Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.03.1999, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ BETLANDI börn eru ekki óalgeng sjón í borgum Rússlands. Morgunblaðið/Þorkell álf milljón barna a gotunni Talið er að í Rússlandi séu nú um 500 þús- und heimilislaus börn. Yfir veturinn halda götubörnin sig á brautarstöðvum, í for- stofum húsa og anriars staðar sem skjól og hlýju er að finna. Guðni Einarsson blaðamaður og Þorkell Þorkelsson ljós- myndari kynntu sér starf Rauða krossins á meðal barna í Moskvu, Sankti Péturs- borg og Leningrad-héraði. þar til þeim er fundin framtíðarvist á munaðarleysingjahæli eða í heimavistarskóla. Nokkur snúa aft- ur til fjölskyldna sinna eða eru ætt- leidd. Pláss er fyrir 18 böm í einu og frá því heimilið var stofnað, hafa dvalið þar 620 börn á aldrinum 2-17 ára. Flest hafa þau orðið 120 á einu ári. Nú var mikið af börnum yngri en 6 ára á heimilinu en í vor sem leið komu mörg 16-17 ára. Fyi-sta barnið senjjaan’á: heirxjilið 1 var fimm ára gaíhall ti^engur:-.4m nafni Igor. Hann 1 f'ángelsi og missti móður sjriá $a\ ' heimilið var opna|. ^ þarna þangað til xús! skylda ættleiddi hanrf. a* Börnin koma víða að. Einn drengur kom alla leið frá Sahkalín- eyju austur í Okhotskahafi. Hann fæddist fíngralaus og foreldrarnir vildu ekkert með hann hafa. Kona ein sem var að fara að gifta sig í Moskvu tók hann með sér af sjúkrahúsinu þar sem hann dvaldi og kom honum á barnaheimilið. Hann var búinn að fara í fjórar skurðaðgerðir og var að byrja í skóla í Moskvu. SYSTKININ Natalía og Venía knúsa starfsstúlku á barnaheimilinu. Langar aftur heim Svöng og skítug „Börnin eru fájæk, svöng og skítug þegíír þau koma hingað," sugði Irina. Byijað- er á því að klæða nýkórnið b.irn ur hverri spjör •Og henda,gprmirfum.|Eftir bað og ,há®nyrtirigu Iter. þarnið að velja úr i'atabirgðum heimilisins, ;or ■ öyátói en>>því hafa borist sendingar af not- esk fjöl-r" uðum fötum frá Vesturlöndum. Á sovéttímanum voru börn á barna- heimilum einkennisklædd, en það er liðin tíð. Að þessu loknu er barnið sent á sjúkrahús hverfisins í ítar- lega læknisskoðun, sem stendur í nokkra daga. SYSTKININ Natalia 12 ára og Venía 11 ára voru á upptöku- heimili Rauða krossins í 10. hverfí Moskvu. Natalía er búin að vera á heimiiinu í tvo mán- uði og Venía nærri fjóra. Þau sögðu að sér iíkaði vistin vel. „Þetta er eins og raunveru- legt heimili," sagði Natalía. „Fólkið sem vinnur liérna er ágætt.“ En hvað um framtíð- ina? Systkinin sögðust vilja sem minnst um hana hugsa. Þarna liði þeim vel. Þau áttu bráðlega að fara í heimavistarskóla númer 72 í Moskvu og hlökk- uðu ekki sérlega til þess. „Mig langar aftur heim,“ sagði Venía. Hann sagði sig ianga mest til að verða bíl- stjóri, þegar liann yrði stór, og keyra stóra rútu. Natalíu iangar að hitta aftur vini sína sem hún hafði kynnst á heimilinu en voru farnir í skóla og á munaðarleysingja- hæli. „Ég hef gaman af að mála og lita,“ sagði Natalía „Mig langar að verða listmálari eða þá hjúkrunarfræðingur.“ Okk- ur var sýnt blað sem börnin á hcimiiinu gefa út um líf sitt og starf Rauða krossins. Þar voru fallegar myndir eftir Natalíu. HERMAÐUR og tveir smá- hundar gættu hliðsíns fyrir utan barnaheimili Rauða krossins (RK) í 10. hverfi Moskvuborgar. Hundarnir virtust ekki til stórræðanna, en bættu lít- inn vöxt upp með háværu gelti. Hermennimir tilheyra herdeild sem sér um að halda uppi lögum og reglu í hverfínu. Þeirra er þörf því stundum reyna foreldrar að ræna börnum sínum af heimilinu. Rauða kross deildin í 10. hveifi er ein sú öflugasta í Rússlandi og hverfíð það fjölmennasta í Moskvu. Þar búa ein og hálf milljón manns. Auk barnaheimilisins sinnir deildin heimahjúkrun fyrir um 2.000 aldr- aða, auk blóðsöfnunar og fleiri verk- efna. Starfsmenn deildarinnar eru nú um 120. Irina A. Lernotsjínskaja deildar- formaður sagði að flest börnin kæmu af götunni, mörg væru mun- aðarlaus og önnur yfirgefin. Sum hafa verið tekin af foreldrunum vegna vanrækslu, sem oft má rekja til áfengis og fíkniefnaneyslu. Ymist koma lögreglan eða félagsmálayfír- völd með bömin. Einnig fer starfs- fólk RK og leitar götubarna þegar pláss er á barnaheimilunum. Starfs- maður RK sagði að þess væru dæmi að þegar bjóða ætti götubörnum vist á heimilinu birtust kraftakarlar, „verndarar", sem vörnuðu því að börnin væru tekin. Kennari sem blaðamaður hitti í Sankti Pétursborg sagði að til væru glæpaklíkur sem gera út götubörn til að betla og hirða svo af þeim af- raksturinn gegn einhvers konar umönnun. Þess muni dæmi að slíkar klíkur steli bömum eða kaupi og gefi þeim sljóvgandi lyf áður en þau eru send í betlið. Hann sagði enn- fremur að mörg þessara bama kærðu sig ekkert um að fara inn á heimiliþar sem þau þyrftu að lúta aga og reglu. Á götunni fengju þau að fara sínu fram óáreitt. Áfangastaður í tilverunni Barnaheimilið í 10. hverfí var opnað í september 1994 með styrk hollenska RK og hollensku stjórn- arinnar. Kveikjan að því voru skrif hollensks blaðamanns sem skrifaði um ömurleg kjör götubarna í Moskvu. í kjölfarið fór fram fjár- söfnun í Hollandi. Heimilið er eins konar áfangaheimili þar sem börn- in dvelja allt að fjóra mánuði eða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.