Morgunblaðið - 09.03.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1999 B 13
Reuters
GEORGÍUMAÐURINN Temuri Ketsbaia var hetja Newcastle í viðureign þeirra við Everton - hann skoraði tvö mörk og lagði upp hið
þriðja. Hér skorar hann fyrra mark sitt með góðu skoti og kemur Newcastle í 1:0.
Slál í stál á
Old TVafford
BIKARMEISTARAR Arsenal komust í undanúrslit ensku bikar-
keppninnar um heigina og hið sama gildir um Newcastle - en
þessi lið áttust einmitt við í úrslitum keppninnar í fyrra. Marka-
laust jafntefli varð niðurstaðan í stórleik Manchester United og
Chelsea, en leik Barnsley og Tottenham varð að fresta vegna
veðurs.
Nígeríumaðurinn Nwankwo
Kanu gerði eina mark leiksins
er Arsenal sigraði Derby 1:0 á
heimavelli. Mark Kanus kom á 89.
mínútu, en fram að því hafði vörn
Derby náð að halda gegn nokkuð
stífri pressu meistaranna. Þetta var
fyi’sta mark Nígeríumannsins fyrir
Arsenal, en hann kom inn á sem
varamaður í seinni hálfleik.
„Þeir voru sterkari í fyrri hálfleik
og við urðum að vera þolinmóðir,"
sagði Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, eftir leikinn. „Við
voi-um lengi að ná undirtökunum,
en ég held að sigur okkar hafi verið
sanngjarn. Við náðum 21 skoti að
marki, en urðum að bíða fram á síð-
ustu stundu eftir marki og vorum
þá heppnir."
Wenger hældi þætti Kanus sér-
staklega og sagði að leikur meistar-
anna hefði breyst til hins betra við
innákomu hans. „Kanu er frábær
leikmaður og knötturinn er límdur
við tærnar á honum og hann missir
hann ekki svo auðveldlega. Svo
veistu aldrei hvað hann gerir við
knöttinn," bætti hann við.
Jim Smith, stjóri Derby, var
svekktur í leikslok, enda hefur hann
aldrei náð að koma liði sínu í úrslita-
leik bikarsins. Hann viðurkenndi þó
að Arsenal hefði verið sterkara.
„Við reyndum að halda þeim í skefj-
um og áttum okkar færi í fyrri hálf-
leik en nýttum þau ekki. I seinni
hálfleik sóttu þeir mjög að okkur,
en lengi hélt ég að við slyppum."
Mikill snjór var á heimavelli
Bai-nsley og snemma á laugardags-
morgun var ljóst að leikur heima-
manna og Tottenham gæti ekki far-
ið fram. Fyrir lá að fjölmargir leik-
menn Bamsley væni meiddir og er
talið að margir þeirra verði aftur til
í slaginn 16. mars, þegar leikur lið-
anna á að fara fram.
Endurtekinn úrslitaleikur?
Newcastle tapaði fyrir Ai-senal í
úrslitaleik bikarsins á Wembley í
fyrra og nú gæti svo farið að hðin
mættust öðru sinni í úrslitum.
Newcastle komst örugglega áfram
með sannfærandi 4:l-sigri á
Everton og var Georgíumaðurinn
Temuri Ketsbaia hetja Newcastle -
gerði tvö mörk og lagði upp hið
þriðja.
Georgíumaðurinn kom Newcastle
yfir á 20. mínútu með skoti af löngu
færi sem breytti um stefnu, en
varnarmaðurinn David Unsworth
jafnaði metin í seinni hálfleik með
sannkölluðu þrumuskoti.
Þá tók Newcastle hins vegar öll
völd á vellinum og eins og í mörgum
leikjum að undanförnu var Ketsbaia
þar í aðalhlutverki. George Georgi-
adis kom heimamönnum yfir á 62.
mínútu og skömmu síðar bætti
Ketsbaia öðru marki sínu við. Hann
hefði svo vel getað gert þrennu litlu
síðar, en kaus fremur að gefa á fyr-
irliðann Alan Shearer sem var á
auðum sjó og skoraði auðveldlega,
4:1.
Hollendingurinn Ruud Gullit,
stjóri Newcastle, var sigurreifur í
leikslok. „Við sýndum á okkur tvær
hliðar. Mér finnst stundum að liðið
mitt geri sér ekki nægilega grein
fyrir hversu gott það er orðið,“
sagði hann.
Stórlið í
pottinum
ÚTLIT er fyrir að sterkari lið
muni leika í undanúrslitum
bikarkeppninnar nú en mörg
undanfarin ár. Dregið hefur
verið í undanúrslitin og verða
þau 10. og 11. aprfl.
Neweastle leikur gegn sigur-
vegaranum úr viðureign
Barnsley og Tottenhain og
Manchester United eða
Chelsea mætir bikarmeistur-
um Arsenal.
Manchester United hefur níu
sinnum orðið enskur bikarmeistari,
en það kemur ekki í ljós fyrr en
annað kvöld hvort þeir eða Chelsea
komast áfram í undanúrslitin. Liðin
gerðu markalaust jafntefli á Old
Trafford í Manchester á sunnudag í
leik þar sem tveir leikmenn fengu
að líta rauða spjaldið.
Leikurinn var í járnum framan
af, en heimamenn voru þó ívið
sterkari. Skalli frá Gary Neville fór
í stöngina, en valdahlutföllin breytt-
ust mjög skömmu fyrir leikhlé er
ítalinn Roberto DiMatteo fékk ann-
að gult spjald fyrir brot og þar með
hið rauða.
United hafði nokkra yfirburði í
seinni hálfleik, en tókst ekki að
brjóta ísinn og varnarmenn Chelsea
áttu góðan leik með franska heims-
meistarann Mercel Desailly fremst-
an í flokki. Undir lokin fékk Paul
Scholes rautt spjald fyrir aðra
áminningu sína, en allt kom fyrir
ekki og úrslitin því markalaust jafn-
tefli.
Undanúrslit bikarkeppninnar
verða leikin á hlutlausum völlum 10.
og 11. apríl nk. Fari svo að Arsenal
og Newcastle mætist í úrslitum yrði
það fjórða sinni, sem er met. Fyrst
áttust liðin við 1932, þá 1952 og
þriðja sinni sl. vor. Newcastle vann í
fyrstu tvö skiptin, en Arsenal
tryggði sér sigur í fyrra.
„Furðuleg dómgæsla“
ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, var allt annað
en kátur með dómgæslu Pauls
Durkin í leiknum við Chelsea.
Durkin gaf þá tvö rauð spjöld,
Italanum Roberto DiMatteo
hjá Chelsea í fyrri hálfieik og
Paul Scholes í þeim seinni -
báðir fengu þeir tvær áminn-
ingar.
Ferguson sagðist telja að
Scholes hefði verið rekinn af
velli til að jafna fyrir brott-
rekstur Italans, og að ákvörð-
un dómarans hefði verið
furðuleg.
Durkin dæmir endurtekna
viðureign liðanna annað kvöld
á Stamford Bridge, heimavelli
Chelsea og þar telur Ferguson
að hans bíði ærin verkefni.
„Það verður allt öðruvísi leik-
ur. Hann hefur gefið tóninn og
gert sér erfitt fyrir. Hann þarf
að standa sig betur,“ sagði
Ferguson og var ekki kátur.
■ ARNAR Gunnlaugsson kom ekki
við sögu með liði Leicester City sem
sigraði Wimbledon í úrvalsdeildinni.
Arnar var á varamannabekknum en
Steve Guppy gerði eina mark leiks-
ins. Sigurinn er afar mikilvægur fyr-
ir Leicester sem enn er þó ekki laust
við fallhættu.
■ SOUTHAMPTON fékk þrjú mik-
ilvæg stig í fallbaráttunni með 1:0-
sigri á West Ham. Eina mark 'eiks-
ins gerði Marokkómaðurinn Hassan
Kachloul.
■ WEST Ham er nú í 7. sæti deild-
arinnar - enn í baráttunni um Evr-
ópusæti, en Southampton er þrátt
fyrir sigurinn enn í næstneðsta sæti.
■ COVENTRY hlaut einnig mikil-
væg stig í baráttunni á botni deildar-
innar. Liðið fékk nýliða Charlton í
heimsókn, en þeir hafa verið á mikilli
siglingu að undanfornu. Lengi vel
leit út fyrir enn einn sigur Charlton,
sem komst yfir með marki Robin-
sons á 55. mín. og ekki batnaði
ástandið tveimur mínútum síðar er
John Aloisi í liði Coventry var rek-
inn af leikvelli. Hetjuleg barátta á
lokamínútunum skilaði þó sínu og -
þeir Noel Whelan og Norðmaðurinn
Trond Egil Soltvedt tryggðu liðinu
afar dýrmætan 2:l-sigur sem fleytir
því í 15. sæti.
■ STOKE City vann fáséðan 1:0 sig-
ur í ensku 2. deildinni um helgina - á
útivelli gegn Blackpool. Fyrir leik-
inn hafði Stoke tapað fjórum leikjum
í röð og ekki skorað mark í 400 mín-
útur, eða allt þar til Lárus Orri Sig-
urðsson minnkaði muninn fyrir þá í
1:4 tapi á dögunum gegn Wrexham.
■ BJARNÓLFUR Lárusson var að
venju í liði Walsall sem vann Luton
1:0. Hann lék þó ekki seinni hálfleik- *
inn vegna meiðsla. Walsall hefur
staðið sig geysivel á leiktíðinni og er
í 3. sæti deildarinnar.
■ MANCHESTER United tefldi
ekki fram sóknardúettnum Dwight
Yorke og Andy Cole í leiknum gegn
Chelsea heldur voru þeir hvíldir og
komu ekki inn á fyrr en seint var lið-
ið á seinni hálfleik.
■ MARTIN Keown gæti verið á
leiðinni frá Arsenal til Aston Villa.
Ensk dagblöð greindu frá þessu um
helgina og kom fram að leikmaður-
inn myndi þá skipta yfir í sitt gamla
félag eftir að leiktíðinni lýkur, en
Keown lék með Villa áður en hann
gerðist leikmaður Everton fyrir ára-
tug.
■ ARSENAL gæti á hinn bóginn
verið að bæta þriðja Hollendingnum
við í lið sitt. Clarence Seedorf hefur
enn einu sinni komist upp á kant við
forráðamenn Real Madrid á Spáni
og var um helgina sektaður um stór-
fé eftir slagsmál í búningsklefanum
við fyrirliðann Fernando Hierro.
■ SEEDORF þurfti að punga út 2,3
milljónum í sekt fyrir slagsmálin en
Ilierro slapp við helmingi lægri sekt.
Astæðan var sú að þetta var fyrsta
agabrot hans, en Hollendingurinn er
orðinn vanur slíku.
■ SEKTIN breytir ekki þeirri stað-
reynd að Seedorf er afar sterkur
leikmaður og hefur leikið mjög vel á
leiktíðinni. Hann er einnig lykilmað-
ur í hollenska landsliðinu og Arsene
Wenger, knattspymustjóri Arsenal,
hefur margoft lýst áhuga sínum á
leikmanninum.
■ TOTTENHAM hefur spurst fyrir
um Brasilíumanninn Emerson
Thome, varnannann Sheffield Wed- .
nesday. Thome er 26 ára og hefur
vakið mikla athygli á leiktíðinni. Ge-
orge Graham, stjóri Tottenham, er
sagður vilja stilla þeim saman upp í
miðvarðarstöðunum, Thome og Sol
Campbell.
■ JOE Kinnear, knattspyrnustjóri
Wimbledon, liggur enn á sjúkrahúsi
eftir að hafa fengið aðkenningu að
hjartaslagi í síðustu viku. Komið hef-
ur í ljós að Kinnear slapp naumlega
við alvarlegt slag og verður að taka
sér langt frí frá störfum. Tímabundið
hafa þeir David Kemp og Mick Har-
ford tekið við stjórn liðsins, en þeir
hafa starfað undir stjórn Kinnears
hjá liðinu. *