Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 4
KORFUNATTLEIKUR
Leikmannaskipti aldrei verið fleiri hjá íslenskum liðum
Brottfallið er merki
um slæm vinnubrögð
Leikmannaskipti hafa verið ör í körfu-
boltanum hér á landi í vetur. Erlendir leik-
menn koma og fara, ýmist eru þeir reknir
eða fara að eigin frumkvæði. Valur B.
Jónatansson kannaði ástæðurnar og ræddi
við Sigurð Hjörleifsson, sem hefur verið
umboðsmaður erlendra leikmanna síðustu
fímm árin. „Vanda þarf valið á erlendum
leikmönnum því félögin hafa ekki efni
á þessu öllu lengur, það er dýrt að
skipta um mann,“ sagði Sigurður.
Aldrei hefur verið eins mikið um
félagaskipti erlendra leikmanna
í íslenska körfuboitanum og í vetur.
Það hefur varla liðið sú vika að ein-
hver leikmaður hafí ekki verið send-
ur heim og annar komið í staðinn.
Þetta hefur haft áhrif á íþróttina og
eins komið mjög við pyngju félag-
anna. Það er áætlað að það kosti um
300 þúsund krónur að skipta um er-
lendan leikmann. Þá eru meðtalin
flugfargjöld, sem eru um 100 þúsund
krónur, félagaskiptagjald og laun.
MeðalíFað
200 þús.
ámánuði
BANDARÍSKU leikmennirnir
{ sem spila körfuknattieik hér
1 á landi eru með allt upp í 220
j þúsund krónur á mánuði í
- laun samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum Morgunblaðs-
tFlestir leikmannanna
i samninga tvo til þrjá
tuði fram í tímann. Ef þeir :
reknir á samningstíman-
þarf viðkomandi félag að
ða það upp sem eftir er af ;
ningnum. Það er því dýrt
eka leikmann og fá ann-
því þá eru þeir jafnvel
r á launum í ákveðinn
i.
tlendingarnir eru pieö frá
0 dollurum (140 þúsund
íur) í mánaðarlaun og
í rúmlega 3.000 dollara
1 þúsund krónur). Auk
; sem þeir fá frítt húsnæði
afnvel eina fría máltíð á
. Þessir leikmenn eru með
ibundið leyfi rfkisins til
;ika körfuknattleik og
l það að aðalstarfi. Þeir
;a ekki á sama tíma vera í |
irri vinnu vegna þess að
hafa ekki atvinnuleyfi
á landi.
—I
Dæmi er um að félag hafi fengið
íjóra leikmenn á tímabilinu.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hafa 45 útlendingar komið til lands-
ins það sem af er timabili, sem er þó
aðeins rétt hálfnað. Gjald vegna fé-
lagaskipta hvers leikmanns er 30
þúsund krónur, 20 þúsund til FIBA
(Alþjóða körfuknattleikssambands;
ins) og 10 þúsund til KKI
(Körfuknattleikssambands Islands).
Félögin hafa því greitt samtals um
1,4 milljónir fyrir félagaskipti í vetur
vegna erlendu leikmannanna. Þetta
er orðin stór tekjulind hjá KKÍ.
„Tekjurnar af félagaskiptagjöldum í
ár fara líklega 100% fram úr fjár-
hagsáætlun. Þetta er ekki eðlilegt og
við erum ekki stoltir af þessu,“ sagði
Pétur Hrafn Sjgurðsson, fram-
kvæmdastjóri KKÍ.
Sigurður Hjörleifsson hefur verið
umboðsmaður erlendra leikmanna
sl. fímm ár. Rúmlega 60 leikmenn
hafa komið hingað til landsins á hans
vegum. Hann staðfestir að félaga-
skipti leikmanna hafí aldrei verið tíð-
ari en í vetur. Hann segir ástæðurn-
ar margar, að umboðsmenn vandi
vinnubrögð sín ekki nægilega vel og
eins liggi þetta hjá félögunum sjálf-
um. Þau skoði bakgrunn leikmanna
ekki áður en þeir eru keypth- hingað
heim. „Þau renna of blint í sjóinn og
vita í raun ekkert hvemig leikmann
þau eru að fá,“ sagði Sigurður.
Hvaðan koma þessii• leikmenn og
hvernig eru vinnubrögðin hjá þér
sem umboðsmanni?
„Eg er í sambandi við bandarískan
umboðsmann sem er með fjölmarga
leikmenn á ski-á, flestii- eru að koma
úr háskólum. Þetta eru leikmenn
sem vilja gera körfubolta að atvinnu
sinni og framboðið er gríðarlegt.
Þetta fer þannig fram að bandaríski
umboðsmaðurinn sendir mér upplýs-
ingar um leikmenn sem eru tiltsúnir
að koma hingað. Eg kem þeim síðan
á framfæri við félögin hér heima. Ef
félögin sýna áhuga reyni ég að út-
vega myndband af viðkomandi svo
þjálfarinn geti betur gert sér grein
fyrir tækni og hreyfingum leik-
mannsins á velli. Eins legg ég mikla
áherslu á að hafa persónulegar upp-
MYRON Walker reið á vaðið með Haukum í byrjun keppnistíma-
bils - 2. október. Sfðan hafa þrír aðrir útlendingar leikið með
Hafnarfjarðarliðinu.
lýsingar um leikmanninn. Það er líka
mikilvægt að þekkja leikmannaferil-
inn, ekki bara sl. ár heldur öll fjögur
ái’in í háskólaboltanum."
„Mörg félög hafa verið að velja
leikmenn í fljótfærni. Það er að
mörgu að hyggja þegar erlendur
leikmaður er keyptur hingað. Það
þarf að taka þannig á móti honum
að hann nái að aðlagast breyttum
aðstæðum sem fyrst. Margir af
þessum strákum sem hingað koma
eru frá stórborgum í Ameríku og
hafa aldrei áður farið að heiman.
Það er því mikil breyting fyrir þá
að lenda hér á íslandi. „Ég hef
lagt áherslu á að þeir leikmenn
sem eru á mínum snærum séu ekki
bara góðir leikmenn, heldur hafi
þeir persónuleika til að bera sem
falli í í kramið hér. Það hafa komið
18 leikmenn á mínum vegum í vet-
ur og aðeins tveir verið reknir og
sá þriðji kom ekki aftur eftir jól
vegna þess að félagið gat ekki stað-
ið við skuldbindingar sínar gagn-
vart honum.“
Sigurður segir mörg dæmi þess að
félög hafi komið illa fram við erlenda
leikmenn. Þeir hafi jafnvel verið
látnir afskiptalausir og því hafi þeir
ekki náð að aðlagast aðstæðum, en
auðvitað væri misjafn sauður í
mörgu fé. „Það er ekki nóg að kaupa
og kaupa nýja leikmenn. Félögin
verða að styðja við bakið á þeim og
gera þeim auðveldai’a með að dvelja
hér. Er það tilviljun að það eru yfir-
leitt sömu félögin sem eru að skipta
um leikmenn?"
Af þeim rúmlega sextíu leikmönn-
um sem Sigurður hefur flutt inn seg-
ir hann að aðeins fímm þeirra hafí
farið heim aftur að eigin ósk. „Þetta
ættu að vera meðmæii fyrir mig sem
umboðsmann. Það hefur enginn leik-
maður, sem ég hef flutt inn, stungið
af, sem þýðir að þeir vita að hverju
þeir ganga. Óvönduð vinnubrögð
geta ekki gengið lengur hér á íslandi
í þessum leikmannamálum. Félögin
og þeir sem að þeim standa verða að
hafa meiri metnað gagnvart íslensk-
um körfubolta."
Á MORGUN
Viðtal við Einar Bollason um val á út-
lendingum: „Mönnum verður að líða vel“
Johnson
sló metið
DAMON Johnson, körfuknatt-
leiksmaður hjá Keflavík, sló
met Páls Axels Vilbergssonar
úr Grindavík í þriggja stiga
skotnýtingu. Páll var með 80%
nýtingu í leik á fimintudaginn,
en þegar Kefivíkingar unnu
KFI á sl. föstudagskvöld á ísa-
firði skoraði Johnson 14
þriggja stiga körfur úr 17 skot-
um, en ekki 18 eins og sagt var
í blaðinu í gær. Nýting hans er
því 82,4% og er það met.
Johnson gerði 61 stig í leikn-
um og skaust í fjórða sætið yfir
flest stig skoruð í einum leik
hér á landi. Metið er frá því 17.
nóvember 1979 en þá gerði
John Johnson 71 stig íyrir
Framara í leik við ÍS. Joe
Wright er í öðru sæti, gerði 67
stig fyrir Breiðablik gegn
Njarðvíkingum 29. janúar 1993
og Dauny Shouse gerði 64 stig
fyrir Njarðvík í leik við ÍS 15.
janúar 1981.
■ ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, gaf til
kynna í samtali við dagblaðið
Manchester Evening News að hann
myndi hætta 2003. „Hver veit? Ég
gæti farið í fríið eftir fjögur ár,“
sagði hann.
■ FERGUSON, sem er 57 ára, hef-
ur verið við stjórnvölinn hjá United
síðan 1986 eða mikið lengur en
nokkur annar stjóri í ensku úrvals-
deildinni. Hann er samningsbund-
inn út næsta tímabil.
■ DAVID Beckham hefur fengið
grænt ljós á að leika við Liverpool í
bikarslagnum á Old Trafford á
sunnudag en um tíma var óttast að
meiðsl í nára kæmu í veg fyrir það.
Nicky Butt er líka tilbúinn í slaginn
en mígreni hefur verið að angra
hann að undanförnu.
■ HOWARD Wilkinson, tæknileg-
ur ráðgjafí Knattspyrnusambands
Englands, tilkynnti ensku félögun-
um í gær að leikmenn, sem væru í
eða við aðallið viðkomandi félags,
yrðu ekki valdir í landslið Englands
vegna Heimsmeistarakeppni leik-
manna 20 ára og yngri sem verður í
Nígeríu 3. til 24. apríl.
■ DAVID O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Leeds, var mjög ánægður
með ákvörðun Wilkinsons og vildi
að þetta yrði regla en ekki geð-
þóttaákvörðun en formaður Leeds
hafði áður gagnrýnt Wilkinson fyrir
að valda óvissu hjá félögum varð-
andi baráttu um titla.
■ JONATHAN Woodgate, helsti
varnarmaður Leeds, og miðherjinn
Alan Smith eru löglegir í U-20 ára
liðið og hefðu að óbreyttu talist til
lykilmanna. Auk þeirra má nefna
Gareth Barry hjá Aston Villa, Joe
Cole hjá West Hain og Wes Brown
hjá Manchester United að ónefnd-
um Michael Owen hjá Liverpool,
sem er þegar orðinn fastamaður í
A-landsliði Englands.
■ MARCO Branca, sóknarleikmað-
ur frá Ítalíu, sem leikur með Midd-
lesbrough, hefur verið ráðlagt að
hætta að leika knattspyrnu vegna
meiðsla í hné. Hann hefur aðeins
leikið í 25 mín. síðan hann fór í hné-
uppskurð í apríl í fyrra. Branca er
34 ára, fyrrum leikmaður með Inter.
■ SEBASTIANO Rossi markvörð-
ur AC Milan hefur verið dæmdur í 5
leikja bann eftir að hafa verið rek-
inn út af. Rossi skeytti skapi sínu á
andstæðingi í leik um síðustu helgi
er AC Milan mætti Perugia.