Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 C 3
FRJALSIÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelnisson
JÓN Arrtar Magnússon og Erki Nool athuga hvað tímanum líður á Evrópumeistaramótinu sl. sumar. Hver veit nema þeirra tími renni
upp á HM f Maebashi um helgina.
INool og
Chmara
líklegastir
EVRÓPUMEISTARINN í
tugþraut, Eistlendingurinn
Erki Nool, er af mörgum
talinn sigurstranglegasti
keppandinn í sjöþrautinni á
HM. Árangur hans á móti í
Tallin fyrir mánuði bendir
til að hann sé í mjög góðri
æfíngu. Þar fékk hann
6.309 stig og setti landsmet.
Nool varð í 2. sæti í sjö-
þraut á HM 1997 og í 4. sæti
1995.
Tékkamir Roman Sebrle
og Tomas Dvorák eru
einnig afar öílugir. Dvorák
er mikill keppnismaður og
heimsmeistari í tugþraut
1997. Eftir slæmt, ár í fyrra
hefur hann nú náð fyrri
styrk að eigin sögn. Dvorák
á best 6.211 stig en Sebrle
6.209.
Evrópumeistarinn í sjö-
þraut, Sebastian Chmara,
er einnig mættur til leiks.
Þá náði hann næst besta ár-
angri Evrópubúa, 6.415
; stigum. Hann hefur ekkert
keppt í sjöþraut í vetur en
náði góðum árangri í stang-
arstökki (5,30) og í 60 m
Igrindahlaupi á pólska
meistaramótinu fyrir
skömmu.
Chris Huffins er eini full-
trúi Bandaríkjanna í sjö-
þrautinni. Hann hefur litla
áherslu lagt á hana og á
best 6.128 stig frá 1997.
Góður spretthlaupari og
stökkvari, en slakur í 1.000
metra hlaupi.
Jón Arnar Magnússon hefur sett sér háleitt markmið fyrir sjöþrautarkeppni HM í Japan
Stefnir á gull
eða silfur
„SÍÐAST vann ég bronsverðlaun í sjöþraut á heimsmeistaramóti
og því langar mig til þess að vinna aðra tegund af málmi að
þessu sinni, þá er ég að tala um gull eða silfur, en það er hins
vegar alveg Ijóst að ég mun verða óánægður með bronsið," segir
Jón Arnar Magnússon, tugþrautarkappi og íslands- og Norður-
landamethafi í sjöþraut karla. Hann hefur keppni í nótt á fyrri
keppnisdegi sjöþrautarinnar á heimsmeistaramótinu í Maebashi
í Japan.
Það verður bara að koma í ljós
hvort mér tekst að gera það
sem ég ætla, en markmiðið er
skýrt,“ segir Jón
Eftjr sem keppir nú í ann-
ívar að sinn í sjöþraut á
Benediktsson heimsmeistaramóti.
Hann varð í þriðja
sæti í sjöþraut heimsmeistaramóts-
ins í París fyrir tveimur árum, fékk
þá 6.145 stig. Jón bætti síðan um
betur og fékk 6.170 stig á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss í fyrra
og stendur það enn sem íslands- og
N orðurlandamet.
„Keppnin á eftir að verða enn
sterkari og jafnari nú en fyrir
tveimur árum. Helstu keppinautar
mínir verða Erki Nool, Tomas
Dvorák, Evrópumeistarinn Sebasti-
an Chmara, Chris Huffins, Roman
Sebrle og Lev Lobodin."
Jón segir að stór hluti vinnunnar
hjá honum og Gísla Sigurðssyni
Jjjálfara í vetur hafí beinst að því að
vera í sem bestri æfingu á heims-
meistaramótinu. „Sjöþrautin á HM
í Japan á að vera toppurinn á vetr-
artímabilinu hjá mér, við það hefur
allur undirbúningur miðast."
Það er ljóst að þú verður að öllum
líkindum að bæta íslandsmetið
verulega ætlir þú að ná takmark-
inu?
„Það er mjög líklegt. Ég reikna
með því að það þurfi að ná 6.250
stigum, jafnvel 6.300 stigum hið
minnsta til þess að krækja í verð-
laun. Svo gæti einnig farið að það
þyrfti að fara enn hærra, en minna
getur líka nægt. Það er ekkert hægt
að fullyrða um þetta fyrirfram, það
er svo margt sem getur spilað inn í.
Þegar litið er á árangur keppenda
þá er ekki ólíklegt að hámarksár-
angur einn nægi til að vinna til
verðlauna."
Stangarstökkið hefur verið að
batna hjá þér undanfarin misseri.
Attu meira inni íþeirrí grein?
„Töluvert mikið,“ segir Jón og
leggur þunga áherslu á orð sín.
I fyrsta sinn fyrir stórmót lýsir
þú þvi yfír blákalt að þú ætlir að
vinna til verðlauna. Það eitt og sér
er athyglisvert þar sem þú hefur
ekki verið þekktur fyrir yfirlýsinga-
gleði fyrir stórmót. Er þetta ef til
vill eitt merki þess að þú sért að öðl-
ast meira sjálfstraust, eitthvað sem
þig hefur stundum vantað þegar á
hólminn er komið?
„Ég held að það sé enginn vafi.
Ég hef aukna trú á sjálfum mér og
veit að ég get náð til verðlauna, þarf
enga heppni til og stend þeim bestu
fyllilega á sporði. Aðalmálið er bara
að vera ekld óheppinn og víkja öll-
um hugsunum um slíkt frá sér.
Megin skýringin á þessu aukna
sjálfstrausti eru þær framfarir sem
ég hef verið að taka í nokkrum
greinum. Þar er ég farinn að vinna
þá bestu í nokkrum greinum og er
þeim fyllilegur jafningi í öðrum
greinum. Þá hjálpaði sigurinn á tug-
þrautarmótinu í Talence í fyrra-
haust mér einnig mikið. Þar sá ég
að ég er betri en margir andstæð-
inganna."
Hvað hefur breyst hjá þér frá
HM fyrir tveimur árum, hvers
vegna telur þú þig eiga meirí mögu-
leika nú en þá að vinna gull- eða
silfurverðlaun og að bæta íslands-
metið all verulega?
„Ástæðan er einföld, ég er betri
nú í fimm greinum af sjö. Framfarir
hafa orðið miklar í eitt þýsund
metra hlaupi, stangarstökki, há-
stökki og kúluvarpi. Langstökkið á
að vera betra þótt mér hafi gengið
misjafnlega upp á síðkastið. Sextíu
metra hlaupið er eina greinin þar
sem ég stend í líkum sporum og fyr-
ir tveimur árum. Að þessu sögðu þá
á ég að standa betur að vígi.“
Ertu léttarí nú en þá?
„Já, ég er léttari núna og það á að
skila sér í betri árangri.“
Óttast þú ekki að það komi niður
á þér ígreinum eins ogkúluvarpi?
Sjö
þraut
Greinar
Heims-
met fgj
Dan O'Brien
6.473 stig
1993
Evrópu-
met
Chr. Plaziat
6.418 stig
1992
Norðurl.-
met
Jón Arnar M.
6.170 stig
1998
60 m hlaup
Langstökk
Kúluvarp
Hástökk
6,67 sek
7,84 m
16,02 m
2,13 m
6,83 sek
7,58 m
14,53 m
2,13 m
60 m grindahl
Stangarstökk
1.000 m
indahl. » 7,85 sek ** 7,97 e
stökk 5,20 m / ' 5,20
ihlaupt 2.57,96 2.40,
sek
m
17
_ 6,90 sek
7,48 m
15,19 m
» 1,99 m
** 8,03 sek
5,10 m
2.45,65
l
=É
,jUls ekki. Ég á að geta varpað
kúlunni sextán metra að minnsta
kosti. Síðustu vikur hef ég verið að
varpa 15,50 til 15,90 og því óttast ég
ekki að léttleikinn komi niður á
kúluvarpinu."
Hvemig stendur þú að vígi í eitt
þúsund metra hlaupinu? Lengri
hlaupin hafa stundum verið þér til
vandræða.
„Það á ekki að vera minn akkiles-
arhæll og ég vonast til þess að vera
ekki hlaupinn niður eins og á Evr-
ópumeistaramótinu í fyrra sem
kostaði mig nokkurn tíma. Við Gísli
þjálfari höfum lagt aukna áherslu á
hlaupin og það hefur skilað árangri,
samanber fimmtán hundruð metra
hlaupið í þrautinni á EM utanhúss í
fyrra.“
Verða það vonbrigði fyrír þig ef
þú kemur tómhentur heim, það er
að segja án verðlauna?
„Já. Ég geri þær kröfur til mín að
vera í verðlaunasæti og auðvitað er
maður ekki ángæður ef það tekst
ekki. En hins vegar má ekki lata það
slá sig út af laginu takist það ekki,
heldur læra af því sem miður fer og
mæta betur undirbúinn næst.“
GRUNNSKÓLAMÓT
GLI 1999
Á LAU GARVATNI
Þrettánda grunnskólamót Glímusambands fslands verður haldið í
íþróttamiðstöðinni á Laugarvatni laugardaginn 6. mars kl. 10.00.
Keppt verður í 5.-10. bekk grunnskóla hjá drengjum og stúlkum.
Mótsstjóri er Kristinn Guðnason og sér hann um skráningu
í síma 487 6524.
Meistaramót Islands í glímu fer fram á Laugarvatni sunnudaginn
7. mars nk. og hefst mótið kl. 10.00. Þar verður keppt í fimm aldurs-
og fimm þyngdarflokkum karla.
Konur keppa í þremur aldurs- og tveimur þyngdarflokkum.
Glímusamband íslands