Morgunblaðið - 28.07.1999, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 B 3-
Morgunblaðið/GJolli
ar Breiðablik tapaði, 3:1, fyrir KR. Hér hreinsar Hjördís Þorsteinsdóttir frá marki sínu, systurnar Sigrún og Bára
jast með en KR-ingurinn Ásthildur Helgadóttir er aðeins of sein.
sitjandi kráka
úgandi fær
Gunnarssonar small í ofanverðri þver-
slánni.
Sóknarleikur Hafnfirðinga var ann-
ars afar daufur í fyrri hálfleik og vakti
athygli framganga hins unga og há-
vaxna Bjarka Árnasonar í vörn Borg-
nesinga. Bjarki þessi pakkaði marka-
hróknum Herði Magnússyni hreinlega
saman í leiknum og fór fyrir vikið af-
skaplega mikið í taugarnar í Herði -
sem og aðdáendum í hópi heimamanna
á pöllunum, sem raunar voru grunsam-
lega fáir.
Smám saman jókst þó pressan af
hálfu heimamanna og þeir urðu því ekki
lítið gramir þegar gestirnir gerðu sér
lítið fyrir og bættu öðru marki við. Var
þar að verki Gunnar M. Jónsson með
sannkölluðu ævintýraskoti af um 35 m
færi. Við markið hljóp gestunum enn
meira kapp í kinn og þeir komust ná-
lægt því að skora þriðja markið, en
Bjarki skallaði himinhátt yfir af mark-
teig.
Þróun seinni hálfleiks varð með svip-
uðum hætti. Heimamenn voru meira
með knöttinn, en sóknir gestanna urðu
þó mun skeinuhættari. Ur einni slíkri
náðu þeir að bæta þriðja markinu við.
Skagamaðurinn Haraldur Hinriksson
var þar að verki, en naut þess þó að
varnarmenn Hafnfirðinga sýndu gest-
risni í hvívetna og vöruðust að þrengja
um of að Haraldi með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Undir lok leiksins gerðu leikmenn
FH heiðarlegar tilraunar til að minnka
+
muninn, en staðreyndin var þó sú að
sóknartilraunir Skallagríms voru áfram
hættulegri og þeir voru líklegri til að
auka muninn enn frekar. Allt kom þó
fyrir ekki og öruggur 3:0-sigur Borg-
nesinga því staðreynd á erfiðum úti-
velli. Fyrst og fremst vannst sá sigur á
öflugri liðsheild og samvinnu leikmanna
og sannaðist enn sú gamla og nýja saga
að sveltur sitjandi kráka en fljúgandi
fær. Borgnesingar nenntu nefnilega að
hafa fyrir hlutunum, börðust um allan
völl og uppskáru eftir því.
A hinn bóginn hljóta Hafnfirðingar
að velta því fyrir sér hvað sé að í her-
búðum liðsins eftir ósigur sem þennan á
heimavelli. Eftir frækilegan sigur í síð-
asta leik mætti sama hersing til leiks
gegn botnliði deildarinnar og vissi löng-
um stundum hreinlega ekki hvort hún
væri að koma eða fara. Mesta púður
sumra lykilmanna liðsins fór í að argast
út í Gylfa Orrason, dómara leiksins, og
virtist með ólíkindum hve margar
ákvarðanir hans særðu réttlætiskennd
þeh-ra. Hefði hluti af þeirri orku sem
þar fór til spillist að ósekju mátt fara til
annarrar og gagnlegri iðju. Með sama
áframhaldi er ekki að sjá að FH liðið
eigi mikið erindi upp í efstu deild, allt-
énd þurfa leikmenn liðsins að taka sér
tak, hefja leikgleðina upp að nýju og
beita ögn meiri skynsemi. Þá er aldrei
að vita hvað framtíðin ber í skauti sér.
Maður leiksins:
Bjarki Amason, Skallagrími.
Sjaldséð
markaleysi
VARNARMENN Skallagríms
vom sérstaklega kátir í leiklok
í Kaplakrikanum £ gærkvöldi.
Þeir héldu nefnilega hreinu í
leiknum, í fyrsta sinn si'ðan í 1.
umferð efstu deildar árið 1997!
Valdimar Sigurðsson, fyrr-
verandi leikmaður liðsins og
núverandi leikmaður Fram í
efstu deild, sagði glaðbeittur að
sér reiknaðist til að Skallagrím-
ur hefði leikið 45 leiki í röð án
þess að halda hreinu. Síðast
þegar það gerðist, sigraði
Skallagrímur Leiftur 3:0 á
heimavelli í 1. umferð efstu
deildar fyrir tveimur árum.
„Höldum áfram“
Hjörtur Hjartarson, fyrirliði
Skallagríms og markaköngur 1.
deildar, gerði eitt marka liðsins
í leiknum. Hann fékk einnig
gult spjald undir lokin og verð-
ur fyrir vikið í leikbanni í næstu
umferð.
„Þetta var geysimikilvægur
sigur og við áttum hann svo
sannarlega skilinn - vorum
betri og beittari allan tímann,"
sagði hann.
SUND / EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ
Öm var
nærri meti
Fjórir íslenskir sundmenn syntu
á öðrum degi Evrópumeistara-
mótsins í gær og komst enginn
þeirra upp úr undanrásunum og í
milliriðla. Bestum árangri náði Órn
Arnarson, SH, er hann synti 100
metra skriðsund á 51,65 sekúndu og
var aðeins 3/100 úr sekúndu frá ís-
landsmeti Magnúsar Más Ólafsson-
ar. Öm bætti sinn eigin árangur í
greininni um 17 hundraðshluta úr
sekúndu. Árangurinn nægði Emi
aðeins tO 26. sætis en 44 sundmenn
reyndu með sér.
Ríkarður Ríkarðsson, Ægi,
keppti einnig í 100 metra skrið-
sundi. Jafnaði hann sinn besta ár-
angur, 53 sekúndur sléttar, og varð
í 33. sæti.
Kolbrún Yr Kristjánsdóttir, ÍA,
fékk tímann 58,93 sekúndur í 100
metra skriðsundi og varð í 31. sæti
af 40 keppendum. Lára Hrund
Bjargardóttir, SH, varð í 34. sæti í
sömu grein á 59,71 sekúndu.
I dag keppir Lára Hrund í 200
metra fjórsundi og Hjalti Guð-
mundsson, SH, og Jakob Jóhann
Sveinsson, Ægi, í 200 metra
bringusundi. Lára Hrund er skráð
með 16. besta tíma keppenda á
mótinu í fjórsundinu og Kolbrún
með þann 17. besta. Verður því
nokkuð spennandi að fylgjast með
hvort þeim takist að komast í milli-
riðla, fyi’st íslenskra sundmanna á
þessu móti.
Fyrsta heimsmetið sem fellur á
Evrópumeistaramótinu féll í gær er
Svíinn Anna-Karin Kammerling
bætti eigið met í úrslitum 50 metra
flugsundsins. Kammerling kom í
mark á 26,29 sekúndum. Gamla
metið, 26,39, setti hún í Halmstad í
heimalandi sínu 1. júlí sl. Svíar
fögnuðu dátt eftir sigur Kammerl-
ing því landi hennar, Johanna
Sjöberg, varð önnur í sama sundi á
26,93.
Hollendingurinn Inge de Bruijn,
sem átti heimsmetið á undan
Kammerling vann sér sæti í úrslit-
um 50 metra flugsundsins í fyrra-
dag. í gær hætti hún við að synda
til úrslita til þess að geta einbeitt
sér að keppni í 100 metra skrið-
sundi, en undanúrslitin í þeirri
gi’ein voru í gær. Stefnir de Bruijn
að sigi’i í þeirri grein en synt verður
til úrslita í dag.
Á mánudaginn, fyrsta degi sund-
keppni mótsins, bætti hollenskav-
karlasveitin Evrópumetið í 4x100
metra skriðsundi, synti á 3.16,27
mínútum. Gamla metið settu Rúss-
ar á Evrópumeistaramótinu fyrir
tveimur árum, 3.16,85. I sveit
Hollands voru Johan Kenkhuis,
Mark Veens, Mareel Wouda og Pi-
eter van den Hoogenband. Bundu
þeir þar með enda á langa sigur-
göngu Rússa í þessari grein á Evr-
ópumeistaramóti. Rússar urðu að
gera sér annað sætið að góðu á
3.19,49. Þjóðverjar voru þriðju á .
3.20,60
Dalvíkingar
skelltu Fylki
Dalvíkingar komu öllum og þá
ekki síst sjálfum sér á óvart
þegar þeir sigruðu Fylkismenn á
■^■1 Arbæjarvelli í gær-
Stefán kvöldi með tveimur
Páisson mörkum gegn einu.
Norðanliðið, sem
verið hefur við botn
deildarinnar lengst af sumri, hefur
þá unnið tvo síðustu leiki sína en
topplið Fylkis tapað sinum leikjum.
Það var ljóst frá fyrstu mínútu
að Dalvíkingar voru ekki komnir
til Reykjavíkur til þess að leika
sóknarknattspyrnu. Þeir vörðust
aftarlega á vellinum og biðu átekta
eftir því að heimamenn gæfu færi
á sér. Árbæingar sóttu hins vegar
af krafti án þess þó að ná að skapa
sér veruleg marktækifæri. Það er
til marks um yfirburði Fylkis-
manna að markvörður þeirra,
Kjartan Sturluson, þurfti ekki að
handleika knöttinn íyrr en á 23.
mínútu leiksins; þegar hann sótti
boltann í eigið net. Vörn heima-
manna hafði þá sofnað á verðinum
og gleymt Jóni Örvari Eiríkssyni
sem fékk knöttinn á auðum sjó við
vítateigshomið og skoraði snyrti-
lega fram hjá Kjartani.
Markið kom algjörlega gegn
gangi leiksins og virtist slá leik-
menn Fylkis út af laginu. Þeir
héldu að sönnu áfram að sækja en
þær sóknir brotnuðu flestar á
sterkri vörn Dalvíkinga sem efld-
ust til allra muna og skutu áhorf-
endum í Árbæ skelk í bringu með
hnitmiðuðum skyndisóknum. Á
lokamínútu fyrri hálfleiks upp-
skáru þeir annað mark úr einni
slíkri sókn, þegar Atli Viðar
Björnsson notfærði sér mistök í
vörninni og sendi knöttinn á Guð-
mund Kristinsson sem var einn og
óvaldaður og skoraði auðveldlega.
Fylkismenn komu grimmir til*
leiks í síðari hálfleik, staðráðnir í
að snúa leiknum sér í hag. Ekki
liðu nema sex mínútur þar til
Theodór Óskarsson minnkaði
muninn með stórkostlegu marki,
þegar hann spyrnti knettinum við-
stöðulaust frá vítateig upp í blá-
hornið. Árbæingar kættust, en sú
gleði reyndist skammvinn því fleiri
urðu mörkin ekki þrátt fyrir að
heimamenn sæktu nær látlaust til
leiksloka. Mátti raunar litlu muna
að sigur Dalvíkinga yrði stærri því
á 65. mínútu varði Kjartan laflausa
vítaspyrnu Atla Viðars sem dæmd
hafði verið á Sigurð Sigursteinsson
fyrir að brjóta á Jóni Orvari. ,
Dalvíkingar eiga heiður skilinn
fyrir þá baráttu sem liðið sýndi í
gær. Sóknarmenn þeirra eru
eldsnöggir og refsa vamarmönnum
fyrir minnstu mistök. Vörnin er
sterk og munar þar mest um þjálf-
arann Jónas Baldursson sem stýrir
henni eins og herforingi. Þá spillir
ekki fyrir að milli stanganna stend-
ur snjall markvörður, Atli Már
Rúnarsson, en hann varði stórvel í
gær, meðal annars dauðafæri Fylk-
ismanna á lokasekúndunum.
Fylkismenn hafa enn sem fyrr/
örugga forystu í deildinni og vand-
séð að þeir láti hana af hendi.
Engu að síður má liðið ekki við því
að tapa heimaleikjum sem þessum
og má telja líklegt að Ólafur Þórð-
arson hafi lesið hressilega yfir sín-
um mönnum að leik loknum.
Maður leiksins: Jónas Baldursson,
Dalvík.