Morgunblaðið - 30.04.1999, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1999
HANDKNATTLEIKUR
Bjarki
leik-
maður
ársins
BJARKI Sigurðsson, fyrirliði ís-
landsmeistara Aftureldingar, var í
gær valinn leikmaður Islandsmóts-
ins í handknattleik af íþróttaf-
réttamönnum Morgunblaðsins.
Þetta er í annað sinn sem Bjarki
verður fyrir valinu, en hann
hreppti hnossið einnig fyrir tveim-
ur árum. Að mati íþróttafrétta-
manna Morgunblaðsins lék Bjarki
allra manna best á nýliðinni leiktíð
og er auk þess sönn fyrirmynd
handknattleiksmanna utan vallar
sem innan þar sem hann geislar af
leikgleði sem hefur jákvæð áhrif á
samheija, andstæðinga jafnt sem
áhorfendur.
Auk þess varð Bjarki marka-
hæsti leikmaður 1. deiidarkeppn-
innar, skoraði 170 mörk í 22 leikj-
um. Þá er hann markahæsti leik-
maður úrsiitakeppninnar frá því að
hún hófst 1992, hefur skorað 251
mark fyrir Víking og Aftureldingu,
en Bjarki bætti met Valdimars
Grímssonar, 217 mörk, í miðri úr-
slitakeppninni á þessu vori.
„Ég reyni að leggja mig full-
komlega fram í í hvern leik sem ég
tek þátt í og því þykir mér vænt
um útnefningar sem þessa og er
þakklátur fyrir hana,“ sagði
Bjarki í gær er hann tók við eigna-
bikar til staðfestingar kjörinu.
„Annars tileinka ég þessa nafnbót
öllum félögum mínum í Aftureld-
ingarliðinu, en þar á bæ hafa
menn staðið þétt saman í vetur og
svo sannarlega uppskorið eins og
til var sáð.“
Bjarki segist hafa náð sér sér-
lega vel á strik á nýliðinni leiktíð
sem væri beint framhald af því
hvernig hann lék veturinn áður er
hann var í herbúðum Drammen í
Noregi. „Síðan er reynslan eflaust
einnig farin að vega þungt.“
Leikgleði sagði Bjarki að væri
mikilvægur þáttur í fari hvers
leikmanns og hann hefði lagt sig
fram um að vera öðrum fyrirmynd
í því. „Leikgleðin skiptir miklu
máli, en með henni nærðu að smita
félaga þína með og hafa jákvæð
áhrif á áhorfendur."
FOSTUDAGUR 30. APRIL
BLAÐ
CITIZEN
FYRÍR ÚTIVISTAR-
06 ÍPRQTTAFÖLK
200m
vatnsþétt stálúr
með vekjara
Úr eru tollfrjáls.
CI CB,.E RI
Laugaveo 62 - Sim,: 551 4100
Morgunblaðið/RAX
BJARKI Sígurðsson, handknattleiksmaður ársins 1999 að mati íþróttafréttamanna Morgunblaðsins.
Titov
þjálfar
kvennalið
Fram
RÚSSINN Nikolai Titov
verður næsti þjálfari bikar-
meistara Fram í handknatt-
leik kvenna. Hann tekur við
að Gústaf Björnssyni, sem
hefur þjálfað liðið síðastliðin
tvö ár.
Nikolai, sem er faðir Olegs
Titovs, leikmanns karlaliðs
Fram, er menntaður þjálfari
og hefur áralanga reynslu af
þjálfun yngri flokka í Rúss-
landi. Hann kom hingað til
Iands í fyrra og hefur þjálfað
4.-5. flokk karla og aðstoðað
við þjálfun annarra flokka í
vetur. Binda Framarar mikl-
ar vonir við ráðningu hans
sem þjálfara meistaraflokks
kvenna, en Nikolai skrifar
undir samning við félagið á
mánudag.
Ekki er búist við miklum
breytingum á leikmannahópi
Fram-liðsins en forsvars-
menn þess gera sér vonir um
að stækka hópinn enn frekar
fyrir næsta vetur.
ESB hvetur til íþrótta-
banns á Júgóslavíu
STJÓRN Evrópusambandsins, ESB, hvetur til þess að öll íþrótta-
landslið og alþjóðleg íþróttasérsambönd aflýsi öllum samskipt-
um við Júgóslavíu. Áskorunin er þó ekki bindandi fyrir aðildarríki
ESB og eru pólitísk markmið sambandsríkjanna þess valdandi.
Það er í höndum utanríkisráðherra einstakra ESB-ríkja að hvetja
landssambönd sín til að hætta íþróttasamskiptum, að sögn Hans
van den Broeks, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn
ESB.
sem fram fer í Frakklandi 21. júní,
HM í handbolta í Egyptalandi í júní
og HM í fijálsíþróttum í Sevilla á
Spáni í ágúst. Júgóslavar eru með
landslið í öllum þessum mótum.
Eins og komið hefur fram er ísland
fyrsta varaþjóð á HM í handbolta í
Egyptalandi. Ef Júgóslövum verður
meinuð þátttaka tekur íslenska lands-
liðið sæti þeirra. Yfirlýsing ESB ætti
að auka líkurnar á því að íslenska
landsliðið fái þátttökurétt á HM.
Italir og Grikkir leggjast gegn því að
Júgóslavar verði útilokaðir frá
íþróttakeppni, en Holíendingar hafa
beitt sér fyrir slíku banni. „Við höfn-
um þeiiTÍ afstöðu að íþróttir og
stjórnmál fari ekki saman,“ segir
Jozias van Aartsen, utanríkisráð-
herra Hollands.
Chris Smith, íþróttamálaráðherra
Bretlands, segir að koma verði í veg
fyrir að Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, noti íþrótth’ sem tæki og
tól í áróðursstríði sínu. Joschka
Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, segir: „Hvert og eitt land og
sérhvert alþjóðasamband verður að
taka ákvörðun um að útiloka
júgóslavnesk landslið frá keppni á
eigin forsendum. Við hvetjum til að
þær ráðstafanir verði gerðar seni
taldar eru við hæfi,“ sagði hann.
íþróttamót sem hugsanlegt íþrótta-
bann á Júgóslavíu kann að raska er
Evrópumeistaramótið í körfuknattleik
Þorbjöm Jensson
áfram landsliðsþjálfari
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari, hefur framlengt samning sinn
við Handknattleikssamband íslands til næstu tveggja ára. Samningur
hans um þjálfun kaiialandsliðsins var að renna út og tilkynnti Guð-
mundur Ingvarsson, formaður HSI, á blaðamannafundi í gær að búið
væri að skrifa undir tveggja ára samning við Þorbjörn og lýsti hami
ánægju sinni með það.
GIIÐRÚN ARNARDÓTTIR BYRJAÐI VEL í RIO DE JANEIRO / B4