Morgunblaðið - 16.04.1999, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 B 7
ELÍN HARTMANNSDÓTTIR
Stofnaði
spjallrás
Trekkara
HVAR geymirðu súkkulaðið út-
leggst á Star Trek-tungumálinu
„NucDaq yneh Dapol“. Elín Hart-
mannsdóttir varpaði fram þessari
spumingu þegar hún hitti blaða-
mann í versluninni Nexus VI á
Hverflsgötunni. Hún er mikill aðdá-
andi Star Trek sem er vísindaskáld-
skapur, upprunninn í Bandaríkjun-
um fyrir um 30 árum.
Til eru hátt í 500 Star Trek-sjón-
varpsþættir, ótal bækur og níu
kvikmyndir, auk myndasagna og
ýmiss konar leikja. Vinur Elínar,
sem er Finni, kann klingonsku, Star
Trek-tungumálið, eins og fleiri
harðir aðdáendur, en að sögn Elínar
er það erfitt mál, afar snúið mál-
fræðilega séð.
Á forsýningu níundu Star Trek-
myndarinnar, sem sýnd er í Há-
skólabíói, mætti Elín máluð í fram-
an eins og ein af hetjunum í Star
Trek og fjöldinn allur mætti í bún-
ingum, - sannkallaðir Trekkarar.
Elín er ein af fáum stelpum hér-
lendis sem er mikill aðdáandi mynd-
anna, en hvað er það sem heillar?
„Þetta er góð spurning," segir hún
hugsi á svip. „Líklega er það þessi
skemmtilega lífssýn og bjartsýni
sem ríkir í þáttunum. í byrjun hafði
ég fordóma, var neikvæð út í Star
Trek, en fljótlega fór ég að hugsa;
kannski að maðurinn eigi sér von?“
Komið inn á viðkvæm málefni
Undanfarið hefur Elín verið að
lesa ævisögu leikaranna sem léku í
fyrstu þáttunum. „Það er mjög
áhugavert,“ segir hún sannfærandi.
í þáttunum er komið inn á við-
kvæm málefni, að sögn Elínar, til að
mynda ástarsambönd fólks af ólík-
um kynþáttum og samkynhneigð. „I
þætti frá 1967 kyssti svört kona
hvítan mann og sá þáttur var bann-
FRIÐRIK FRIÐRIKSSON
Draumurinn
að leika í
geimkvik-
mynd
LEIKARINN Friðrik, öðru nafni
Jón tæknistjóri um borð í geim-
skutlunni Hrafninum, hefur eins og
gefur að skilja brennandi áhuga á
mánanum, stjörnunum og öllu því
sem fylgir þama lengst úti í geimi.
Áhuginn kviknaði þegar hann var
smástrákur, í gegnum kvikmyndir,
„og síðan reyni ég alltaf að horfa á
myndir sem hafa stjömu sem for-
skeyti". Þessu áhugamáli deilir
Friðrik ekki með kærastunni sinni.
„Hún hefur lítið gaman af þessu,
eins og raunin er með margar stelp-
ur. Ætli vanti ekki fantasíugenin í
þær.“
Friðrik gekk skrefinu lengra ný-
lega en hann tekur nú þátt í upp-
færslu Leikhússins Iðnó á Hnet-
unni, geimsápu. Þar leikur hann
Jón tæknistjóra." „Hugmyndin var
að gera eitthvað í anda Star Trek-
þáttanna. Við kynntum okkur geim-
myndir og lásum bækur, meðal ann-
ars The Hitchikers’ Guide to the
Galaxy og fengum fyrirlestra frá
geimvísindamönnum. Síðan æfðum
við karakterana en segja má að
verkið sjálft verði til á leiksýning-
unni en það byggist á spunatækn-
inni.“
Af hverju geimleikrit? „Það er
bara eitthvað í loftinu, allt virðist
stefna í þá áttina, við vildum bara
fara 100 ár fram í tímann og horfa á
nútímann gagnrýnum augum.“
Lengi hefur verið í gangi fortíð-
arhyggja, að mati Friðriks, „fólk
hefur viljað hoppa aftur til sjöunda
áratugarins svo dæmi sé tekið en nú
í árþúsundalok flnnst okkur rétt að
Morgunblaðið/Golli
ELÍN máluð í framan eins og
kvenhetja í Star Trek.
aður í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Það þótti ósiðlegt. Þannig era tekin
fyrir ýmis málefni, en hver þáttur
er sjálfstætt framhald."
Stofnuðu spjallrás Trekkara
Elín og Heba, vinkona hennar,
eiga sameiginlega um 100 Star
Trek-bækur og saman stofnuðu
þær Star Trek-spjallrás á Netinu
sem heitir Cling On. „Heba kynntist
þar Finna, sem hún vai-ð ástfangin
af, svo hún flutti til Finnlands og
hefur búið þar í tvö ár.“
Elín hefur ekki fundið sér
kærasta á Netinu en hefur eignast
nokkra góða vini, sem hún hefur
heimsótt, í Hollandi og Finnlandi.
„Þegar ég fór til Hollands fór ég á
Star Trek-ráðstefnu og hitti mann-
inn sem lék Scottie í fyrstu þáttun-
um. Það var gaman en á ráðstefn-
unni var rætt almennt um Star
Trek og hægt var að bauna spurn-
ingum á leikarana."
Elín vinnur í ráðhúsinu og segist
líklega vera versta tilfelli Trekkara í
húsinu við Tjömina. „í eldhúsinu hjá
okkur hangir Star Trek-plakat mér
til mikillar ánægju en annars er ég
orðin nokkuð vön því að fólk hristi
hausinn þegar ég opna munninn.“
Odd Stefán Ljósmyndun
FRIÐRIK grunar að fantasíu-
gen vanti í kvenþjóðina.
hoppa fram en ekki afturábak. Við
óttumst ekki framtíðina.“
Klístraður af Latexi
og mikið málaður
Gott væri til þess að vita ef líf væri
á öðrum hnöttum, að mati Friðriks,
en honum finnst það heldur ólíklegt,
vill samt ekki afskrifa neitt. „Því hef-
ur verið haldið fram að líf hafi ekki
myndast hér á jörðu heldur í geimn-
um í mikilli efnasúpu en síðan borist
til jarðar sem geimryk. Þannig hafí
maðurinn orðið til.“
Friðrik á sér þann draum að leika
í geimkvikmynd eins og Stjömu-
stríði, „það væri toppurinn", segir
hann. „Ef ekki Star Wars þá myndi
ég vilja leika í Star Trek, mikið farð-
aður og allur klístraður af Latexi."
í lokin vekur Friðrik athygli á
kunningja sem er geimsjúklingur.
Hann heitir Honrik Hoe og er leik-
listarnemi sem á sér þann draum
æðstan að skjótast beint af Lindar-
götunni til Hollywood og leika í Star
Trek-mynd. Drengurinn sá kann
heilu málsgreinarnar úr Star Wars
og Star Trek og getur þulið þær
upp fyrirvaralaust.
BÚI KRISTJÁNSSON
Geimmynda-
saga í smíðum
MYNDASÖGUR fjalla margar um
framtíðina, lífíð úti í geimnum, og
Búi Kristjánsson myndskáld og
hönnuður er einmitt að semja eina
slíka. „Vísindaskáldskápur er mjög
skemmtilegt „konsept" sem hefur
heillað mig lengi enda má segja að
ég sé af svokallaðri Appóllokynslóð,
þeirri sem fór fyrst á tunglið. Á
þeim tíma voru allir með delluna,
pabbi hengdi mynd af geimnum upp
í herberginu mínu og sama gilti um
aðra stráka. Nú skilst mér hins veg-
ar að Pamela Anderson sé notuð
þar til ski’eytinga," segir Búi og
hlær.
Mikil uppsveifla er í myndasögu-
gerð í Evrópu og Bandaríkjunum, að
sögn Búa, og sögur geim- og vísinda-
legs eðlis eiga upp á pallborðið. Búi
vill sem minnst segja um geim-
myndasöguna sína, telur að það boði
ekki gott að tala mikið um skáldverk
fyrh’fram en upplýsir að sagan eigi
að gerast árið 5000, fyrst á íslandi
og síðan úti í geimnum, um borð í
geimskipi.
Nýverið stofnaði Búi Myndasögu-
klúbb Islands sem höfða á annars
vegar til fjölskyldna, fólks á aldrin-
um 8 til 88 ára og hins vegar aðeins
fullorðinna, 16 ára og eldri. Mark-
miðið er að gefa út um 20 skáldverk
á ári, þar af skal að minnsta kosti
eitt vera íslenskt.
Stór munur á Evrópu
og Bandaríkjunum
Búi gerir stóran greinarmun á
bandarískum og evrópskum teikni-
myndasögum sem gerast í framtíð-
inni. „Um er að ræða í fyrsta lagi
bandarískar geimsápur eins og Star
Trek þar sem hugmyndinni svipar
mjög til vinsælla sjónvai-psþátta,
Læknavaktarinnar. í öðru lagi eru í
Bandaríkjunum gerðir framtíðar-
vestrar svokallaðir en Stai’ Wars er
dæmi um þá. í þriðja lagi eru það
svo evrópsku myndasögumar sem
eru mun alvarlegri hugleiðing um
framtíðina en þær fyrmefndu, sann-
kallaður vísindaskáldskapur þar sem
spurt er áleitinna spurninga, heim-
urinn er ekki lengur bjartur og um-
hverfið tekur stundum á sig súrreal-
ískar myndir.“ Frakkar og Japan-
ir hafa náð einna lengst í teikni-
myndagerð, að sögn Búa, auk
Bandaríkjamanna en þar er löng
hefð fyrir vísindateiknisögum á borð
við Flash Gordon, Star Trek og Star
Wars, en nýjasta afsprengið er St-
arship Troopers.
Séð og heyrt
vinsæiasta myndasagan
Myndasagan er listform sem ekki
hefur náð almennilegri fótfestu hér á
landi, að mati Búa. „Skýringin er
hugsanlega einangrun landsins en
svo virðist sem bókaútgefendur hafí
hreinlega ekki áhuga á að gefa slíkt
efni út. Myndasögur eru samt sem
áður mjög vinsælar hér, eins og
dæmin sanna, fólk les mikið Séð og
heyrt sem er náttúralega ekkert
annað en myndasaga. Myndasögu-
klúbbnum er ætlað að bæta úr þess-
ari brýnu þörf.“
Margir era haldnir þeim misskiln-
ingi að myndasagan sé aðeins fyrir
börn og unglinga og að þær séu allar
í líkingu við Andrés Önd en svo er al-
deilis ekki. „Til er ógrynni mynda-
söguflokka, svipað og í bókmenntum
eru til sögur fyrir börn og unglinga,
grínsögur og ævintýri en einnig al-
varlegur skáldskapur af ýmsum
toga.
Að mati Búa hefur myndasagan
undanfarið verið að slíta bamsskón-
um, „hún hefur þroskast og er að
verða hluti af menningu sem er tekin
alvarlega. Að sama skapi er hún af-
þreying líkt og aðrir miðlar."
ARNAR BIRGIR, ÖRN,
HALLGRÍMUR GEIR
OG EYÞÓR
Stjörnustríð
er lífið
SKYNDILEGA fylltust húsakynni
Eyþórs Jóhannssonar í Mosfells-
bænum af alls kyns furðuverum,
geimskipum, og skrímslum. Að auki
vora mættir félagar hans Arnar
Birgir, Örn og Hallgrímur Geir.
„Friðurinn er úti,“ hugsaði Eyþór.
Fjóimenningarnir eiga það sam-
eiginlegt að hafa verið ákafir
Stjömustríðsaðdáendur frá bams-
aldri en nú eru þeir á milli tvítugs
og þrítugs.
Gleði og ánægja skein úr augum
þeirra þegar upp úr kössum og pok-
um vora dregnir gömlu leikfélag-
arnir úr Stjörnustríðsmyndunum.
„Nei, vá, þennan gæja langaði mig
alltaf til að eignast,“ segir Órn, „og
þarna er fjólublái töffarinn." Hall-
grímur Geir hampar furðuveru sem
hann segir vera í miklu uppáhaldi
hjá sér. „Tugga eða Chewie er hann
kallaður. Hann var með mikið strý á
hausnum í gömlu Star Wars mynd-
unum en nú er víst búið að snoða
hann,“ sagði hann örlítið svekktur.
I nýjustu stjörnustríðsmyndinni
sem framsýnd verður á næstunni
eru allar verurnar mun þéttvaxnari
en í þeim gömlu. „Þá vora menn
grannir, svona hippalegar týpur, en
nú era þetta víst algjör vaxtarrækt-
artröll, rosatappar í ræktinni allan
daginn,“ segir Örn.
Fjórmenningarnir ræða síðan um
leikarana í myndunum þremur eins
og þeir væru aldagamlir vinir og
rifja upp einstök atriði úr myndun-
um.
„Það er fyndið," segir Eyþór,
„maður er ennþá að nota gömlu fra-
sana eins og „Luke, I’m your
father" og „Yes, my Lord“,“ síðan
skellihlær hann og hinir taka undir.
Lífið varð ekki samt á eftir
Strákarnir gleymdu sér gersam-
lega í gömlum minningum, það er
synd að ónáða þá en Daglegt líf var
orðið eitt spurningamerki og skarst
því í leikinn.
„Afsakaðu, við eram eiginlega
gengnir í barndóm aftur," segir Ey-
þór. „Leikföngin era orðin ríflega
FJORMENNINGARNIR um-
kringdir gömlum helgigripum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
20 ára gömul sum hver og eru því
algjörir dýrgripir," segir hann. „Ég
myndi ekki einu sinni leyfa bömun-
um mínum að leika með þau, þetta
eru heilagir hlutir," segir Örn
grafalvarlegur.
Félagarnir er greinilega sérfræð-
ingar í Star Wars, eins og flestir
voru á þeirra aldri sem börn. Árið
1978 var fyrsta myndin sýnd og
Arnar Birgir, þá sex ára gamall, var
viðstaddur frumsýninguna. Líf mitt
varð ekki samt á eftir,“ segir hann.
Myndin hafði gífurleg áhrif á mig
en leikir okkar strákanna snerust
upp frá því um stjörnustríð."
„Ég var líka mikill fíkill,“ viður-
kennir Hallgrimur Geir, „og safnaði
öllu sem hægt er að safna; myndum,
geisladiskum og bókum.“
En hvað er það sem heillar? „Það
er erfitt að útskýra en í myndunum
er hið góða og illa að takast á, þetta
er hálfgerð pólitík og mikil tækni-
brelluveisla."
Hallgrímur Geir segist hiklaust
trúa á líf á öðrum hnöttum. „Við er-
um ekki einu hræðurnar í alheimin-
um. Það er á hreinu."
Árangurslaust segist Hallgrímur
Geir hafa reynt að koma kærastunni
sinni í geimheiminn en hún hafi lít-
inn áhuga. Strákamir taka undir
með honum og segja stelpur almennt
ekki hafa áhuga fyrir þessu.
Þegai’ heimsókninni lauk var fjör-
ið fyrst að byrja hjá strákunum,
þeir héldu áfram í stjörnustríði og
skipulögðu út í ystu æsar hópferð á
framsýningu fjórðu Stjörnustríðs-
myndarinnar.
Sjúkrasokkar
Fallegir hnésokkar og sokkabuxur
í mörgum litum. Forvörn og vdlíðan.
tKSTOÐ
Alhllða stoötækjasmíbi
Trönuhraun 8 • Hafnarfiröi • Sími 565 2885
Lyfia íLágmúla og Stjörnuapótek d Akureyri.
sN#1
Ibrcémm
Sólheimum 35, sími 533 3634.
Allan sólarhringinn.