Morgunblaðið - 30.01.1999, Síða 3

Morgunblaðið - 30.01.1999, Síða 3
2 B LAUGAKDAGUR 30. JANÚAR 1999 MORGUNB LAÐIÐ Meiðsli Herdísar og Auðar IÞROTTIR Morgunblaðið/Kristinn HARPA Melsted, landsliðsmaður í handknattleik, sækir að marki Rússa. Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi grein frá Theódóri Guð- finnssyni, landsliðsþjálfara kvenna í handknattleik. ,Að gefnu tilefni, vegna greinar um meiðsl Herdísar Sigurbergs- dóttur, sem birtist í Morgunblaðinu hinn 28. jan. sl., vill undirritaður taka fram að Aðalsteinn Jónsson þjálfari Stjörnunnar bað mig aldrei um að hvíla Herdísi í landsleikjun- um við Rússa. Þá vil ég einnig að komi fram hvernig allt þetta mál er tilkomið. Herdís hefur lengi kennt sér eymsla í hásin, án þess þó að vita nákvæmlega hver orsökin væri, en eymslin hafa ekki verið þess eðlis að það hafi haft afgerandi áhrif á þátt- töku hennar í æfingum eða keppni. Eymslin hafa verið að koma og fara. Á síðustu æfingu landsliðsins milli jóla og nýárs tóku þessi eymsli sig upp og var hún eðlilega látin hætta æfingu og sett í kælingu. Herdís fór í framhaldi af þessu í meðferð hjá Kristjáni Ragnarssyni, sjúkraþjálf- ara landsliðsins, en hann hefur ver- ið með Herdísi í meðferð í hennar meiðslum, sem ekki eru fá, síðustu misseri og sinnt henni af mikilli kostgæfni. Hinn 13. janúar sl. spil- aði Herdís með liði sínu, Stjömunni, gegn Val, þrátt fyrir það að vera meidd og sá Kristján um að undir- búa hana sem best fyrir þann leik, enda kom ekkert annað til greina hjá henni en að spila leikinn. Dag- inn eftir er hún mjög slæm í fætin- um og heldur áfram í sjúkraþjálfun og stóð sú meðferð sleitulaust fram að landsleikjum við Rússana. Þegar nær dró leikjunum og batinn var frekar hægur var tekin ákvörðun um að láta mynda hásinina með óm- skoðun, enda hafði Kristján veru- legar áhyggjur af því að hásinin væri ekki í lagi og vildi þ.a.l. ekki UM HELGINA Handknattleikur Bikarkeppni karla, undanúrslit: Laugardagur: Seltjarnarn.: Grótta/KR - FH...........16 Varmá: Afturelding - Fram..............16 • Forsala hefst kl. 11 í íþróttahúsinu að Varmá. Bikarkeppni kvenna, undanúrslit: Sunnudagur: Kaplakriki: FH - Haukar..............20 Körfuknattleikur Urvalsdeild karla: Sunnudagur: Akureyri: Pór - Skallagrímur.........20 Keflavík: Keflavík - íA..............20 Sauðárkrókur: Tindastóll - Valur.....20 Hagaskóli: KR - Njarðvík.............20 Strandgata: Haukar - Grindavík.......20 Stykkishólmur: Snæfell - KFÍ.........20 1. deild karla: Laugardagur: Hagaskóli: ÍS - Höttur...............14 Sunnudagur: Ásgarður: Stjarnan - Þór Þ...........15 1. deild kvenna: Laugardagur: Grindavík: Grindavík - Njarðvík......17 Keflavík: Keflavík - KR..............17 Mánudagur: Kennaraháskóli: ÍS - ÍR...........20.15 Blak Laugardagur: 1. deild karla: Nesk.: Þróttur N. - Þróttur R.....13.30 1. deild kvenna: Nesk.: Þróttur N. - Þróttur R.....15.00 Lyftingar íslandsmeistaramótið í bakkpressu verður haldið á morgun, sunnudag, kl. 14 í húsnæði Kraftvéla, Dalvegi 6 í Kópavogi. Frjálsíþróttir Iþróttadeild Úrvais-Útsýnar býður í vor og sumar uppá æfingaaðstöðu fyrir frjálsí- þróttafólk í Vila Real í Aigarve í Portúgal. Kynning verður á svæðinu og öðru í sam- bandi við aðstöðuna hjá ferðaskrifstofunni í Lágmúla 4 í dag, laugardaginn kl. J3. taka neina áhættu. Teknar voru myndir bæði af hægri og vinstri fæti til þess að gera samanburð og voru niðurstöð- ur ómskoðunar þær að hásinin væri í fínu lagi og var ekki að sjá neinn mun á hægri og vinstri hásin þegar myndh' af hásinunum voru bomar saman. Það sem hins vegar kom fram á myndunum var bólgusvæði rétt undir húðinni sem í var örvefur og var það talin orsök fyrir eymsl- unum. Sjálfur var ég viðstaddur ómskoðunina og ræddi ég við lækn- inn auk þess sem Kristján hringdi og talaði við hann sjálfur. Heldur var nú léttir á mönnum við þessa niðurstöðu, ekki síst Herdísi og skyldi hún nú gerð leikhæf enda kom ekkert annað til greina af hennar hálfu. Sjálfur var ég glaður mjög enda Herdís lykilmaður í leik íslenska liðsins. Þrátt fyrir þetta ferli og niður- stöður ómskoðunar gerðist sá sorg- legi atburður að hásinin gaf sig í síð- ari leiknum og þurfum við því að sjá á eftir frábærum leikmanni út þetta tímabil. Það er skemmst frá því að segja að við Kristján tókum þetta mjög nærri okkur og erum marg- búnir að spóla til baka og fara gegn- um málið og það veldur okkur gríð- arlega miklum vonbrigðum að óm- skoðunin skyldi ekki gefa okkur skýrari mynd af ástandi hásinarinn- ar en raunin varð á, því að við aðgerð kom í ljós að hásinin var mjög trosn- uð og því einungis tímaspursmál hvenær hún færi. Þegar tekið er tillit til alls þessa ferils, tel ég að hlutur Kristjáns sjúkraþjálfara hafi verið mjög fagmannlega unninn enda tjáði hann mér það orðrétt fyrir ómskoð- unina. „Herdís verður ekki með um helgina nema hásinin sé í lagi.“ I Ijósi þess að menn vísa, í áðumefndri grein, til ann- arra meiðsla leikmanna í landsliðsferð- um fslenska kvennalands- liðsins, finnst mér rétt að svara því í leiðinni, því ljóst er að þessa grein í heild sinni má túlka sem hreina árás á það starf og þá vinnu sem hefur verið lögð í leik- menn landsliðsins og ekki er annað hægt að lesa úr greininni en að verið sé að ýja að því að viðhöfð séu ófag- mannleg vinnubrögð í allri meðferð á leikmönnum. Það eru hrein ósannindi sem lesa má úr orðum Andrésar Gunnlaugs- sonar, að Auður Hermannsdóttir, leikmaður Hauka, hafi meiðst í Tyrklandsferð landsliðsins vegna annarra meiðsla. Þarna var um meiðsl allt annars eðl- is að ræða og alveg óskyld þeim meiðslum sem fyrir voru, þrátt fyrir að um sömu öxl hafi verið að ræða. Auður klemmdi hægri hönd milli tveggja leikmanna í einum leikjanna í Tyrklandi og lá við að öxl- in færi úr liðnum. Þetta gat allt eins hafa verið vinstri höndin og það sama hefði gerst. Auður hafði átt í álagsmeiðslum í öxlinni og átti hún þ.a.l. í erfiðleikum með skothreyfing- ar og var í meðferð vegna þess, þar sem allt kapp og mikil vinna var lögð í að gera hana spilfæra, ekki aðeins fyrir æfingaferð landsliðsins heldur einnig fyrir deildarleik Hauka við Víking í vikunni á undan. Auður spil- aði þann leik og tók þar þátt í sókn- arleik liðsins þrátt fyrir tilmæli frá sjúkraþjálfara um að spila einungis vamarleikinn. Eftir Ieikinn hélt með- ferðin áfram eða allt þar til hún meiddist. I leikjum þeim sem Auður náði að spila lék hún einungis í vam- arhlutverki, og gerði það frábærlega en skipti út af þegar að sóknarleikn- um var komið enda á þeim stundu ekki tilbúinn til þess. Með þessari grein minni er ég á engan hátt að kasta rýrð á einn né neinn, enda það ekki minn stíll en ég tel það hins vegar rétt og skylt að það sanna komi fram til að fyrir- byggja frekari misskilning. Með kærri íþróttakveðju." Theodór Guðfinnsson, landsliðs- þjálfari kvenna. Er ekki lengur saumaklúbbur MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi bréf frá Herdísi Sigurbergsdóttur, fyrirliða kvennaliðs Stjömunnar í hand- knattleik og íslenska landsliðsins: „Ástæða fyrir þessum skrifum mínum er grein sem birtist í Morgunblaðinu fímmtudaginn 28.janúar sl. Þar var rætt við tvo „handknattleiksspekinga", þá Ragnar Hermannsson þjálfara kvennaliðs Vals og Andrés Gunn- laugsson þjálfara kvennaliðs Hauka. Þar tala þeir um nýaf- staðna leiki íslenska kvennalands- liðsins gegn Rússlandi. Eins og flestir vita hafa Rússar mikla og langa hefð í handbolta og gildir þá einu hvort talað er um konur eða karla. Eg veit ekki hvernig þessir ágætu menn haga sínum undir- búningi fyrir leiki en í mínum huga kemst aðeins eitt að og það er að sigra, skiptir þá engu hvað andstæðingurinn heitir eða hverr- ar þjóðar hann er. Ef til vill má deila um það hvort raunhæft hafi verið að við næðum að sigra þetta rússneska lið. Eg og hinir leik- menn íslenska landsliðsins fömm aldrei inn á völlinn öðravísi en með það í huga að spila til sigurs og leggjum okkur allar fram fyrir hönd þjóðar okkar. Það var ekkert öðravísi í þessum leikjum. Hins vegar er svo alltaf spurning hvort leikmenn skili því sem menn vilja að þeir skili og vissulega er það okkar ábyrgð (leikmannanna) sem vegur hvað mest í þeim efnum. Fróðlegt er að sjá hvað þeir hafa að segja um leikaðferð liðs- ins, uppstillingu, veikleika og sterkustu hliðar þess. Ég ætla ekki að fetta fingur út í þau mál enda mönnum frjálst að hafa sínar skoðanir á því eins og öðra. En það er annað í þessu viðtali sem vakti athygli mína og ég velti fyrir mér hvað þessir menn vora að tala um. Það var varðandi úthald leik- mannanna, að við æfðum ekki nóg og þetta væri „ekki lengur sauma- klúbbur“. Maður veit eiginlega ekki hvað maður á að segja við svona ummælum. Ég hef hingað til verið þeirrar skoðunar að það sé einmitt þáttur félagslega þjálf- arans, t.d. þeirra Ragnars og Andrésar, að sjá um að úthald leikmanna þeirra sé í lagi, ekki landsliðsþjálfarans. Þeir tala um að mætingar á æfingar séu slæm- ar. Eða eins og Ragnar segir: „Það á að vera krafa um að menn sem hafa hug á að vera i landsliði mæti á allar æfingar, en uppá það vantar talsvert hjá stúlkunum." Hvaða stúlkur er hann að tala um? Stuttu seinna í viðtalinu viður- kennir hann að stúlkur hjá honum séu ekki í nægilega góðri æfingu. Ragnar segir: „Það er ekkert leyndarmál að hjá mér eru stelpur sem era ekki í nægilega góðri æf- ingu, en slíkt á ekki að vera vanda- mál hjá landsliði." Er hann þá að alhæfa það að leikmenn í efstu deild kvenna almennt æfi illa? Það sama virðist vera uppá ten- ingnum hjá Andrési sem segist „gera þá kröfu að menn séu í góðri æfingu og mæti á æfingar". í næstu línu á eftir talar hann svo alveg í kross og segir: „Metnaður- inn hjá stelpunum er meiri nú en áður og þær æfa meira en áður og nú era íþróttir hjá stelpum hættar að vera bara félagslegi þátturinn. Þetta er ekki lengur saumaklúbb- ur ..." Ekki lengur saumaklúbbur, hvað er að? Auðvitað er félagslegi þátturinn stór þáttur í íþróttum, sérstaklega hópíþróttum, en saumaklúbbur...! Það eru sett markmið við upp- haf hvers tímabils, stundum nást þau, stundum ekki. Við hjá Stjörn- unni höfum aldrei sett okkur önn- ur markmið en þau að vinna alla þá titla sem í boði era og leggjum upp með það enda höfum við á undanförnum áram verið í fremstu röð. Hvort það er vegna þess að við æfum betur en hin lið- in veit ég ekki. Mér finnst þessir menn vera að gera lítið úr þeim leikmönnum sem þeir þjálfa, reyndar öllum þeim leikmönnum sem eru að æfa og leggja sig fram og færa fórnir en mest gera þeir lítið úr sjálfum sér með þessum orðum sínum. I lokin vil ég taka fram að sú ákvörðun sem tekin var fyrir helgi, að ég spilaði þessa landsleiki gegn Rússlandi var að sjálfsögðu mín. Það getur enginn tekið slíka ákvörðun nema leikmaðurinn sjálfur. Það er jú hann sem finnur best hvað hann getur leyft sér. Hins vegar vita þeir sem þekkja mig hverskonar keppnismaður ég er og hef ávallt gert allt til spila hvort sem það er með Stjörnunni eða landsliðinu. Ég vil nota tæki- færið og þakka sjúkraþjálfara landsliðsins, Kristjáni Ragnars- syni, fyrir hans hjálp, en honum verður seint fullþakkað fyrir hans ómetanlegu hjálp í allan vetur, ekki bara fyrir mig heldur einnig margar aðrar sem hafa þurft að leita til hans. Hins vegar gera slysin ekki boð á undan sér og það er enginn einn sem á sök á þessum meiðslum mínum sem era vissulega slæm. Þrátt fyrir meiðsli þá vildi ég leggja allt mitt í þessa leiki og fórna mér til þess að spila fyrir hönd íslands og að spila með stöll- um mínum í landsliðinu sem leggja sig allar 100% fram í þeim verkefnum sem lögð eru fyrir þær. Verst er þetta fyrir félagið mitt Stjörnuna og félaga mína þar, en senn hefst skemmtilegasti kafli tímabilsins, sjálf úrslitakeppnin. Þar á Stjarnan titil að verja og veit ég að félagar mínir í liðinu, stjórn handknattleiksdeildar, meistaraflokksráð kvenna og að sjálfsögðu okkar frábæru stuðn- ingsmenn vinna saman að því markmiði sem stefnt var að í upp- hafi, að halda titlinum í Garðabæ. Megi vegsemd og virðing kvennahandknattleiks á Islandi halda áfram. Með þökk fyrir birtinguna." Herdís Sigurbergsdóttir, fyrir- liði Stjörnunnar í Garðabæ og ís- lenska landsliðsins. ■EINS og kom fram hér á síðunni í gær, þá var það mishermt að Aðal- steinn Jónsson, þjálfari Stjömunnar, hefði talað við Theódór Guðfinnsson og beðið um að Herdís Sigurbergs- dóttir yrði hvfld gegn Rússum. Aðal- steinn talaði við Kristján H. Ragn- arsson. + MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999 B 3 Heimsmetstilraun í Lúxemborg MARK Warneeke, heimsmethafi í 50 metra bringusundi í 25 metra laug og Evrópumeistari í sömu grein ætlar sér að slá heimsmetið í 50 m bringusundi í 50 metra laug á alþjóðlega sundmótinu í Lúxemborg. Heimsmet Warnecke í 25 metra laug er 26,70 sek., sett þegar hann varð Evrópumeistari í Sheffíeld í desember síðastliðnum. Heimsmetið í 50 metra laug á hins vegar Úkraínu- maðurinn Saburía, 27,61 sek. Það setti hann á móti í Kraká fyrir næm þrem- ur árum. Takist Warnecke ætlunarverk sitt verður haim 200.000 krónum rík- ari, en það er sú upphæð sem móts- haldarar í Lúxemborg ætia að greiða hverjum sundmanni sem setur heim- semet á mótinu. Hehnsmetstilraun Warnecke verður um kl. 15 í dag. Líka greitt fyrir Evrópumet og efstu sætin ÞAÐ verður ekki aðeins greitt sérstak- lega fyrir að setja heimsmet á mótinu heldur hefur hverjum þeim sundmanni sem setur Evrópumet verið heitið 80.000 krónum fyrir viðvikið. Þá verða einnig peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverri grein. Þannig fær gull- verðlaunahafinn 24.000 krónur, silfur- sætið gefur 16.000 og bronsverðlauna- hafi fær 8.000 krónur í sinn hlut. Það er nýlunda að gi'eiða fyrir sæti og met á alþjóða sundmótum. Á Evrópumeist- aramótinu í Sheffield á dögunum var t.d. í fyrsta sinn greitt sérstaklega fyr- ir heimsmet og Evrópumet. Það gaf góða raun, sett vora 13 Evrópumet og 7 heinismet auk þess sem þetta hvatti bestu sundmenn Evrópu til þess að mæta til leiks. Var það og raunin. Hægfara Úkraínu- menn á ferð IJKRAINUMENN komu til mótsins um hádegisbilið á fimmtudag, nokkru á undan íslenska liðinu. Voru Úkraínu- mennirnir þreytulegir enda sögðust þeir hafa verið 50 klukkustundir á leiðinni frá Kænugarði. Komu þeir í fólksflutningabíl sein var einnig afar þreytulegur og hefur greinilega verið ekið margan kílómetrann og líklega lifað sitt blómaskeið fyrir mörgum ár- um. Auk þess er hann ekki búinn þeim nútímaþægindum sem vestrænir nú- tíma fólksflutningabílar eru búnir í dag. Klaus Jurgen Ohk, fyrrverandi sundþjálfari hjá Sundfélagi Hafnar- fjarðar og núverandi landsliðþjálfari Lúxemborgar tók á inóti Úkraínu- mönnum við Sundhöllina í Lúxemborg og vísaði þeim til dvalarstaðar sund- mannana í úthverfi Lúxemborgar. Þurfti ni.a. að aka stuttan kafla á lu aðbraut og var það ekki vel séð af öðrum ökuinönnuin sem áttu leið um því Ohk gat ekki ekið hraðar en á 60 km hraða á fólksbíl sínum með Úkra- ínumennina í kjölfarinu, ástæðan var sjí að ökumaður fólksflutningabíls Úkraínuliðsins átti í erfiðleikum með að fara mikið hraðar. KR og Fram ráða fram- kvæmdastjóra MAGNÚS Orri Schram, sagnfræðingur sem hefur verið starfandi íþróttafréttamaður Sjón- varpsins, hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri rekstrarfélags meistaraflokks og 2. flokks karla í knattspyrnu hjá KR. Að rekstr- arfélaginu standa nýstofnað hlutafélag KR- Sport og knattspyrnudeild KR. Framarar hafa ráðið Ami Þór Freysteins- son, sagnfræðingur frá Akureyri, sem fram- kvæmdastjóra hins nýstofnaða hlutafélags, Fótboltafélags Reykjavíkur h/f. IÞROTTIR ÚRSLIT Skíðasambandið sakað um mútuþægni á þíngi FIS 1992 „Seldi“ Norðmönn- um atkvæði sitt NORSKIR fjölmiðlar skýrðu frá því í gær að Norðmenn hafi þurft að „kaupa“ atkvæði um 20 landa til að tryggja það að Þránd- heimur yrði fyrir valinu þegar staðarval HM í norrænum greinum árið 1997 var ákveðið. Að sögn norska blaðsins Addresseavisen var Island eitt þeirra landa sem seldu atkvæði sitt á þingi Alþjóða skíðasambandsins, FIS, í Búdapest 1992. Sigurður Einarsson, sem var formaður Skíðasambandsins á þessum tíma, staðfesti að þetta væri rétt. „Ég var sjálfur á þinginu ásamt Hans Kristjánssyni. Það má alveg kalla þetta mútur, en það getur líka kallast aðstoð við van- þróaðar skíðaþjóðir,“ sagði Sigurð- ur. „Þegar ég fór á fyrstu þingin komu fulltrúar landa sem voru að sækja um HM og föluðust eftir at- kvæði smærri þjóðanna. Þeir lof- uðu einhverju í staðinn, en sviku það alltaf. Þá datt mér og fleirum í hug að búa til „blokk“ úr litlu þjóðunum ellefu, sem höfðu sam- tals 20 atkvæði. Með því vildum við reyna að fá eitthvað af því sem við sáum með berum augum að gekk á milli manna í formi útbún- aðar og fyrirgreiðslu. Við stofnuð- um samtök smáþjóða í Lúxemborg árið 1991 til að vægi atkvæðanna yrðu meira.“ „Á þinginu í Búdapest 1992 fór ég með umboð smáríkjanna ellefu, samtals 20 atkvæði. Þrándheimur var einn af umsækjendunum um HM 1997 í göngu. Ég ræddi við fulltrúa undirbúningsnefndar Þrándheims, Per Ottesen, fyrir þingið og setti ákveðin skilyrði. Bauð atkvæði smáþjóðanna fyrir ákveðna fyrirgreiðslu. I framhaldi af því var gerður skriflegur samn- ingur áður en kom til atkvæða- greiðslu á þinginu. Norðmennirnir stóðu síðan við samninginn gagn- vart smáþjóðunum og öfugt,“ sagði Sigurður. „Það er ekki bara Samaranch, forseti Alþjóða ólympíunefndar- innar, sem er skúrkur. Það eru miklu fleiri. Svona vinnubrögð hafa viðgengist lengi í íþrótta- hreyfingunni og eiga auðvitað ekki að viðgangast. Ég tók þátt í þess- um leik til að láta íþróttamennina sjálfa njóta góðs af,“ sagði Sigurð- ur. Samningurinn við Island og smáþjóðimar tíu kvað á um að framkvæmdanefnd HM í Þránd- heimi legði fram 50 æfingagalla, fimm kistur af skíðaáburði, 30 pör af keppnisskíðum, 30 pör af skíða- stöfum og bæri kostnað af 25 æf- ingavikum skíðagöngumanna í Noregi. Fordæmir vinnubrögðin „Auðvitað eru þetta vinnubrögð sem maður fordæmir og ættu ekki að eiga sér stað/‘ sagði Ellert B. Schram, forseti Iþrótta- og ólymp- íusambands Islands, þegar hann var spurður álits á málinu. „Ég er ekki með þessu að segja að þetta sé staðfesting á mútuþægni ís- lensku íþróttahreyfmgarinnar, heldur er þetta frekar hagsmuna- gæsla Skíðasambandsins á þess- um tíma. Það hafði enginn per- sónulegan ávinning af þessu. Það er því mikill stigsmunur á þessu máli eða máli IOC-nefndarinnar þar sem menn hafa verið að maka krókinn prívat og persónulega með mútuþægni," sagði Ellert. ÍBV-Fram 17:21 Iþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum, undan- úrslit í bikarkeppni kvenna, föstudaginn 29. janúar 1999. Gangur leiksins: 3:0, 6:3, 7:7, 9:10, 11:11, 15:15,16:16,16:19,17:19, 17:21. Mörk ÍBV: Amela Hegic 6/3, Jennie Mart- insson 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Elísa Sigurðardóttir 2, Hind Hannesdóttir 2J\. Varin skot: Lukrecija Bokan 18/1 (þar af 4 yfir á mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Fram: Marina Zoveva 8/4, Jóna Björg Pálmadóttir 4, Steinunn Tómasdóttir 3, Svanhildur Þengilsdóttir 2, Olga Prohorova 2, Guðríður Guðjónsdóttir 2. Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 21/4 (þar af 2/1 yfir á mótherja). Utan vallar: 14 mínútur. Áhorfendur: Um 200. Dómarar: Bjarni Viggósson og Valgeir Ómarsson. Framarar höfðu það í Eyjum IBV mætti Fram í undanúrslitum bik- arsins í Eyjum í gærkvöldi og hafði Fram betur, 21:17, og er komið í úrslit. Fram mætir annað hvort FH eða Haukum, sem leika í undanúrslitum á morgun. Leikurinn var hörkuspennandi og heimastúlkur byi'juðu betur, vel kvatt- ar af fjölmörgum áhorfendum í Eyj- um, komust í 3:0 snemma leiks og höfðu frumkvæðið framan af fyrri hálf- leik en Framstúlkur náðu að riðla sóknarleik ÍBV verulega með því að taka helsta sóknarvopn þeirra, Amelu Hegic, úr umferð og ná þar með for- ystu en tvö síðustu mörk hálfleiksins voru Eyjastúlkna sem þar með náðu að jafna 11:11. Það voru síðan Framarar sem voru sterkari aðilinn i seinni hálfleik og þrátt fyrir að lið ÍBV jafnaði leikinn þegar komið var fram í seinni hluta síðari hálfleiks, 16:16, komust þær ekki lengra og Fram er því komið í úrslit bikarsins þetta árið en Eyjastúlkur sitja eftir með sárt ennið. Það munaði mikið um markvörslu Hugrúnar Þorsteinsdóttur í marki Fram sem varði yfir tuttugu skot og þar á meðal 4 vítaköst á mikilvægum köflum í leiknum en alls misnotuðu Eyjastúlkur 5 víti og munar um minna í slíkum leik sem var hin besta skemmtun og sá allra besti sem hefur sést í kvennaboltanum í Eyjum í vetur. S.G.G., Eyjum. Öm Arnarson á NETINU y Fréttir frá sundmótinu í Lúxemborg /*/ 100 m baksund Undanúrslit kl. 9.45, úrslit kl. 18.00 100 m skriðsund ______ Undanúrslit kl. 10.45, úrslit kl. 18.30 f M L Sunnud. 200 m baksund Undanúrsl. kl. 9.50, úrslit kl. 14.30 50 m skriðsund Undanúrsl. kl. 10.30, úrslit kl. 15.30 www.mbl.is HANDKNATTLEIKUR Guðmundur Hrafnkelsson landsliðs- markvörður um bikarleikina Afturelding og FH-ingar í úrslit Undanúrslitum í bikarkeppni Handknattleikssambandsins lýkur um helgina, hjá körlunum í dag en konunum á morgun. í karla- flokki mætast Grótta/KR og FH á Seltjarnarnesinu og Afturelding tekur á móti Fram og hefjast leik- irnir kl. 16. Á morgun verður ná- grannaslagur í Hafnarfiði er FH og Haukar mætast í kvennaflokki. Guðmundur Hrafnkelsson, lands- liðsmarkvörður og bikarmeistari með Val, segir að leikirnir verði spennandi og skemmtilegir. „Ég held að Afturelding hafi betur í Mosfellsbænum og það byggi ég fyrst og fremst á því að liðið hefur verið á góðu skriði undanfarið og með sigi'i á Fram á miðvikudaginn jókst sjálfstraust leikmanna. Þetta verður samt ekki létt hjá Aftureld- ingu því Framarar munu veita þeim mikla mótspyrnu. Fram þarf helst að leika agað í sókninni og hafa góða nýtingu þar þannig að Aftur- elding nái ekki að beita þeim hraða sem þeir vilja helst,“ segir Guð- mundur. Afturelding og Fram hafa mæst tvívegis í deildinni, og hafa báðir leikirnir unnist á útivelli. Fram vann 29:26 að Varmá 28. október og 27. janúar vann Afturelding 25:23 í Framhúsinu. Grótta/KR og FH hafa einnig mæst tvívegis. FH vann 29:20 á heimavelli 9. desember en 20. sept- ember gerðu liðin 21:21 jafntefli á Seltjarnamesinu. „Þessi leikur verður líka spennandi en ég held að FH-ingar hafi það. Þeir hafa mikla reynslu og það vegur þungt þó svo liðinu hafi ekki gengið vel að undan- fómu. Bikarleikir eru stemmnings- leikir og reynslan ræður miklu. Grótta/KR er með vel spilandi lið og hefur sýnt í vetur að það getur ým- islegt, meðal annars slegið okkur Valsmenn út úr bikarnum og einnig KA,“ sagði Guðmundur. Jafnræði í Firðinum Nágrannaliðin FH og Haukar hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur og hafa það verið miklir spennuleik- ir. í byrjun október léku liðin í Kaplakrika og þar höfðu Haukar betur, 22:21, en þegar liðin mættust í síðari leiknum gerðu þau 19:19 jafntefli þannig að líkur eru á mikl- um baráttuleik á sunnudaginn. Þess má geta að Njörður Árna- son, Fram, og Magnús Magnússon, Gróttu/KR, sem voru dæmdir í leik- bann á þriðjudaginn, leika með lið- um sínum, þar sem leikbannstil- kynning barst liðunum ekki í tæka tíð. FORSALA SS bikarinn undanúrslit Afturelding - Fram í íþróttahúsinu að Varmá í dag, laugard., kl. 16.00. Forsala í íþróttahúsi Fram í dag kl. 12-14.30 Rútuferðir frá íþróttahúsi Fram kl. 14.45. Krakkar verða málaðir í framan frá kl. 13.30. Mætum öll í bláu - Áfram Fram fWT Bikarkeppni (4 Íiða úrslit) í íþróttahúsi Kaplakrika sunnud. 31. jan. kl. 20.00. FH - Haukar í mfl. kvenna. Hafnarfjarðarslagur af bestu gerð og stuðningsmenn fjölmenna í Krikann. Allt eða ekkert gildir núna. Laugard. 30. jan. kl. 16.00 á Seltjarnarnesi, Grótta-KR - FH í mfl. karla. Forsala í Kaplakrika kl. 13.00 - 15.00. Muggarar og FH-krakkar hittast á KafFi Firði kl. 13.00. Ókeypis rúta þaðan kl. 14.45. Óvæntar uppákomur. SPARISJÓÐUR Atl HAFNARFJARÐAR Aðalstyrktaraðili handknattleiksdeilda FH/Hauka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.