Morgunblaðið - 22.01.1999, Page 6

Morgunblaðið - 22.01.1999, Page 6
6 C FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ t KÖRFUKNATTLEIKUR Einar Gunnar Bollason segir mikilvægt að vanda valið þegar erlendir leikmenn eru kallaðir til íslands Umhyggja og sfjörnur skipta öllu Einar Gunnar Bollason hefur tekið virkan þátt í íslensku körfuknattleikslífi í áratugi og er öllum hnútum kunnugur. I samtali við Steinþór Guðbjartsson sagðist hann alla tíð hafa verið fylgjandi því að erlendir leikmenn spiluðu með íslenskum liðum en jafnframt lagt ríka áherslu á að mjög mik- ilvægt væri að vanda valið og leggja áherslu á félagslega þáttinn, Einar sagði að tíð félagaskipti í körfuknattleik einskorðuðust ekki við Island heldur væru áberandi í allri Evrópu. „Menn verða að gera sér grein fyrir því að ungir, banda- rískir körfuknattleiksmenn eru um alla Evrópu og þeir eru látnir fara af minnsta tilefni,“ sagði Einar, spurð- ur um umrædd félagaskipti. „Einnig virðast þessir bandarísku strákar oft fá heimþrá og vilja fara sjálfir þannig að erfitt er að alhæfa í þessu frekar en öðru.“ Miklar breytingar Einar hefur haft mikil áhrif á framgang íþróttarinnar í landinu, fyrst sem afburða leikmaður á sjö- unda og áttunda áratugnum og síð- an þjálfari og stjórnarmaður. „Mér virðist sem þó nokkrar breytingar hafi orðið á framkvæmd þessara . mála frá þvi ég var leikmaður og þjálfari. Aður hikuðu félögin ekki við að leggja út í nauðsynlegan kostnað til að senda menn til Bandaríkjanna á sumrin til að skoða leikmenn í æfingabúðum. Ég fór til dæmis tvisvar fyrir KR í svona ferð- ir og ef við komumst ekki sjálfir höfðum við samband við okkar mann ytra, sem hafði engra hags- muna að gæta, og hann skoðaði menn fyrir okkur. Svona fyrirkomu- lag, persónuleg kynni áður en tíma- bil hefst, tryggir að fulltrúi félags- . ins hittir viðkomandi mann áður en lagt er út í kostnað samfara því að fá manninn til íslands. Með þessum hætti getur fulltrúi félagsins líka gert viðkomandi leikmanni grein fyrir um hvað sé að ræða en greini- legt er að margir þessara manna, sem hingað hafa komið, vita ekkert um landið, vita ekki við hverju má búast hérna, gera sér ekki grein fyrir skammdeginu og þar fram eft- ir götunum. Menn mega aldrei gleyma per- sónulega þættinum en rauði þráður- inn í þessu öllu saman er að sum fé- lög gera sér alltof litla grein fyrir félagslegu hliðinni. Ekki er nóg að kaupa góða leikmenn heldur verða þeir að finna að þeir séu velkomnir. Þetta eru ekki einhver 100 kíló af kjöti sem þarf að fá sem mest út úr. Strákarnir eru að koma beint úr skóla, hafa aldrei farið að heiman og ávallt lifað í vernduðu umhverfi þar sem hugsað hefur verið um þá frá morgni til kvölds. Svo eiga þeir allt í einu að koma á framandi slóðir þar sem dagsbirtan er kannski fimm til sex tímar á dag og allt er öðruvísi en þeir eiga að venjast. Við verðum að horfa ískalt á málið: Hírist meiri- hluti þessara leikmanna afskipta- laus og sambandslaus allan daginn inni í herbergi eða á gistiheimili? Þetta er stórmál og ég hef á tilfinn- ingunni að það sé erfiðara fyrir fé- lög á Reykjavíkursvæðinu en úti á landi þar sem leikmenn eiga meiri möguleika á að kynnast í fámennara samfélagi.“ Einar sagði að heimsóknir í æf- ingabúðir í Bandaríkjunum hefðu skilað bestu leikmönnunum sem hefðu komið til íslands. „Þegar við Kolbeinn Pálsson fórum til Banda- ríkjanna náðum við í tvo farsælustu leikmenn sem KR hefur fengið, Andy Piazza, sem gerði liðið að Is- landsmeistara 1978, og hinn eina sanna John Hudson. Þeir voru far- sælir og skiluðu félaginu miklu en á þessum árum voru margir mjög góð- ir leikmenn sem skildu mikið eftir sig og komu ár eftir ár. Menn eins og Tim Dwyer hjá Val, Dirk Dunbar hjá Stúdentum, sem margir vilja meina að sé besti leikmaður sem hér hefur spilað, og Danny Shouse sem gerði Njarðvík að Islandsmeistara ár eftir ár, sá albesti, segja sumir. Reyndar voru leikmannaskipti miklu sjald- gæfari áður, valið var yfirleitt vand- að og það heyrði til algjörra undan- tekninga ef það mistókst. I þessu sambandi má samt benda á að nú eru margir mjög góðir erlendir leikmenn hérna, samanber Keith Vassell hjá KR, sem er á öðru ári hjá félaginu." Tóm vitleysa Engum dylst að þessi tíðu félaga- skipti koma við pyngju félaganna og Einar sagði að í raun væri rekstur- inn á villigötum. „Þessir tíðu brottrekstrar þjálf- ara og leikmanna þegar illa gengur, sverta almennt ímynd íþrótta. Ki'öf- urnar eru óhugnanlegar og stjórn- armenn persónulega ábyrgir fyi'ir útgjöldum. Allir vita að þetta er komið út í tóma vitleysu. íþrótta- hreyfingin í landinu hefur ekki efni á rekstrinum sem hún sinnir. Mér þætti gaman ef einhver gæti bent mér á handknattleiks- eða körfuknattleiksdeild sem væri rekin eins og á að reka fyrirtæki? Og hvað ætli margar knattspyrnudeildir séu réttum megin við strikið? Ég vil ekki vera einhver dómari í þessu máli, sem á sér margar hliðar. Hins vegar hlýtur að vera ódýrara fyrir félögin að eyða meiri tíma og aðeins meiri peningum í undirbúning og val á viðkomandi manni áður en tímabil hefst heldur en að vera að standa í þessu hvað eftir annað. Með þessu er ég ekki að kasta rýrð á umboðsmennina og eftir sem áður er full þörf á þeim en hlutverk þeirra gæti meðal annars falist í því að benda félögunum á menn og stað og stund þar sem hægt væri að ræða við þá.“ Góðir íslendingar Einar sagðist ekki skilja kaup á erlendum meðalmönnum því nóg væri til af góðum íslenskum körfuknattleiksmönnum en íyrst og fremst vantaði stjörnur. „Ég hef alltaf verið fylgjandi því að vera með erlenda leikmenn en menn verða að gera sér grein fyrir því að góðum íslenskum Ieikmönnum hefur fjölgað mjög mikið. Því er enn JOHN Hudson reyndist KR- ingum mjög vel. ríkari ástæða til að vanda valið á er- lendu leikmönnunum en óskiljanlegt er hvað menn hafa í sumum tilfellum verið að borga fyrir á undanförnum árum. Mikið nær væri að greiða mörgum íslensku landsliðsmönnun- um betur. Með öðrum orðum hefiir verið pottur brotinn í þessum málum en hafa verður hugfast að góður leik- maður, sem heillar áhorfendur, er fljótur að skila peningum til baka til viðkomandi deildar því fólkið, áhorf- endur og við öll, viljum sjá stjörnur. Vandamálið í íslensku íþróttalífi er að stjörnurnar vantar.“ Karl hættur hjá ÍR KÖRFUKNATTLEIKSDEILD IR hefur sagt upp þjálfarasamningi sínum við Karl Jónsson, en hann sá um þjálfun meistaraflokks kvenna, unglingaflokks kvenna og 11. flokks drengja hjá félaginu auk þess sem * hann var yfirþjálfari yngri flokk- anna. Aðalsteinn Hrafnkelsson, fpr- maður körfuknattleiksdeildar IR, sagði í samtali við Morgunblaðið að deildinni hefði verið nauðugur kosfc- urinn. „Skuldsetning deildarinnar er það mikil að hún leyfði ekki frek- ari skuldasöfnun. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt en við urðum að gera eitthvað því körfuknattleiks- deildin hefur misst fjáröflunarleiðir sem hún hefur haft undanfarin ár og því urðum við að gera eitthvað,“ sagði Aðalsteinn. Hann sagði að þjálfarar yngri flokkanna yrðu nú að mæta því aukna álagi sem brotthvarf Karls hefði í fór með sér auk þess sem stjórnarmenn yrðu að taka á sig aukin störf. Riccardo Mascheroni mun taka við þjálfun meistara- flokks kvenna en hann þjálfar einnig nokkra yngri flokka félags- ins. Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, hefur ekki miklar áhyggjur af brotthvarfi erlendra leikmanna Óeðlilegt, en skaðar ekki Körfuknattleikssamband íslands hefur í hyggju að kanna hvers vegna brottfall erlendra leikmanna í íslenskum körfu- bolta er jafn mikið og raun ber vitni. ---------------------------------7---- Valur B. Jónatansson ræddi við Olaf - ———-----------—---7---------— ■ Rafnsson, formann KKI, um þessi mál og komst m.a. að því að skuldir félaganna við KKI hafa vaxið. Eins og kom fi'am í Morgunblað- inu í gær hafa aldrei fleiri er- lendir leikmenn komið hingað til lands, eða 45 talsins. Þar sem stöðu- gildin eru ekki nema 23 hafa 22 horfið á braut aftur rétt j>cgar tima- bilið er hálfnað. Auk þess sem fjórir þjálfarar í úrvalsdeildinni hafa verið reknir. „Ég hef ekki mjög miklar áhyggj- ur af því að þessi auknu félagaskipti erlendra leikmanna hafi slæm áhrif á ímynd kört'uboltans hér á landi. Ég held að það sé alltaf spennandi að sjá ný andlit. En við erum ekki hrifnir af þessum miklu breyting- um. Ég viðurkenni að þetta er ekki eðlilegt. Við hjá KKÍ munum skoða þessi mál nánar. Það hlýtur að vera okkar hlutverk að bregðast við með ráðgjöf,“ sagði Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, spurður um hvort það hafi jafnvel ekki neikvæð áhrif á ímynd íþróttarinnar að erlendir leikmenn skuli mai'gir hverjir staldra svo stutt við. Hann sagði að það gætu legið mjög ólíkar ástæður að baki því er leikmaður fer frá félagi. „Sumir eru ekki nægilega góðir og eru látnir fara, aðrii- fara af persónulegum ástæðum og enn aði-ir hreinlega stinga af. Við hjá KKI getum í sjálfu sér lítið gert við þessu. Við höfum rætt það ínnan stjórnar KKÍ hver þáttur umboðsmanna er í þessu. Ég tel það ekki fráleita hugmynd að KKI viðurkenni ákveðna umboðs- menn. Og það væri líka hugsanlegt að þeir legðu fram ákveðna trygg- ingu og fengju þannig viðurkenn- ingu KKÍ.“ Ólafur segir að margar ástæður kunni að liggja að baki jiessu mikla brotthvarfi. „Þetta geta verið félög- in, leikmennimir sjálfir eða að um- boðsmennirnir séu ekki nægilega vandvirkfr. Þetta getur líka verið sambland af öllum þessum þáttum. Við höfum ekki gert úttekt á því hvort þau félög sem lenda í þessu séu með sama umboðsmann. Þetta getur líka verið vísbending um að þau félög sem lenda í þessu aftur og aftur geri eitthvað vitlaust. Svo get- ur þetta líka verið óheppni. Mér finnst tilefni til að við hjá KKÍ ger- um einhverskonar rannsókn á ein- stökum dæmum. Finnum þannig orsakimar svo að við getum komið í veg fyrir að þetta endurtaki sig.“ Hafa erlendír leikmenn sídlað því seni til er ætlust, þ.e.as. að koma ís- lenslaim körfubolta á hærri stall? , Já, ég held það. Landsliðið hefur aldrei verið betra. Það er að leika núna við toppþjóðimar í riðlakeppni Evrópumótsins í fyrsta sinn. Aður höfum við eingöngu leikið á Smá- þjóðaleikum og í undankeppni Evr- ópumótsins annað hvert ái% Liðið hefur staðið sig vel í keppninni, þó það hafi ekki unnið leik. Ég tel að erlendir leikmenn hér hafi skilað miklu, en hvort þeir hafa staðið fyllilega undfr væntingum veit ég ekki.“ Eru þeir erlendu leikmenn, sem eru hér í dag, betri en þeir sem komu hingað fyrir rúmum áratug? „Já, ég held að þeir séu mun betri leikmenn. Það hafa aldrei ver- ið jafn mai'gir og jafn góðir útlend- ingar og undanfarin þrjú ár. Fyrir fimmtán árum vom hér leikmenn sem vora yfirburðamenn í sínum liðum og gátu nánast unnið leiki upp á eigin spýtur. Enginn, sem hefui' verið hér undanfarin tvö til þrjú ár, getur það. Ástæðan er fyrst og fremst sú að íslenskir körfu- boltamenn eru miklu betri en fyrir fimmtán árum. Þeir hafa í fullu tré við erlendu strákana í vöra og sókn. Breiddin í íslenskum körfubolta er meiri nú en nokkru sinni fyrr.“ Nú hlýtur að kosta mikið fyrir fé- lögin að skipta um leikmenn, jafn- vel þrisvar til fjórum sinnum yfír tímabilið. Leyfír fjárhagur félag- anna þetta? „Það er spuming hversu mikinn kostnað körfuboltahreyfingin ber af þessu. Okkur í stjóminni sámar það auðvitað að sjá að sum af þess- um félögum sem era að skipta um leikmenn sí og æ skulda okkur stórfé og geta ekkert borgað. En það verður tekið á því á ársþingi KKÍ í vor. Ég og framkvæmda- stjóri KKÍ heimsóttum félögin fyr- ir þremur árum og þá var staðan þokkaleg, hvergi mjög alvarleg og dæmi um að félög væru skuldlaus. Ég veit ekki hvernig staðan er hjá félögunum í dag, en ég veit að skuldfr félaganna við KKÍ hafa aukist.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.