Morgunblaðið - 12.02.1999, Qupperneq 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1
1
1999
SKIÐI
FOSTUDAGUR 12. FEBRUAR
BLAÐ
LANDSLEIKUR Engiands og Frakklands
reyndist á endanum heldur dýrt spaug fyrir
Englands- og bikarineistara Arsenal, sem áttu
samtals sjö fulltrúa í leiknum. Fyrirliðinn Tony
Adams nefbrotnaði í átökum við frönsku heims-
meistarana, varnarmaðurinn Lee Dixon var
fluttur á sjúkrahús með heilahristing og Martin
Keown verður frá keppni í þrjár vikur hið
minnsta, vegna tognunar.
Talið er víst að Dixon missi af bikarleik Ar-
senal gegn ShefTield United á laugardag og jafn-
vel einnig stórleiknum við Manchester United á
miðvikudagskvöid. Ekki er talið að meiðsli Ad-
ams komi í veg fyrir að
hann leiki.
Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, sagði
að meiðsli leikmannanna
væru mikið áhyggjuefni.
„Meiðsli Keowns eru alvar-
iegust. og hann gæti jafnvel
verið frá í mánuð,“ sagði
stjórinn.
Til að bæta gráu ofan á
svart getur franski miðvall-
arleikmaðurinn Emmanuel
Petit ekki tekið þátt í leikj-
unum tveimur, hann tekur
út leikbann í þeim. Þá er
Dennis Bergkamp einnig í
banni gegn Manchester
United.
arana
Meissnitzer
í spor Maiers
AUSTURRÍSKA skíðadrottningin
Alexandra Meissnitzer varð heims-
meistari í stórsvigi kvenna í Vail í
Colorado í gær. Þetta voru önnur
gullverðlaun hennar á mótinu því hún
sigraði einnig í risasviginu. Þar með
fetaði hún í fótspor landa síns, Her-
manns Maiers, sem hefur einnig unn-
ið tvenn gullverðlaun. Andrine
Flemmen frá Noregi varð önnur og
hin gamalreynda Anita Wachter frá
Austurríki þriðja, en hún var með
besta brautartímann í fyrri umferð. Á
myndinni hér til hliðar er Meissnitzer
í stórsvigsbrautinni. _____
■Nánar/ C3
Dýrt spaug
fýrir meist-
Reuters
Gummers-
bach enn
í vand-
ræðum
KNATTSPYRNA
Eiður Smári að ná sér á
strik og skorar grimmt
ÞÝSKA handboltaliðið Gum-
mersbach er enn á ný í vand-
ræðum, og nú vegna hins nýja
styrktaraðila seni kom til
lijálpar á síðustu stundu fyrir
áramót. Forráðamenn fyrir-
tækisins sætta sig nefnilega
ekki við að stjórnin, sem verið
hefur við völd síðustu tvö árin,
sitji áfram. Þeir vilja að nýr
framkvæmdastjóri verði ráð-
inn og liann komi frá fyrirtæk-
inu sjálfu. Þetta geta forráða-
memi Gummersbach ekki sætt
sig við og er enn á ný komin
upp afar kritísk staða þessa
fornfræga félags
Eiður Smári Guðjohnsen, leikmað-
ur hjá Bolton, hefur verið iðinn við
markaskorun með varaliði félags-
ins og skorað flmm mörk í síðustu
þremur leikjum. Hann hefur skor-
að í sigurleikjum gegn varaliðum
Manchester. City, Blackburn og í
jafnteflisleik gegn varaliði
Coventry. Hann segist búinn að ná
sér fyllilega af meiðslum, en hann
reif liðþófa í hægi'a hné með ís-
lenska ungmennalandsliðinu -í
haust og var frá æfíngum í sex vik-
ur. „Mér hefur gengið vel með
varaliðinu og tel mig tilbúinn í leiki
með aðalliði félagsins. Eg er í góðu
formi en þarf að komast í betri
leikæfingu, enda búinn að vera frá
vegna meiðsla í nærri tvö ár.“
Eiður Smáiú sat á varamanna-
bekknum er Bolton lék gegn
Grimsby í 1. deildinni um liðna
helgi. Hann segir að mikil barátta
sé um stöður meðal leikmanna og
erfitt að komast í aðalliðið, enda
hafi það aðeins tapað einum af síð-
ustu 14 leikjum.
Bolton gekk frá kaupum á
danska sóknarleikmanninum Bo
Hansen frá Bröndby fyrir um 115
milljónir íslenskra króna á þriðju-
dag. Segh’ á heimasíðu félagsins að
Hansen sé tilbúinn til þess að taka
sæti í leikmannahópnum sem mæt-
ir WBA um næstu helgi. Eiður
Smári segir að Colin Todd, knatt-
spyrnustjóii félagsins, hafi tjáð sér
að hann vildi hafa fjóra sóknarleik-
menn til taks fyrir átökin í deild-
inni. Auk Eiðs Smára hafa Bob Ta-
ylor og Dean Holdsworth æft með
liðinu. Þá hefur Bo Hansen bæst í
hóp sóknarleikmanna félagsins.
Eiður Smári segir að sér hafi
fundist enskir fjölmiðlar gera of
mikið úr því ástandi sem skapaðist
í herbúðum félagsins er Arnar
Gunnlaugsson neitaði að skrifa
undir nýjan samning og fór fram á
sölu, en bendir á að sennilega hafi
það verið öllum fyrir bestu að Arn-
ar fór til Leicester. „Hann var bú-
inn að standa sig vel en vildi fara til
Leicester og ég er ánægður fyrir
hans hönd að salan gekk fljótt fyrir
sig. Þá kom það sér vel fyrir Bolton
að selja Arnar því félagið hefur enn
ekki selt gamla leikvöll félagsins,
Bumden Park, og vantaði fjár-
magn.“
Guðni Bergsson hefur lítið leikið
með Bolton í vetur vegna meiðsla
og segir Eiður Smári að hann geti
farið að æfa með liðinu eftir
nokkrar vikur. Þá hefur Ólafur
Snorrason leikið með unglingaliði
félagsins og nokkra leiki með
varaliðinu.
KNATTSPYRNA: MEISTARAR FRAKKA ERU EINFALDLEGA BESTIR/C4