Morgunblaðið - 17.01.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999 B 17
skóginum og í mörgum tilvikum
hafa heilu þorpin verið þurrkuð út.
Margir Campa indánar hafa yfir-
gefið þorp sín og dregið sig dýpi'a
inn í frumskóginn þar sem þeir eru
óhultir fyrir hryðjuverkum skæni-
liða. Aðrir hafa verið neyddir til
samvinnu við Sendero og eru þess
vegna iðulega álitnir réttdræpir af
„contra“- hersveitum stjórnarinnar
og landnemum. Flestir skærulið-
anna eru borgarbúar og því alger-
lega háðir aðstoð Campa um vista-
öflun og leiðsögu í frumskóginum.
Samtímis ei-u skæraliðar Sendero
luminosa, sem réðu svæðinu þar til
fyiir skömmu, nú svo aðþrengdir
vegna framrásar stjórnarhersins
að þeir svífast einskis í viðskiptum
sínum við frambyggjana.
Draumurinn rættist
Þrátt fyrir þessar erfiðu að-
stæður hefur Torgny í gegnum ár-
in tekist að halda sambandi við
nokkra af vinum sínum meðal As-
haningas indíánanna. En þó svo að
samskiptin færu dvínandi hélt
Torgny vakandi draumi um að
snúa til baka til Ashaningas og
gera mynd um aðstæður og örlög
þessa fólks sem þrátt fyrir örbirgð
sína og endalaust harðræði barð-
ist við að halda lífi í ævafornri
menningu og lifnaðarháttum. Árið
1996 opnaðist svo langþráður
möguleiki fyrir Torgny að heim-
sækja svæðið. Hei'inn hafði náð
nokkram tökum á svæðinu þó svo
enn væri það yfirlýst hættusvæði
og lokað ferðamönnum. Torgny og
Helga tókst að afla fjár til könn-
unarferðar sem Torgny fór ásmt
aðstoðarmanni sínum, Bandaríkja-
manninum Flynn Donovan, þá um
sumarið. Á meðan hélt Helgi
áfram fjáröflun fyrir myndina
heima í Svíþjóð og víðar og í júní
1997 var öllum undirbúningi lokið
og förinni heitið til Perú. I hópn-
um voru auk Torgnys og Helga,
Flynn Donovan, kvikmyndatöku-
maðurinn Hallgrim 0degaard, og
ljósmyndarinn Georg Kristianseh,
báðir frá Noregi, og brasilískur
læknir að nafni Oscar Rodreguez.
Vonbrigði
Það var löng þrautarganga að fá
leyfi til að fara inn á svæðið og
enn erfiðara að fá leyfi fyrir kvik-
myndatökurnar. Þegar upp var
staðið höfðu þeir félagarnir uppá-
skrifuð leyfísbréf frá sjö mismun-
andi ráðuneytum og ríkisstofnun-
um í Perú.
Frá Ayacucho, sem liggur um
500 kílómetra sunnan við Lima, var
haldið í þyrlu hersins að fyrstu
bækistöð leiðangursins í Otara við
fljótið Rio Apurimac þar sem þeim
var fengin fylgdarsveit vopnaðra
hermanna áleiðis inn á landssvæði
indíána. Fljótlega kom þó í ljós að
nærvera hermannanna ýfði upp
áralanga tortryggni indíánanna í
garð hersins og tökuliðinu gekk
erfiðlega að ná tránaði þeirra með-
an hermennirnir vora nálægir. Eft-
„ Ljósmynd/Georg Kristíansen
FRÁ vinstri: Hallgrim Odegaard tökumaður, Torgny, Helgi og Flynn Donovan á leið til baka úr
frumskóginum. Vegurinn lá yfir fjallaskarð í Andesfjöllum í 4.500 metra hæð yfir sjávarmáli.
BÖRNIN voru stöðugt í mikilli nálægð við mæður sínar.
i-uijii.Æ.';..
HELGI fær boga að gjöf frá ungum Ashaningasdreng.
ir mikla rekistefnu tókst þeim að
fækka hermönnunum niður í tvo
óvopnaða eftirlitsmenn meðan far-
ið vai- á „kanóum“ eftir Ap-
urimacfljótinu, og loks tókst þeim
að fá leyfi til að halda einir áfram
inn í framskóginn í fylgd gamals
vinar Torgnys, Ashaningashöfð-
ingjas Amadeo og manna hans.
Burðarmenn og aðstoðai'menn á
hans vegum vora um 45 talsins
meðan mest var en hópurinn smá-
þrengdist eftir því sem innar dró í
framskóginn.
Upphaflega hugmynd Torgnys
var að leita uppi unga stúlku,
Chabuka, sem hann hafði tekið ást-
fóstri við meðan hann dvaldi í þorpi
Ashaningahöfðingjans Femandos
tuttugu árum áður. Stúlkan var þá
sjö ára og hugmyndin var að
byggja myndina í kringum örlög
hennar og líf í framskóginum. En
„siðmenningin" hafði gleypt
Chabuka til hálfs og vonbrigði
Torgnys yfir endurfundunum voru
mikil. Áður en þeir félagamir vissu
af sigldu þeir annað hvort ófær
fljót á balsastokkum og kanóum
eða bratust yfir leiraga stíga í
gegnum laufþykkni framskógai'ins
í hamslausri leit gamla mannsins
að þeirri paradís sem hann hafði
yfirgefið tuttugu áram áður.
Vonbrigðin vora ekki minni þeg-
ar þeir hittu Fernando sjálfan,
höfðingjann, sem hafði vígt Torgny
inn í Áshaningasættbálkinn tutt-
ugu ámm áður. Fernando, sem
verið hafði áhrifamikill Ashan-
ingashöfðingi, stoltur maður og
leiftrandi af lífsgleði, var nú ekki
svipur hjá sjón. Hann hafði orðið
að beygja sig og þorp sitt undir
Sendero til að halda lífi. Af mörg-
um indíánahópum era „Sender'-
þorpin“ hunsuð og indíánar sem
starfa með Sendero álitnir svikar-
ar. Femando vai' niðurbrotinn
maður. Þannig lá ferð þeirra félaga
sífellt lengra inn í framskóginn í
leit að „ómenguðu" Ashaninga-
sþorpi. Hvarvetna hittu þeir fyiir
indíána sem vitnuðu um morð o£
hryðjuverk í þorpunum. Jafnvel
böm, konur og gamalmenni höfðu
verið skotin eða brytjuð niður með
„masjetas“ (stóram framskógar-
sveðjum) hvar sem til þeirra náðist
og þorpin jöfnuð við jörðu.
Óbreytt lífssýn
En þrátt fyrir allt hefur lífssýn
indíánanna ekki breyst og skógur-
inn er enn þá stærsti áhrifavaldur-
inn í lífí þeirra og jákvæð lífsspek-
in, sem er einhverskonar hagkvæm
skynsemi blönduð andatrá og
galdri, vai' og er enn grandvöllur
hins daglega lífs. Ashaningas
indíánar, en Ashaningas þýðir mitt
fólk, lifa nær eingöngu á veiðum og
söfnun. Eina plantan sem þeir
rækta er manjúka, stór rótarvöxt-
ur sem gefur mikla næringu og er
grannfæða þeirra ásamt fiski sem
þeir veiða í ánum. Við veiðamar er
notað curare eitur sem lamar fisk-
inn og hann er síðan tíndur upp þar
sem hann flýtur í yfírborðinu.
Áhöld og verkfæri era nær eng-
in. Masjetas-sveðjan, sem þeir út-
vega sér gegnum einhver óræð
vöraskipti er notuð bæði sem hníf-
ur, öxi og skófla en boga og örvar,
gera þeir sjálfir og beita af mikiili'
fimi. Húsakynni eru litlir kofar úr
trjábolum og ofnu laufi. Maturinn
er eldaður yfir sprekum sem era
dregin saman í þeim tilgangi en
raunveraleg eldstæði era engin.
Indíánamir lifa með ljósinu, stíga
upp við dagrenningu og leggjast til
svefns við sólsetur.
Ymsir hitabeltissjúkdómar hrjá
indíánana og nærvera Oscars var
afar velkomin þó ekki hefði hann
önnur lyf en pensilín til að liníj.
þjáningar þeirra. Kvikmyndavélin,
videóvélin, ljósmyndavélamar og
hljóðnemamir gengu án afláts í
þær 6 vikur sem þeir félagar dvöld-
ust meðal indjánanna. Þrotlausri
vinnu mánuðum saman við að ljúka
myndinni lauk fyrir nokkrum vik-
um eins og áður sagði þegar hún
var framsýnd í Scandia kvik-
myndahúsinu í Stokkhólmi í viður-
vist Carl Gustavs 16. Svíakonungs,
Silvíu drottningar, íslenska sendi-
herrans og fleiri stórmenna en
konungurinn og Torgny Ander-
berg era einmitt félagar í sama
landkönnuðarfélagi, háæraverðug-
um klúbbi sem Helga hefur nú ver-
ið boðin innganga í. En á meða vicþ
hér heima bíðum spennt eftir ao
sjá þetta nýjasta afkvæmi Idé Film
hafa þeir félagar þegar hafið undir-
búning að næsta verkefni, sem
áætlaðar tökur era á næsta vetur,
djúpt inni í framskógum Brasilíu.
Höfundur er kvikmyndafræðingur.
- Qv-^-Árf-1
MG-701 DAF 95, Ati, 6X4 stell bíll,
420 hp, kojuhús. Áng. 1993, ekinn
490,000 km. Flutningabíll með kassa.
Astand mjög gott.
Vferð 3.705.000 + VSK.
HJ-270MAN 19.281,4x4 aidrifsbíll,
320 hp. Árg. 1994, ekinn 420,000
km. Með gámagrind, daghús.
Bfll í mjög góðu ástandi.
Verð 1.270.000+ VSK.
W-786 SCANIA 143,6X4 stell bfll,
450 hp, CR19 kojuhús. Arg. 1993,
ekinn 520.000 km. Flutningabíll með
kassa og frystivél. Ástand mjög gott.
Verð 4.750.000 + VSK,
ST-585 SCANIA 112H,6x4stellbíll,
Arg. 1988. SkráðurVrst 1990. Daghú
Ekinn 750.000 km. Ásamt tveggja öxlr
malarvagni.
véladeild
sími 569 5700
www.hekla.is
1SSÉÉ®
Til sýnis á bilasölunni Braut, Borgartuní 26
hhhmh
[gwgrTO
J!;