Morgunblaðið - 17.01.1999, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MÉR ætlar ekki að verða kápan úr
því klæðinu að færa fram tillögu
mína til að ýta burtu úr málinu
orðskrípinu „markaðssetning“. I
tvígang hefir prentvillupúkinn, og
kenni ég þá engum um nema hon-
um, eyðilagt helminginn af tillögu
minni. Pess vegna ætla ég að end-
urtaka þetta í þriðja sinn: Mark-
aðssetningu legg ég til að við köll-
um mörkun, en að markaðssetja vil
ég nefna „að merka“ ekki að
merkja, eins og púkinn hefír tví-
vegis prentað. Nóg um það.
Móðir náttúra minnti á sig á ár-
inu eins og endranær og fórum við
hér í Flórída, ekki varhluta af því.
Unga fólkið, sem vinnur við fjöl-
miðlana á Fróni, fylgist feikilega
vel með slíku, hvar sem er í heim-
inum, og hringir þá gjaman í ræð-
ismenn landsins til þess að afla
upplýsinga um, hvort náttúrham-
farirnar hafí á einhvern hátt skað-
að íslenzka borgara líkamlega eða
efnahagslega. A síðasta ári þurftu
þeir í þrígang að hringja í frétta-
mann ykkar.
Fyrst voru það skýstrokkarnir,
sem þeystu eftir austanverðum
miðjum skaganum 22. febrúar.
Fjölmennt þorrablót hafði verið
haldið á svipuðum slóðum daginn
áður. Nokkrir landar höfðu „hér
um bil“ lent í ósköpunum, en sem
betur fór sluppu allir. Ung fjöl-
miðlakona sagði við mig í síman-
um, að það hlyti að vera að ein-
hverjir Islandsmenn hefðu búið á
svæðinu, sem strokkamir lögðu í
rúst. Hún varð hálfsúr, þegar ég
fullvissaði hana um að svo hefði
ekki verið.
I júlí komu svo skógareldarnir á
svipuðu svæði og strokkarnir höfðu
áður geisað. Þeir, sem misst höfðu
hús sín í þeim náttúruhamförum,
þurftu a.m.k. ekki að hafa áhyggj-
ur af því, að eldurinn myndi skaða
Minnisvert
frá liðnu ári
þá. Fjölmiðlafólkið hringdi ótt og
títt af Fróni og birtust misjafnlega
glöggar fréttir í miðlunum heima.
I fyrirsögn í einu blaðinu sagði að
eldarnir ógnuðu Orlando. Stað-
reynin var sú, að þeir voru meira
en 50 km í burtu. Myndi eldur í
Þingvallaskógi geta ógnað Reykja-
vík? Alla vega var ég mjög ánægð-
ur að geta sagt þeim, að ís-
lenzk/bandarísk fjölskylda hefði
orðið að yfirgefa hús sitt, þegar
eldurinn ógnaði. Allir voru ánægð-
ir og þó mest fjölskyldan, sem gat
flutt heim aftur í óskemmt hús,
þegar búið var að slökkva eldana.
Svo kom fellibyljatíminn, en þá
stendur stormguðinn í klofstígvél-
um í Suður-Atlantshafinu og mið-
ar byljabyssu sinni á Flórída og
hleypir af hverjum fellibylnum á
fætur öðrum. Sem betur -fer er
hann ekki hittinn, því stormarnir
hans bruna tvist og bast og fara
oftast fyrir sunnan eða norðan
okkar heittelskaða skaga, þótt
auðvitað geri þeir mikinn usla og
valdi mannsköðum annast staðar.
Þeir, sem fara norður fyrir, bruna
svo norður AUantshafið og ráðast
á eymingja Island, sem á ér
einskis ills von og er náttúrlega
ekkert ánægt að fá allan þennan
vind, sem Flórída átti að fá. En
svona er nú lífið og í því ekkert
réttlætið.
Fellibylurinn Georg komst næst
Þórir S. Gröndal
skrifar frá
því að heimsækja Flórída í sept-
emberlok. Hann stefndi lengi vel
næstum beint á okkur og voru fjöl-
miðlarnir hér búnir að hræða líf-
tóruna úr mörgum manninum og
flúði fjöldi fólks norður á bóginn.
Kaupmenn voru himinlifandi, því
hlutir eins og rafhlöður, vatn,
dósamaður, krossviður, kerti og
margt annað seldist eins og heitar
lummur. En á síðustu stundu
sprakk Georg á limminu og sigldi
suður fyrir skagann. I þriðja sinn
sluppum við landar hér með
skrekkinn.
Eins og þið vitið, hafa viðskipti
með frystan fisk orðið fyrir stór-
kostlegum breytingum eftir að það
fór að tíðkast, að heilfrysta fisk og
selja hann til vinnslu, stundum í
öðrum löndum. Islenzk frystihús
hafa t.d. þannig keypt mikið af
heilfrystum þroski af Rússum, sem
þau hafa þítt upp, flakað, fryst aft-
ur og síðan flutt út. í fyrra gerðum
við viðskipti, sem í fór með sér
höfðu lengra ferðalg fyrir dauðan
þorsk, en ég hafði heyrt um áður.
Frystihús í Taílandi keypti farm
af heilfrystum þorski frá Rúss-
landi. Eftir að búið var að flaka,
pakka og endurfrysta fiskinn,
keyptum við hann og var hann
fluttur alla leið hingað til Flórída.
Skömmu seinna seldum við hann
svo aftur til fyrirtækis hér, sem
var með lægsta tilboðið, þegar Sa-
meinuðu þjóðirnar leituðu eftir
matvælum fyrir friðargæslusveitir
sínar. Var fiskurinn nú settur í
frystigám og fluttur alla leið til
Sýrlands! Var hann endanlega
matreiddur og étinn uppi á Gólan-
hæðum, þar sem hermenn frá
ýmsum þjóðum stía sundur gyð-
ingum og aröbum. Lauslega áætl-
að ferðaðist þessi þorskur um
38.000 kílómetra eftir að hann
hætti að synda!
Skiljanlega erum vér hér í Suð-
ur-Flórída hálfvængbrotin eftir að
Flugleiðir skildu okkur eftir eins
og skít í polli, þegar þeir felldu
niður flug til Fort Lauderdale. í
staðinn hafa þeir flogið gi-immt til
Minneapolis og skilst mér, að þeir
hafi boðið svo mikil kostakjör
þangað, að fjöldi fólks hafi ekki
haft efni á að hafna þeim boðum.
Og nú er líka hætt að fljúga til
Lúxemborgar og tilkynnt hefir
verið að hætt verði líka að sjá um
þjónustu til Helsinki. Hvar fellur
öxin næst? Vonandi ekki á Kefla-
vík!
í fyrra var fyrst, fyrir alvöru
farið að tala um að nota 1000 ára
afmæli landafunda Leifs heppna
og annarra íslenzkra kappa til að
gera mikið kynningarátak í Amer-
íku og koma íslandi endanlega inn
á kortið. Þetta verður hægara sagt
en gert því meirihluti bandarísku
þjóðarinnar er mjög ófróður í sögu
og landafræði og það sem verra er,
fólk hefur takmarkaðan áhuga á
slíku. Það er svo margt, sem kepp-
ir um að ná athygli hins almenna
borgara og fólk virðist eiga bágt
með að einbeita sér að einu eða
neinu. _Um daginn útlistaði ég
áform Islendinga fyrir árið 2000
fyrir amerískum manni, sem ég
taldi vel menntaðan og framsýnan.
Þegar ég hafði lokið máli mínu, leit
hann upp, yppti öxlum og sagði:
„Who cares?“
Svo er það spurningin um
frændur okkar Norðmenn. Enginn
veit, hvort þeir ætla að halda til
streitu eignarrétti sínum á Leifi og
stela „glæpnum“ frá okkur hérna í
henni Ameríku á 1000 ára afmæl-
inu. Ég var minntur á þetta, þegar
ég fór fyrir jólin í norska búð, sem
rekin er í Fort Lauderdale, að
kaupa síld, reyktan lax og aðrar
kræsingar fyrir hátíðaborðið. A
skilti sem hékk á veggnum fyrir of-
an peningakassann stóð: „Okkur
líkar ljómandi vel í Ameríku -
norskri nýlendu síðan 1004.“ Þeg-
ar ég var að fara, renndi inn á bfla-
stæðið silfurlitaður mestmegnis
Benz af stærstu gerð. Ut úr honum
steig prúðbúið par, sæt kona og
lágvaxinn maður með kúluvömb. I
stað talna á bílnúmerinu stór SIR
ERIK. Hér virtist vera á ferðinni
norskur aðall. Ég var ekki viss um
hvort ég ætti að hneigja mig.
Accelerated Training for MSCE Core Microsoft Windows NT 4.0
(combined Core & Admin), (MS 983).
Lengd fimm dagar.
Tími 25. - 29. janúar.
Verð kr. 125.000,-
Undirbúningur undir Microsoft próf nr: 70-067 og 70-073.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við Windows NT, svo sem
umsjónarmönnum tölvukerfa og þeim sem setja upp, stýra og leysa
vandamál við Microsoft Windows NT. Þetta námskeið hefur verið
mjög vinsælt þar sem farið er frekar hratt yfir, f rauninni er farið
yfir námsefni tveggja námskeiða (NT Core og NT Admin).
System Administration for Microsoft SQL Server 7.0( MS832)
Lengd fimm dagar.
Tími 1. - 5. febrúar.
Verð kr. 125.000,- uppselt
Undirbúningur undir Microsofl
Námskeiðið er ætI^ð»þe%jpim^Bfjakmr^^?ðhalda og þjónusta
Microsoft® SQL SgrwMhglm 7.fl^pámskeiðið er heildaiuppfærsla
af námskeiði {m.wæm Awministration for Microsoft SQL Server
6.5. Efni námskliðangTiefur verið breytt í samræmi við breytingar
á kerfinu og einnig er lögð meiri áhersla á verkefnavinnslu.
Implementing Microsoft Internet Explorer 4.0 (MS 956).
Lengd tveir dagar.
Tími 8. - 9. febrúar.
Verð kr. 60.000,-
Námskeiðið er ætlað þeim sem þurfa að þekkja byggingu og lykil-
atriði Microsoft® Intemet Explorer version 4.0.
Námskeiðið hjálpar þeim að setja upp, viðhalda og þjónusta Intemet
Explorer í netumhverfi með með sérstaka áherslu á notkun innranets.
Creating and Configuring a Web Server Using Microsoft Internet
Information Server 4.0 (MS 936)
Lengd þrfr dagar.
Tími 10. - 12. febrúar.
Verð kr. 90.000,-
Námskeiðið er ætlað þeim sem setja upp, þjónusta og skrifa
fyrir Microsoft® Intemet Information Server (IIS).
Mastering Web Site Fundamentals. (MS1009).
Lengd fimm dagar.
Tími 15. -19. febrúar.
Verð kr. 125.000,-
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa unnið að eða eru að hefja
vefsíðugerð. Farið er f grundvallaratriði í gerð lifandi HTML síðna,
fjallað um Intemet og innranet og kennt á Microsoft tól og tæki
sem nauðsynleg em í veíþróun. Notað er Microsoft Frontpage og
búnar til síður með ýmsum stýringum, s.s. ActiveX™ stýringum,
Java og biðlaraskrift. Nemendur munu einnig læra að gefa út og
prófa vefsíður á vefþjóni.
Kennsluaðstaða
Kennt verður á fyrsta flokks tölvubúnað í mjög fullkominni nám-
skeiðaaðstöðu á fjórðu hæð í húsnæði EJS hf við Grensásveg 10.
Allir kennarar á Microsoft sérfræðinámskeiðum skólans em með
viðurkenningu frá Microsoft (Microsoft Certified Trainer).
Það er breski tölvuskólinn Pygmalion sem sendir okkur
sérmenntaða kennara sfna og fer námskeiðið fram á ensku.
Hádegisverður er innifalinn í verði námskeiða!
Námsefni frá Microsoft Education Services fylgir námskeiðunum.
Lýsinqu á námsefninu er að finna á heimasíðu okkar. www.ejs.is. undir skóli
Skráning og fyrirspurnir
Tekið er við skráningum og fyrirspurnum hjá skólastjóra Tölvuskóla EJS
í síma 563 3000 (Margrét Guðjónsdóttir) eða með tölvupósti á netfang
margret@ejs.is.
Grensásvegi 10 * Sími 563 3000 • Fax 568 8487