Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
*
A fullum styrk
LEIKI.IST
Leikfélag Reykjavfkur
BÚASAGA
Höfundur: Þór Rögnvaldsson. Leik-
mynd og leikstjórn: Eyvindur Er-'
lendsson. Leikarar: Rósa Guðný
Þórsdóttir, Þorsteinn Bachmann,
Pétur Einarsson, Valgerður Dan,
Björn Ingi Hilmarsson, Guðlaug
Elísabet Ólafsdóttir, Sóley Elíasdótt-
ir, Árni Pétur Guðjónsson og Theo-
dór Júliusson. Búningar: Una Collins.
Lýsing: Kári Gíslason. Tónlist: Pétur
Grétarsson. Hljóð: Baldur Már Arn-
grímsson. Borgarleikhúsið, Litla svið
laugardaginn 9. janúar.
BÚASAGA eftir Þór Rögnvalds-
son hlaut 1. verðlaun í leikritasam-
keppni þeirri sem Leikfélag
Reykjavíkur efndi til í tilefni af ald-
arafmæli sínu. Um verkið má segja
að það er skrifað af miklum metn-
aði, ágætum rithæfileikum og þó
nokkrum eldmóði. Leikritið ber
vitni þekkingu höfundar á bók-
menntum og heimspekikenningum,
enda er Þór menntaður heimspek-
ingur og í formála að leiktextanum í
leikskrá gerir hann sjálfur allítar-
lega grein fyrir þeim verkum bók-
mennta- og heimspekisögunnar
sem hann vinnur með í Búasögu
(eða þeim hugmyndum sem hann
spinnur út frá, svo að segja). Leik-
rit Þórs má hins vegar helst gagn-
rýna fyrir það að á köflum bera
hugmyndirnar hina leikrænu fram-
vindu allt að því ofurliði. Þannig
skortir víða nokkuð á dramatískt
samspil persóna og kann að vera að
þar komi fyrst og fremst til
reynsluleysi höfundar af þeim miðli
sem hann hér vinnur með. Var
þetta sérstaklega áberandi í mið-
þætti verksins þar sem takast á Búi
og prófessorinn, kennari hans. Þar
varð textinn víða ansi „skólabókar-
legur“ og margar hugmyndanna
sem fram var kastað virkuðu dólgs-
legar og einfaldar.
En Þór Rögnvaldsson verður síst
sakaður um metnaðarleysi eða
skort á boðskap. I Búasögu er unnið
með grundvallarhugmyndir; hug-
myndir um rétta breytni og ranga,
um trúnað og svik, um framagirnd
og eftirsókn eftir efnislegum gæð-
um, um skeytingarleysi um tilfinn-
ingar annarra, en ofar öðru er
gríska hugmyndin um ofdrambið
(hybris) sem verður hverri þeirri
hetju sem of hátt seilist að falli.
Sagan af Búa Andríðssyni er saga
af nútímamanni sem svíkur annað
fólk jafnt sem hugsjónir æsku sinn-
ar, ofmetnast og mætir ömurlegum
endalokum. Þessi nútímasaga er
spunnin út frá íslenskri fornsögu,
Kjalnesinga sögu, og grískum
harmleik, Antígónu, krydduð með
hugmyndum ættuðum frá Hegel og
Nietzsche.
Af ofansögðu ætti að vera ljóst að
Búasaga er að mestu leyti verk
sprottið af fjölda annarra verka,
texti fæddur af textum; verk sem
byggist á tengslum við aðra texta.
Verkið er dæmigert fyrir það sem í
bókmenntafræðum kallast texta-
tengsl og lýsir því hvernig nýtt
form sprettur af samsetningu og
umbreytingu fleíri eldri forma í list-
um. Þessi grundvallarbygging leik-
ritsins virðist síðan verða leikstjór-
anum, Eyvindi Erlendssyni, „in-
spírasjón" við sviðsetninguna. Leik-
myndin, leikaðferðir, leikstfll, allt
ber þetta einkenni „textatengsla“ (í
yfiriærðri merkingu), þ.e.a.s. steypt
er saman (eða vísað í) margvísleg-
um leikfonnum, allt frá grískum
harmleik til pólitísks leikhúss
Brechts, svo nokkuð sé nefnt.
Sama aðferð er ríkjandi í búning-
um Unu Collins og tónmynd Péturs
Grétarssonar, sem hvort tveggja er
fagmannlega unnið og setur mikinn
svip á uppsetninguna. Pétur steypir
saman eigin tónlist við jafnt ís-
lenska (Jón Leifs) sem erlenda tón-
list (Mendelssohn, Jimi Hendrix).
Una Collins spannar alla tíma í bún-
ingagerð og er sundurgerðin og
fjölbreytileikinn ríkjandi.
Allt verkið, frá byrjun til enda, er
leikið á fullum styrk. Mikill kraftur
einkennir allan leik en leikarar réðu
þó misjafnlega við þennan oft á tíð-
um ýkta og hávaðasama leikstfl. Til
dæmis fannst manni á stundum
bera á ofleik hjá aðalleikaranum
Þorsteini Bachmann sem allt að því
hrópaði hverja setningu í fyrstu
tveimur þáttunum. Leikur Þor-
steins, í hlutverki Búa Andríðsson-
ar, var hófstilltari í lokaþættinum
og að mínu mati var túlkun hans
best þar. Með annað stórt hlutverk
fer Rósa Guðný Þórsdóttir, hlut-
verk spákonunnar Esju. Rósa Guð-
ný náði mjög góðum tökum á hlut-
verkinu og djúp rödd hennar naut
sín vel og var mögnuð upp á áhrifa-
Ertu ab byggja? • Viltu breyta? • Þarftu ab bæta?
15-70% afsláttur
ir 15x20 sm
20-:
Dæmi: MempÍS
2
r.m
CrOWN málningartilboð Gólfteppi
30°/o'
Ceggborðar - Veggfóður
20-50%
isk málning
25%*r
*10% glástig
Æh
15-30
frá kr.
tteppi margir litir
kr. 360
pr.m2
Cjólfflísar
lYlottur margar stœrðir Gólfdúkar - Linoleum
20-40%
N
Dæmi: Ma
139“
25%
~ T
25%
Dæmi: S.CI
w
f)astparket á tilboðsverði fDreglar í úrvali Í^Qsettur- SkrautUstar
kr. 1.690
pr.m2 m
25%
Afgangar
allt aö >
70%
ríttu inn
það hefur ávallt borgað sig!
-y-
Grensásvegi 18. Sími 581 2444. Opið: Mánudaga til föstudaga kl. 9 til 18.
■ - Jaga frá kl. 12 til l6 (Malningadeild).
Laugardaga frá kl. 10 til 16. Sunnudaga |
Takið málin
með það flýtir
afgreiðslu!
m (E)
Góð grelðslukjörí
Raðgreiðslur til allt að
36mánaða
Morgunblaðið/Ásdís
Rósa Guðný Þórsdóttir og Þorsteinn Bachmann í hlutverkum Esju og Búa.
ríkan hátt með míkrafónum. Bjöm
Ingi Hilmarsson fór vel með erfitt
hlutverk Jökuls, sonar Búa og Fríð-
ar. Hann kemur á fund fóður síns í
lokaþætti, er sem spegilmynd hins
unga Búa og snýst gegn honum líkt
og Búi hafði áður snúist gegn feðra-
veldi síns tíma, auðmannastétt og
yfirvaldi. Leikur Björns Inga var
kraftmikill en ekki eins ýktur og
leikur Þorsteins í fyrri tveimur
þáttum. Fyrirlitning hans og sálar-
kreppa varð til muna trúverðugri en
hjá föður hans forðum. Af öðram
leikurum er Pétur Einarsson minn-
isstæður í hlutverki prófessorsins,
svo og Theodör Júlíusson í hlut-
verki Kolfinns dflers. Aðrir leikarar
fóru með veigaminni hlutverk, en
ekki er undan neinum að klaga.
Hér að framan hefur komið fram
að uppsetning Búasögu einkennist
víða af krafti, fagmennsku og hug-
myndaauðgi. Samt gengur sýningin
ekki fullkomlega upp og aðalástæða
þess er að mínu mati sú ákvörðun
að sviðsetja leikritið á litla sviðinu.
Umfang verksins er slíkt að stórt
svið hefði hæft því mun betur. Upp-
setningin í heild: hin hringlaga leik-
mynd, íburðanniklir búningar, ýkt-
ur leikstíll, fjöldi hópatriða o.fl.
gerði það að verkum að sviðsetning-
in virkaði aðþrengd og notkunin á
hringlaga sviðinu gekk ekki alltaf
upp, hluti áhorfenda hafði bakhluta
leikara of oft fyrir augum. Allur stíll
þessarar sýningar kallar á meira
rými.
Búasaga er metnaðarfullt leik-
verk en langt frá því að vera galla-
laust. Sem byrjandaverk hlýtur það
að teljast athyglisvert og ástæða til
að hvetja höfund til dáða á sviði
leikritunar. Um uppsetningu LR
má segja svipað: hér er um litríka,
kraftmikla sýningu að ræða en hún
hefur takmarkanir og galla, eins og
fram hefur komið.
Soffía Auður Birgisdóttir
ARNALDUR Arnarsson heldur tónleika í Salnum í kvöld.
Myrkir músíkdagar
Gítartónleikar í
Salnum í Kópavogi
ARNALDUR Araarsson gítarleik-
ari heldur tónleika í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld, þriðjudag kl. 20.30.
Arnaldur leikur fimm verk eftir
Jón Asgeirsson: Fjórar stemmning-
ar (1992), Forspil, Söknuður,
Rímnalag og Óþol; eftir Atla Heimi
Sveinsson: Ur dýrðlegum dönsum
(1983), Dauðateygjur hins dansandi
hafs og Til hinna fáu hamingju-
sömu. Frumflutt verður verkið Þrjú
stykki, (1990) eftir John A. Speight.
Eftir Jón Leifs leikur Amaldur Stu-
die op. 3 (1924), Praeludium og
Fughetta.
A seinni hluta tónleikanna leikur
hann Tilbrigði við jómfrú eftir
Kjartan Ólafsson, Hvaðan kemur
lognið eftir Karólínu Eiríksdóttir og
Toccata eftir Þorsteinn Hauksson.
Arnaldur Amarsson fæddist í
Reykjavík árið 1959. Hann lauk gít-
arnámi við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar hjá Gunnari H. Jóns-
syni 1977. Hann tók lokapróf frá
Royal Northern College of Music í
Manchester 1982. Þá var hann eitt
ár við framhaldsnám hjá José
Tomás í Allicante á Spáni.
Arnaldur vann fyrstu verðlaun í
alþjóðlegu Fernando Sor gítar-
keppninni í Róm 1991. Sama ár
komst hann í úrslit East and West
Artists keppninnar í New York.
Hann var í dómnefnd fjórðu alþjóð-
legu Alhambra gítarkeppninnar á
Spáni 1998 og hefur verið boðið að
sitja í dómnefnd Annas Amalia
keppninnar í Weimar í apríl næst-
komandi.
Arnaldur hefur haldið fjölda tón-
leika víða um heim og margoft kom-
ið fram á íslandi m.a. með Kammer-
sveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljóm-
sveit Islands og á Listahátíð í
Reykjavík.
Arnaldur býr í Barcelona og
kennir þar gítarleik við Luthier tón-
listarskólann. Hann hefur haldið
námskeið víða um heim, m.a. í Wig-
more Hall í Lundúnum, við háskól-
ann í Boston, á Islandi og á Spáni.