Morgunblaðið - 26.02.1999, Side 5
Ær„.____
(GftrmF
—IBTEreJR —
VÍKING
Géugíeði &etur
&vip á bœimm
Það var til siðs hér áður fyrr að fólk
kæmi saman á góu til að skemmta
sér og voru þær skemmtanir kallaðar
Góugleði. Víst er að yfirbragð þeirra
hátíða hefur verið með öðrum hætti
en nú er stefnt að en tilgangurinn
væntanlega sá hinn sami; að eta,
drekka og auðga andann.
Hvers kyns hátíðir eru mönnum mikil-
vægar og ávinningur af þeim er ríku-
legur sé rétt á málum haldið. Allt frá
því að hugmyndir kvikna og þar til
hátíðirnar eru yfirstaðnar á sér stað
skemmtilegt ferli þar sem margir
leggja hönd á plóg. Flestir vilja leggja
eitthvað eftirminnilegt af mörkum og
gera sér því far um að vera frumlegir
og uppáfinningasamir. Þegar lista-
menn, veitingamenn, verslunareig-
endur og margir aðrir taka höndum
saman er hægt að efna til jákvæðra
viðburða sem vert er að endurtaka. Ef
spurt er um fjárhagslega útkomu há-
tíðanna er Ijóst að menn ríða misfeit-
um hesti frá þeim. En þó er Ijóst að
heildarafkoman er nánast alltaf já-
kvæð á einn eða annan hátt. Ríki og
borg fá t.d. meira í sína sjóði því ný
störf skapast, veltan eykst og umsvif
þeirra sem að málinu koma aukast til
muna. Sjaldnast er lagt út I dýrar
framkvæmdir vegna hátíðahalda
heldur er verið að bæta nýtingu á því
sem er fyrir hendi.
Hátíðir draga líka til sín gesti, bæði úr
næsta nágrenni og lengra að komna.
Þess vegna eru hátíðir nauðsynlegar í
markaðslegu tilliti og ekki veitir af að
vera vakandi á þeim vettvangi því
samkeppnin er hörð. Að teknu tilliti
til alls þessa hefur Atvinnu- og ferða-
málanefnd sett það í endurskoðaða
stefnu í ferðaþjónustu fyrir Reykjavík
að í hverjum mánuði beri að stuðla að
"stórviðburðum" eins og t.d. Góu-
gleði. Nefndin hefur einnig ákveðið
að styðja við verkefnið á sama hátt og
gert hefur verið við sambærilegar há-
tíðir eins og t.d. Jazzhátíð í Reykjavík
og Menningarnótt I miðborginni,
sem reyndar var í upphafi haldin að
frumkvæði nefndarinnar. Menning-
arnóttin er eitt besta dæmið um
reglubundna hátíð sem skipulögð
hef ur verið hér á landi á síðustu árum
(og er orðin einskonar lokapunktur
sumarsins í höfuðborginni). Þar kem-
ur til gott skipulag, frumkvæði og
metnaður þátttakenda (listamanna,
galleríeigenda, verslana, veitinga-
staða o.fl.) og jákvætt viðhorf þeirra
sem koma til að njóta þess sem í boði
er. Og Menningarnóttin dregur til sln
fjölda gesta, innlendra og erlendra,
enda hróður hennar farinn að spyrj-
ast víða.
Góugleðin á vonandi eftir að festast í
sessi sem skemmtilegur viðburður á
þeim tíma árs þegar skammdegið er
farið að víkja fyrir birtunni og tími til
kominn að rífa sig upp úr mesta vetr-
ardvalanum.
Anna Margrét Guðjónsdóttir
ferðamálafulltrúi Reykjavíkurborgar
OLVER
SPORT OG
KARAOKE KRÁIN
íþróttir á risaskjá með nýjustu
digitaltækni.
Karaoke á kvöldin eftir kl. 22:30
ATH!
Nýtt símanúmer 533 6220
Nýtt! Nýtt! Símsvar, leikir dagsins
533 6222
Sunnudaga - fimmtudaga kl. 11:30 - 01:00
Fostudaga - laugardaga kl. 11:30 - 03:00
Gullnáman kl. 09:00 virka daga
RESTAURANT / BAR
Meiriháttar tónlistar- og stuðvika á Kaffi Reykjavík.
Bítlavinafélagið, Furstarnir og Geir Ólafsson, Karma, 8-Villt.
Ekki missa af fjörinu hjá okkur
Staðurinn sem stuðið er - Bryggjuhúsið
Þú borgar 2,000 ©g
hsrð bjór ©g mat
©ins ©g þú vMt, frá
18”2 3 i Naustkránnl