Morgunblaðið - 21.01.1999, Qupperneq 1
B L A Ð
ALLRA LANDSMANNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
1999
Bjarki
með
stórleik
STJÖRNUMENN unnu sinn sjö-
unda sigur í röð í 1. deildar-
keppninni í handknattleik er þeir
lögðu Hauka að velli í Garðabæ í
gærkvöldi, 28:25. Þeir fyigja
leikmönnum Aftureldingar eins
og skuggi á toppi deildarinnar,
en Afturelding lagði Val að Hlíð-
arenda 28:25. Hér á myndinni til
hliðar fagnar Bjarki Sigurðsson
einu af tíu mörkum sínum, en
hann átti stórleik með Aftureld-
ingu.
■ Úrslit / C2
■ Staðan / C2
i Þórsarar
með enn
einn nýjan
Á LAUGARDAGINN barst
l Morgunblaðinu tilkynning frá
í körfuknattleiksdeild Þórs frá
Akureyri, þar sem sagt var að
féiagið hefði fengið til liðs við
sig Bandaríkjamanninn Luis
Richardson, sem lék í Finn-
jj landi. Hann var sagður koma í ji
stað Lorenzo Oit, sem var lát- p
inn fara í síðustu viku. Þegar ::
öll kurl komu til grafar kom í i;
I ljós að Richardson var í leik-
“ banni í Evrópu. Ástæðan var
! sú að hann varð uppvís að
i neyslu kannabisefna í Finn-
| landi. Hann kom því ekki til
Þórs um helgina eins og áætl-
að var.
Nú voru góð ráð dýr. Orr
var farinn og enginn kominn í
staðinn. í gær var síðan geng-
ið frá því að annar bandarísk-
ur leikmaður kæmi til félags-
ins. Hann heitir Maurice Spill- j
■ð Kefivíking- íi
ðirnar í fyrra %
)ninni. Hann
sinn með Þór g
nað kvöld.
5 að hrakför- g
ítlendinga sé
fréttatilkynn- |:
Nýr leik-
maður í
herbúðir ÍA
Morgunblaðið/Golli
FIMMTUUDA GUR 21. JANUAR
BLAÐ
SKAGAMENN hafa sagt upp samningi við
bandaríska leikmanninn Anthony Jones sem
leikur með úrvalsdeildarliði félagsins í
körfuknattleik. Hann mun leika síðasta leik sinn
með liðinu í kvöld er ÍA mætir Grindavík. Á
morgun fer hann utan og annar Bandarfkjamað-
ur, Kurk Lee, kemur í staðinn. Hann er bak-
vörður og hefur leikið undanfarin ár með Torp-
an Pojat í Finnlandi. Þetta er þriðji erlendi leik-
maðurinn sem Skagamenn reyna í vetur. Banda-
ríski leikmaðurinn Warren Peebles, sem hefur
leikið með Grindvíkingum í vetur, verður áfram
með liðinu. Um áramótin
stóð til að skipta um leik-
mann og var samningnum
við Peebles sagt. upp. Hann
var reyndar beðinn að leika
með liðinu þangað til annar
leikmaður kæmi, en nú er
ljóst að Peebles verður
áfram.
45 erlendir leikmenn hafa leikið með íslenskum liðum í vetur - aldrei verið fleiri
Félögin hafa greitt um
1,4 millj. í félagaskipti
að hefur varla liðið sú vika að
einhver erlendur körfuknatt-
leiksmaður hafi ekki verið sendur
heim og annar komið í staðinn i vet-
ur. Þetta hefur haft slæm áhrif á
íþróttina og eins komið mjög við
pyngju félaganna. Það er áætlað að
það kosti um 300 þúsund krónur að
skipta um erlendan leikmann. Þá eru
meðtalin flugfargjöld sem eru um
100 þúsund krónur, félagaskipta-
gjald og laun. Dæmi er um að félag
hafi fengið fjóra leikmenn á tímabil-
inu.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hafa 45 erlendir körfuboltamenn
komið til landsins það sem af er
tímabilinu, sem er þó aðeins rétt
hálfnað. Hér á landi eru nú 23
stöðugildi fyrir útlendinga, 15 í úr-
valsdeildinni, 5 í 1. deild kvenna og
3 í 1. deild kai-la. Gjald vegna fé-
lagaskipta hvers leikmanns er 30
þúsund krónur. Félögin hafa því
greitt samtals um 1,4 milljónir fyrir
félagaskipti í vetur vegna erlendu
leikmannanna.
Sigurður Hjörleifsson hefur verið
umboðsmaður erlendra leikmanna
sl. fimm ár. Rúmlega 60 leikmenn
hafa komið hingað til landsins á
hans vegum. Hann segir félagaskipti
leikmanna aldrei hafa verið tíðari en
í vetur. Hann segir ástæðurnar
margar, m.a. þær að umboðsmenn
vandi vinnubrögð sín ekki nægilega
vel og eins liggi þetta hjá félögunum
sjálfum. Þau skoði bakgrunn leik-
manna ekki áður en þeir eru keypt-
ir. „Þau renna of blint í sjóinn og
vita í raun ekkert hvernig leikmann
þau eru að kaupa,“ sagði Sigurður.
„Það þarf að vera búið að undir-
búa leikmenn vel áður en þeir
koma hingað, kynna þeim land og
þjóð þannig að þeir viti að hverju
þeir ganga. Það hefur orðið mis-
brestur á þessu og leikmenn hafa
hreinlega fengið áfall þegar þeir
koma hingað og heimtað að fara
aftur heim með næstu flugvél,"
sagði Sigurður.
■ Brottfallið... / C4
■ Með allt að... / C4
Björgvin
annar í
Svíþjóð
BJÖRGVIN Björgvinsson,
skíðamaðurinn efnilegi frá
Dalvík, hafnaði í öðru sæti
á alþjóðleg-u stórsvigsmóti í
Svíþjóð um helgina. Hann
var með besta tímann í
fyrri umferðinni, en náði
síðan næstbesta tímanum
samanlagt eftir báðar um-
ferðirnar. Hann hlaut 24
styrkleikastig (fis-stig) fyrir
árangur sinn. Hann var
með 28 fis-stig á síðasta
styrkleikalista FIS um ára-
mótin og hefur því bætt sig
töluvert með árangrinum
um helgina.
Björgvin er 19 ára og
samkvæmt heimslistanum í
stórsvigi um áramótin var
hann þá í 4. sæti listans í
sínum aldursflokki.
i
I
J
!
!
HANDKNATTLEIKUR: EYJAMENN ENN ÁN SIGURS Á ÚTIVELLI / C3