Morgunblaðið - 09.03.1999, Side 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ1999
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
KEFLVÍKINGAR rótburstuðu lið
Þórs frá Akureyri í Keflavík á
sunnudaginn 138:94 eða með
44 stiga mun. Þar með tryggðu
Keflvíkingar sér deildarmeist-
aratitilinn og fengu í leikslok
afhentan deildarbikarinn. í
leiknum settu Keflvíkingar nýtt
met í þriggja stiga skorun og
jafnframt var þetta 41. sigur
þeirra í röð á Þórsurum. Kefl-
víkingar settu 24 þriggja stiga
körfur í leiknum en gamla
metið var 20 þriggja stiga
körfur í leik. Síðast tapaði
Keflavík fyrir Þór 19. janúar
1981, þá á Akureyri. í hálfleik
var staðan 73:53.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um leik liðanna að þessu sinni.
Keflvíkingar náðu fljótlega yfír-
burðastöðu og segja
Bjöm rná að körfunum hafí
Blöndal hreinlega rignt yfír
skrífar norðanmenn í öllum
útgáfum. Akureyring-
ar höfðu ekki erindi sem erfiði suð-
ur með sjó að þessu sinni, en þeir
eiga samt athyglisverða unga leik-
menn sem með meiri reynslu gætu
orðið harðskeyttir. Vamarleikurinn
var ekki í hávegum hafður eins og
stigaskorið segir til um. Fljótlega
varð ljóst að heimamenn áttu sér
takmark í þriggja stiga skorun. Þar
létu þeir vaða á súðum og tókst ætl-
unarverkið.
Leikurinn varð aldrei spennandi
en margt laglegt mátti sjá hjá báð-
um liðum, sem einnig gerðu mörg
mistök. Bestu menn í liði Keflavíkur
vora Damond Johnson, Guðjón
Skúlason, Falur Harðarson og
Hjörtur Harðarson. Bestir í liði
Þórs voru Brian Reese, Magnús
Helgason, Óðinn Ásgeirsson og
hinn síungi Konráð Óskarsson.
Njarðvíkingar sigruðu
í nágrannaslagnum
Það er alltaf öruggt að þegar Gr-
indavík og Njarðvík eigast við
er boðið upp á baráttuleik. Sú var
líka raunin í þessum
Garðar Páll leik °g höfðu gestirnir
Vignisson betur, skoruðu 79 stig
skrífar gegn 73 stigum
heimamanna sem voru
yfir í hálfleik, 37:36.
Þegar þessi leikur hófst var ljóst
að Njarðvíkingar væru öruggii' í öðru
sæti en heimamenn voru í harðri bar-
áttu um þriðja sætið við KR og KFÍ.
Heimamenn komu því einbeittir til
leiks en gekk illa að fínna takt í leikn-
um. Njai’ðvíkingar virkuðu áhugalitl-
ir og spiluðu frekar rólega sem
þeirra er nú ekki vani. Fyrri hálfleik-
ur var nánast jafn allan tímann og
áttu þeir Friðrik Stefánsson hjá
Njarðvík og Bergui' Hinriksson hjá
Grindavík stórleik í hálfleiknum. Þeir
skoruðu sín tólf stigin hvor og virk-
uðu oft og tíðum einu mennii'nir sem
einhverju gátu áorkað.
Eitthvað hefur Friðriki Inga
Rúnarsson, þjálfara Njarðvíkinga,
leiðst hægur leikur sinna manna í
fyrri hálfleik því að í síðari hálfleik
var allt annað að sjá til gestanna.
Þeii' gerðu nánast út um leikinn á 4
mínútum og voru komnir með 14
stiga forskot. Þrettán mínútur er
langur tími í körfuknattleik og 14
stiga forskot er fljótt að fara og það
fengu gestimir að reyna. Eftir rétt
rúmlega 17 mínútna leik var staðan
orðin 66:67 og allt gat gerst. Njarð-
víkingar héldu þó haus og sigu fram
úr á síðustu mínútunum og höfðu
sigur, skoruðu 79 stig gegn 73 stig-
um Grindvíkinga.
„LANDIÐ er kalt, fólkið er hlýtt,“ segir Limor Mizrachi frá ísrael.
Morgunblaðið/Golli
Bestir í liði gestanna var áður-
nefndur Friðrik sem átti fínan leik
en oft var barið hressilega á honum
og þá átti Teitur góðan leik, sér-
staklega í vörninni. Hjá heima-
mönnum átti Bergur Hinriksson
skínandi leik í fyrri hálfleik en spil-
aði lítið í þeim síðari. Aðrir hjá
heimamönnum voru ekki áberandi
þó liðið spilaði góða vöm lengstum.
Friðrik Ingi, þjálfari Njai’ðvík-
inga, hafði þetta að segja að
leikslokum. „Þetta var bamingur í
fyrri hálfleik en vörnin var betri hjá
okkur í síðari hálfleik. Við náðum þá
góðu forskoti og þótt við gerðum
okkur seka um að vera værukærir
er á leið þá hafðist þetta. Það var
óþarfí að hleypa þeim inn í leikinn
og við vomm dálitla stund að átta
okkur á svæðisvörninni. Eftfr að við
gáfum okkur tíma í sóknina þá kom
þetta.“
Öruggt hjá Tindastóli
Tindastóll vann sinn ellefta leik á
keppnistímabilinu er það lagði
KR að velli á heimavelli, 93:84 á
gm sunnudagskvöldið.
Björn Heimamenn höfðu for-
Bjömsson ystu í leiknum frá upp-
skrífar hafí til enda og gáfu
hvergi eftir á lokakafl-
anum. Amar Kárason var í miklum
baráttuham og einnig lék John
Woods vel svo og Valur Ingimund-
arson. Nánast allan fyrri hálfleikinn
fóra heimamenn á kostum, lékum
einhvern besta vamarleik sem þeir
hafa sýnt á heimavelli í vetur og
gengu nánast í gegnum vöm KR-
inga eins og þeim sýndist. Heima-
menn vora yfír 48:34 og búnir að
leggja grunninn að sigri sínum.
Lið gestanna virtist gjörsamlega
heillum horfið, ekkert gekk upp,
hvorki í sókninni né vörninni. Keith
Vassel og Jesper Söresen léku
ágætlega og hjá KR
Þórsarar
rótburstaðir
á 1 í Keflavík
Hefgefið
ákveðið
loforð
Iikið hefur verið ritað og rætt
um erlenda leikmenn í ís-
lenskum körfuknattleik. Sitt sýnist
hverjum um gæði leikmannanna og
vilja sumir meina að félögin hafi
farið offari í að ráða til sín leik-
menn án þess að vita nægilega
mikið um þá. Félögin séu að lenda
of oft í því að ráða til sín menn sem
standa ekki undir væntingum, hafi
lækkað um allnokkra sentimetra á
leiðinni yfír hafið og þar fram eftir
götunum. Kvennaflokkur KR hefur
aftur á móti dottið í lukkupottinn.
ísraelska landsliðskonan Limor
Mizrachi hefur styrkt liðið mikið
og var það þó á góðri siglingu áður
en hún kom, hafði sigrað alla leiki
sína í vetur í deildinni og þá varð
KR-liðið bikarmeistari á dögunum.
Limor leikur stöðu leikstjómanda
og hæfileikar hennar era gífurleg-
ir. Hún hefur boltameðferð, hraða,
leikskilning og skotnýtingu sem er
með því besta sem sést hefur hér á
landi, auk þess að leika góða vörn.
Greinarhöfundur hitti Lumar að
máli á dögunum og forvitnaðist um
hagi hennar, feril og tildrög þess
að hún kom hingað til lands.
Byrjaði ung
Limor er 28 ára og hefur leikið
körfubolta frá því hún var sex ára.
ísraelska landsliðskonan í körfuknattleik, Limor
Mizrachi, fékk boð um að leika á Islandi þegar
hún var stödd í Bandaríkjunum. Hún sló til
og leikur með hinu sigursæla KR-liði. Halldór
Bachmann ræddi við Limor og forvitnaðist
um hagi hennar, feril og tildrög þess að hún
kom hingað til lands.
„Þegar ég var sex ára var ég strax
farin að reyna mig í hinum ýmsu
íþróttagreinum. Eg stundaði knatt-
spymu, sund og blak auk
körfuknattleiks, sem ég kunni best
við.“ Atta ára hóf hún að leika
körfuknattleik á fullum ki-afti með
félagsliðinu Bney-Yehoda í Tel
Aviv, en með liðinu lék hún til átján
ára aldurs. Liðið varð Israelsmeist-
ari árið 1987 þegar Limor vai’ 17
ára.
Þrettán ára var hún valin í ung-
lingalandsliðið og tveimur áram
síðar, fimmtán ára gömul lék hún
fyrst með kvennalandsliði Israels.
Með landsliðinu hefur hún leikið
síðan, ef undan er skilið eitt ár sem
hún gegndi herskyldu. Að her-
skyldu lokinni hélt Limor til
Bandaríkjanna þar sem hún var
eitt ár við nám í Maryland-háskóla
auk þess að leika körfubolta með
hði skólans. Hún hélt síðan aftur til
Israels og lék þar í sjö ár með ýms-
um liðum. Þá lá leiðin að nýju til
Bandaríkjanna, að þessu sinni til
að leika í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni ABA, sem talin var
besta atvinnumannadeild kvenna í
heimi.
Símtal frá íslandi
„Það vai’ veralegt áfall þegar
ABA-deildin varð gjaldþrota í des-
ember 1998. Ég var á leiðinni heim
þegar ég fékk símtal frá Islandi."
Það vill svo til að umboðsmaður
Limor er helsti tengiliður Sigurðar
Hjörleifssonai’, sem hefur átt þátt í
komu margra körfuknattleiks-
manna til Islands. „Það var Sigurð-