka hvort eitthvað væri hæft í
þessum orðrómi og þessi aukna
áhersla á fíkniefnamálin hefði leitt
til þess að síðustu þrjá til fjóra
mánuði ársins hefði verið gert upp-
tækt meira af fíkniefnum en eitt og
hálft ár þar á undan. Karl Gauti
sagði að lögreglan myndi áfram
halda rannsóknum á fíkniefnamál-
um vakandi í Eyjum. Hann sagði
að upplýsingar almennings skiptu
sköpum í rannsóknum á fíkniefna-
málum og því skoraði hann á al-
menning að veita lögreglunni lið-
sinni í baráttunni gegn fíkniefnum.
Tryggvi Kr. Ólafsson tók í sama
streng og Karl Gauti. Hann sagði að
áhersla lögreglunnar i Eyjum á
fíkniefnamálin í haust hefði skilað
sér ágætlega og orðið til þess að al-
menningur væri meira vakandi fyrir
þessum málum.
Fuiltrúi ríkislögreglustjóra er í
Eyjum og vinnur að rannsókn máls-
ins ásamt lögreglunni í Eyjum en
auk þess er lögreglan í nánu sam-
starfi við fíkniefnalögregluna. Að
sögn Tryggva hafa skipverjinn á
Breka og sambýliskona hans
nokkrum sinnum komið við sögu
fíkniefnamála áður, en ekki er vitað
til að bílstjórinn hafi verið viðriðinn
slík mál áður.
Reikna má með að innkaupsverð
fíkniefnanna hafi verið á bilinu 500
þúsund til ein milljón og söluverð
nálægt tífóldu innkaupsverði.
Prófkjör samfylk-
ingar í Reykjavík
19 bjóða
sig fram
fyrir A-
flokkana
NÚ LIGGUR fyrir hverjir
gefa kost á sér af hálfu Al-
þýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins í prófkjöri samfylk-
ingarinnar i Reykjavík en
framboðsfrestur rann út sl.
laugardag. Alls er um að ræða
19 einstaklinga sem ætla að
taka þátt í prófkjörinu á veg-
um þessara flokka.
Af hálfu Alþýðuflokks gefa
kost á sér Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, Borgþór Kjær-
nested, Hólmsteinn Brekkan,
Gunnar A.H. Jenssen, Jakob
Frímann Magnússon, Jóhanna
Sigurðardóttir, Magnús Ámi
Magnússon, Mörður Árnason,
Stefán Benediktsson og Össur
Skarphéðinsson.
I gærkvöldi samþykkti kjör-
dæmisráð Alþýðubandalagsfé-
laganna í Reykjavík tillögu upp-
stillingamefndar um frambjóð-
endur af hálfu flokksins, en þeir
eru: Amór Pétursson, Ami Þór
Sigurðsson, Bryndís Hlöðvers-
dóttir, Elísabet Brekkan, Guð-
rún Sigurjónsdóttir, Heimir
Már Pétursson, Herbert Hjelm,
Magnús Ingólfsson og Vilhjálm-
ur H. Vilhjálmsson.
Kvennalistinn afgreiðir
formlega í dag hverjar bjóða
sig fram í nafni hans.
FRÁ vettvangi slyssins í gær.
Morgunblaðið/Júlíus
Þrennt á slysadeild
eftir harðan árekstur
Eignir Foldu til
Hvammstanga
Víða hálka
á veg'iim
VIÐA var mikil hálka og krap á
vegum sunnanlands í gær. Vindur
var auk þess mikill og brýnt fyrir
ökumenn að fara varlega. Bíll fór út
af þjóðvegi númer 1 skammt vestan
við Kirkjubæjarklaustur um miðjan
dag í gær. Betur fór en á horfðist,
ökumanninum varð ekki meint af
og ekki varð tjón á bifreiðinni.
Vaskir menn komu líka fljótt á vett-
vang og drógu bifreiðina inn á veg-
inn á ný.
--------------
Enn sprengt
í Hagaskóla
HVELLHETTA var sprengd á sal-
erni drengja í Hagaskóla í Reykja-
vík um hádegi í gær. Brunavarna-
kerfi skólans fór í gang en truflun
varð þó ekki á skólastarfi.
Drengurinn sem sprengdi lokaði
sig inni á saleminu með GSM-síma
og hringdi í nokkrar fréttastofur til
að tilkynna um ástandið í þeirri von
að hleypa starfí skólans í uppnám.
Hins vegar var stundaskrá fylgt og
kennsla fór fram með eðlilegum
hætti í skólanum í gær.
ÞRÍR vora fluttir á slysadeild eftir
harðan árekstur á Reykjanesbraut
skammt frá Straumsvík um kl. 16 í
gær. Tildrög slyssins vora þau að
ökumaður bíls á leið til Hafnarfjarð-
ar reyndi framúrakstur með þeim
afleiðingum að bíll hans lenti framan
á bfl sem ekið var í gagnstæða átt.
Áreksturinn var mjög harður og
era bílarnir báðir taldir ónýtir.
Hjón vora í bílnum sem ekið var í
átt til Keflavíkur en ökumaður var
einn í hinum bflnum. Skyggni var
lítið þegar slysið varð og blautur
snjór á veginum. Beita varð klipp-
um og skera yfirbyggingar af bflun-
um til að ná fólkinu út. Af þessum
sökum varð að loka veginum um
tíma. Ekki er ljóst hve alvarleg
meiðsli fólksins eru.
ÍSPRJÓN ehf. á Hvammstanga
hefur keypt þær eignir Foldu hf. á
Akureyri sem notaðar vora við ull-
arvöruframleiðslu. Markmiðið með
kaupunum er að gera Vestur-Húna-
vatnssýslu að miðstöð ullariðnaðar-
ins á íslandi. Við flutning starfsem-
innar mun störfum í héraðinu fjölga
um að minnsta kosti þrettán.
Hömlur hf., eignarhaldsfélag
Landsbanka Islands, og bankinn
sjálfur era eigendur að þeim að-
stöðu sem Folda hf. á Akureyri not-
aði við ullarvöruframleiðslu. Eftir
gjaldþrot Foldu hf. voru teknar upp
viðræður við ullariðnaðarfyrirtækin
Drífu ehf. og ísprjón ehf. á
Hvammstanga og sveitarfélagið í
Vestur-Húnavatnssýslu og nú hefur
samkomulag náðst um kaup Is-
prjóns á tækjabúnaðinum.
Nýtt húsnæði byggt
Elín R. Líndal oddviti segir að
um sé að ræða vélar og tæki til ull-
arvöraframleiðslu, hönnun, við-
skiptavild og rétt til að nota vöru-
merki fyrirtækisins. Hún segir
kaupverð ekki gefíð upp.
Markmið sveitarfélagsins með
þátttöku í kaupum á eignum Foldu
er að auka atvinnu í héraðinu og
gera Vestur-Húnaþing að miðstöð
ullariðnaðarins í landinu. Reiknað
er með að störfum hjá ísprjóni ehf.
á Hvammstanga fjölgi um 7-10 auk
þess sem stefnt er að uppsetningu
útstöðva á 3-4 stöðum í sveitarfé-
laginu með 2-4 starfsmönnum á
hverjum stað.
Isprjón ehf., sem er að mestu
leyti í eigu sölufyrirtækisins Drífu
ehf., mun byggja um það bil 1.000
fermetra nýtt húsnæði yfír starf-
semi sína á Hvammstanga og er
áætlað að því verði lokið fyrir 1.
ágúst næstkomandi. Drífa ehf.,
Vestur-Húnaþing og ef til vill fleiri
aðilar munu taka þátt í uppbygging-
unni.
ísprjón og Folda voru stæi’stu
prjónastofur landsins og með aukn-
um vélakosti og nýju húsnæði verð-
ur fsprjón fullkomnasta og
langstærsta prjónastofa landsins og
mun veita saumastofum í Húna-
þingi og víðar verkefni, segir í
fréttatilkynningu.
Erki Nool keppir á Stórmóti
ÍR í Laugardalshöll / B1
Mallorka heldur sínu
striki á Spáni / B12
í dag
íOjil P rctMmyLlmTO!
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
A ÞRIÐJUDÖGUM
• ■ •