Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 16
*6 B SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Ævintýra-
legkvik-
myndagerð
Kvikmyndaframleiðandinn Helgi Felixson
stjórnar nú hverjum ævintýraleiðangrinum
y------------——..
á fætur öðrum. Sænski konungurinn,
sem í fyrsta sinn var viðstaddur frumsýn-
ingu á kvikmynd, lýkur miklu lofsorði
á nýjustu mynd Helga um frumbyggja
í Amazon. Kormákur Þ. Bragason kynnti
sér gerð myndarinnar.
EÐAL þeirra fjöl-
mörgu íslenslcu kvik-
myndagerðarmanna
sem starfa erlendis er
-Helgi Felixson í Stokkhólmi. Helgi
hefur rekið kvikmyndafyrirtækið
Idé Film Felixson AB á annan ára-
tug og framleitt fjölda heimilda- og
auglýsingamynda bæði fyiir nor-
rænan og alþjóðlegan markað. Hér
á landi eru eflaust myndir eins og
Sænska mafían, Bóndi er bústólpi,
DóDó og Baráttan í Barentshafi
mörgum í fersku minni enda vöktu
þær talsverða athygli og í mörgum
tilfellum heitar umræður. Sýning-
um á Sænsku mafíunni fylgdi fjöldi
^blaðagreina bæði í Svíþjóð og hér-
lendis um menningarlegt samband
þjóðanna og áhrif sænskmenntaðra
Islendinga á menningarlíf hérlend-
is. Eins vakti Bóndi er bústólpi
sterk viðbrögð hér heima og
Bændasamtökin svöruðu með eigin
myndaflokki, sem átti að verja ríkj-
andi landbúnaðarstefnu. Baráttan í
Barentshafi hefur farið víða og
meðal annars verið sýnd á besta
sýningartíma í Noregi, Svíþjóð og í
þýsku sjónvarpsstöðinni Arte þar
sem talið er að hátt í 2 milljónir
manna hafi séð myndina.
Alþjóðleg viðfangsefni
A seinni árum hefur áherslan á
uslenskan veruleika vikið úr mynd-
um Helga og færst yfir á viðfangs-
efni með evrópska eða alþjóðlega
skírskotun enda fjármögnun slíkra
mynda mun auðveldari. Samtímis
hefur Idé Film Felixson stöðugt
aukið samvinnu við önnur fram-
leiðslufyrirtæki á Norðurlöndum, í
Evrópu og Bandaríkjunum og
byggt upp víðtækt net samstarfs-
aðila víða um heim. Árið 1996 gerði
Helgi, ásamt sænska leikstjóran-
um Torgny Anderberg, myndina
Raroia - The Paradise Island, sem
fjallar um áhrif kjamorkutilrauna
Frakka á líf frumbyggja Suður-
hafseyja. Myndin hefur verið sýnd
í fjölmörgum sjónvarpsstöðvum og
•'fdrið víða á kvikmyndahátíðir og
áætlanir eru uppi um að fylgja
myndinni eftir innan skamms með
mynd um afkomendur og örlög
þessa fólks sem nú gistir fátækra-
hverfi Tahiti.
I desember á síðasta ári var
frumsýnd í sænska sjónvarpinu
ljóðræn heimildarmynd þýska leik-
stjórans Kristoph Mitchold Kor
oeh Mánniskor, sem Helgi fram-
leiddi og hlaut sú mynd fyrstu
verðlaun nú í vor í samkeppni
Circom, sem eru samtök svæðis-
*sjónvarpsstöðva í Evrópu. Kor och
Mánniskor keppti þar í úrslitum
við 136 myndir víðsvegar frá Evr-
ópu.
Þá var á ráðherrafundi Svíþjóð-
ar og Eystrasaltsríkjanna í Tallinn
í desember 1997 frumsýnd myndin
The Baltic Challenge, framleidd af
Idé Film, um framtíðarsýn
Ásænskra tölvu- og símtæknifyrir-
tækja á þróun læknisþjónustu, ör-
yggis- og samskiptamála við
Eystrasalt og er um þessar mundir
unnið að amerískri útgáfu af þeirri
mynd. Síðast sáum við svo í Ríkis-
sjónvarpinu á dögunum í tengslum
við Jasshátíð Reykjavíkur mynd
Idé Film um trommuleikarann
Pétur Östlund, sem búið hefur í
Svíþjóð við góðan orðstír undanfar-
in ár.
Með íjórar myndir í takinu
Um þessar mundir eru að
minnsta kosti fjórar alþjóðlegar
myndir í framleiðslu undir stjórn
Helga auk annarra verkefna. Sem
dæmi má nefna: Zamarkands fiol,
merkilega tilraunamynd ungs kól-
umbísks leikstjóra, Santiago Pinto,
þar sem stefnt er saman fílmu og
háþróaðri tölvutækni. Sú mynd er
framleidd með stuðningi Sænsku
kvikmyndastofnunarinnar í sam-
vinnu við fleiri framleiðslufyrir-
tæki, sem vilja ná tökum á nútíma-
tækni í kvikmyndaframleiðslu. Þá
er Helgi framleiðandi myndar
sænska leikstjóraparsins Ulf og
Áse Hultberg um veruleika og ör-
lög gleðikvenna í Mexikóborg.
Minnstu munaði að illa færi við
tökur þeirrar myndar í Mexikó-
borg síðasta sumar en Ulf og Áse
áttu fótum fjör að launa þegar
melludólgar gerðu skotárás á
tökuliðið. Þá hefur Idé Film yfir-
tekið framleiðslu myndar ung-
verska leikstjórans Elisabet
Márton um Sabine Spilreiner, sem
fjallar um stormasamt samband
hennar við C.G. Jung og Sigmund
Freud og þátt hennar í kenningum
þeirra. Sabine Spilreiner hefur af
mörgum verið talin eiga mun
stærri þátt í hugmyndafræði
þeirra beggja en hingað til hefur
verið viðurkennt.
Konungurinn á frumsýningu
Þann 23. september síðastliðinn
var nýjasta mynd Idé film svo
frumsýnd í viðurvist sænsku kon-
ungshjónannana og er það í fyrsta
sinn í sögunni sem sænski konung-
urinn er viðstaddur frumsýningu á
kvikmynd. Fjölmiðlar í Svíþjóð
tóku myndinni afar vel, konungur-
inn hvatti fólk til að sjá myndina og
hældi henni á hvert reipi.
Öll kynning á myndinni hefur
verið í höndum Idé Film sem er
fremur óvenjulegt. Venjulega
þurfa framleiðslufyrirtækin að
koma með uppáskrifaða samninga
við dreifíngaraðila til að fá stuðn-
ing kvikmyndastofnunarinnar.
Hins vegar hefur Sænska kvik-
myndastofnunin lýst mikilli
ánægju með árangurinn og líklegt
er að Idé Film sjái í framtíðinni um
kynningu og dreifingu íyrir fleiri
kvikmyndafyrirtæki í Svíþjóð enda
hafa dreifingaraðilar staðið í biðröð
eftir að koma höndum yfir mynd-
ina.
I framhaldi af velheppnaðri
Ljósmynd/Georg Kristiansen
UNGUR drengur með föður sínum í skóginum. Masjetas-hnífurinn er alltaf tiltækur.
Ljósmynd/Hallgrim 0degaard
FRÁ vinstri: Georg Kristiansen, ljósmyndari frá Noregi, Helgi Felix-
son framleiðandi, Torgny Anderberg leikstjóri, Sylvía Svíadrottning,
Carl Gustav Svíakonungur. í bakgrunni Louise Felixson, kona Helga,
Marianne Anderberg, kona Torgnys.
Ljósmynd/Georg Kristiansen
KONA af Ashaningas-ættbálki undirbýr
Torgny Anderberg fyrir vígsluathöfn.
kynningarherferð í Svíþjóð hefur
frumsýning verið ákveðin í Lima
höfuðborg Perú þann 10. desem-
ber, sem verður upphafið að kynn-
ingarherferð í Suður-Ameríloi í
samvinnu við sænsku sendiráðin
þar.
Inn í frumskóginn
Þessi nýjasta heimildarmynd
Helga og Torgny Anderberg, er af-
rakstur alþjóðlegs leiðangurs kvik-
myndagerðarmanna inn í frum-
skóga Perú gegnum yfirráðasvæði
skæruliða Hins lýsandi stígs
(Sendero luminosa) til móts við As-
haningas indíánana, sem eru frum-
byggjar af stofni Campa indíána
við upptök Amasonfljótsins í hlíð-
um Ándesfjalla. Myndin er fram-
leidd með stuðningi Sænsku kvik-
myndastofnunarinnar, Sænska
sjónvarpsins SVT Kanal 1, fínnska
sjónvarpsins YLE í samvinnu við
Mika Kaurismaki, TV2 í Noregi,
norska símafyrirtækisins Telenor
og sænsku hjálparstofnunarinnar
Diakonia.
Ævintýramaðurinn Torgny And-
erberg, sem nú nýlega varð átt-
ræður og er við ótrúlega góða
heilsu, hafði áður gert heimilda-
myndir í Perú og dvalið langdvöl-
um meðal indíána í frumskógum
Amason. Minnstu munaði reyndar
að hann snéri baki við „hinum sið-
menntaða heimi“ og yrði eftir í
frumskóginum þegar hann var
vígður inn í samfélag Campa
indíána á áttunda áratugnum. Ár-
um saman hefur hann úr fjarlægð
fylgst með ófórum indíánahópa
Campa í viðureign þeirra við vægð-
arlaus stjómvöld, óbilgjarna land-
nema og skæruliða Sendero
luminosa. Mannrán, nauðganir og
morð eru daglegt brauð í frum-