Morgunblaðið - 12.01.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 31
Jón Laxdal setur
Að læðast inn í tóninn
upp leikrit í Bern-
hard-leikhúsinu
JÓN Laxdal fékk
upphringingu í
byrjun janúar og
var boðið að setja
leikritið „Casanova
í Dux höll“ eftir
Karl Gassauer upp
í Bernhard-leikhús-
inu í Zurich. Leik-
húsið á við mikla
fjárhagsei'fiðleika
að etja og lengi leit
út fyrir að það yrði
lokað allan janúar.
En Jón hljóp í
skarðið á síðustu
stundu. Það er for-
síðufrétt vikublaðs
sem er borið út í öll
hús í Zurich þessa vikuna.
Leikritið gekk í 18 vikur við
góðar viðtökur í kjallaraleikhúsi
Jóns Laxdals í Kaiserstuhl.
Bernhard-leikhúsið er um fimm
sinnum stærra með 450 sæti.
Það er elsta einkaleikhúsið í
Zurich. Jón var
mjög ánægður með
aðsókn og undir-
tektir á frumsýn-
ingunni 5. janúar.
„Það hefur verið
dræmari aðsókn
síðan,“ sagði hann.
„Það var lítil
stemmning á
annarri sýningu.
Það var mikið af
konum - það hefði
mátt halda að þær
væru nunnur og
móðgaðai' út í Ca-
sanova blessaðan.“
Næsta verkefni
Jóns í kjallaraleik-
húsinu hans er „Tvöfóld mistök“
eftir Barry Creyton. Það verður
nú frumsýnt í lok janúar, tveim-
ur vikum á eftir áætlun. Jóhann
Laxdal Birgisson, dóttursonur
Jóns, gerir leikmyndina þar eins
og í „Casanova í Dux höll“.
Jón Laxdal
Fagmennska
TÓXIJST
S a I n i* í n n
SÖNG- OG KAMMERTÓNLEIKAR
Auður Gunnarsdóttir og Gunnar
Guðbjörnsson sungu, Guðrún S. Birg-
isdóttir og Martial Nardeau léku á
flautu og Carl Davis lék á píanó.
Laugardag kl. 14.30.
LOKSINS hafa tónlistarmenn og
tónlistarunnendur eignast hús til að
njóta listarinnar í. Þar virðist fag-
lega hafa verið staðið að málum,
prýðilega virðist hafa tekist til með
hljómburð. Þetta ágæta hús klæddi
líka vel þá fyrirtaks fagmenn sem
voru að verki í húsinu á laugardag-
inn, Auði Gunnarsdóttui' sópran,
Gunnar Guðbjörnsson tenór, flautu-
leikarana Guðrúnu Birgisdóttur og
Martial Nardeau og píanóleikarann
Carl Davis; öll eru þau fagmenn og
húsið við þeirra hæfi. Enn betra var
að héi' voru á ferð listamenn, sem
tókst með hæfileikum sínum að
gæða andartakið slíku lífi að þessir
tónleikai- eiga eftir að lifa lengi í
minningunni. Efnisski'áin vai' „pot
pourri“, blandað efni frá ýmsum tím-
um og heimshornum.
Guðrún og Mai'tial hafa leikið
saman lengi. Samspil þenra ber þess
merki, það er fii'nagott. Af mörgum
og ólíkum vei'kum sem þau léku bar
hæst virtúósíska Fantasíu eftir
Dopplerbræður um stef úr Rigoletto
eftir Verdi. Fantasían hefst á aríu
Rigolettos úr öðrum þætti, en þá
heyrast öll helstu stef þessai-ar vin-
sælu óperu, La donna é mobile, Cai-o
nome og kvartettinn Bella figlia
dell’amore. Guðrún og Martial léku
feiknarvel og gerðu verkið að meiru
en einskærri þindar- og fíngraæf-
ingu. Tvær útsetningar á íslenskum
sönglögum voru líka mjög fallegar í
flutningi þeirra; Lokasöngm- Atla
Heimis Sveinssonar úr leikgerð sög-
unnar Ofvitans eftir Þórberg Þórð-
arson og Búðarvísur eftir Emil
Thoroddsen. Ekki kom fram í efnis-
ski'á hver útsetti lögin, en útsetning-
arnai' voru fínar; Búðarvísurnar
hljómuðu sérstaklega skemmtilega
sem instrúmental gletta eða fantasía.
Leikur Carls Davis með flautuleik-
urunum var góður.
Carl Davis kom mest á óvart í ís-
lensku sönglögunum. Það er alltaf
gaman að heyra hvernig útlendingai'
flytja íslensk lög; fólk sem ekki
þekkir þau í ótal útgáfum ótal söngv-
ara, og er að koma að þeim alveg
ferskt. Honum tókst að gæða þau
svo nýju lífi með fáguðum og músík-
ölskum leik sínum, að íslendingar
þekktu jafnvel ekki lengur lagið
elskaða, Gígjuna, og ætluðu að byrja
að klappa áður en því lauk.
Söngvararnii' voru óneitanlega
stærstu stjörnur dagsins. Gunnar
Guðbjörnsson er ótvh'ætt einn okkar
allra bestu söngvara. Yndisleg rödd
hans og óviðjafnanlegir músíkhæfi-
leikar gera hann að söngvara á
heimsmælikvarða. Það er okkar lán
að Gunnar skuli vera „okkar maður“
og hafa ekki bara útlenda tónlist á
valdi sínu, heldui' líka íslenska. Það
var hreinn unaður að heyra hann
syngja Kveðju Þórarins Guðmunds-
sonar og Smalastúlku Emils Thor-
oddsens. Þá var líka frábært að
heyra Gunnar syngja bæði Mozart og
Verdi; Dies Bildnis ist bezaubemd
schön úr Töfraflautunni var stórkost-
legt í flutningi þeirra Carls Davis og
Dei miei bollenti spiriti úr La travi-
ata sömuleiðis. Ekki er ólíklegt að
það sem þó eigi eftir að standa upp
úr í endurminningunni verði flutn-
ingur hans á Granada eftir Agustín
Lai'a, serenöðunni Rimpianto efth'
Toselli og Core ‘ngi'ato eftir Cardillo.
Það hefur ekki heyi'st oft í Auði
Gunnarsdóttur hér á landi, en hún
hefur þegar skipað sér í flokk með
Gunnari, í úi'valslið íslenski'a söngv-
ara. Röddin er falleg og blæbrigða-
rík og áferðin milli raddsviða þýð og
jöfn. Fáir eða jafnvel engir söngvar-
ar hér hafa jafn gott vald á orðinu og
Auður. Henni tekst fullkomlega að
miðla því sem segja þarf í ljóði, og al-
úðin í túlkuninni er svo áhrifarík að
hún kann að „festa fólk eins og bráð,
upp á fagurglitrandi þráð“, eins og
Þorsteinn Valdimarsson orti um
Amelitu Galli-Curci. Islensku lögin,
Gígjan efth' Sigfús Einarsson og
Leitin eftir Sigvalda Kaldalóns, voi-u
hrifandi í túlkun hennar. Ai’ía Fior-
diligi, Come scoglio úr Cosi fan tutte
eftir Mozart var frábærlega flutt og í
an'unni Bel raggio lusinghier úr
Semiramide eftir Rossini sýndi Auð-
ur frábær tilþrif í gríðarlega erfiðum
kóloratúrsöng. Flutningur Auðar og
Carls Davis á lagi Ai'lens, Some-
where over the rainbow, úr Galdra-
karlinum í Oz verður ógleymanlegur.
Þau Gunnar og Auður sungu nokkra
óperudúetta og Schumann-söngva af
sama listfengi og annað.
Standa hefði mátt fagmannlegar
að tónleikaprógrammi, þar vantaði
upplýsingar um listamennina, nöfn
erlendra Ijóðahöfunda og útsetjara,
ártöl tónskálda og ekki hefði verið
verra að hafa ljóðatexta með. Hvað
um það, þetta voru frábærir tónleik-
ar og sannkölluð hátíðarstemmning í
salnum.
Bergþóra Jónsdóttir
TÓJVLIST
S a 1 u r i n n
KÓRTÓNLEIKAR
Kammerkór Suðurlands flutti ástar-
söngva frá ýmsum löndum undir
stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar.
Einsöngvari var Kristjana Stefáns-
dóttir og undirleikari Arni Heiðar
Karlsson. Sunnudagurinn 10. janúar.
TÓNLEIKARNIR hófust með
Vísum Vatnsenda-Rósu eftir undir-
ritaðan, þá Björt mey og hrein í
raddsetningu Róberts A. Ottósson-
ar og Stóðum tvö í túni í raddsetn-
ingu Hjálmars H. Ragnarssonar.
Raddsetning Róberts er fyrir löngu
orðin klassísk: Utfærsla Hjálmars á
Stóðum tvö í túni er ágætlega gerð
en hvort sem það var söngmátinn
og/eða gerð raddsetningarinnar,
var útkoman ekki í samræmi við
sársaukafullan texta, er fjallar um
tryggðarof. Islensku ástarlögunum
lauk með laginu Ástarsæla eftir
Gunnar Þórðarson, ágætu lagi er
var þokkalega sungið.
Næst var komið við í Skotlandi og
sungið An Eriskay Love Lilt, sem
er úr safni þjóðlaga frá Suðureyjum
og upphaflega safnað og útsett af
Marjory Kennedy-Fraser
(1957-1930), en hér flutt í raddsetn-
ingu eftir Simon Cai'rington, sem
var allt of dauflega sungin. Falleg-
asti flutningurinn var Come Again
eftir Dowland, en næsta lag var
Bítlalagið Can’t Buy Me Love, sem
var ágætlega útsett í ekta enskum
madrigalstíl og býsna skemmtilegt
áheymar. Frá Bandaríkjunum voru
flutt þrjú lög, Deep River í ágætri
raddsetningu Burleighs, þjóðlagið
Shenandoah og And So It Goes eftir
Billy Joel en tvö síðustu lögin voru
raddsett af Bob Chilcott í sæt-
væmnum bandarískum dægurlaga-
stíl, sem þarf að syngja með miklu
meiri hljómi og „dýnamík" en gert
var af Kammerkór Suðurlands.
Eftir hlé söng djasssöngkonan
Kristjana Stefánsdóttir tvö djasslög
og var söngstíll Kristjönu, sem er
góð söngkona, að þessu sinni þeirr-
ar ættar er á vel við notkun „míkra-
fóns“, auk þess sem það vantaði allt
„fútt“ í píanóleikinn, en leikur pí-
anistans var vægast sagt í daufara
lagi. Veikur söngur Kristjönu
heyrðist varla og auk þess var tón-
staða laganna á allt of lágu tónsviði.
Frá Svíþjóð var sungið lag eftir
Monicu Dominique og Lars Fossel í
langdreginni dægurlagaraddsetn-
ingu en þar á eftir var komið við í
Frakklandi með laginu Belle, quie
tiens ma vie eftir Arbeau Thoinot
(1520-1595) en rétt nafn hans var
Jehan Tabourot. Hann var aðallega
kunnm- fyrir rit sitt Orché-
sographie, sem var gefið út 1588 og
innihélt mikilvægar útlistanir á
dönsum og danstónlist, meðal ann-
ars ýmsum gerðum branl-dansa.
Hvort umrætt lag er eftir Ai'beau
eða úr safni hans er varla vitað en
fallegt er það, svipar til ástarlaga
frá þessum tíma og var mjög vel
sungið. Líflegasta lag tónleikanna
var frá Spáni, Pasel el agoa, og þar
mátti heyra að kórinn getur sungið
hressilega.
Þrjú síðustu lögin voru frá Is-
landi, Hjá lygnri móðu eftir undir-
ritaðan, Capri-Katarina, eftir Jón
Jónsson frá Hvanná, í ekki sem best
hljómandi dægurlagaraddsetningu
efth' Sigurð Halldórsson, og lauk
tónleikunum með hinum fallegu
Heilræðavísum Jóns Nordals. Það
mátti greinilega heyi’a að kórinn er
vel mannaður en dægurlagaradd-
setningarnar passa ekki við söng-
máta hans, því til að vel fari í fiutn-
ingi slíkra raddsetninga, þarf radd-
mótunin að vera nær kallhljómin-
um. Sá söngstíll, sem stjórnandinn
leggur áherslu á með mjúku tóntaki
og fínlegum söng, á sérstaklega vel
við í alvarlegri kórtónlist, t.d. laginu
eftir Dowland og svo sem heyra
mátti í annarri hægferðugi'i kórtón-
list tónleikanna en þar var söngur
kórsins oft mjög fagurlega hljóm-
andi.
Kammerkór Suðurlands, eins og
hann er í dag, verður aldrei góður
til að syngja dægurtónlist en er frá-
bært efni til flutnings á alvarlegri
tónlist. Þar má læðast inn í tóninn
en í danstónlist þarf að leggja
áherslu á hrynskarpan og jafnvel
tónhvellan flutning, sem var mjög
fjarri í öllum söng kórsins. Vanda-
málið er ekki sönglegs eðlis, heldur
varðar það val á verkefnum og því
miður er langt bil á milli flutnings
skemmtitónlistar og þeirrar sem
leitar inn á önnur svið tilflnninga-
legrar upplifunar en að dansa.
Jón Ásgeirsson
skóli ólafs gauks
Innritun er hafin og fer fram í skólanum, Síðumúla 17, daglega kl. 14-17, sími 588-3730, fax 588-3731.
Eftirtalin námskeið eru í boði á haustönn, en nánari upplýsingar er að fá í skólanum á innritunartíma eða
í ítarlegum bæklingi um skólann, sem við sendum þeim sem þess óska, hvert á land sem er:
LETTUR
UNDIRLEIKUR
1. FORÞREP FULLORÐINNA
Byrjendakennsla, undirstaða,
léttur undirleikur við alþekkt lög.
2. FORÞREP UNGLINGA
Byrjendakennsla, sama oa^
Forþrep fullorðinna.
3. LÍTIÐ FORÞREP ^
Splunkunýtt, spennandi námskeið
fyrir börn að 10 ára aldri.
4. FORÞREP II
Beint framhald Forþreps eða
Forþreps 3 - meiri undirleikur,
einkum „plokk" o.m.fl.
5. FORÞREP III
Beint framhald Forþreps eða
Forþreps 2, dægurlög
undanfarinna 20-30 ára, byrjun á
þvergripum o.m.fl.
6. BÍTLATÍMINN
Eitt af Forþrepunum. Aðeins leikin
lög frá bítlatímabilinu, t.d. lög
Bítlanna sjálfra, Rolling Stones,
vinsæl íslensk lög o.fl. Á
7. PRESLEYTÍMINN
Einkum leikin lög sem Elvis
Presley gerði fræg um alia heims-
byggðina, ásamt alþekktum lögum
íslenskra og erlendra flytjenda frá
sama tíma. Afbragðs þjálfun
8. TÓMSTUNDAGÍTAR
Byrjendakennsla (sama og
Forþrep fuilorðinna, en styttra)
fyrir 16 ára og eldri í samvinnu við
Tómstundaskólann.
HEFÐBUNDINN
GÍTARLEIKUR
9.FYRSTA ÞREP
Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir
byrjendur lærð með því að leika
léttar laglínur á gítarinn o.m.fl.
Forstig tónfræði. Próf.
10. ANNAÐ ÞREP
Framhald fyrsta þreps, leikin
þekkt smálög eftir nótum,
framhald tónfræði- og
tónheyrnarkennslu. Próf.
11. ÞRIÐJA ÞREP
Beint framhald Annars þreps.
Verkefnin þyngjast smátt og
smátt. Framhald tónfræði- og
tónheyrnarkennslu. Próf.
12. FJÓRÐA ÞREP
Beint framhald þriðja þreps. Bæði
smálög og hefðbundið
gítarkennsluefni eftir þekkt
tónskáld. Tónfræði, tónheyrn.
Tekur tvær annir. Próf.
13. FIMMTA ÞREP
Beint framhald Fjórða þreps.
Leikið námsefni verður
fjölbreyttara. Tónfræði, tónheyrn.
Tekur tvær annir. Próf.
HÆGT AÐ FA LEIGÐA
HEIMAGÍTARA
KR. 1500 Á ÖNN
Sendum vandaðan
upplýsingabækling
ONNUR
NÁMSKEIÐ
14. JAZZ-POPP I
Þvergrip, hljómauppbygging,
tónstigar, hljómsveitarleikur
o.m.fl. Nótnakunnátta áskilin.
15. JAZZ-POPP II / III
Spuni, tónstigar, hljómfræði,
nótnalestur, tónsmíð, útsetning.
16. TÓNSMÍÐAR I / II
Byrjunarkennsla á hagnýtum
atriðum varðandi tónsmíðar.
Einhver undirstaða nauðsynleg.
17. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN l/ll
Innifalin í námi.
18. TÓN FRÆÐI-TÓNH EYRN
FYRIR ÁHUGAFÓLK
Fyrir þá, sem langar að kynna
sér hið einfalda en fullkomna
kerfi nótnanna til þess m.a. að
geta sungið/ leikið eftir nótum.
19. KASSETTUNÁMSKEIÐ
Námskeið fyrir byrjendur á tveim
kassettum og bók, tilvalið fyrir þá,
sem vegna búsetu eða af öðrum
ástæðum geta ekki sótt tíma í
skólanum en langar að kynnast
gítarnum. Sent í póstkröfu.
V/SA
(£) 588-3730
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17