Morgunblaðið - 17.01.1999, Qupperneq 22
fB2 B SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
TÓNLISTARMAÐURINN Pétur Einars-
son, sem kallar sig P6, fer gjarnan ótroðn-
ar slóðir við útgáfu og kynningu á tónlist
sinni. Pétur hefur helst komið fyrir sjónir
manna í myndböndum, en hann hefur
einnig sent frá sér stök lög og kynningar-
efni. Fyiir stuttu gaf hann út diskinn
Colors sem inniheldur nokkur lög Péturs,
auk þess sem talsvert tölvuefni er að fínna
á disknum.
Pétur segir að tilgangur sinn með útgáf-
unni sé að koma sér upp aðstöðu til að
vinna allt sjálfur, tónlist, hönnun ofl., læra á
ferlið og komast að því hversu vel gengi að
sameina áhugann á tónlist, tölvum og list-
rænan metnað miðað við þann tíma sem
hann hafi gefið sér og þau íjárráð sem hann
hafði. „Diskminn var bara markmið. Ég er
um 20% ánægður með útkom-
una, eins og sjá má í dagbók sem
fylgir á disknum, og nokkuð sátt-
ur yfír heildina, enda er þetta ör-
lítið betra á köflum en ég bjóst
við,“ segir Pétur.
Hann segir að með þessum
diski sé hann langt í frá að full-
nægja öllum þeim kröfum sem
hann geri hvað stefnu í tónlist,
hljómgæði og flutning. „Lögin á
þessum diski eru frekar í ein-
faldari og rólegri kantinum og
standa betur undir sér í einföld-
um útsetningum eins og þau eru
á Colors en mörg þeirra laga
sem ég á og krefjast mun betri
vinnslu, betri flutnings, betri
hljóðfæra o.s.frv. Þannig á ég
t.d. nokkurt safn af rokklögum,
danstónlist, kammertónlist og
jafnvel stöku jazzhugmyndir.“
Pétur segir að upptökurnar
hafí íyrst og fremst verið æfing,
„full af málamiðlunum, eins og næstum allt
sem ég hef gert hingað til, því miður. Fyrir
um áratug hafði ég um tvennt að velja, ann-
aðhvort að hjakka í sama farinu með kröfu
um fullkomnun á bakinu og gera ekki neitt,
eða reyna að taka þessu með ró og vinna
mig upp. Með Colors lít ég svo á að æfmg-
um og tilraunum hjá mér sé lokið.“
Colors kom út 27. desember sl. og Pétur
segir að daginn eftir hafi hann lagt drög að
næsta diski, valið á hann um 12 til 15 lög,
sem öll eru útsett og til í prufuupptökum,
nafn disksins sé tilbúið, hugmynd að hönn-
un og svo megi telja. Hann býst við að
íyrsta lagið verði tilbúið með vorinu og
hyggst hann fullvinna þann disk í sumar.
„Sá diskur mun innihalda nær eingöngu
rokktónlist og jafnvel öskrað og æpt í ein-
staka lögum. Almennt séð stefni ég að því
að gera disk á ári, ef ég mögulega get.
Þetta var tímafrekt, kostnaðarsamt, erfítt
og flókið ferli, en útkoman mjög gefandi."
Reggiskald Lmt
on Kwesi Johson.
Bellatrix
á ferð og flugi
HLJÓMSVEITIN Bellat-
rix hefur í nógu að snú-
ast nú um stundir, leikur til
að mynda á tuttugu tónleik-
um ytra í janúar. Fyrir rúmri
viku hófst tónleikaferð sveit-
arinnar um Evrópu og í
kvöld leikur hún í Blackwood
skólanum í Wales.
Tónleikaferðin hófst í þeim
fomfræga stað Paradiso í
Amsterdam 7. janúar sl. og
síðan lá leiðin á Eurosonic
útvarpshátíðina í Groningen í
Hollandi til Brussel, Eid-
hoven, Lundúna, Reading,
Bristol, þá tO Exeter og í
kvöld leikur Bellatrix í
Blackwood-skólanum í Wales
eins og áður er getið. A
morgun heldur sveitin til
Newport í Wales og leikur í
v.3, og síðan er ferðinni fram
haldið svo: 19. verður leikið í
Waterford-tækniskólanum á
Irlandi, 20. í Nancy Spains í
Cork á írlandi, 21. í tónlistar-
miðstöð Dyflinnar, 23. í Bo-
ardwalk í Manchester, 25. í
Bullingdon Ai-ms í Uxavaði,
26. í Boat Race í Cambridge,
27. í Y klúbbnum í Chelms-
ford, 28. í The Albert í
Brighton, 29. í Borderline í
Lundúnum og 30. í The For-
um í Tunbridge Wells. Þá fá
sveitarlimir stutt frí því 24.
febrúar er sveitin aftur kom-
in af stað ytra, nú í Kroa í
Noregi, Joá eru tónleikar 25. í
Mars í Osló, 26. í ASJ í
Björgvin, 27. í ByLarm í
Stafangri, 4. mars í Stengade
30 í Kaupmannahöfn, 5. í
Rytmeposten í Óðinsvéum og
lokatónleikar að sinni verða
væntanlega á ótilgreindum
stað í Árósum.
MARGIR minnast heimsóknar
reggískáldsins Lintons Kwesis
Johnsons og dub-sveitar Dennis
Bowell hingað til lands fyrir löngu
og tónleikum í því sem þá kallaðist
Kiúbburinn. Linton var þá með
áhrifamestu ljóðskáldum Bret-
landseyja og tónlist hans vinsæl,
en einnig var hann virtur sem
óþreytandi baráttumaður fyrir
réttindum lítilmagnans. Island-út-
gáfan sendi á dögunum frá sér
tvöfalda safnskífu þar sem finna
má helstu verk Johnsons í bland
við sjaidheyrt efni sem gefur gott
færi á að h'ta yfír feril hans.
Linton Kwesi Johnson fæddist á
Jamaica fyrir bráðum fímmtíu
áram. Hann ólst upp við guðsótta
og gamla háttu á býli ömmu sinnar
og hefur sagt svo frá að hann hafi
ákveðið að verða
ljóðskáld fyrir
kjmni sín af
skáldskapnum í
Gamla testament-
inu. Ellefu ára
gamall fluttist
Johnson með
móður sinni til
Englands og bjó
eftir það í Brixton-hverfinu í
Lundúnum og býr þar reyndar
enn. Eftir því sem Johnson jókst
þroski og skilningur á lífinu í
kringum sig fékk hann meiri
áhuga á réttindabaráttu litra og
drakk í sig innblástur frá þeldökk-
um rithöfundum vestan hafs, ekki
síst meðlimum Svörtu hlébarð-
anna. Liður í starfi hans í samtök-
um blökkumanna í Brixton var
ljóðalestur og fyrir hvatningu
áheyrenda sinna tók hann að troða
upp með slagverkssveit rastafari-
manna. Fyrsta ljóðbók Johnsons
kom út 1974 og 1975 kom bókin
Dread Beat and Blood sem vakti
gríðarlega athygli í Bretlandi og
gerði Johnson að bókmennta-
stjörnu. Hann langaði þó að feta
sig lengra í átt að tónlistinni og
fékk Dennis Bowell til að setja
saman með sér plötu byggða á
ljóðunum í Dread Beat and Blood.
Johnson gerði útgáfusamning
við Island árið 1979 og fyrsta Is-
land-platan, Forces of Victory,
náði miklum vinsældum í Bret-
eftir Árno
Matthíasson
landi, en ekki voru textarnir á
plötunni síður áhrifamiklir. Þótt
marxísk sannfæring Johnsons
hljómi sem gamaldags rómantík í
dag, gefur hún textunum sannfær-
ingarhljóm líkt og trúarkveðskap-
ur; í stað innblástursins frá Gamla
testamentinu sem kom honum af
stað í ljóðasmíðinni kemur inn-
blástur frá glænýja testametinu,
Kommúnistaávarpinu.
Tvær plötur komu út 1980, Bass
Culture og LKJ in Dub, sem er
með bestu dub-skífum og fjóram
árum síðan Making History. John-
son hefur lýst því að smám saman
hafi honum þótt frægðin óþægi-
legri og einnig var starf hans að
réttindabaráttu litra æ umfangs-
meira og krefjandi. Han hefur og
látið þau orð falla að smám saman
hafi sér þótt erfiðara að skrifa ljóð
fyrir plöturnar, ekki síst vegna
þess að hann leggi mikla áherslu á
að engar tvær plötur séu eins.
Making History var síðasta
platan sem Johnson gaf út á veg-
um Island þvi vinslit urðu þegar
Island-stjórar létu endurhljóð-
blanda skífuna að honum for-
spurðum.
Eftir að slitnaði upp úr sam-
starfi Johnsons og Island hefur
verið hljótt um hann að mestu, en
þó kom út breiðskífa fyrir fáum
árum. Island-safnið sem sem hér
er gert að umtalsefni heitir
Independant Intavenshan og hef-
ur að geyma safn laga af plötunum
hans þremur fyrir Island og dub-
plötunni sem áður er getið. Einnig
eru á henni nokkur lög sem sjald-
an eða ekki hafa heyrst áður, þar á
meðal 12“ útgáfur laga. Geta má
þess að á plötunni eru lögin af
Making History eins og þeir félag-
ar Johson og Bowell hugðust hafa
þau, þ.e. í upprunalegri hljóð-
blöndun.
Linton Kwesi Johson naut mik-
illar hylli á sinni tíð eins og rakið
er og á safninu má glöggt heyra
hvers vegna. Dubsveit Dennis
Bowell var skipuð framúrskarandi
tónlistarmönnum og Bowell frá-
bær lagasmiður, útsetjari og upp-
tökustjóri. Aðal platnanna er þó
Linton Kwesi Johson og ljóðalest-
ur hans, kraftmikill kveðskapurinn
þrunginn pólitískri sannfæringu.