Morgunblaðið - 21.03.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 21.03.1999, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 21. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÉG ER BYLTINGARMAÐUR Morgunblaðið/Kristinn LECH Walesa á skrifstofu sinni í Varsjá en þar skipuleggur hann sókn í næstu þingkosningum. Það myndi gera út af við mig ef ég þyrfti að sitja á þingi. Ég myndi gerast alkóhólisti. Eða tryllast. MARGIR voru brotnir niður, sumir voru í ábyrgðarstörf- um og þurftu því að hafa hljótt um sig, aðrir höfðu skítlegt eðli. Menn urðu að gegna störfum sínum. Og ef einhver varð forstjóri og hinir starfsmennirnir fóru í verk- fall, var forstjórinn skammaður fyrir að leyfa starfsfólki sínu að fara í verkfall. Þannig braut yflrvaldið marga niður. Aðrir fóru í felur. Þetta olli miklum klofningi meðal fólks. Síðan stofnaði ríkisstjóm Jar- uzelskis kommúnísk verkamanna- samtök og voru sumir neyddir til að ganga í þau, aðrir gengu í þau af fús- um og frjálsum vilja. Þessi samtök juku enn á sundrungina í þjóðfélag- inu. Þess vegna fækkaði félögum í Samstöðu og það var ekki hægt að endurheimta styrk hennar á þeim skamma tíma sem leið frá því að her- lögum var aflétt og þangað til ég varð forseti. Þeir hugrökku sögðu einnig: „Bíddu nú við, þessi eða hinn gekk til liðs við kommúnísku verkamanna- samtökin og barðist ekki með okkur. Ætlar sá hinn sami síðan að seilast til valdaembætta þegar okkar mál- staður hefur sigrað? Aldeilis ekki!“ Þannig að það er auðskilið að ekki var hægt að endurheimta fyrri styrk, er ekki hægt og mun ekki takast í bráð.“ Walesa hugsar sig um eitt andar- tak. „Það er líka rétt, að við getum ekki unnið að framgangi plúralisma með því að beita einvaldsaðferðum, jafnvel þótt það sé Samstaða sem beitir slíkum aðferðum." Með skrúfjárn til vinnu Fyrrverandi samherji þinn, Adam Michnik, sagði að þú hefði hlotið sömu örlög og Winston Churhill; unnið stríð og tapað kosningum. Churchill komst hins vegar aftur til valda; heldurðu að þú verðir ein- hvern tímann leiðtogi Pólverja að nýju? „I orði kveðnu hefur Adam Miehnik verið sagður vinur minn. Fyrir áratug leit ég á hann sem vin minn og geri enn, en leiðir okkar sem félaga í baráttunni hefur skilið. Þá áttum við sameiginlegan and- stæðing og stefndum í sameiningu í átt að þeim áningarstað sem heitir frelsi. I því fólst sigur okkar. En þegar komið er á áningarstaðinn sem heitir frelsi, tekur lýðræði við og þá mega menn hafa ólíkar skoð- anir. Og við Michnic höfum ólíkar skoðanir, hvor hefur sinna hags- muna að gæta. Meðan á baráttunni stóð vorum við bestu vinir og við bú- um alltaf að þeiiTÍ vináttu. En núna erum við að fást við mismunandi verkefni; hann tekur pennann með sér til vinnu, ég tek með mér skrúf- járn. Og ég vil ítreka að ég hef engu tapað. Byltingarnar eiga það til - eins og dæmin frá t.d. Sovétríkjunum og Kúbu sanna - að við þær myndist andstaða vegna þeirra miklu breyt- inga sem í kjölfar þeirra fylgja. Og þá er spurningin sú hvað leiðtogam- ir gera. Ef þeir fangelsa marga - eins og t.d. Lenín og Castro gerðu - flnnst þeim að þeh’ hafí sigi-að. En í rauninni tapa þeh’ og byltingin einnig. Eg hafði annan hátt á. Þegar andstaðan myndaðist fór ég ekki á bakvið byltinguna og tel þess vegna að ég hafi sigi’að. Eg sigraði í nafni lýðræðisins. Eg vann tvöfaldan sigur: I fyrsta lagi neyddi ég and- stæðing minn til að slíta tengsl sín við kommúnismann, sem hann og gerði, og einnig fékk ég hann til þess að halda áfram því verki sem ég hóf. Mér var kennt og þér var kennt, okkur var kennt, að sigurvegari tek- ur alltaf sæti þess sem beið ósigur. En ég tel að í því felist aðeins hálfur sigm’. Minn sigur er miklu meh’i. Ég sigraði andstæðing minn og skapaði þær lýðræðislegu forsendur sem hann virðir. Hann uppfyllir mín kosningaloforð. Hefði hann uppfyllt sín eigin kosningaloforð, hefði það þýtt að ég hefði beðið ósigur. En þar sem hann uppfyllir mín loforð, er allt eins og best verður á kosið. Ég skap- aði reglur lýðræðisins í Póllandi og þær leyfa jafnvel andstæðingum mínum að vinna mig í kosningum, að því tilskildu að þeir fylgi þessum reglum. Sigurinn er því tvöfaldur en ekki einfaldur. Fólkið heldur hins vegar að sú staðreynd að ég sit ekki við völd þýði að ég hafi tapað. En ég vann tvöfald- an sigm’ og mig langar til að fullvissa alla um að það er sannleikur málsins. I öðru lagi verðið þið að muna að byltingarmennirnir miklu, - og ég er einn af þeim og jafnvel þótt fólk vilji ekki viðurkenna það, viðurkenni ég það sjálfur, - eru ekki góðir stjórn- endur eða skriffínnar. Eftir byltingu taka önnur störf við og því þarf á öðrum mönnum að halda. Ég er ekki gefinn fyrir skriffinnsku og þoli ekki að sitja lengur á þingi en þrjá klukkutíma í einu, og jafnvel þá verð ég að hafa einhverja krossgátu til að ráða, því annars leiðist mér. Eftir aðra eða þriðja þingræðu er ég yfir- leitt búinn að fá nóg, ég þoli ekki þetta kjaftæði. En ég veit að þingstörfin verða að ganga fyrir sig með þessum hætti, þingmenn eru til þess að kjafta. Ég er hins vegar ekki gefinn fyrir slíkt og það myndi gera út af við mig ef ég þyi’fti að sitja á þingi. Ég myndi ger- ast alkóhólisti. Eða tryllast. Allt er því í góðu lagi. Þessi bylting var ekki gerð fyrir Lech Walesa, á sama hátt og byltingin sem ég nefndi áðan var ekki framin fyrir Lenín eða Stalín. Þeir héldu að byltingin hefði verið gerð fyrir þá, en þeir töpuðu. Ég tapaði hins vegar ekki. Hvort ég ætli mér eitthvert hlut- verk í framtíðinni? Auðvitað get ég gegnt ýmsum hlutverkum, en það verður annaðhvort þannig að ég verð að laga mig að þessu kjaftæði á þingi og þrauka í tólf tíma, eða að koma á forsetakerfi. Og ég er fær um það. Og þá getur hlutverk mitt verið mjög stórt En aðstæðurnar þurfa að breytast. Ég yrði því annaðhvort að laga mig að þessu kerfi og hætta að vera ég sjálfur, eða þá að breyta því. Annarra kosta er ekki völ. Ég skil það mjög vel og hef skilið alveg frá byi’jun, þannig að ég held áft’am að gera það sama og ég hef verið að gera, bara á öðrum stað. Stað sem hentar mér betur. Og þótt ég geti ekki útilokað að ég brotni niður þeg- ar ég verð gamall og verði þá fær um að þrauka tólf tíma á þingi, sérstak- lega ef ég verð heyrnardaufur, og brejhist í gamlan afa. Það verður kannski betra, því þá mun mín ekki verða freistað." Þú telur þig því hafa góða mögu- leika á að sofa á þingi ef talað er lágt? „Einmitt. Þú skilur mig vel.“ Hrósað og skammaður í senn Leiðin var löng og hlykkjótt frá því að vera atvinnulaus rafvirki til þess að verða verkalýðshetja, frelsis- hetja og loks forseti. Hvaða hlut- verki gegnir Lech Walesa í Póllandi nútímans, hvaða augum lítur fólk þig?r „Ymsum augum. Það eru margh’ sem hrósa mér og margir sem skamma mig. Ég er að gjalda fyrir sigurinn, en einnig fyrir ósigra. Ég er bendlaður við hinar miklu um- breytingar. Vandi minn felst einnig í því að við erum að byggja upp kapít- alisma og framan af því ferli er kap- ítalismi mjög óþægilegur. I fyrsta lagi, þá rekur að meðaltali einn af hverjum tíu mönnum sitt eigið smá- fyrirtæki og hinir níu vinna hjá hon- um. Og vegna þess að allir tíu byrj- uðu á sama stað, öfunda níumenn- ingarnir þennan eina. ,Af hverju hann en ekki við?“ spyi’ja þeir. „Hann var ekkert betri en við.“ En hann var gáfaðri og græddi meira. I því felst munurinn. I gamla daga voru allir jafn fátæk- ir en í nýja kerfinu opnast okkur möguleiki á að vera annaðhvort rík eða fátæk, þannig að ég á eftir að tapa í mörgum atkvæðagreiðslum. Vegna þess að ég kom þessu kerfi á. Og svo er það annað, að gamla kerfið tryggði öllum vinnu en margir hafa misst hana núna [atvinnuleysi í Pól- landi er um 12% um þessar mundir]. Fólk e er gefið fyrh stöðugleika, þannig að að minnsta kosti í bili verða margir á móti mér. Ég verð að fyrirgefa þeim og skipta mér ekki af þeim, af því að svona á þetta að vera. Ég hafði árangur sem erfiði því að ég er ekki lengur rafvirki. En raf- virkinn vinur minn, hann er ennþá rafvirki þó hann hafi verið betri raf- virki en ég. Og ég spyr sjálfan mig; „afhverju tókst mér þetta en ekki honum?“ Þetta er umbun sem við verðum að skilja. Það er trúin sem hjálpar mér. Ég er trúaður maðui’. Þess vegna gleður ástandið mig ekki en ég tek því eins og sjálfsögðum hlut og ég mun alltaf gera meira eða minna það sama, þó það geti leitt mig á ýmsar brautir. Áður fyn’ kom þetta viðhorf mér í fangelsi, síðan í forsetaemb- ættið og nú er ég fyrrverandi forseti. Hins vegar veit ég ekki hvar ég verð á morgun." Einhverju sinni eftir að þú beiðst lægri hlut í forsetakosningunum 1995, sagðistu geta hugsað þér að verða forseti Bandaríkja Evrópu og það er ljóst að vinsældir þínar ei-u mestar fyrir utan Pólland. Þú segist ekki vita hvar þú verður á morgun, en geturðu ímyndað þér hvar Lech Walesa verður eftir tíu ár? „Það er sífellt verið að spyrja mig hérlendis hvað ég hyggst taka mér fyrir hendur, af hverju ég sé ekki með í því sem er að gerast í Evrópu og hvort ég eigi eftir að verða forseti aftur. En ég stefni hærra. Ég er bú- inn að vera forseti Póllands og hef unnið og vinn fyrir sameiningu Evr- ópu, hagsmuni hennar, friði og ör- yggismálum. Þannig að sá dagur mun koma að Evrópa stofni Banda- ríki, sem muni samanstanda af öllum Evrópulöndum. Þessi Bandaríki Evrópu munu ekki endilega líta út eins og Bandaríkin í Norður-Amer- íku. Hugmyndin er nefnilega sú að stjórnin verði sameiginleg hvað varðar efnahagsmál og öryggismál, og að því stefnum við. Evran sýnir að við erum að stefna í átt að sam- einingu og Evrópusambandið líka. Spurningin er hvort það verði for- seta- eða þingkerfi í sameinaðri Evr- ópu. Alfan þaif á einhverjum leiðtoga að halda og ég legg fram uppástungu um hver það gæti verið. Ég næ þó ekki að verða leiðtogi en kannski að börnin mín nái að verða forsetar. Og þó, kannski get ég orðið forseti ef við flýtum okkur. Ég er eingöngu að lýsa hugmynd um forsetakerfi, þar sem ég yrði forseti, eða um eitthvert annað kerfi, ég veit það ekki, en með spaugi af þessu tagi hvet ég leiðtoga Evr- ópuríkjanna tii að hugsa málið. I dag er þetta grín, en um leið set ég einnig fram spurningar.“ Tapaði ekki kosningum Meðan á valdatíma þínum sem forseta Póllands stóð, fór fylgi við þig allt niður í 8% samkvæmt skoð- anakönnunum. Atti betur við þig að brjóta niður vont keríi en byggja upp nýtt og betra, eða eru Pólverjar svona gleymnir á afrek gærdagsins? „Þetta er ekki alveg rétt spuming. Ég þmfti að ljúka tveimur verkum. í fyi’sta lagi átti ég að kollvarpa gamla keifinu og það var ekkert múður með það. Ég var leiðtogi þjóðarinnar og svo átti ég að koma á nýja kerfinu. Herrar mínir, hvað ályktanir dragið þið? Ég hefði alveg eins getað verið þjóðai’leiðtogi með 99% fylgi, en ég kom af stað lýðræðisumbótunum, þai’ sem ég sit uppi - maðurinn sem kom þessu af stað - með átta prósenta fylgi. Spurningin er hvort ég hafi ekki komið af stað alltof miklum plúral- isma, þar sem það vom ekki nema átta prósent eftir sem studdu mig. Þið ættuð því að hugsa þannig: Þetta er góður leiðtogi og honum tókst að byggja eitthvað upp. Fyrst og fremst fer andstæðingur hans eft- ir settum reglum, og síðan hefur leiðtoginn komið upp svo góðu kerfi að aðrir menn geta notað það til að hirða prósenturnai’ af honum. Þeh eru kannski betri og gáfaðri en ég, en það var ég sem kom þessu af stað. Ég hef ekkert með 100% að gera, því að þá kem ég ekki plúralisma á. Ég vinn sem sagt að því að aðrir hirði þessar prósentur af mér og þetta var alveg hreint ágætt hjá mér, og það sem þykir ágætt í baráttunni, er lýst í sumum spurningum sem ósigri. Málið er einfalt: Annaðhvort trúið þið að ég hafi hrundið plúralisma af stað og þess vegna endað með 8% fylgi eða þá að ég hafi ekki hrundið honum af stað og þá er ég með hund- rað prósenta fylgi. En ef ég sæti uppi með 100% fylgi, myndi það þýða að ég hefði ekki komið plúralisma á koppinn í Póllandi." Hvaða ráð myndir þú vilja gefa núverandi stjórnvöldum Póllands ef þú ættu-þess kost? „Fyrst og fremst að vera trú sjálf- um sér, standa við kosningaloforð sín og vinna fyrir kjósendur. Ef þú ert kosinn verðurðu að framkvæma það sem þú hefur lofað. Auðvitað má skipta um skoðun, en þá í samræmi við það hvernig lífið breytist. Síðan verða menn að hafa hugmyndir og nenna að vinna mjög ötullega." Ég er ekki ríkur Að lokum liggur kannski nokkuð beint við að spyrja hvort Lech Wa- lesa, sjö barna faðir og eiginmaður, ásamt því að vera ríkur af veraldleg- um gæðum, sé hamingjusamur? „Ég skil ekki hvað þú meinar með ríkur af veraldlegum gæðum. Ég er viss um að þú hefur miklu hærra kaup en ég, með forsetaeftirlaunin mín. Ég er viss um að þú ert ríkari en ég. Allt það sem ég hef gert, gerði ég fyrir hugsjónirnar, ekki fyrir pen- inga. Þannig að ég er ekki ríkur. Á stjórnmálasviðinu fer ég heldur ekki upp, heldur niður á við. Þannig að staða mín núna er ekki athyglisverð. Eigum við að veðja um hvor okkar er ríkari? Ég er með tuttugu milljónii’ gamlar zlótýs í kaup á mánuði sem er jafnmikið og 600 bandaríkjadalh. Hvað ert þú með í laun?“ Ég segi honum það og hann verður sigri hrósandi yfir því að hafa rétt fyrir sér í þessu máli. „Vertu þá ekki að segja að ég eigi meha en þú. Ég hef meha að segja gefið ýmsum stofnunum allt það verðlaunafé sem ég hef fengið.“ En ég á einungis eitt bai’n... „Hva. Ég get hjálpað þér í því efni,“ segir Walesa snöggur uppá lagið og viðtalið endar því með hlátri báðum megin borðsins. Hann rýkur síðan út um dyrnar og þegar við komum út stendur hann við skrifborðið með báðar hendur á borðplötunni og svarar spurningum sem bornar eru fram af spyrli frá pólska útvarpinu. Hann er meðal annars spurður að því, hvort hann myndi núna rétta Kwasniewski forseta fótinn eins og hann bauðst til í kappræðu þehra sem nefnd var í upphafí. Walesa kveður nei við, nú væri hann tilbúinn að rétta fram sáttarhönd. Walesa í Póllandi á degi inngöngunnai’ í NATO, er orðinn mun sáttfúsari en áður. Járnmaðurinn frá Gdansk er kannski ekki tekinn að ryðga, en efn- ið í honum hefur mýkst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.