Morgunblaðið - 01.07.1999, Síða 4
Becker
hættir
BORIS Becker, tenniskapp-
Sinn snjalli frá Þýskalandi,
hefur keppt í síðasta sinn á
stórmóti og hyggst leggja
spaðann á hilluna síðar í
Imánuðinum. Hann lék síð-
asta leik sinn í gær á móti
Ástralanum Pat Rafter í 16
manna úrslitum
Wimbledon-tennismótsins.
Rafter sigraði 6-3 6-2 6-3.
ítfónm
FOLK
■ ÚRVALSDEILDARLIÐ Snæfells í
körfuknattleik gekk í gærkvöldi frá
samningum við Bandaríkjamanninn
Kim Lewis um að þjálfa og leika með
liðinu á næstu leiktíð. Lewis hefur
verið aðstoðarþjálfari Tulane-háskól-
ans undanfarin þrjú ár, en lék áður
sem bakvörður með liðinu og þykir
mjög góður.
■ WILSON Kipketer, nigeríski
hlauparinn knái með danska ríkis-
fangið, sigraði í 800 m hlaupi á Bislett>
leikunum, sem hófust í Osló í gær.
Tími hans var sá besti í 800 m hlaupi á
þessu ári, ein mínúta og 43.11 sek.
■ BISLETT-leikamir fóru annars
mjög vel af stað í gær. Þannig náði
rúmenska hlaupadrottningin Ga-
briela Szabo besta tíma ársins í 3.000
m hlaupi kvenna er hún hljóp á
8:27,21 mín og heimsmethafínn frá
Kenýa, Bemard Barmasai, sigraði í
3.000 m hindrunarhlaupi karla á tím-
anum 8:06,15 mín.
■ HEILE Gebrselassie, heimsmet-
hafínn í 5000 m hlaupi, sigraði auð-
veldlega í greininni og hlóp á næst
besta tíma ársins, 12:53,92 mín. Þó að-
stæður til spretthlaupa hafi ekki verið
sem bestar sökum kulda náði Allen
Johnson besta tíma sínum á tímabil-
inu og sigraði í 110 m grindahlupi -
13,14 sek.
■ MARION Jones virtist í góðu formi
og sigraði í 200 m hlaupi kvenna á
tímanum 22,22 sek. Þá sigraði Deon
Hemmings í 400 m grindahlaupi
kvenna á 53,48 sek.
■ ALLIR þeii’ frjálsíþróttamenn sem
hér hafa verið taldir upp keppa að því
að sigra á öllum „gullmótum" sumars-
ins og deila þannig með sér milljón
dollara verðlaunafé. Bislet-leikarnir
voru fyrstir í þeirri mótaröð. Einn af
þeim sem þótti eiga möguleika á pott-
inum er þegar dottinn út. Það er
heimsmeistarinn i 200 m hlaupi, Ado
Boldon, sem var dæmdur úr leik fyrir
að stíga á línu.
■ ARSENAL fékk í gær til liðs við sig
Brasihumanninn Silvinho meistara-
liðinu Corinthians. Silvinho, sem er
25 ára. leikur stöðu vamarmanns.
Hann er átjándi útlendingurinn sem
Arsene Wenger hefur fengið til Ar-
senal síðan hann tók við liðinu.
■ ROGER Garcia, miðvallarleikmað-
ur Barcelona, mun ganga til lið við
Mónakó í þessari viku. Garcia, sem
var settur á sölulista hjá Barcelona,
er 22 ára.
■ FORRÁÐAMENN Bayern
Munchen og Real Madrid, mættust í
gær í Miinchen til ræða skipti á leik-
mönnunum Markus Babbel og hol-
lenska landsliðsmannsins Christian
Karembeu, sem hefur ekki verið
ánægður hjá Real.
■ RAYO Vallecano og Sevilla
tryggðu sér í gær sæti í spænsku úr-
valsdeildinni í knattspymu. Rayo,
sem er frá Madrid, og hefur löngum
staðið í skugga stórliðanna Real og
Atletico, sigraði Extremadura sam-
anlagt með fjórum mörkum gegn
engu í tveimur leikjum og Sevilla
sigraði Villareal 3:0 samanlagt. Liðin
unnu báða leiki sína, heima og heim-
an.
DREGIÐ var í forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu í gær. ÍBV
leikur gegn albönsku meistur-
unum SK Tirana. Bjarni Jó-
hannesson, þjálfari Vest-
mannaeyinga, sagði að drátt-
urinn hefði sína kosti og galla.
„Þetta verður leiðinlegt ferða-
lag og langt en það hefði geta
verið verra. Við hefðum getað
lent á móti liði frá Aserbaídsj-
an eða Armeníu. Aftur á móti
eigum við ágæta möguleika á
því að komast áfram. Við hefð
um getað lent á móti sterkari
liðum.“
Skagamenn léku á dögunum
einnig á móti albönsku liði í
fyrstu umferð Getraunakeppni Evr-
ópu og komust örugglega áfram.
Bjami heldur að róðurinn verði
ekki jafn auðveldur hjá Eyjamönn-
um. „Menn hafa rekið sig á það í
gegnum tíðina að talsverður munur
getur verið á liðum sem taka þátt í
Evrópukeppnum. Ekki er hægt að
dæma albanska knattspyrnu út frá
einu liði og mig grunar að þetta lið
sé talsvert sterkara en liðið sem
Skagamennimir léku við.“ Bjarni
bætti því við að það væri vissulega
kostur að Skagamenn hefðu leikið
við albanskt lið. „Við munum fá
upplýsingar frá Loga [Ólafssyni]
um aðstæður þama úti og það
hjálpar til.“
Ef Vestmannaeyingar komast
áfram í keppninni leika þeir við
MTK Budapest sem er fírnasterkt
lið frá Ungverjalandi. Bjarni seg-
ist ekki vera farinn að hugsa svo
langt fram í tímann að hann hafi
áhyggjur af þeim drætti. „Reyndar
erum við ekki farnir að hugsa um
leikinn á móti albanska liðinu. Við
einbeitum okkur að leiknum á móti
Keflavík sem verður leikinn á
sunnudag og verður erfiður. Eg
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
GUÐNI Rúnar Helgason, einn af lykilmönnum Eyjaliðsins. Hann hefur leikið vel að undanförnu,
skorað þrjú mörk í tveimur síðustu leikjum liðsins.
get þó a.m.k. sagt að það hefði ver-
ið betra að sleppa við svona langt
ferðalag.“
Fyrri leikur Eyjamanna á móti
SK Tirana verður í Vestmannaeyj-
um þann 14. júlí. Seinni leikurinn
verður í Albaníu viku síðar.
Leiftur mætir
Anderlecht
LEIFTURSMENN frá Ólafsfirði drógust gegn belgíska liðinu
Anderlecht í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða í gær. Fyrri
leikur liðanna verður háður í Belgíu hinn 12. ágúst nk., en sá síð-
ari fer fram 26. ágúst. Anderlecht hafnaði í þriðja sæti belgísku
deiidarkeppninnar á liðnu keppnistimabili, á eftir meisturum
Genk, liði Þórðar, Bjarna og Jóhannesar Guðjónssona, og Club
Brugge.
Tveir íslenskir leikmenn hafa leikið með Anderlecht, þeir Arn-
ór Guðjohnsen og Pétur Pétursson. Valur lék gegn Anderlecht ár-
ið 1968 í borgarkeppni Evrópu og tapaði fyrri leiknum ytra, 6:0,
þegar hinn kunni Paul Van Himst hrelldi Sigurð Dagsson mark-
vörð og gerði fjögur mörk. Síðari leiknum lauk einnig með sigri
Anderlecht, 2:0.
KR-ingar
mæta
Kilmarnock
KR-ingar drógust á móti skoska lið-
inu Kilmamock í Evrópukeppni fé-
lagsliða. Atli Eðvaldsson var ánægð-
ur með dráttinn. „Þetta er stutt
ferðalag og það skiptir miklu máli í
þessari keppni. Eg veit ekki mikið um
þetta lið en það verða hæg heimatök-
in að afla upplýsinga því að Jóhannes
bróðir minn er búsettur í Skotlandi,
einnig er David Winnie öllum hnútum
kunnugur í skoskri knattspyrnu. En
þetta verður erfitt."
KR-ingar eiga stutt ferðalag fyrir
höndum borið saman við Eyjamenn
sem fara alla leið til Albaníu. Atli er
ekki á þeirri skoðun að drættirnir í
Evrópukeppninni eigi eftir að hafa
áhrif á keppnina hér heima. „Vissu-
lega eiga Vestmannaeyingar langt
og strangt ferðalag fyrir höndum, og
annað til ef þeir sigra albanska liðið,
en þeir hafa styrkt sig mikið undan-
farið og eru með reynslumikið lið
sem er vant að takast á við erfið
verkefni."
Með fjölda stuðnings-
manna til íslands
Mikil stemning er í kringum lið
Kihnarnocks. Þegar liðið lék við al-
banskt lið í Evrópukeppninni í fyrra
fylgdu því 900 áðdáendur. Búast má
við að 1500-1600 fylgi liðinu til
Reykjavíkur. Leikirnir fara fram 12.
og 26 ágúst. Fyrri leikurinn verður
leikinn hér heima.
KNATTSPYRNA
íslandsmeistarar Eyjamanna fara til Tírana í Albaníu
Ágætir möguleikar
á að komast áfram