Morgunblaðið - 27.01.1999, Blaðsíða 4
TEKJUR ÓLYMPÍUHREYFINGARINNAR
AF ÚTSENDINGUM í SJÓNVARPI
Spillingin innan ólympíunefndarinnar
Reuters
JUAN Antonio Samaranch. Fjölmörg dagblöð kröfðust í gær
afsagnar hans.
öllu saman er réttast af víkja hon-
um fyrir óheiðarleik,“ bætti blaðið
við.
Bild, söluhæsta dagblað Þýska-
lands, hvatti Samaraneh einnig til
að segja af sér. „Alþjóðaólympíu-
nefndin hefur verið afhjúpuð sem
svínastía. Sex fulltrúar seldu at-
kvæði sín fyrir beinharða dollara og
heitar unaðsnætur. Og Juan Anton-
io Samaranch segist vilja rannsaka
aðra sem grunaðir eru. Verst er að
hann skuli ekki hafa sjálfur í hyggju
að segja af sér. Spilling og mútu-
greiðslur hafa blómstrað á
valdatíma hans. Og hinir sex for-
dæmdu eru aðeins nokkrir ferða-
langar í ólympíumafíunni.“
Franska dagblaðið Le Monde tók
í sama streng. „Samaranch leysti
engin vandamál á sunnudag og
lausn mun ekki fínnast meðan hann
fer fyrir hreyfingu sem frá stofnun
hefur kallað eftir hreinlyndi í íþrótt-
um. Það þarf að móta ný ólympíu-
gildi fyrir 21. öldina og Juan Anton-
io Samaranch er ekki rétti maður-
inn til þess.“
Tekjur af sölu sjónvarpsréttar vegna beinna útsendinga
frá Ólympíuleikum hafa vaxið gríðarlega á undanförnum árum.
Fyrir vikið er enn meiri ásókn í að halda leikana en áður.
Tekjur vegna sjónvarpsútsendinga Milljarðar íslenskra króna
Vetrarólympíuleikar Sumarólympíuleikar
Krafist af
sagnar
Samaranch
1980
Moskva
1984
Sarajevo
Calgary
1992
Albertville
1992
Barcelona
Lillehammer
1996
Atlanta
1998
Nagano
2000
Sydney
2002
Salt Lake City
2004
Aþena
2006
óákveðið
* miðað við umsamdar fjárhæðir fram til þessa
2008
óakveðið
114,1*
Heimild: Alþj. ólympiunefndin
KÍNVERJAR kröfðust í gær úrbóta á Alþjóðaólympíunefndinni
- (IOC) og fyrirkomulagi því sem gilt hefur um staðarval fyrir
Ólympíuleika. Peking beið, sem kunnugt er, lægri hlut fyrir Sydn-
ey í kapphlaupi um sumarleikana árið 2000 og hefur nú komið í
Ijós að áströlsk yfirvöld greiddu mútur til ellefu Afríkuríkja í því
skyni að tryggja sér atkvæði.
Björn Ingi
Hrafnsson
skrífar
Talsmaður kínverska utanrílds-
ráðuneytisins sagði tímabært að
færa Alþjóðaólympíunefndina til
nútímalegra horfs og
ekki síður aðferðimar
til að velja ólympíu-
borgimar. Um leið
þvertók hann fyrir að
Kínverjar hefðu tekið þátt í spilling-
unni og greitt mútur sjálfir.
Juan Antonio Samaranch, forseti
IOC, kvaðst ekki telja þörf á sér-
stakri rannsókn á þætti Sydney-
borgar, en sagðist þó ætla að bíða
eftir skýrslum sinna manna áður en
hann tæki um það lokaákvörðun.
Augustu Quito, einn fulltrúanna
sem vikið var tímabundið úr nefnd-
inni, sagðist í gær ekki hafa í
hyggju að segja af sér. „Fyrir því
era tvær ástæður," sagði hann. „í
fyrsta lagi þykir mér það ekld til-
hlýðileg lausn á vandamálinu. í öðra
lagi gæti afsögn mín gefið til kynna
að ég telji mig sekan í þessu máii og
viiji komast hjá rannsókn. Vil ég
komast hjá slíkri rannsókn? - Nei,
nei, slíkt get ég ekki fallist á,“ sagði
hann.
Ismail Bhamjee, gjaldkeri sam-
taka afrískra ólympíunefnda, sagði
að orðrómur um spillingu afrískra
fulltrúa hefði lengi verið uppi og því
væri gott að fá málið loks upp á yf-
irborðið. Bhamjee, sem er frá
Botswana og er fulltrúi og í fram-
kvæmdastjóm IOC, sagði að
ólympíuhreyfingin í Afríku hefði
orðið fyrir miklu áfalli og þetta væri
smánarblettur á álfunni.
Formaður samtaka kenýskra
íþróttamanna, Isaiah Kiplagat, vill
að landi sinn, Charles Mukora, segi
af sér tafarlaust, en Mukora var
einn fulltrúanna sex.
Hneykslismálin blandast inn í
valdabaráttu innan íþróttahreyfing-
arinnar í Afríku, þar sem Jean-
Claude Ganga, forseti samtaka af-
rískra ólympíunefnda, er einn
þeirra fulltrúa sem vikið var tíma-
bundið úr embætti.
Bhamjee segir að Ganga haldi
ákaft fram sakleysi sínu. „Hann
segist saklaus og við höfum ekki séð
allar staðreyndir málsins enn.
Ganga er leiðtogi íþróttanna í Af-
ríku og segist ekki ætla að segja af
sér þar sem ásakanirnar séu ósann-
ar. En séu fulltrúamir sekir, segi
ég; fari þeir og veri. Allt þetta mál
hefur vakið ótal spurningar um yfir-
völd íþróttamála í Afríku og ég
myndi gjarnan vilja sjá allsherjar
hreinsun. Þetta hefur viðgengist
lengi og það er gott að málin skuli
loks vera komin upp á yfirborðið,"
sagði hann.
Umdeilt er hvort staða Samar-
anch, forseta Alþjóðaólympíunefnd-
arinnar, hafi styrkst við brottrekst-
ur fulltrúanna sex. Hann hefur
sagst ætla að sækja stuðning til full-
trúaþingsins í mars nk., en á það
hefur verið bent að slíkt segi lítið
eitt og sér, þar eð forsetinn hafi
sjálfur skipað flesta fulltrúana og
þeir séu því þegar á bandi hans.
Fjölmörg dagblöð hvöttu í for-
ystugreinum sínum í gær tii afsagn-
ar forsetans. Bresk blöð vora einkar
harðvítug í gagnrýni sinni og sögðu
að hreingemingar innan ólympíu-
nefndarinnar væru hjómið eitt ef
forsetinn fylgdi ekki þar með í
kaupunum.
„Olympíugildið er haft að háði og
spotti," sagði Didly Telegraph.
The Times sagði að ákall Samar-
anch um stuðningsyfirlýsingu á full-
trúaþinginu í mars væri aðeins
kaldhæðnisleg tilraun til að bjarga
eigin skinni á kostnað þeirra sex
fulltrúa sem mest væra viðriðnir
málið. „Þar til hann [Samaranch]
fer verður ólympíuhreyfingin áfram
vængbrotin. Senjor Samaranch
heldur því nú fram svo hrifandi
falskur að hann hafi ekkert vitað
um spillinguna og sé aðeins fórnar-
lamb undirsáta sinna. Sé það stað-
reyndin væri réttast að víkja honum
fyrir afglöp. Hafi hann litið framhjá
Gætu
krafist
endur-
greiðslu
YFIRVÖLD í Stokkhólmi
ættu að krefja Alþjóða
Ólympíunefndina um fulla
endurgreiðslu útlagðs
kostnaðar vegna umsóknar
borgarinnar um sumarleik-
ana 2004. Þetta segir Margar-
eta Olofsson varaborgar-
stjóri. Hún segist jafnframt
vona að aðrar borgir, sem
sótt hefðu um Ieika en tapað í
staðarvali, geri slíkt hið
sama.
Svíar telja sig hafa varið
hálfúm öðrum milljarði til
þess að fá leikana til Stokk-
hólmsborgar. Helmingur fjár-
ins kom úr borgarsjóði en af-
gangurinn kom frá ýmsuin
styrktaraðilum.
„Við ættum ekki að koma
nálægt keppni milli borga á
sviði íþrótta þegar vitað er að
mútur eru hluti leiksins.
Keppnin var ekki drengileg
og það vita allir. Atkvæði
voru keypt og þær borgir sem
beittu ekki brögðum áttu því
ekki möguleika," sagði Olofs-
son ennfremur.
Yfírvöld í fleirí borgum
huga nú að stöðu sinni eftir
að upplýst var um spillingar-
mál innan ólympíuhreyfíngar-
innar. Meðal þeirra eru -Pek-
ing í Kína og Manchester á
Englandi. Ekki er þó talið að
forráðamenn þeirra borga
fari fram á skaðabætur, enda
munu þær hafa tekið þátt í
spillingarleiknum af fullum
krafti.
The New York Times sagði vita-
skuld jákvætt að reka fulltrúana sex
úr embætti og herða reglur um
staðarval leikanna. „En umfang
hneykslisins verður sífellt meira og
bendir til þess að Samaranch eigi að
segja af sér. Þar sem mútur höfðu
áhrif á staðarval fulltrúa undir hans
stjóm er ekki trúverðugt að hann
sjálfur hafi yfirumsjón með hrein-
gerningunni. Allir þeir sem hafa
mikilvægra hagsmuna að gæta
varðandi Ólympíuleikana, þar með
talið íþróttafólk, íþróttasambönd,
ríkisstjómir og stórfyrirtæki sem
veita tugmilljónir til leikanna í
auglýsingaskyni, ættu að þrýsta á
um tafarlausa afsögn hans,“ sagði
blaðið.
Samaranch sjálfur verst fimlega,
en með hverjum deginum vex þrýst-
ingurinn á þennan 78 ára Spánverja
og vandséð er hvort hann heldur
hann út.
„Ég hef alltaf sagt að fulltrúaþing
IOC hafi yfir framkvæmdastjórn-
inni og þar með forsetanum að
segja. Veiti fulltrúaþingið mér ekki
stuðning mun ég hætta. Svo einfalt
er það,“ sagði Samaranch við Le
Monde í gær.
Tony Banks, íþróttamálaráðherra
Breta, sagðist ætla að hvetja til
fundar ráðherra íþróttamála Evr-
ópusambandsríkja um hneykslið
innan ólympíuhi-eyfingarinnar. „Ég
hef fylgst með atburðum undan-
famar vikur og það er ekkert laun-
ungarmál að orðsttr hreyfingarinn-
ar hefur orðið fyrir miklu áfalli,"
sagði hann.
„Ég er hins vegar enn þeirrar
skoðunar að Samaranch forseti sé
best til þess fallinn að hreinsa til
innan ólympíunefndarinnar,“ sagði
Banks.