Morgunblaðið - 09.07.1999, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
knöttinn yfir Hauk Bragason.
aftur
okkur mark eftir mistök í vörninni og
það vegur þungt,“ sagði Valdimar Krist-
ófersson, fyrirliði Stjömunnar, eftir
leikinn. „Pegar við svo ætluðum að
byrja síðari hálfleik af fullum krafti kom
annað mark KR og þá var erfitt að kom-
ast í gang því KR er með gott, léttleik-
andi lið með góða framlínu, sem má ekki
gefa tíma. Nú einbeitum við okkur að
deildinni,“ bætti Valdimar við en hann,
Boban og Dragan Stojanovic vora bestir
heimamanna.
„Við þurftum að hafa fyrir þessu því
Stjarnan stóð sig vel en eftir annað
markið höfðum við leikinn í hendi okk-
ar,“ sagði Bjarki eftir leikinn, en hann
sýndi oft skemmtilega takta. „Við
reyndum okkar besta, að spila vel, en
það var erfitt að hemja boltann og við
erum vanir að spila meira saman. Eg er
samt sáttur, við eram allir heilir. Það er
gaman að við erum komnir svona langt,
ég hef aldrei komist í bikarúrslit og á af-
mælisári hjá KR ætlum við að taka alla
titla, sem eru í boði þó að fjögur sterk-
ustu liðin séu eftir í bikamum.“ Bjarki,
Gunnleifur markvörður, Sigþór og
Bjöm Jakobsson, sem lék sinn síðasta
leik fyrir KR í bili og heldur til Noregs,
voru bestir.
rmstadt
Sundmenn úr Ægi taka þátt í
Evrópumeistaramóti unglinga í
Moskvu og Evrópumeistaramóti
fullorðina í Tyrklandi og Ólympíu-
dögum æskunnar í Esbjerg. Það
eru Jakob Jóhann Sveinsson, sem
keppir í Moskvu og Tyrklandi, og
Hjörtur Már Reynisson sem keppir
í Esbjerg.
KNATTSPYRNA
Sigurður Grétarsson, þjálfari Blika
Frábærl að
vera kom-
inn áfram
„ÉG er mjög sáttur við leik minna manna og það er frábært að
vera kominn áfram. Það getur allt gerst í þessu og við hræðumst
ekkert lið,“ sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, eftir
að liðið hafði lagt Valsmenn að velli með tveimur mörkum gegn
engu í Kópavoginum í gær.
Leikurinn fór fjörlega af stað og
bæði liðin fengu góð færi í byrj-
un. Eftir það færðist meiri ró yfir
liðin. Valsmenn voru
Örn meira með boltann en
Arnarson náðu ekki að skapa
skrifar sgr hættuleg færi
þrátt fyrir ágæta til-
burði. Leikmenn liðsins voru með
hugann við varnarhlutverk sitt og
hættu sér ekki fram að óþörfu og
þess vegna vantaði oft herslumun-
inn í sóknaraðgerðum liðsins.
Þótt Blikamir væru minna með
knöttinn létu þeir engan bilbug á
sér finna. Vamarleikur liðsins var
traustur. Sóknarmennimir biðu ró-
legir eftir að leikurinn opnaðist. Það
gerðist á 32. mínútu. Salih Heimir
Porca gaf háa fyrirgjöf inni í teig.
Þar fjölmenntu Valsmenn en voru
að gera allt annað en að dekka
Bjarka Pétursson og átti hann í litl-
um erfiðleikum með að koma bolt-
anum inn í markið. Fimm mínútum
síðar bætti Marel Baldvinsson öðru
marki við fyrir heimamenn. Há
sending kom fyrir teiginn og gerði
Haukur Bragason, markvörður
Vals, sig líklegan til að handsama
knöttinn en Marel náði að koma
boltanum inn. Fátt markvert gerð-
ist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks.
Valsmenn mættu einbeittir þegar
flautað var til síðari hálfleiks. Þeir
voru ekki tilbúnir að játa sig sigr-
aða. Liðið átti nokkrar ágætar
sóknir en þær voru ekki markvissar
og aldrei var útlit fyrir að þeir
myndu ná upp forskoti heima-
manna. Þegar 20 mínútur voru eftir
af leiknum virtist allur vindur far-
inn úr Valsmönnum og sumir leik-
menn liðsins urðu áhugalausir um
það sem fram fór á vellinum. Send-
ingarnar fóru oft og iðulega á
Önnur ferð
Watford
mótherja og ekkert virtist ganga
upp. Leikmenn Breiðabliks léku
hins vegar örugga knattspyrau.
Þeir studdust við skyndisóknir og
gáfu Valsmönnum engin tækifæri
til þess að ógna stöðu sinni. Þegar
komið var undir leikslok voru
stuðningsmenn liðsins famir syngja
söng um að bikarinn ætti að fara tO
Blika. Hvort það gerist er ekki enn
ljóst en hins vegar er deginum ljós-
ara að hann fer ekki tO Valsmanna.
Tveir til
Örgryte
KJARTAN Þórarinssyni,
markverði KA og 18 ára
landsliðsins í knattspyrnu,
og Guðjóni Antóníussyni,
leikmanni Víðis í Garði, hef-
ur verið boðið að æfa með
unglingaliði Örgryte í
Gautaborg í Svíþjóð.
Guðjón, sem er fæddur
1983, og Kjartan, sem er
fæddur 1982, hafa þekkst
boðið og fara 25. júlí og
verða í æfíngabúðum
sænska liðsins ásamt öðrum
efnilegum leikmönnum í
eina viku.
Jón Pétur Róbertsson,
íþróttafulltrúi KA, hefur
milligöngu um ferð piltanna
en hann bjó áður í Svíþjóð
og starfaði um skeið fyrir
Örgryte.
til Islands
Nei, þetta er ekki í fyrsta skipti
sem ég heimsæki ísland. Eg
ætla þó að vona að ferðin nú verði
ánægjulegri en síðast.
Björn Ingi Það er að segja flug-
Hrafnsson ferðin," sagði Graham
skrifar frá Taylor, knattspymu-
Watford stjóri Watford, sem
stjómaði Watford-liðinu í leik gegn
Reykjavíkurúrvali á gervigrasvell-
inum í Laugardal 17. janúar 1987, í
leik sem lauk með jafntefli, 1:1.
„Þegar við vorum á leið tO Islands
var flugvélinni snúið við tO Glasgow
- vegna vélabilunar. Við biðum þar í
fjórar klukkustundir á meðan verið
var að gera við vélina. Eg vona að
við eigum betra flug í vændum,“
sagði Taylor í viðtali við Morgun-
blaðið, en hann og leikmenn Wat-
ford koma tíl landsins í kvöld.
100 ára afmælisleikur KR verður
á Laugardalsvellinum á sunnudags-
kvöld kl. 20 - gegn Watford, sem
kemur til íslands með átján leik-
menn. Á íslandi bætist Jóhann B.
Guðmundsson í hópinn. „Já, Jóhann
mun taka þátt í leiknum. Við verð-
um með alla okkar sterkustu leik-
menn. Alvaran er tekin við hjá mér
og mínum mönnum eftir stutt sum-
arfrí. íslandsferðin mun þjappa
hópnum saman,“ sagði Taylor.
Taylor hafði frá mörgu skemmti-
legu að segja í viðtali sem birtist í
blaðinu á morgun.
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999 C 3
Isbolta
mótið
verður haldið hjá Goifklúbbi Setbergs
þann 10. júlí næstkomandi.
Glæsileg verðlaun i.sæti 30þús. vöruúttekt f
með og án forgjafar: 2 sætj 20 þús vöruattekt Í
3. sæti 10 þús. vöruúttekt
Ræst verður út frá kl. 8:00 - 10:00 og kl. 13:00 - 15:00.
Þrenn nándarverðlaun Mótsgjald kr. 2.000.-
Allir þátttakendur fá glæsilega Skráning í síma 565-5690.
teiggjöf.
GEVALIA
OPIÐ
verður haldið laugardaginn 10. júlí
á Hamarsvelli, Borgarnesi.
Ræst verður út frá kl. 8.00-16.00.
(Rástímapantanir [ síma 437 1663 eða 862 1363).
Leikinn verður 18 holu höggleikur með og án forgjafar og eru
verðlaun vegleg að vanda eða:
1. verðl. með/án forgj. kr. 30.000 úttekt í Nevada BOB
2. verðl. með/án forgj. kr. 20.000 úttekt í Nevada BOB
3. verðl. með/án forgj. kr. 10.000 úttekt í Nevada BOB
4. verðl. með/án forgj. kr. 5.000 úttekt í Nevada BOB
Nándarverðlaun á 1/10 (í 1 höggi) og á 6/15 (í 2 höggum).
Fæst pútt á flötum á 18 holum. Dregið úr skorkortum (10 verðl.).
Púttkeppni að loknu móti. Mótsgjald er kr. 2.300.
Golfklúbbur
Borgarness
GEVALIA mí iTO'i'iTII /^Varup
r~s á
OPIÐ KVENNAMÓT
sunnudaginn 11. júlí nk.
á golfvelli Odds og Oddfellowa
í Urriðavatnsdölum
Vegleg verðlaun fyrir besta skor án forgj.
og fyrir 5 efstu sætin með forgj.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.
Frábærar teiggjafir til allra keppenda
Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni,
hámarks gefin forgjöf 28.
Skráning í síma: 565 9092
Verðlaun gefur: HAGI HF.