Morgunblaðið - 19.05.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.05.1999, Qupperneq 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1999 C ST Akranesí Vikingur ' E3y\ Reykjavík Breiðablik Kópavogi Keflavík Grindavík FRJÁLSÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson VALA Fiosadóttir tekur þátt í stangarstökki á stórmóti í New York. Völu boðið til New York VALA Flosadóttir, íslands- og Norðurlandamethafi i stangar- stökki kvenna, er skráð á meðal keppenda í stangarstökki kvenna á fyrsta stórmóti bandaríska frjálsíþróttasambandsins sem fram fer í New York 6. júní. Iótið er hið fyrsta í röð móta sem sambandið er að hleypa af stokkunum og er ætlað að auka at- hygli og áhuga í fyrir frjálsíþróttum í Bandaríkjunum, en áhugi á þessari íþrótt hefur minnkað mikið vestan- hafs á undanfórnum árum. Með mót- unum er ætlað að feta í fótspor AI- þjóða frjálsíþróttasambandsins sem hefur tekist vel upp með „gullmót“ sín undanfarin ár. Vegleg peninga- verðlaun eru fyrir efstu sætin á mót- unum um leið og tekist hefur að selja útsendingarrétt til sjónvarpsstöðva. Stefnt er að því að fremstu frjálsí- þróttamenn heims taki þátt í þeim og þá sérstaklega Bandaríkjamenn. Hafa fremstu frjálsíþróttamenn landsins samþykkt að taka þátt í mótunum, en tvö hafa verið skipu- lögð á þessu ári, en ráðgert er að þau verði þi’jú til fjögur á því næsta. Meðal þeirra sem boðað hafa þátt- töku sína á fyrsta mótið í new York í næsta mánuði eru Marion Jones, Michael Johnson, Maurice Green, John Godina og Charles Austin svo einhverjir séu nefndir. Eftir upplýsingum frá mótshald- ara er gert ráð fyrir að Vala mæti bandarísku meisturunum Stacy Dra- gila og Melissu Miiller, en báðar hafa þær stokkið um fjópa og hálfan metra í stangarstökki. I sömu upp- lýsingum er aðeins greint frá þess- um þremur keppendum í stangar- stökki kvenna en sennilegt má telja að fleiri stúlkur reyni með sér. Vigdís meistari t í fjórða sinn Vigdís Guðjónsdóttir, spjótkast- ari úr HSK, sigraði um helgina í spjótkasti á svæðismeistaramóti háskóla í austurhluta Bandaríkjana. Þetta er fjórða árið í röð sem Vigdís vinnur spjótkastskeppni þessa móts, en hún leggur stund á nám við háskólann í Athens í Georgíu. Vigdís kastaði spjótinu 52,14 metra sem er hennar besti árangur með nýju spjóti sem tekið var upp í keppni í kvennaflokki 1. apríl sl. Halldóra Jónasdóttir varð í fjórða sæti í spjótkasti á sama móti, kastaði 46,24 metra, en Halldóra er við nám í Alabama. Sigur Vigdísar var mjög öruggur, hún kastaði rúm- um fjórum metrum lengra en silfur- verðlaunahafmn. Með árangri sínum bætti Vigdís sinn fyrri árangur með þessu spjóti um tæpa tvo metra. Nýja spjótið hefur annan þyngdarpunkt en fyrra spjót og á ekki að geta farið eins langt og hið gamla auk þess sem það lendir frekar á oddinum. Vigdís hefur þar með unnið sér þátttökurétt í spjótkasti á háskóla- meistaramóti Bandan'kjanna sem fram fer á næstunni og er það einnig í fjórða sinn sem hún nær þeim áfanga. Magnús Agnar tilKA MAGNÚS Agnar Magnússon, linumaður úr Gróttu/KR, mun leika með KA á næstu leiktíð. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins mun Grótta/KR, sem féll úr 1. deild nú í vor, lána leikmanninn til KA í eitt ár og verður gengið frá samn- ingum þess efnis í vikunni. Magnús hafði verið orðaður við Stjörnuna, þar sem hann lék um hríð, en þar er nú und- ir smásjánni rússneskur línu- maður. Verður ákveðið í vik- unni hvort gengið verður til samninga við hann. Sturtaugur veiktist rétt fýrir leik STURLAUGUR Haraldsson átti að vera í byrjunarliði ÍA gegn KR í gær, en veiktist um miðjan daginn og gat því ekki verið með. „Sturlaugur fékk einhverja magapínu og gat því ekki leikið. Það var slæmt að hafa hann ekki með því hann hefur mikla reynslu,“ sagði Logi. Kári Steinn Reynisson tók stöðu Sturlaugs í byrjunar- liðinu. Gömlu meistararnir heiðursgestir HEIÐURSGESTIR á leik KR og í A í gær voru leikmenn KR sem urðu íslandsmeistarar 1959. Það lið fór í gegnum Is- landsmótið með fullt hús stiga og það hefur engu öðru liði tekist. Leikmennimir gengu inn á völlinn fyrir leikinn í Frostaskjólinu og voru kynntir sérstaklega og fengu lófaklapp frá stuðningsmönnum KR. Vel klæddir KR-ingar LEIKMENN KR klæðast allir eins jakkafötum og koma því prúðbúnir til leikja liðsins í sumar. Fötin eru frá verslun- inni GK á Laugavegi. Mörg er- lend stórlið hafa lengi haft þá hefð að leikmenn mæti til leiks allir eins klæddir. KR-ingar hafa tekið þennan sið upp og mæta prúðbúnir til leiks á 100 ára afmælisári félagsins. SIGURSTEINN Gíslason, leikmaður KR, á hér í höggi víð fyrrverandi félaga sína hjá ÍA - Jóhannes Harðarson og Unnar Valgeirsson. Óskabyrjun í Frostaskjóli STUNDUM fá menn óskir sínar uppfylltar. i gærkvöldi fengu KR- ingar eina af óskum sínum uppfyllta. Þeir fengu óskabyrjun á ís- landsmótinu er þeir lögðu Skagamenn, 1:0, en það var ekki það eina. Þeir fengu sannkallaða óskabyrjun í leiknum því eftir að- eins sautján sekúndur skoruðu þeir sigurmark sitt. Var þar á ferðinni Sigþór Júlíusson með skalla sem var fimmta snerting KR-ings við knöttinn eftir að Gylfi Orrason dómari hafði gefið heimamönnum merki um að hefja skyldi leik. Sigurinn verður vart talinn sanngjarn því Skagamenn voru mun beittari, en hvenær hefur verið spurt um sanngirni í íþróttum? Líklega aldrei og allra síst á óskastundum. Eftir hina köldu vatnsgusu snemma leiks voru leikmenn ÍA ekki lengi að ná sér á strik. Þeir ■■■■■■■ tóku til við að sauma Ivar að KR-ingum á flest- Benediktsson um vígstöðvum. skrifar Miðjan var þeirra og Pálmi Haraldsson og Unnar Valgeirsson léku lausum hala á köntunum. Sóknarþunginn var allnokkur og snemma skall hurð nærri hælum. Pálmi fékk upplagt færi á markteigshomi á 13. mínútu en hitti knöttinn tæplega og tókst því ekki að reka smiðshöggið á fal- lega sókn. Skagamenn héldu áfram að leika lipurlega en gekk miður þegar nær dró markinu. Þeir máttu KR 1:0 ÍA Sigþór (1.) KR-völlur 18. maí. 4-4-2 Aöstæóur: Sunnan kaldi, 4-3-3 Kristján M rigning, 6 gráðu hiti. Völl- Ólafur Þór Sigurður Örn % urinn með stórum kalblett- Gunnlaugur m Þormóður um og var einnig blautur. Alexander m D.Winnie Áhorfendur: 2.025. Dómarl: Gylfi Orrason, Reynir Sigursteinn n Pálmi m Sigþór * Aðstoðard.; Einar Sigurös- Unnar m Þórhaliur son og Pjetur Sigurðsson. (Baldur 77.) Guðmundur 3B Gul spjöld: KR: Sigþðr Jóhannes H. m Indriði. (40.) - brot. ÍA: Jóhannes (60.) - brot, Unnar (66.) - Heimir m (Jóhann Þ.52.) brot. Ragnar Andri S. Rautt spjald: Enginn. (Unnar 56.). (Arnar Jón 85.) Markskot: 10 -17. Kári S. Björn Rangstaða: 2-0. Sigurður R. M (Egill 73.) Horn: 4-5. 1:0 (1.). Guðmundur Benediktsson sendi fyrir mark IA frá vinstri kanti inn á markteigshorn hægra megin þar sem Sigþór Júlíusson kom aðvífandi og skallaði í markið. þó teljast heppnir í meira lagi að verða ekki einum leikmanni færri á 14. mínútu. Þá varði markvörður- inn, Olafur Þór Gunnarsson, knött- inn með hendi rétt utan vítateigs er hann var andartaki á undan Andra Sigþórssyni, sem kom eins og stormsveipur á eftir knettinum í kjölfar laglegrar stungusendingar Guðmundar Benediktssonar. Áfram héldu Skagamenn að sækja, en án árangurs og eftir því sem á fyrri hálfleikinn leið náðu þeir sífellt betri tökum á leiknum. Jóhannes Harðarson var sem kóng- ur í ríki sínu á miðjunni, lék sam- herja sína uppi en sóknarmönnun- um, Sigurði Ragnari Eyjólfssyni, Ragnari Haukssyni og Kára Steini Reynissyni gekk hins vegar allt í mót við að brjóta á bak aftur þung- lamalega vörn KR-inga. Hvað sem því leið voru það leikmenn KR sem voru nær því að bæta við marki því á 39. minútu átti Þórhallur Hinriks- son skot af 25 metra færi sem skall í markstöng Skagamarksins. Leikmenn ÍA héldu uppteknum hætti í sóknarleiknum í síðari hálf- leik, nú undan vindi. Hættan var nær stöðug uppi við mark KR og oft munaði litlu, en samt nógu miklu til þess að heimamenn sluppu með skrekkinn. Skagamönnum tókst ekki að nýta sér það rými sem kantmenn- imir fengu og þá yfírburði sem Jó- hannes og Heimir Guðjónsson höfðu umfram félaga sína í KR-liðinu. Sigurður Ragnar, Ragnar, Kári Steinn og Pálmi sáu til þess að hurð skall oft nærri hælum KR-inga, en það var ekki nóg, herslumuninn vantaði ætíð og Kristján Finnboga- son var árvökull í marki KR og greip vel inn í. KR-ingar áttu skyndisóknir sem voru beittar en of fáar. Alla vinnslu vantaði á miðjuna, en líklegt má telja að það breytist í næstu leikjum er Bjarki Gunnlaugsson, Einar Þór Daníelsson og Þorsteinn Jónsson fara að láta til sín taka, en þeir voru allir fjarri góðu gamni að þessu sinni. Sunnan strekkingur, rigning og slakur leikvöllur settu talsverðan svip á leikinn í Frostaskjóli. Leik- menn beggja liða reyndu þó lengst af að gera gott úr öllu saman. Á milli sáust ágætis leikkaflar, eink- um hjá leikmönnum IA, og gefa þessir kaflar fyrirheit um að bæði lið hafi alla burði til þess að skemmta áhorfendum á knatt- spyrnuvöllum í sumar. Hvort fleiri óskastundir verði í Frostaskjólinu skal ósagt látið, það kemur í ljós með haustinu. Morgunblaðið/Golli Ólafur Þór Gunnarsson um markið sem KR skoraði hjá honum eftir 17 sekúndur Úthlaupið var algjör vrtleysa Valur B. Jónatansson skrifar Olafur Þór Gunnarsson, markvörður ÍA, var að spila sinn fyrsta deildar- leik með Skagamönnum og fékk á sig mark eftir aðeins 17 sek- úndur. „Það var skelfilegt að fá þetta mark á sig. Það er varla hægt að byrja verr með nýju liði. Fyrir- gjöfin var föst en vindurinn breytti stefnu knattarins og hann datt því fljótt niður. Eg átti að taka þennan bolta, en úthlaupið hjá mér var algjör vitleysa,“ sagði Ólafur Þór. „Þessi byrjun setti mig aðeins úr jafnvægi, ég neita því ekld. En síðan gleymdi ég þessu.“ Ólafur átti nokkuð glæfralegt úthlaup á 14. mínútu leiksins, hljóp út úr teignum á móti boltanum og sló hann með hendi áð- ur en Andri Sigþórsson náði til hans. „Já, ég viðurkenni að hafa slegið boltann með hendi, en ég er ekki viss um að ég hafi verið kominn út fyrir vítateiginn," sagði Ólafur Þór. í endursýningu á sjónvarps- stöðinni Sýn kom í ljós að hann var fyrir utan teiginn þegar hann sló til knattarins. Það átti línuvörðurinn að sjá og ef hann hefði gert það hefði það þýtt rauða spjald- ið! Hann sagðist vonsvikinn yfir því að tapa leiknum enda hefðu þeir átt mun fleiri tækifæri en KR-ingar. „Við áttum í það minnsta að ná jafntefli. Við fengum fullt af færum sem við nýttum illa. KR-lið- ið var ekki eins sterkt og af hefur verið látið. Það sýndi það alténd ekki í þessum leik. En eigum við ekki að segja að fall sé fararheill hjá okkur,“ sagði Ólafur Þór markvörður. m) KNATTSPYRNA Ólafur spilar ekki í sumar ÓLAFUR Adolfsson, varnarmaðurinn sterki frá Akranesi sem lék með Tindastéli í fyrra, leikur ekki með ÍA í sumar eins og búist var við. Hann hefur hins vegar tekið að sér annað hlutverk, að vera liðsstjóri. „Nei, ég leik ekki í sumar. Það stéð til en eftir að Gunnlaugur Jénsson gekk til liðs við félagið ákvað ég að leggja skéna á hilluna. Ég er ánægður með nýja hlutverkið," sagði Olafur. Markið eins og rothögg Valur B. Jónatansson skrífar Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna, var vonsvikinn með úrsht leiksins eins og gefur að skilja. „Við vorum al- gjörlega sofandi i byrjun og það kostaði okkur þetta mark sem réð úr- slitum. Þetta var eins og rothögg, en við vöknuð- um af værum blundi og unnum okkur inn í leikinn, sköpuðum okkur fullt af færum, en það þarf víst að nýta þau til að sigra. Ef við skorum ekki úr svona mörgum færum er ekki hægt að búast við sigri. Þeir fengu aðeins eitt færi fyrir utan það sem þeir skoruðu úr. Við feng- um á annan tug marktækifæra og það eru líkiega fleiri marktækifæri en and- stæðingar KR fengu í öllum leikjunum gegn þeim á síðasta tímabili," sagði Logi. Hann sagði það jákvæða við leik sinna manna vera að þeir stjómuðu leiknum og voru mun betri. „Ég get verið sáttur við ýmislegt í þessum leik, en það er alltaf sárt að tapa. Við vorum að spila ágætlega á köflum. Þeir fengu sannkallaða óskabyrjun enda með það sterkt varnarlið að þetta var óskastaða fyrir þá, að geta bakkað og varist. En við getum líka huggað okkur við það að þessi útileikur er einn sá erfiðasti. Skagamenn hafa ekki riðið feitum hesti héðan úr Frostaskjólinu síðan 1993 og við verðum víst að búa við það enn eitt árið að ná ekki að sigra hér. En það koma tímar og koma ráð,“ sagði Logi. Logi skipti Unnari Valgeirssyni út af fyrir Baldur Aðalsteinsson á 77. mínútu. Þar sem Unnar var að leika vel og fyrir- gjafir hans hættulegar, kom sú skipting nokkuð á óvart. „Unnar var búinn að spila vel, var duglegur en orðinn þreytt- ur. Ég vildi því freista þess að finna nýj- an vinkil á sóknarleiknum með því að setja Baldur inn á, en því miður skilaði það litlu.“ £•'• Islandsmótið í knattspyrnu Liðin í efstu deild karla í Þessi tíu lið hafaekkiáður verið öll samtímis 7 í efstu deild > Vestmannaeyjum Guömundur á miðjunni ATHYGLI vakti að Guðmundur Bene- diktsson lék í frjálsu hlutverki á miðju hjá KR-liðinu í gærkvöldi, en ekki í framlín- unni eins og hingað til. Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, segir að þetta sé géð staða fyrir Guðmund og hann hafi sagt við hann að í þessari stöðu geti hann orðið yfirburðaleikmaður á Islandi. „Ég tel ekki að hann komist í landsliðið 1 framlínunni, en sem miðjumaður er hann feiknasterkur. Hann er geysilega leikinn, hefur næmt auga fyrir spili og getur að auki skorað sjálfur," sagði Atli. Páll „njósnar“ PÁLL Guðlaugsson, þjálfari Leifturs, var mættur á KR-völIinn í gærkvöldi til að fylgjast með KR-liðinu, sem Leiftur mætir í sínum fyrsta heimaleik - á Ólafsfirði á mánudaginn. Páll kortlagði leik KR-Iiðs- ins. Leiftursmenn leika gegn íslandsmeist- urum ÍBV í Eyjum annað kvöld, þannig að þeir mæta tveimur efstu liðunum í efstu deild í fyrra í tveimur fyrstu umferðunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.