Morgunblaðið - 28.07.1999, Side 1
mMBHHW
KNATTSPYRNA
Marel með
Haukum?
SIGURÐUR Pétursson, golf-
kennari lijá Golfklúbbnum
Oddi í Urriðavatnsdölum,
setti glæsilegt vallarmet á
golfvelli Gofklúbbs Hellu á
Rangárvöllum, GHR, á lands-
móti lögreglumanna um liðna
helgi. Sigurður lék holurnar
átján af gulum teigum á 65
höggum, fimm undir pari, en
eldra metið átti Birgir Leiíúr
Hafþórsson sem leikur sem
atvinnumaður ytra - 66 högg.
Óhætt er því að segja að
golfleikur Sigurðar sé við-
burðaríkur um þessar mundir
því Sigurður fór holu í höggi
öðru sinni á þessu ári í meist-
aramóti Odds á dögunum.
Bjarna boð-
ið til Turku
Anelka af sölulista
Forráðamenn enska knatt-
spymuliðsins Arsenal tóku
franska táninginn Nicolas Anelka
af sölulista sínum í gær og skipuðu
honum að hefja æfingar á ný með
liðinu. Ástæða þess var sú að An-
elka hafði ekki gefið félaginu svar í
tæka tíð við hugsanlegri sölu á
honum til ítalska liðsins Lazio fyrir
um 2,6 milljarða króna.
Anelka sagðist fyrr í sumar
vilja yfírgefa enska liðið og í
kjölfarið fór í hönd tímabil til-
boðsgerðar og viðræðna af ýms-
um toga milli Lundúnaliðsins og
ýmissa félaga á meginlandi Evr-
ópu; Lazio, Juventus á Ítalíu,
Olympique Marseille frá Frakk-
landi og spænska félagið Real
Madrid.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóra Arsenal, var farið að leiðast
þófið og setti hinum tvítuga lands-
liðsmanni Frakka úrslitakosti - ef
hann sýndi engin viðbrögð við til-
boði Lazio fyrir hádegi í gær yrði
hann tilneyddur til að vera áfram
hjá Arsenal, en ólíklegt er að
stuðningsmenn liðsins taki honum
vel þar sem framherjinn hefur
dregið þá á asnaeyrunum svo vik-
um skiptir.
Orðrómur er á kreiki þess efnis
að Anelka hafi krafist sextíu þús-
und sterlingspunda, rúmra sjö
milljóna króna, í vikulaun hjá
Lazio og að ítalska liðið hafi ekki
viljað verða við ósk kappans. í yf-
irlýsingu frá Arsenal segir: „Ars-
enal hefur ávallt farið þess á leit
að Nicolas Anelka verði áfram
hjá félaginu. Hann er ungur og
hæfileikaríkur með eindæmum og
ósk okkar er að hann virði samn-
ing sinn við félagið.
Óvíst um viðbrögð Anelka
Samingaviðræður fóru fram við
Juventus og Lazio hvort í sínu lagi
og bjartsýni ríkti um að hægt væri
að komast að samkomulagi um
kaupverð. Hinsvegar var Ijóst að
ekki var hægt að verða við kröfum
Anelkas og því var ekki hægt að
ganga frá sölunni.
Þar sem næsta keppnistímabil
hefst eftir tvær vikur hefur knatt-
spymustjórinn [Arsene Wenger]
óskað þess að leikmannahópur fé-
lagsins geti stillt saman strengi og
því er æskilegt að Anelka hefji æf-
ingar að nýju eins og aðrir leikmenn.
Ekki er víst hvernig Anelka
bregst við þessari tilkynningu eftir
að hafa sagt að honum líki ekki við
Englendinga, þætti ekki gott að
búa í Lundúnum og vildi einfald-
lega ekki leika áfram með Arsenal,
sem keypti Anelka af franska lið-
inu París St. Germain árið 1997
fyrir hálfa milljón sterlingspunda,
tæpar sextíu milljónir króna.
Skömmu áður en Wenger setti
Anelka úrslitakostina, var uppi
orðrómur um að Lazio og Juvent-
us ætluðu að kaupa leikmanninn
saman - íyrrnefnda liðið fengi
hann lánaðan í tvö ár og eftir það
væri hann eign Juventus. Bæði lið
hafa þó neitað þessu.
pest kom
í einkaþotu
UNGVERSKA knattspyrnu-
liðið MTK Búdapest, sem leik-
ur gegn Eyjamönnum í for-
keppni Meistaradeildar Evr-
ópu, fiaug frá Ungverjalandi
til Eyja í einkaþotu í gær.
MTK Búdapest hefur unnið
ungversku deildina síðastliðin
þijú ár og með miklum yfir-
burðum á síðasta keppnis-
tímabili, hlaut 83 stig en liðið
í öðru sæti 64. Markatala ung-
versku meistaranna var
77:26.
MTK hefúr leikið undanfar-
in ár i Evrópukeppnum og lék
á síðasta ári gegn Götu frá
Færeyjum og vann fyrri leik-
inn 3:1 og þann seinni 7:0. í
næstu umferð lék það gegn
austurríska liðinu SV Ried og
tapaði 2:0 og 1:0.
Sigurður
setti met
Morgunblaðið/Sverrir
KR heldur sínu striki
ÍSLANDSMEISTARAR KR unnu Breiðablik, 3:1, á heimavelli í meistaradeild kvenna í gærkvöldi er heil umferð var leikin. Heldur því
meistaraliðið sínu striki í efsta sæti deildarinnar þremur stigum á undan Vals sem vann Grindavík, 5:1. Að ofan hefur Ásthildur Helga-
dóttir betur f einvígi um knöttinn við Margréti Ólafsdóttur. __________________
■ Leikirnir / B2
BJARNI Friðriksson, brons-
verðlaunahafi í júdó á Ólymp-
íuleikunum í Los Angeles
1984, verður aðalþjálfari í ár-
legum æfingabúðum
júdómanna í Turku í Finn-
landi, sem hefjast í dag. Búðir
þessar eru nú starfræktar í
25. sinn og hafa Finnar ávallt
boðið þekktum júdómönnum
að gegna hlutverki aðalþjálf-
ara, en búðirnar eru m.a. sótt-
ar af finnska landsliðinu. Er
það því nokkur heiður að fá
slíkt boð og athyglisvert að
þess var farið á leit við
Bjarna.
MTK Búda-
1999 U MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ BLAD X3
MAREL Guðlaugsson, sem leikið hefur með KR í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik, er hugsanlega á
leið í Hauka. Marel hefúr átt í viðræðum við
Hauka í sumar en það skýrist á næstu dögum
hvort hann gerir samning við félagið.
Sigþór Kristinsson, formaður körfuknattleiks-
deildar Hauka, sagðist bjartsýnn á að Marel, sem
jafnframt hefur leikið með Grindavík, kæmi til
liðsins, sem hefur fengið Guðmund Bragason, fyrr-
um lcikmann Grindavíkur og landsliðsmann, í sín-
ar raðir. Hann sagði jafnframt að unnið væri að
því að fá eiiendan leikmann til félagsins.
Sigþór sagði að enginn lcikmaður hefði farið frá
félaginu og með fyrrnefndum liðsstyrk væri stefnt
á að vera meðal efstu liða í úrvalsdeild næsta vet-
ur. Haukar lentu í 8. sæti í deildarkeppninni síð-
astliðinn vetur og töpuðu fyrir Keflavík í 8-liða úr-
slitum.
KNATTSPYRNA: EYJAMENN RENNA BUNT í SJÓINN GEGN MTK BÚDAPEST / B4