Morgunblaðið - 05.03.1999, Page 4
KNATTSPYRNA/ EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Launa-
greiðslur
éta upp
tekjur
ÞYSKA knattspymusamand-
ið hefur lýst miklum áhyggj-
um sínum yfn- fjárhagsstöðu
félaganna sem leika í fyrstu
deild í Þýskalandi. Tapa liða
er að meðaltali um sautján
milii. ísl. kr. á keppnistíma-
bili. Sambandið bendir á að
lið eins og Bayern Miinehen
er að hagnast um 16 milljónir
þýskra marka, um tæpar 700
milljónir ísl. kr.
Þrátt fyrir að tekjur félag-
anna hafí stóraukist vegna
sjónvarpssamninga og að
aldrei hafi komið fleiri áhorf-
endur - verður tap félaga
meira og meira. Fyrir hinn
svokallaða Bosman dóm var
meðalhagnaður félaganna um
70 milljónir ísl. króna og því
ljóst að tap félaganna liggur í
gífurlega hækkuðum launa-
greiðslum til leikmanna.
Að sjálfsögðu eru félögin
misvel rekin og heppnin leik-
ur oft sitt hlutverk. Þannig er
Duisburg rekið með 70 millj-
óna króna hagnaði sem er at-
hyglisvert því það er mjög lít-
ið félag, en stórliðið Dort-
mund sýnir einungis 40 millj-
óna króna hagnað. Nú fer í
hönd sá tími sem félögin
þurfa að sýna reikninga sína
og fá starfsleyfí.
Nokkur félög eru komin við
hættumörk og varar sam-
bandið þau við áframhaldandi
taprekstri. Meðallauna-
greiðslur félaganna voru um
450 milljónir króna fyrir að-
eins fimm árum. Nú greiða fé-
lögin að meðaltali um 1200
milljónir króna í laun á ári,
þetta gerir um 15% aukningu.
Ahorfendafjöldi hefur að-
eins aukist um 50%. Þá er
aukning á tekjur félaganna
fyrir sjónvarpsréttinn, eða
90% aukning. Einnig hafa
tekjur félaganna aukist gífur-
lega fyrir allskonar auglýs-
ingar á leikvöllunum. Þessi
mikla aukning daugar
skammt því launagreiðslur til
leikmanna étur upp tekjum-
ar og gott betur. Það sést
best á því að 70% félagnna
eru rekin með tapi.
FYRIRLIÐINN Dennis Wise innsiglaði sigur Chelsea er hann skoraði þriðja
markið á 85. mínútu eftir fallega sendingu frá Tore Andre Flo.
Reuters
Auðveldur sigur
meistara Chelsea
MEISTARAR Chelsea réðu lögum og lofum í viðureign sinni við
norska liðið Válerenga og unnu þægilegan 3:0 sigur sem gefur
þeim talsvert öryggi fyrir síðari leikinn í Ósló eftir tvær vikur, en
Chelsea á titil að verja í þessari keppni.
Celestine Babayaro opnað marka-
reikning Chelsea á Stamford
Bridge með marki á 9. mínútu og eft-
ir það voru leikmenn Chelsea nær
látlaust í sókn með Gianfranco Zola
og Gianluea Vialli knattspymustjóra
fremsta í flokki. Það var því ekki úr
vegi að Zola skoraði annað mark
liðsins á 30. mínútu en hann hafði
stöðugt verið að ógna vöm norska
liðsins með hraða sínum og tækni.
Þrátt fyrir sóknarleik náðu leikmenn
Chelsea ekki að bæta við fleiri mörk-
um í fyrri hálfleik.
Allan síðari hálfleikinn lá þriðja
mark Chelsea í loftinu en það vant-
aði alltaf hársbreidd upp á að opna
vörn Válerenga. Það tókst ekki fyrr
en 5 mínútum fyrir leikslok er
Dennis Wise skoraði fallegt mark
með fóstu skoti rétt innan vítateigs-
línu eftir að hafa fengið fallega
sendingu frá Tore Andre Flo. „Eg
held að Válerenga hafí enga mögu-
leika á að vinna síðari leikinn.
Þriðja markið okkar held ég að hafí
tryggt okkur áfram,“ sagði Flo eftir
leikinn.
Ágóðaleikur fýrir Papin
HEIMSMEISTARAR Frakka
hafa samþykkt að leika gegn
heimsúrvali knattspymumanna í
ágóðaleik til styrktar markahrókin-
um Jean-Pierre Papin, sem nýlega
lagði skóna á hilluna.
Leikurinn fer fram 30. maí nk. á
Stade Velodrome, heimavelli
Marseille. I heimsúrvalinu verða
margir frábærir leikmenn, t.d. Pa-
olo Maldini, Roberto Baggio, David
Beckham, Lothar Mattháus, Aaron
Winter og George Weah. Þá er og
líklegt að franski útherjinn David
Ginola leiki gegn löndum sínum í
heimsmeistaraliðinu, en hefur ekki
átt sæti í franska landsliðinu undan-
farin ár.
„Þetta er í fyrsta sinn sem
franska landsliðið tekur þátt í
ágóðaleik, en við töldum rétt að
heiðra svo mikilvægan hlekk í
franskri knattspymusögu," sagði
Claude Simonet, forseti franska
knattspyrnusambandsins.
„Ég hugðist ávallt enda ferilinn
minn í Marseille, enda liggja þar
mínar dýrmætustu minningar,"
segir Papin, sem varð meistari fjór-
um sinnum með Marseille.
Dejan Stankovic skoraði tvö af
mörkum Lazio í 4:0 sigri á Panionis
frá Aþenu. Varnarmaður gríska liðs-
ins, Athanasios Gazis, skoraði sjálfs-
mark og Pavel Nedved innsiglaði
sigurinn tæpum hálftíma fyrir leiks-
lok.
„Við lékum mjög vel að þessu sinni
og ég tel okkur vera komna í undan-
úrslit,“ sagði Sven Göran Eriksson,
þjálfari Lazio, glaðbeittur í leikslok í
rigningunni í Aþenu.
Georgíumaðurinn Zaza
Dzhanashia var hetja Lokomitiv
Moskvu í 3:0 sigri liðsins á heima-
velli gegn ísraelska liðinu Maccabi
Haifa í Moskvu. Dzhanashia gerði öll
mörkin þrjú og telja má líklegt að
þessi sigur hafí farið langt með að
tryggja Rússunum sæti í fjögun'a
liða úrslitum. Eftir markalausan
fyrri hálfleik voru ekki liðnar nema
tvær mínútur af síðai-i hálfleik þegar
fyrsta markið var gert. Tvö hin síð-
ari komu á 77. og 89. mínútu.
Markvörður Varteks, Marijan
Mrmic, var hetja liðs sín í leiknum
við Mallorka. Mrmic vai’ði hvað eftir
annað eftir að félagar hans í vörninni
steinsváfu á verðinum og misstu
sóknarmenn spænska liðsins hvað
eftir annað framhjá sér. Spænska
liðið var mun sterkari aðili í leiknum
en tókst ekki að nýta sér það. Þeir fá
annan möguleika á heimavelli eftir
tvær vikur.
Peter
Schmeichel
vill til Ítalíu
DANSKI landsliðsmark-
vörðurinn Peter Schnieichel
hjá Manchester United seg-
ist vilja enda knattspyrnu-
feril sinn á Ítalíu. „Eg stefni
að því að leika tvö ár á ítal-
íu áður en ég held á ný heim
til Danmerkur," sagði Sch-
meichel, 35 ára, í viðtali við
danska blaðið Ekstra-Bladet
í gær. „Þá mun æskudraum-
ur minn rætast.“ Sch-
meichel, sem hefur varið
mark Man. Utd. í átta ár, fer
frá liðinu eftir þetta keppn-
istímabil.
Hann átti mjög góðan leik
með liðinu þegar það vann
Inter á Old Trafford í Evr-
ópukeppninni, 2:0.
FOLK
■ ANDREI Kanchelskis, leikmað-
ur Glasgow Rangers í Skotlandi,
hefur gagnrýnt ákvörðun Oleg
Romantsev , þjálfai’a rússneska
landsliðsins, fyrir að velja sig ekki í
landsliðshópinn gegn Armeníu og
Andorra í undankeppni EM.
„Ljóst er að þjálfarinn vill fremur
fá til sín leikmenn sem leika í
Rússlandi en öðrum Evrópulönd-
um. Engu að síður er skoska deild-
in sterkari en sú rússneska," segir
Kanchelskis
■ JOE Kinnear, knattspyi’nustjóri
Wimbledon, liggur enn á spítala,
en hann fékk verki fyrir brjóstið og
var fluttur á spítala skömmu fyrir
útileik gegn Sheff. Wed. í ensku
úrvalsdeildinni á miðvikudags-
kvöld. Kinnear er undir stöðugu
eftirliti og átti að gangast undir
ýmiss konar rannsóknir í gær.
Hann er ekki sagður í lífshættu.
■ KEN Bates, stjórnarformaður
Chelsea, hefur borið blak af Gra-
eme Le Saux, sem braut illa á
Robby Fowler, leikmanni Liver-
pool um síðustu helgi. Bates segir í
samtali við götublaðið The Sun að
tveir leikmenn Liverpool hafí gert
Le Saux lífið leitt í leiknum og að
Fowler hafí verið upphafsmaður
átakanna milli leikmannanna.
■ BERTI Vogts, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Þýskalands, sem
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Borussia Mönchengladbach,
hefur lagt til við stjórn félagsins að
það fái til liðs við sig tvö önnur fé-
lög á Ruhrsvæðinu við byggingu
hins stórglæsilega leikvallar sem
stjórnin sýndi nýlega teikningar á.
■ VOGTS segir að byggingin verði
aldrei að veruleika nema fleiri stór-
lið verði með. Hann nefnir lið eins
og Fortuna Dusseldorf og rugby-
liðið Rhein Fire í þessu sambandi
og segir jafnframt að leikvangur-
inn yrði að vera miðsvæðis milli
Diisseldorf og Gladbach. Völlurinn
yrði stærsti og glæsilegasti völlur
Þýskalands.
■ ÞESS má geta að forráðamenn
Schalke hafa nýlega lagt fram
teikningar og eftirlíkingar að risa-
vöxnum stórglæsilegum leikvangi
og er þegar hafinn undirbúningur
að byggingu hans. Örstutt er á
milli allra þessara liða og hafa hug-
myndirnar vakið milda athygli
knattspyrnuunnenda.