Morgunblaðið - 09.03.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 B 3
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn
GINTARAS Savukynas og Gintas Galkauskas klæddir landsliðsbúningi Litháens skömmu fyrir æfingu með liði Aftureldingar í Mosfellsbæ.
með Topolciany í Slóvakíu. Báðir
hafa því haft handbolta að atvinnu
um árabil og segjast gera sér vonir
um að halda því áfram einhver ár í
viðbót.
Litháarnir gerðu tveggja ára
samning við Aftureldingu síðast-
liðið sumar. Þeir segjast ekki hafa
ákveðið sig hvað þeir geri að þeim
tíma liðnum. „Okkur hefur liðið
vel hér og því gæti vel farið svo að
við yrðum hér áfram,“ segir
Gintaras. Þeir benda hins vegar á
að draumur hvers handbolta-
manns sé að komast að hjá sterk-
um liðum í Evrópu.
Hafa sýnt mikinn styrk
SKÚLI Gunnsteinsson, þjálfari
Aftureldingar, segir að Lithá-
arnir Gintas og Gintaras hafi
reynst liði sínu vel í vetur. Þeir
hafi fallið vel að leik liðsins og
sýnt mikinn skapstyrk í leikjum
þess. „Þessir leikmenn hafa
sýnt að þeir eru með allt sitt á
hreinu og það hefur reynst gott
að starfa með þeim,“ segir
Skúli.
Skúli segpr að lið Afturelding-
ar hafi orðið fyrir miklum
mannabreytingum frá fyrra
tímabili og því hafi reynst nauð-
synlegt að leita út fyrir land-
steinana. Afturelding hafi haft
ýmsa leikmenn til skoðunar en
ákveðið að velja Litháana þvf
þeir hafi þótt sýna meiri skap-
styrk en margir leikmenn. „Það
er ekki nóg að hafa leikmann
sem getur skotið á markið. Hann
þarf að sýna karakter og geta
tekið af skarið. Það hafa þessir
leikmenn sýnt og gert í vetur,“
segir Skúli Gunnsteinsson.
Spennandi
lokabarátta
Þegar ein umferð er eftir af
1. deOdarkeppninni í hand-
knattleik karla er ljóst að það
eru fjögur lið
Tómas Gunnar sem berjast um
Viðarsson sæti í úrslita-
tóksaman keppninni. Sjald-
an eða aldrei hef-
ur spennan verið jafnmikil og
liðin svo jöfn. Liðin fjögur sem
berjast um síðustu sætin eru
FH, Valur, HK og ÍR. Það er
ljóst að tvö af þessum fjórum
liðum verða að sitja eftir og
ljúka keppni eftir umferðina.
Ef litið er á árangur þessara
liða í síðari umferðinni kemur í
ljós að af þeim 20 stigum sem í
boði hafa verið hefur Valur,
sem er í áttunda sæti, hlotið 3
stig og er með, í heildina, 12
mörk í plús. IR, sem er í tíunda
sæti, hefur hlotið 11 stig og er
með 24 mörk í mínus. FH, sem
er í sjöunda sæti, hefur hlotið
11 stig og jafnmörg mörk í plús
og HK, sem er í níunda sæti,
hefur hlotið 13 stig og er með
17 mörk í mínus og einungis
tapað tveimur leikjum á meðan
þeir töpuðu sjö í fyrri umferð-
inni.
Öll liðin fjögur hafa verið á
ágætri siglingu í síðari umferð-
inni að undanskildu liði Vals,
sem mætir HK í lokaumferð-
inni x að Hlíðarenda annað
kvöld. Leikurinn verður án efa
spennandi því hvorugt liðið má
við því að lúta í lægra haldi.
Valur þarf að fara að hysja upp
um sig buxurnar því liðið hefur
einungis sigrað í einum leik í
síðari umferðinni og ekkert lið
hefur hlotið færri stig. Það er
vægast sagt eitthvað mikið að
hjá liðinu því litlar breytingar
hafa orðið á því frá því í fyrra
þegai' það vann tvöfalt. A með-
an allt gengur Valsmönnum í
óhag eru HK-ingar á mikiUi
siglingu og einungis Stjarnan
og Afturelding hafa hlotið fleiri
stig í síðari umferðinni.
FH fer í Garðabæ og mæta
liði Stjörnunnar sem hefur ver-
ið óstöðvandi upp á síðkastið.
Deildarmeistarar Afturelding-
ar taka á móti ÍR. ÍR-ingar
hefðu eflaust kosið léttari
mótherja.
Stjarnan hefur fengið flest
stig út síðari umferðinni, eða 18
af 20 mögulegum. Arangur lið-
anna er þannig:
Stjarnan 18, UMFA 15, HK 13,
Haukar 13, FH 11, ÍR 11, ÍBV
11, KA 10, Fram 8, Grótta/KR
7, Selfoss 4, Valur 3.
Fram marði KA í spennuleik
FRAM tryggði sér heimaleikjarétt í komandi úrslitakeppni hand-
knattieiksins með því að sigra KA á Akureyri sl. sunnudagskvöld
með eins marks mun í hörkuspennandi leik. Liðið er í 3. sæti
með 24 stig. KA-menn halda enn 4. sætinu með 22 stig en ÍBV
og Haukar eru með jafnmörg stig þannig að barist verður til
þrautar í síðustu umferðinni. Þá þurfa KA-menn að sækja Hauka
heim. Leikmenn Fram eru hins vegar lausir við mesta álagið eftir
sigurinn á KA, 25:24, en liðið á þó eftir að taka á móti ÍBV.
Leikurinn hófst með tveimur
mörkum Gunnars Bergs Vikt-
orssonar af vítalínunni en KA-menn
WKttKKKKM jöfnuðu fljótlega og
Stefán Þór náðu undirtökunum.
Sæmundsson Sterk vörn og falleg
skrífar mörk jóhanns G- jó.
hannssonar úr hraða-
upphlaupum lögðu grunninn að fjög-
urra marka forystu, 12:8. Eftir það
fóru KA-menn að hiksta og voru auk
þess lítt sáttir við dómgæsluna síð-
ust mínútur hálfleiksins. Framarar
gengu á lagið og minnkuðu muninn í
eitt mark; staðan 14:13 í leikhléi.
KA-menn hófu seinni hálfleik með
því að brenna af vítakasti og
Framarar komust yfir með tveimur
mörkum og voru síðan einu skrefi á
undan í jöfnum og spennandi hálf-
leik. Skrefin urðu reyndar tvö þegar
á leið því KA-vörnin var orðin æði
götótt og markvarslan lítil. Sebastí-
an Alexandersson hélt sínu striki
nokkuð vel í marki Fram og vömin
var sterk, ekki síst á miðjunni. Til
marks um það má e.t.v. taka að línu-
maðurinn Leó Örn Þorleifsson
komst ekki á blað í leiknum og stór-
skyttan Sverrir Bjömsson skoraði
aðeins 1 mark. Jóhann Gunnar og
Lars Walther drógu þungan vagn
KA-manna en Gunnar Berg og hinn
bráðefnilegi línumaður Róbert
Gunnarsson vom í aðalhlutverki hjá
Fram. Það voru einmitt langskot
Gunnars sem gerðu gæfumuninn á
hinum æsispennandi lokamínútum
þegar baráttan var í algleymingi hjá
báðum liðum og sóknimar vand-
ræðalegar. Gunnar lyfti sér einfald-
lega upp og grýtti boltanum niður í
horn KA-marksins. Stórbrotin tilþrif
Jóhanns Gunnars nægðu ekki. Hann
minnkaði muninn í 23:24, Andrei
Astafejv skoraði 25. mark Fram þeg-
ar 1,40 mín. vom eftir, Jóhann lagaði
stöðuna í 24:25 þegar 40 sek. vom
eftir en Framarar héldu haus.
Leikmenn KA gengu niðurlútir af
velli, enda úrslitin mikil vonbrigði,
ekki síst fyrir Jóhann Gunnar Jó-
hannsson fyrirliða sem átti frábær-
an leik, skoraði 10 glæsileg mörk og
það tíunda eitt hið fallegasta sem
um getur. Þá var Jóhann kominn
nánast upp að endalínu í hominu og
sneri að auki baki í markið en á
óskiljanlegan hátt tókst honum að
skora. „Það var ömurlegt að vinna
ekki. Auðvitað er ég sáttur við minn
hlut, ég held að ég jiafi aldrei náð 10
mörkum í leik í Islandsmótinu en
því miður náði liðið ekki að leika
nógu vel. Vörnin var sérlega slök í
seinni hálfleik. Það má segja að
þetta hafi verið leikur um 3. sætið.
Við töpuðum og verðum að gefa allt í
Haukaleikinn til að eiga möguleika á
4. sætinu,“ sagði Jóhann Gunnar.
Auk Jóhanns áttu Halldór Sigfús-
son og Lars Walther þokkalega
spretti í liði KA en Sverrir var ragur
og Leó Örn komst ekkert áfram.
Þar sem Hilmar Bjarnason og
Heimir Amason em meiddir gátu
KA-menn ekkert hvílt Sverri í sókn-
inni. Róbert Gunnarsson átti stór-
leik hjá Fram. Þessi 18 ára piltur
skoraði 7 mörk af línunni. Gunnar
Berg var afar mikilvægur, skoraði 9
mörk og virtist eiga nóg inni. Þá
varði Sebastían ágætlega.
Átakalítið á Selfossi
Leikur Selfoss og Stjörnunnar var
frekar átakalítill. Leikurinn bar
þess glögg merki að bæði liðin sigla
lygnan sjó, Selfoss
Sigurður F. fallið ‘ aðra deild °S
Guðmundsson Stjarnan örugg í úr-
skrifar slitakeppnina. Leikn-
um lauk með sigri
Stjörnunnar, 32:30. Jafnræði var
með liðunum í fyrri hálfleik - 13:15,
en í upphafi seinni hálfleiks mættu
Stjörnumenn grimmir til leiks og
gerðu sex mörk á móti einu marki
heimamanna. Eftir þessa lotu var
það aldrei spurning um hvort liðið
myndi fara með sigur af hólmi. Sel-
fyssingar neituðu þó að gefast upp
og söxuðu jafnt og þétt á forskot
Stjömunnar, sem vom aðeins væm-
kærir.
Bestir í jöfnu liði Stjörnunnar
vom þeir Ingvar Ragnarsson, mark-
vörður, og Heiðmar Felixson. Hjá
Selfoss var það helst Björgvin Rún-
arsson sem lét að sér kveða og sýndi
skemmtilega takta.
Einar Einarsson þjálfari Stjörn-
unnar var sáttur í leikslok. „Við er-
um að búa okkur á fullu undir úr-
slitakeppnina. Þar ætlum við að
mæta grimmir til leiks og hafa gam-
an af því sem við eram að gera. Ég
er bjartsýnn á framhaldið," sagði
Einar.
■ Úrslit / B14
■ Staðan / B14