Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 14.04.1999, Síða 8
SÉRBLAÐ UM &JÁVARÚTVEG MIÐVIKUDAOUR 14. APRIL 1999 Kræklingarækt og annar fjörubúskapur studdur Tillaga þess efnis samþykkt á Alþingi ÁÐIJR en fundum Alþingis var frestað var samþykkt tillaga til þingsályktunar um stuðning ríkis- valdsins við kræklingarækt og ann- an fjörubúskap en flutningsmenn voru Ölafur Hannibalsson og Guðjón Guðmundsson. Eftir að Guðjón hafði mælt fyrir tillögunni var henni vísað til sjávarútvegsnefndar sem samþykkti hana með smávægilegri breytingu og var eftirfarandi tillaga samþykkt: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjóminni að undirbúa, með lagasetningu ef þarf, kræklingaeldi og hvers konar annan fjörabúskap sem ætla má að verði á næstu árum tekinn upp á lögbýl- um sem aðgang eiga að sjó og að sjá til þess að á viðeigandi rannsóknastofnunum verði sú sérfræðiþekking fyrir hendi sem að haldi má koma og þarf til þess að leið- beina væntanlegum ræktendum skelfisks og hafa fullnægjandi eftirlit með fram- leiðslu þeirra í samræmi við kröfur einstakra markaða.“ í greinagerð með tillögunni segir að fjörunytjar hafi verið stundaðar á Is- landi frá aldaöðli. Búskapurinn hafi samt ekki verið skipulegur að frátöld- um þaraslætti bænda við Breiðafjörð fyrir Þörungaverksmiðjuna á Reykhól- um og margvíslegar tilraunir til kvía- eldis á laxi undanfarin ár. Hins vegar hafi athygli manna beinst að skel- fiskeldi fyrir löngu og skömmu fyrir stríð hafi sænskt fyrirtæki fengið einkaleyfi hér til ostruræktar, sem það hugðist koma á fót í Hvalfirði sbr. lög nr. 21 12. júní 1939. Þess er getið að á síðustu árum hafi ýmsir beint sjónum að eldi á kræklingi (bláskel, Mytulus edulis). „Verður þá að hafa í huga að starf- semi þessi fer fram í netlögum sjáv- arjarða, og mun strandlengjan mest- öll tilheyra lögbýlum. Því heyrir mál þetta undir landbúnaðarráðuneytið, félagakerfi landbúnaðarins og sjóði á þess vegum. Sjá flutningsmenn enga ástæðu til að breyta því. Hins vegar er nauðsynlegt að skapa þessari nýju atvinnugrein lagaumhverfi við hæfi.“ Sjálfsagt að kanna innflutning Vikið er af sérþekkingu sem til er á Hafrannsóknastofnun varðandi lífs- háttu kræklings hér við land og greint frá eldistilraunum á kræklingi í Hval- firði sem dr. Guðrún Þórarinsdóttir stóð fyrir en þá hafi komið í Ijós að hann hafði þolanlegan vaxtarhraða, náði markaðsstærð, 75 til 100 mm (3 til 4 þumlungum), á tveimur ánim. „Besti ár- angur erlendis er eitt og hálft ár og munar þar náttúrlega talsverðu í af- kastagetu og fjárhagslegum ávinningi. Sjálfsagt væri að kanna hvort ávinning- ur væri í því að flytja inn annan stofn með meiri vaxtarhraða undii' ströngu vísindalegu eftirliti og með tilheyrandi sóttvamarráðstöfunum. Fordæmi er fyrir slíku þegar M. edulis var fluttur með góðum árangri frá Atlantshafs- strönd Kanada til Bresku-Kólumbíu við Kyrrahaf og þess vandlega gætt að eng- ir sjúkdómar eða sníkjudýr fylgdu með.“ Uppskera eftir tvö ár „Helsti kostur skeldýraeldis af þessu tagi er sá að til eldisins þarf ekkert fóð- ur,“ segir í greinargerðinni, því skel- fiskurinn vinni sjálfur fæðu sína úr sjó. „Sú eldisaðferð sem algengust er í Kanada er að strengja tvær langar, lá- réttar línur á enda málmsívalninga sem komið er fyrir með vissu millibili og samstæðan tryggilega fest við botninn til endanna. Niður úr höfuðlínunum eru hengd reipi, sem kræklingurinn tengir sig við með spunaþræði, eða netpokar með kræklingnum í. Þessa tækni tóku brautryðjendur í Norður-Ameríku upp eftir ostru- og hörpudiskræktendum í Japan.“ 1 Fram kemur að við val á eldisstað þurfi helst að varast afrán æðarfugls og krossfiska. Lagnaðarís þurfi ekki að vera vandamál sé þess gætt að lengja í uppistöðunum. ísinn geri í raun kræk- lingnum ekkert nema að hægja á vaxt- arhraða. Þrátt fyrir einfalt og ódýrt eldi segja flutningsmenn að þó nokki-a stofnfjár- festingu þurfi í reipum, akkerum, flot- holtum, netpokum o.fl. og hafa beri í huga að tvö ár líði frá upphafi rekstrar þar til fyrsta uppskera náist. „Því þurfa brautryðjendur í greininni að hafa góð- an aðgang að stofnlánum til þessara hluta. Lánakerfi landbúnaðarins er vel í stakk búið til að sinna þessari þörf og sama má segja um ráðunautaþjónust- una, sem byggist á gömlum merg. Hitt ættu menn að varast frá upphafi að blanda byggðasjónarmiðum eða öðr- um félagslegum viðhorfum í þetta mál, eins og gjarnan hefur tíðkast með nýj- ungar í atvinnugreinum á sviði land- búnaðarins. Þessi atvinnugrein hefur alla burði til að standa undir sér á eigin fótum og á ekki að byggjast á öðru en hreinum viðskiptasjónarmiðum. Afskipti ríkisins ættu frá upphafi að vera þau ein að skapa greininni hag- stætt lagaumhverfi frá byrjun og sjá henni fyrir eðlilegri þjónustu stofnana eins og Hafrannsóknastofnunarinnar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, fjármálastofnana og stofnana landbún- aðarins. Þá þarf atvinnugreinin strangt aðhald eftirlitsstofnana, þar sem á mörkuðunum eru gerðar strangar kröf- ur um gæði skelfísks og fylgjast þarf vel með skelfiskeitrun og mengun, gera strangar umhverfiskröfur og sjá til þess að framleiðslan fái öll hugsanleg vottorð þar að lútandi frá aðilum sem teknir eru gildir á alþjóðavettvangi." Vilja þjóna Evrópumarkaði frá íslandi í greinagerðinni kemur enn fremur Halldóra G. Matthías- dóttir Proppé fram að markaðshorfur á þessu sviði séu mjög góðar. Framleiðendur hafi hingað til engan veginn getað svarað eftirspurn. Vinnslan sé vel vélvædd og að mestu í því fólgin að láta krækling- inn sjálfan hreinsa úr sér sand og óhreinindi en að því loknu sé skelin snyrt og flokkuð eftir stærð. Krækling- ur sé að mestu seldur í skelinni og þannig fáist besta verð fyrir hann en komi tímabil þar sem framboð fersks kræklings sé umfram eftirspurn megi frysta hann eða sjóða niður, þótt það skili lægra verði. Helstu framleiðendur nú eru á Nýja Sjálandi og írlandi, í Skotlandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum, Kanada, Hollandi, Frakklandi og á Spáni. Greint er frá því að fyrsti flutnings- maður hafi kynnst iðnaðinum á Prince Edwards-eyju, minnsta sjálfstjórnar- héraði Kanada, 130 þúsund manna eyju í St. Lárensflóa, þar sem iðnað- urinn hafi orðið að stóratvinnugrein innan sjávarbúskapar á 10 til 15 ár- um en uppbyggingunni hafi verið stjórnað með opinberum leyfisveit- ingum. „Hafa þyrfti í huga hér á landi í upphafinu að beina fyrir- greiðslu til samvinnuhópa fjöru- bænda, sem sameinuðust um vinnslustöð og jafnvel sameiginleg innkaup á stofnfjárfestingarvörum. Þessir staðir þyrftu að liggja vel við flugsamgöngum því að afurðirnar þurfa að komast á markað eins fljótt og unnt er þar sem líftími þeirra er stuttur, 2-3 vikur að hámarki, og hver dagur dýrmætur á leið þeirra á disk neytandans." Sagt er að skipulega hafi verið unnið að uppbyggingu iðnaðarins á Prince Edwards-eyju. Sérstakar klakstöðvar sjái um að koma lirfun- um af stað og ala upp í skelstærð. Þær fari síðan í eldisstöð þar sem þær séu aldar áfram í hæfilega stærð til flutnings í sjó. Um 9.000 tonn af kræklingi eru framleidd á Prince Edwards-eyju á ári og er útflutningsverðmætið um einn milljarður kr. en starfsmenn um 650. „Landþrengsli eru farin að há vexti greinarinnar og því hafa fyrirtæki í kræklingaeldi, ásamt framleiðendum á búnaði, markaðsfyrirtækjum og fleiri aðilum, verið að færa út kvíarnar til annarra landa og hafa stofnað til sam- starfs um framleiðslu og markaðssetn- ingu. Framleiðsluvara þeirra er mark- aðssett undir nafninu Island Blue og er orðin heimsþekkt gæðavara á veit- ingastöðum um allan heim. Áhugi þeirra beinist að því að þjóna Evrópu- markaði frá íslandi og nýta sér þar með víðtækt flutningakerfi Flugleiða á Evi'ópuleiðum, tíðar _ og tiltölulega stuttar siglingar frá Islandi til ann- arra Evrópulanda og aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu til að njóta tollfríðinda." Víða áhugi Að lokum segir í greinagerðinni að hópar sjávarbænda á Vesturlandi, við Breiðafjörð og á Vestfjörðum hafi verið að skoða þessi mál, afla sér þekkingar á þeim og séu komnir í samband við kunnáttumenn úr greininni frá Prince Edwards-eyju fyrir milligöngu vel þekkts íslensks fyrirtækis. „Má þess því vænta að fljótlega komi skriður á málið og þarf löggjafinn því að vera við því búinn að skapa greininni lagalegt og fjárhagslegt umhverfi við hæfi.“ þrisvar á ári • FRÉTTABRÉF íslenskra sjávarafurða er nú komið út á ný eftir árs hlé. Ritstjóri þess er Halldóra Gyða Matthí- asdóttir Proppé. Hún segir meðal annars í svo í ritstjóra- spjalli: Hröð tækniþróun krefst skjótra við- bragað. Líftími nýrra frétta hefur styst með tilkomu „Internetsins". Nú lesa lands- menn Morgunblaðið af tölvum sínum og senda afmæliskveðj- ur með tölvupósti. Við brugð- umst fljótt við netvæðingu og opnuðum heimasíðu IS á „Internetinu" í júlímánuði árið 1996. Síðasta ár hefur mikil vinna fariðí gagnaöflun til skrásetningar á „Internetinu." Gert er ráð fyrir að fram- vegis komi fréttabréfið út þrisvar sinnum á ári. Það verður einnig birt í heils sinni í myndformi á heimasíðu okkar á „Internetinu. (http://www.is.is). Tilgangur fréttabréfsins er að vera upp- lýsingamiðill. Til þess að það geti þjónað því hlutverki sem best, hvetjum við ykkur til að senda inn efni og ábendingar um það sem betur má fara. Halldóra Gyða hóf störf sem gæðastjóri ÍS um miðjan des- ember 1998. Halldóra tók stúdentspróf frá Menntaskól- anum í Hamrahlfð af nýmála- sviði, árið 1990. Árið 1998 lauk hún prófi í iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla íslands og í janúar 1999 prófi til B. Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræð- um frá sama skóla. Á námsár- um sínum starfaði Halldóra hjá ýmsum deildum Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna í Reykjavík og einnig eitt sum- ar (1998) hjá SH í Hamborg. Stjórn HB endurkjörin STJÓRN Haraldar Böðvars- sonar hf. var endurkjörin á að- alfundi félagsins fyrir skömmu. Formaður stjómarinnar er sem fyir Eyjölfur Sveinsson. Aðrir í stjóm eru: Olafur B. Ólafsson, Kristinn Björnsson, Einar Benedikts- son, Gunnar Þ. Ólafsson, Þor- geir Haraldsson og Matthea K. Sturlaugsdóttir. Fram- kvæmdastjóri HB hf. er Har- aldur Sturlaugsson. Eyjólfur Sveinsson Fundað í Brussel • SENDIRÁÐ íslands í Brus- sel, sjávarútvegsráðuneytið og Utflutningsráð Islands standa fyrir árlegum fundi um sjávarútvegsmál, í tengslum við sjávarútvegssýninguna í Brussel sem haldin verður dagana 20.-22. apríl nk. Á fundinum verður rætt um sjávarútvegsmál frá ýmsum hliðum en þess má geta að ávallt hefur verið mjög góð mæting á þennan fund sem haldinn hefur verið undanfarin ár í upphafi sýningarinnar. Á fundinum mun Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra fjalla um þróun Evrópusambandsins og stækkun þess, Baldur Pét- ursson fjallar um sóknarfæri fyrir lítil og meðalstór fyrir- tæki, Arndfs Steinþórsdóttir fjallar um heilbrigðisreglur - hvaða reglur gilda við inn- flutning þriðju ríkja á sjávar- afurðum til evrópska efna- hagssvæðisins og hverjir mega flytja inn. Þá mun Kristófer Már Kristófersson fjalla um hagsmunavörslu íslenskra fyr- irtækja innan EES-svæðisins. Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra mun einnig tala um samninga EFTA við þriðju ríki og tengsl þeirra við EES svæðið. Þá mun sendiherrann fjalla um hlutverk sendiráðs- ins. Fundurinn verður haldinn 20. apríl 1999, kl. 19-20 á Hot- el Metropole í Bourgmestres- salnum og er opinn öllum ís- lenskum gestum á sjávarút- vegssýningunni. Fundarstjóri verður Jón Ásbergsson, fram- kvæmdastjóri Útflutningsráðs. SOÐNINGIN Tígrisrækjur í stökk- um kryddhjúp LESENDUM Versins er að þessu sinni boð- ið upp á girnilegan rækjurétt með tígris- rækjum. Tígrisrækjur eru risarækjur og því nokkru stærri en rækjan sem við þekkj- um af Islandsmiðum. Þær koma aðallega úr rækjueldi í Asíu en þær má hinsvegar fá í frystiborðum allra helstu matvöruversl- anna. Rélturinn er tilvalinn forréttur og er fyrir 4. Það er Smári V. Sæbjörnsson, mat- reiðslumaður og eigandi Listacafé og veislugallerís í List- húsinu í Laugardalnum, sem býður upp á þennan framandi rækjurétf að þessu sinni. Smári er formaður í félaginu Freistingu sein er félag matreiðsluinanna og bakara. Fé- lagið hefur komið sér upp heimasíðu á Netinu og er slóðin: http://www.treknet.is/freisting/ UPPSKRIFTIN 'k bolli vatn 2 stk egg 1 bolli hveiti 1 tsk cayenne pipar 12 stk hráar tígrisrækjur (hreinsaðar og pillaðar) olíu til djúpsteikingar Sósa: 2 msk soya sósa 2 msk þurrt sérrí 2 tsk hunang AÐFERÐIN 1. Hitið djúpsteikingarolíuna. 2. Hrærið vatn, egg, hveiti og cayenne piparnum vel saman. Dýfið rækjunum ofan í blönduna og djúpsteikið í ca. 4-5 nií n. Sósa: Blandið soya, sérrf og huuangi vel saman. Sósan er ineira notuð sem ídýfa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.