Morgunblaðið - 12.01.1999, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
• •
Orn laumast
í eldiskerin
HAFÖRN hefur verið í Mýr-
dalnum í tvo mánuði í vetur en
örn hafði þá ekki sést í áratugi
á þessum slóðum. Þetta er ung-
ur fugl og hafa tveir hrafnar oft
sést í slagtogi við hann. Vekja
fuglarnir mikla athygli ferða-
fólks sem leggur leið sína í Mýr-
dalinn. Örninn hefur mest verið
í Kerlingadal, Fagradal og
Höfðabrekku og þar um kring
og veitt fugl og fisk til matar.
Hefur sést til hans veiða fýl á
flugi og bleikju úr lónum. Jónas
Erlendsson fiskeldisbóndi hefur
örninn einnig grunaðan um að
stela bleikju úr eldiskerum í Fa-
gradal, hefur séð særðan fisk en
aldrei staðið örninn að verki.
„Það er ekki nema von að hann
sæki í Fagradalsbleikju, kon-
ungur fuglanna vill aðeins það
besta,“ segir Jónas. Örninn situr
gjarnan á Nípu við eldiskerin og
á stærri myndinni sést hann
hefja sig til flugs þaðan.
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs
Ekkert á móti
því að leigja
Orkunni stöðina
KRISTINN Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að ekkert stílbrot
sé fólgið í því að að fyrirtækið hafí
leigt bensínstöð sína við norðan-
verða Miklubraut á móts við Kringi-
una til Orkunnar, en félagið á aðra
stöð hinum megin götunnar.
Kristinn minnti jafnframt á að
Skeljungur væri hluthafi í Orkunni
og því hafi ekki verið óeðlilegt að
Orkan leitaði til Skeljungs þegar
opnun nýi-rar útsölu í Reykjavík var
til skoðunar. Orkan hafi falast eftir
því að fá þessa stöð leigða og eftir
að hafa velt því fyrir sér hafi þeir
ekki séð neitt á móti því að leigja
þeim þessa stöð.
Hann sagði að á þessari stöð hafi
Skeljungur boðið upp á sjálfsaf-
gi-eiðslu, en þeim hafi þótt eðlilegra
að Orkan sem hafi verið að vinna á
þeim markaði væri þarna með út-
sölu. Skeljungur hafi hins vegar
verið að auka þjónustu á stöðvum
sínum með því að bjóða upp á Sel-
ect. Því hafi verið ákveðið að leigja
þeim stöðina. Skeljungur ætti hana
eftir sem áður. Þetta hentaði ágæt-
lega stefnu Orkunnar sem hafi sett
sér það að markmiði að vera nálægt
útsölustöðum Hagkaups, Nýkaups
eða Bónuss.
Breytingar á svæðinu
hugsanlegar
Kristinn benti á að ef til vill
stæðu til breytingar á þessu svæði á
næstu misserum eða árum vegna
hugsanlegrar stækkunar Ki'ingl-
unnar til norðurs. Skeljungur væri
að velta því fyrir sér að byggja upp
Skeljungsstöðina við sunnanverða
Miklubraut og breyta henni í Sel-
ectstöð í framtíðinni. Þeir væru
jafnframt aðeins að horfa til þess
hvað eigendur að Kringlunni ætluðu
að gera, en þeir væru í ákveðnu
samstarfi við þá.
Skeljungur selur Orkunni það
bensín og þá dísilolíu sem fyrirtæk-
ið selur og á þriðjung í því á móti
Baugi hf. og Þori hf.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
PLASTHÓLKURINN tættist í sundur við sprenginguna.
Leifar af heimatil-
búinni sprengju
LÖGREGLAN í Kópavogi fékk ný-
lega afhentar leifar af heimatilbú-
inni sprengju sem árvökull íbúi í
Kópavogi hafði tínt upp á nýársdag.
Var það plaströr, um 40 millimetra
að ummáli, sem hafði verið fyllt með
púðri og límt við langt koparrör.
Að sögn lögreglu má telja mikla
mildi að enginn skyldi slasast þegar
sprengjan var sprengd því þetta
hafi verið stórhættulegur búnaður.
Svo virðist sem sprengjugerðar-
maðurinn hafi límt plaströrið við
holt kopaiTör í þeim tilgangi að
skjóta því upp eins og flugeldi. Rör-
ið sprakk hins vegar ekki í loft upp
og skapaði þar með mikla hættu
fjTÍr alla nærstadda.
Lögreglan segh- að þetta sé ein
glæfralegasta heimatilbúna
sprengjan sem hún hefur haft
spurnir af. Hún brýnir fyrir fólki að
vera ekki að búa til sprengjur
heima, enda varði það við lög.
Flugeldur sprakk skammt frá Fokker flugvél Flugfélags Islands í aðflugi
„Óþægilega
og hættulega
nærri“
„FLUGELDURINN fór þama upp
og sprakk rétt hjá vélinni, óþægi-
lega og hættulega nærri,“ segir Jón
Karl Ólafsson framkvæmdastjóri
Flugfélags Islands. Flugeldur fór
framhjá Fokker-flugvél félagsins
um klukkan 19 á sunnudagskvöld,
þegar hún var í aðflugi að Reykja-
víkurflugvelli eftir flug frá Akur-
eyri. Samkvæmt reglugerð um sölu
og meðferð skotelda er almenn
notkun og sala skotelda til almenn-
ings óheimil nema á tímabilinu 27.
desember til 6. janúar, að báðum
dögum meðtöldum, nema með leyfi
lögreglustjóra.
„Flugstjórinn mat stöðuna ekki
svo að hætta hefði verið á ferðum,
en þetta er hins vegar stórhættu-
legt mál hefði flugeldurinn sprungið
rétt fyrir framan stjórnklefann,"
segir Jón Karl.
Flugmenn fípuðust ekki
Gylfi ívar Magnússon flugstjóri
vélarinnar í umræddri ferð segir að
vélin hafi flogið yfir miðbæ Reykja-
víkur og Tjömina og lent til suðurs
á braut 2-0. „Við sáum út um hliðar-
gluggann hvítan strók koma upp á
vinstri hönd, rétt framan við vélina.
Þessu fylgdi neistaflug eins og ein-
kennir flugelda á uppleið. Hann fór
upp með og hvarf síðan, þannig að
við sáum hann ekki springa. Ég geri
mér ekki grein fyrir því hvar hann
sprakk og það er erfitt að segja til
um með vissu hversu langt hann var
frá vélinni," segir Gylfi ívar.
Hann kveðst ekki telja að vélin
eða farþegar hafi verið í hættu, og
ólíklegt sé að farþegar hafi orðið
varir við flugeldinn. Spurður um
hvað gerst hefði ef flugeldurinn
hefði skollið á vélinni, segir Gylfi ív-
ar erfitt að meta hvort flugeldur
myndi endurkastast af henni eða
dælda hana. Það velti meðal annars
á hversu kraftmikill flugeldurinn sé.
Þá eigi ekkert eldfimt að vera á ytra
byrði vélarinnar sem gæti kviknað í.
„Mönnum bregður við slíkan atburð
en við fipuðumst ekki og þetta hafði
ekki áhrif á aðflugið. Hins vegar
getur þetta verið varhugavert og
þarf að athuga betur,“ segir hann.
Gylfi ívar segir talið ljóst að flug-
eldinum hafi verið skotið upp í nær-
liggjandi götu. Þorri manna eigi að
vita að margar flugvélar fari um
þetta svæði og gera verður þeim
gi-ein fyrir að óheimilt sé að skjóta
upp flugeldum á þessum tíma og
hvaða hættur geti stafað af slíku at-
hæfi.
„Ég var í sambandi við flugmenn-
ina og heyrði að þeir urðu hvekkt-
ir,“ segir Hilmar Magnússon sem
var flugumferðarstjóri á vakt í flug-
tumi á Reykjavíkurflugvelli þegar
flugeldurinn fór hjá vélinni. „Þetta
var ekki eins og hlutirnir eiga að
vera. Það er óheimilt að skjóta upp
flugeldum nema á gamlárskvöld og
þrettándanum og þarf leyfi lögreglu
fyrir slíku aðra daga.“
Kallar á umræðu um viðurlög
„Erlendis eru yfirleitt mjög
ströng viðurlög vegna atburða sem
þessa við flugvelli. Það er spurning
hvort ekki þurfi að óska eftir viður-
lögum í þessum málum til að koma í
veg fyrir að atburður sem þessi ger-
ist, og ég hvet menn til að skoða þau
mál vel,“ segir Jón Karl.
Fargjöld
kynnt í
febrúar
VERÐ á fargjöldum með ís-
landsflugi sem hefur leiguflug
til Kaupmannahafnar hefur
enn ekki verið ákveðið og
verður það tilkynnt í næsta
mánuði, að sögn Helga Jó-
hannssonar, forstjóra Sam-
vinnuferða-Landsýnar, sem
annast mun sölu farmiðanna
hérlendis.
Helgi sagði að vinna við út-
reikning verðs á ferðum Sam-
vinnuferða-Landsýnar á þessu
ári stæði nú yfir og bæklingar
um ferðir og verð kæmu út í
febrúar.
„Eins og annað sem við er-
um með á einfaldlega eftir að
verðleggja ferðirnar með
leiguflugi íslandsflugs til
Kaupmannahafnar,“ sagði
Helgi.