Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 B 3
DAGLEGT LIF
að bera sig að. „Verður sól á
morgun?" spyr hún, lét síðan
völuna á hvirfílinn á sér, lokaði
augunum og fór með þulu:
„Segðu mér nú spákona mín,
það sem ég spyr þig að. i
Með gullinu skal ég Jg,
gleðja þig
og silfrinu seðja þig,
KJÁLKI úr kind var
gull hér áður fyrr.
ef þú segir mér satt.
En í eldinum brenna þig
og keytunni kæfa þig,
ef þú segir mér ósatt.“
Að því búnu beygði Gerður höfuð-
ið og lét völuna detta. Holan á völ-
unni sneri þá niður. „Valan segir það
verði sólarlaust á morgun,“ segir
Gerður. „Það sé ég af því að holan á
völunni snýr niður. Ef hins vegar
kúpta hliðin hefði snúið upp væri
svar völunnar já. Ef valan lendir
á hliðinni veit hún ekki svarið
eða vill ekki svara.“
Fjöldi
leikfanga
Kornhúsið á Árbæjarsafni
kemur frá Vopnfirði, en það var *
eitt sinn pakkhús kaupmannsins
LEGGURINN er gamalt
leikfang.
' -
stöðu barna. Það er ekki bara í dag
sem börn eiga mismikið af dóti,
það var líka í gamla daga,“ segir
Gerður. Þegar afí og amma voru
ung, bjuggu margir
Reykvíkingar í bragga. í
bragganum inni í Korn-
húsinu á Ólafur heima.
„Hann var átta ára árið
1955 og átti afa sem hjálp-
aði honum að smíða leik-
föng því hann átti ekki mikla
peninga," segir Gerður. Börnin
•* sýndu dótinu hans mikinn áhuga.
, W „Rosalega er flott þessi flug-
vél, smíðaði Óli hana sjálfur?"
spyr Aðalsteinn Lárus. „Já, það
gerði hann,“ svarar Gerður.
„Er Óli dáinn?“ spyr Þórir Örn
„Nei, hann er nú fullorðinn og orð-
inn afi.“ „Hvar er þá Óli?“ spyr
Aðalsteinn Lárus „Já, það er nú
það. Eru ekki allir búnir að skoða?
Við skulum þá næst skoða her-
KUÐUNGUR úr
Qörunni.
Sáuð þið hana systur mína
sitja lömb og spinna ull?
Fyrrum átti ég falleg gull;
nú er ég búin að brjóta og týna.
(Jónas Hallgrímsson)
Morgunblaðið/Ásdís
ÓLI er orðinn afi í dag, en
hann átti fullt af leikfóngum
í gamla daga.
þar og var byggt í kringum árið
1820.
Litla fólkið naut greinilega ver-
unnar í gamla húsinu þennan dag,
enda úir þar og grúir af leikföngum,
gömlum og nýjum, m.a. ýmsar teg-
undir af barbídúkkum, tuskudúkk-
ur, bangsar, bílar, boltar, spil og
skopparakringla, næstum allt sem
hægt er að láta sér detta til hugar.
A sýningunni eru notuð leikfóng
sem safninu hafa verið gefin í gegn-
um tíðina og ætlunin er að bæta við
fleiri leikfóngum nú í janúar.
Þegar bömin koma í heimsókn
vísa safnverðir oft til mömmu og
pabba, afa og ömmu og langömmu
og langafa og reyna þannig að
dýpka tímaskilning þeirra og gera
sýninguna meira lifandi.
Þrjú barnaherbergi
Þrjú barnaherbergi frá mismun-
andi tímum hafa verið sett upp í
Kornhlöðunni. Á elsta heimilinu frá
árinu 1935 býr Sigríður ásamt for-
eldrum sínum og litla bróður. Þá
var kreppan ríkjandi með atvinnu-
leysi og fátækt. Mörg börn bjuggu
við kröpp kjör en Sigga litla var
heppin, hún átti frænku í Dan-
mörku sem sendi henni leikföng.
Uppáhaldsleikfangið hennar var
brúða úr postulíni. Krakkarnir frá
Ægisborg fengu að skoða hana og
hrifust af. „Við reynum að fá börnin
til að velta fyrir sér mismunandi
bergið hennar Gunnu," segir
Gerður.
Gunna var átta ára stelpa árið
1970. Hún á sérherbergi í Kornhlöð-
unni og þar er mikið af leikföngum,
meðal annars úr plasti sem þá var
nýkomið til sögunnar svo sem
legokubbar og lukkutröll. „Það er
rusl á gólfinu, einhver hefur gleymt
að laga til,“ segir Hera. „Maður
kannast nú við ýmislegt hér; dívan-
inn og hansahilluna og svona
kommóðu fengu margir í fermingar-
gjöf,“ segir Anna Kristín leikskóla-
kennari og rekur upp stór augu.
Börn mikil-
vægir gestir
Leikfangasýningin var fyi’st sett
upp haustið 1997, en með henni var
ætlunin að bæta þjónustu við börn-
in. „Þau eru okkar mikilvægustu
gestir," segir Gerður. „Mjög brýnt
er að ala upp safngesti; fá börnin til
að læra að vera á safni og njóta
þess. Börn hafa mikla þörf fyrir að
snerta og prófa og hér leyfum við
þeim að taka þátt.“
Á leikfangasýningunni er tekið á
móti hópum úr 1.-4. bekk grunn-
skóla og elstu börnum í leikskólum.
Aðsóknin hefur verið mjög góð, að
sögn Gerðar. í fyrra komu um 9.000
börn í heimsókn á Árbæjarsafn.
Það er langt frá því að Árbæjar^
safn liggi í dvala yfir vetrartímann. í
boði er leiðsögn um safnið þrisvar í
viku fyrir ferðamenn og aðra, á
mánudögum, miðvikudögum og
fóstudögum klukkan 13, en einnig
geta hópar tekið sig saman og pant-
að leiðsögn.
Gucci
og hipparnir
LÍTIÐ lát virðist vera á vinsældum
gallabuxnanna. Undanfarin ár hafa
fremstu tískuhönnuðir heims jafnan
kynnt ýmsar útfærslur þeirra á
tískusýningum. Á einni slíkri .
fyrir vorið og sumarið 1999, Jj
sem haldin var í New York á |
dögunum, vöktu nýstárlegar
gallabuxur frá Gueci mikla
athygli. Engu var líkara en
hönnuðurinn, Tom Ford,
hefði sótt innblástur sinn í
blómaskeið hippanna.
Um innlegg Gucci til
sumartískunnar sagði
tískuskríbent Vouge m.a.:
„Gucci kemur á óvart. Hvar
eru svörtu fötin? En borg-
aralegu tískuklæðin? Núna
snýst allt hjá Gucci um frjáls-
ræði í klæðaburði, líkt og fötin
séu hönnuð fyrir stúlkurnar í
Kaliforníu; ísaumaðar hippa-
gallabuxur, léttir sumarkjólar
með blómamynstri og kakí- og
leðurjakkar." Og skóbúnaður-
inn þótti líka ólíkur því sem
menn hafa átt að venjast úr
smiðju Gucci; perluskreyttir
hælbandaskór og svört hnéhá
indíánastígvél.
Olíklegt er að nokkur sannur
hippi hafi efni á Gucci-galla-
buxunum, en þær eru sagðar
kosta ígildi um 260 þúsund ís-
| • •
• \
ttir j
íhá j I
lenskra
króna í
Bandaríkj-
unum. Hins
vegar gætu
handlagnir og
hugmyndarík-
ir tekið sér
skæri, nál og
mislit bönd í
hönd og klippt,
bætt og stagað
þar til gömlu
gallabuxurnar
verða eitthvað í lík-
ingu við þær sem
hér má sjá á mynd.
GUCCI-gallabuxurnar
kosta sem samsvarar
260 þús. ísl. kr. í Banda-
ríkjunum.
Karin Herzog
snyrtístofa
hefur opnað á Garðatorgi og þar
færð þú sérstaka súrefuisineðferð
fyrir aiullil, augnsvæði og líkaina.
Við lijóðum sömu medferdir og eru í boði í
Sviss, London og New York.
Karin Herzog snyrtistofa,
Garóatorgi, Garðabæ,
símar 698 0799 og 565 6520.