Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 -fcj- MORGUNBLAÐIÐ MORGÚNBLÁÐÍÐ MIÐVIKUDAGÚR 25. ÁGÚST1999 C 3 URSLIT Knattspyma Úrslitakeppni 3. deildar KÍB-Hvöt.......................... 1:1 Samanlagt, 3:3, en KÍB fer áfram því liðið gerði tvö mörk á útivelli í fyrri leiknum. Magni - Afturelding ................1:2 Afturelding sigraði samanlagt, 3:2. Reynir S. - Huginn/Höttur...........1:0 Huginn/Höttur sigraði samanlagt, 4:1. Þróttur N. - Njarðvík ...............1:2 Njarðvík sigraði samanlagt, 6:2. Undanúrslit: Fyrri leikir, laugardaginn 28. ágúst nk.: Afturelding - Magni...................14 Njarðvík - KÍB.......................14 England Middlesbrough - Leicester City .....0:3 - Emile Heskey 35., 83., Tony Cottee 38. 33.126. Watford - Aston ViIIa ..............0:1 - Mark Delaney. 19.161. Evrópukeppni félagsliða Úrslit síðari leikja í síðustu umferð forkeppni að Evrópukeppni félagsliða. Baku, Azerbaaijan: Shamkir - Kryvbas Kryviy Rih (Úkraínu) 0:2 - Oleh Simakov 24., 67. 3.500. ■ Kryvbas sigraði samanlagt, 5:0. Sofia, Búlgaríu: CSKA Sofia - Portadown (N-írl.) .....5:0 Milen Petkov 14.-vsp., Ivan Litera 28., 49., Roumen Hristov 65.-vsp., Genadi Simeonov 78.8.000. ■ CSKA Sofia sigraði samanlagt, 8:0. Getraunakeppni Evrópu Úrslit síðari leikja í lokaumferð Getraunakeppninnar. Sigurvegarar komast áfram í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða. Hamburg, Þýskalandi: Hamburger SV - Montpellier (Frakkl.) .1:1 Anthony Yeboah 22. - Oliver Sorlin 70. 51.500. ■ Montpellier sigraði, 3:0, í vítaspyrnukeppni og komst því áfram. Metz, Frakklandi: Metz - West Ham (Englandi)..........1:3 Nenad Jestrovic 69. - Trevor Sinclair 23., Frank Lampard 42., Paulo Wanchope 80. 20.000. ■ West Ham sigraði samanlagt, 3:2. Rennes, Frakklandi: Rennes - Juventus...................2:2 Elhadji Diouf 20., Shabani Nonda 90. - Antonio Conte 29., Gianluca Zambrotta 72. 11.500. ■ Juventus sigraði samanlagt, 4:2. Frjálsíþróttir HM í Sevilla Úrslit þeirra greina sem lauk í gær. Sleggjukast kvenna: 1. Mihaela Melinte (Rúmeníu) .....75,20 2. Olga Kuzenkova (Rússlandi) ....72,56 3. Lisa Misipeka (Samóa)..........66,06 4. Katalin Divos (Ungverjal.).....65,86 5. Debbie Sosimenko (Ástralíu)....65,52 6. Lyudmila Gubkina (Hvíta-Rússl.) .65,44 7. Simone Mathes (Þýskal.) .......64,93 8. Kirsten Munchow (Þýskal.) .....64,03 9. Svetlana Sudak (Hvíta-Rússl.) .. .63,99 10. Dawn Ellerbe (Bandar.)........63,55 11. Tatyana Konstantinova (Rússl.) . .62,52 12. Manuela Montebrun (Frakklandi) 62,44 13. Cecile Lignot (Frakklandi) ...62,14 14. Lorraine Shaw (Bretlandi) ....62,09 15. Manuela Priemer (Þýskal.) ....61,99 16. Florence Ezeh (Frakklandi) ...60,74 17. Amy Christiansen-Palmer (Ban.) . .59,80 18. Yipsi Moreno (Kúbu) ...........58,68 19. Maria Dolores Pedrares (Spáni) . .57,66 20. Anelia Yordanova (Búlgaríu) ...53,20 21. Kamila Skolimowska (Póllandi) .. .50,38 Þrístökk kvenna: 1. Paraskevi Tsiamita (Grikklandi) . .14,88 2. Yamile Aldama (Kúbu)...........14,61 3. O.A. Vasdeki (Grikklandi) .....14,61 4. Tatyana Lebedeva (Rússlandi) .. .14,55 5. Iva Prandzheva (Búlgaríu) ....14,54 6. Sarka Kasparkova (Tékklandi) .. .14,54 7. Yelena Govorova (Úkraínu) .....14,47 8. Cristina Nicolau (Rúmeníu).....14,38 9. Oksana Rogova (Rússlandi)......14,16 10. Baya Rahouli (Alsír)...........14,00 11. Adelina Gavrila (Rúmeníu) .....13,87 12. Ashia Hansen (Bretlandi) ......13,39 I. 500 m hlaup karla: 1. Hicham E1 Guerrouj (Marokkó) .3.27,65 2. Noah Ngeny (Kenýa) ..........3.28,73 3. Reyes Estevez (Spáni) .......3.30,57 4. Fermin Cacho (Spáni) ........3.31,34 5. Andres Diaz (Spáni) .........3.31,83 6. Laban Rotich (Kenýa) ........3.33,32 7. David Lelei (Kenýa) .........3.33,82 8. Driss Maazouzi (Frakklandi) .. .3.34,02 9. Steve Holman (Bandar.) ......3.34,32 10. Granan Hood (Kanáda) .......3.35,35 II. Adil Kaouch (Marokkó) ......3.47,05 ■ Noureddine Morceli frá Alsír lauk ekki hlaupinu. 800 m hlaup kvenna: 1. Ludmila Formanova (Tékklandi) .1.56,68 2. Maria Lurdes Mutola (Mósambik) 1.56,72 3. Svetlana Masterkova (Rússlandi) .1.56,93 4. Jearl Miles-Clark (Bandar.) ...1.57,40 5. Natalya Tsyganova (Rússlandi) . .1.57,81 6. Natalya Gorelova (Rússlandi) ... .1.57,90 7. Stephanie Graf (Austurríki) ...1.57,92 8. Natalya Dukhnova (Hvíta-Rússl.) 1.58,69 Kringlukast karla: 1. Anthony Washington (Bandar.) . .69.08 2. Juergen Schult (Þýskal.) .......68.18 3. Lars Riedel (Þýskal.) ..........68.09 4. Virgilyus Alekna (Litháen) .....67.53 5. Vaclavas Kidykas (Litháen)......65.05 6. Michael Mollenbeck (Þýskal.) ... .64.90 7. V. Dubrovshchik (Hv-Rússl.).....64.00 8. A. Borichevskiy (Rússl.)........63.59 9. Li Shaojie (Kína) ..............63.22 10. Aleksander Tammert (Eistlandi) .62.29 11. Robert Fazekas (Ungveiýal.).....61.71 10.000 m hlaup karla: 1. Haile Gebrselassie (Eþíópía) . .27.57,27 2. Paul Tergat (Kenýa) .........27.58,56 3. Assefa Mezgebu (Eþíópía) ... .27.59,15 4. Girma Tolla (Eþíópía) .......28.02,08 5. Antonio P:into (Portúgal) ...28.03,42 6. Habte Jifar (Eþíópía) .......28.08,20 7. Benjamin Maiyo (Kenýa) .... .28.14,98 8. Kamiel Mease (Hollandi) .... .28.115,58 9. David Chelule (Kenýa) .......28.17,77 10. Khalid Skah (Marokkó) .......28.25,10 11. Hendrick Ramaala (S-Afríku) . .28.25,57 12. Toshinari Takaoaka (Japan) .. .28.30,73 13. Joao N’Tyamba (Andorra) ... .28.31,09 14. Enrique Molina (Spáni)........28.37,19 15. Ismail Sghyr (Marokkó) ......28.41,49 16. Said Berioui (Marokkó)......J28.46,77 17. Mohamed Ezzher (Frakklandi) 28.47,01 18. Keryi Takao (Japan) .........28.49,95 19. Jose Manuel Martinez (Spáni) 28.55,87 20. Satoshi Irifune (Japan) .....29.04,09 21. Brad Hauser (Bandar.) .......29.18,21 22. Peter Julian (Bandar.).......29.20,31 23. Enoch Skosana (S-Afríku) ... .29.30,51 24. Alejandro Salvador (Mexíkó) . .29.36,58 25. Bruno Toledo (Spáni) ........29.39,28 26. Sean Kaley (Kanada)..........29.52,35 27. Samir MousSaoui (Alsír) .....30.20,24 ■ Shadrack Hoff (S-Afríku), Alan Culpepper (Bandar.), Jon Brown (Bretlandi) og Ali Mabruk El-Zaidi (Líbýu) luku ekki hlaupinu. Gotf Opna Toyota-mótið Leikið var á Grafarholtsvelli á sunnudag. Án forgjafar: 1. Björgvin Sigurbergsson, Keili.......73 2. Haraldur Heimisson, GR..............76 3. Sigurjón Amarsson, GR ..............77 Með forgjöf: 1. Vignir Bragi Hauksson, GR ..........67 2. Matthías Einarsson, GR .............68 3. Arnar Gauti Reynisson, GR ..........68 Opna Sandgerðismótið Mótið fór fram á Vallarhúsavelli Golfklúbbs Sandgerðis á sunnudag. Án forgjafar: 1. Helgi Birkir Þórisson, Keili........70 2. Davíð Jónsson, GS...................74 3. Þröstur Ástþórsson, GS..............75 Með forgjöf: 1. Óskar Þórhallsson, GSG .............63 2. Auðunn Gestsson, GSG................67 3. Gústaf Alfreðsson, GR...............68 Opna Merrild-mótið Mótið var haldið hjá Keili á laugardag. Án forgjafar: 1. Tryggvi Traustason, GSE.............75 2. Ólafur Þðr Ágústsson, Keili ........77 3. Gunnar Marel, Keili.................78 Með forgjöf: 1. Jón Tryggvi Helgason, GSE...........71 2. Gunnar Marel, Keili.................72 3. Stefán Harðarson, GSE...............73 Landsmót unglinga Mótinu lauk í Vestmannaeyjum á sunnudag. Drengir, 12-13 ára: 1. Sigurbergur Sveinsson, GR..........245 2. Arnar Vilberg Ingólfsson, GH.......251 3. Elfar Halldórsson, GA..............264 Drengir, 14-15 ára: 1. Kári Haraldsson, GV................236 2. Ingvaldur Ben Erlendsson, Keili ... .238 3. Magnús Lárusson, Kili..............241 Drcngir, 16-18 ára: 1. Guðmundur Ingvi Einarsson, GSS .. 228 2. Tómas Salmon, GR...................230 3. Ingvar Karl Hermannsson, GA........230 Stúlkur, 12-13 ára: 1. Tinna Jóhannsdóttir, Keiii.........195 2. María Ósk Jónsdóttir, GA...........230 3. Eva Bjork Halldórsdóttir, GSS......246 Stúlkur, 14-15 ára: 1. Harpa Ægisdóttir, GR...............274 2. Kristín Rós Kristjánsdóttir, GR .... .274 3. Ingibjörg Einarsdóttir, GR.........281 Stúlkur, 16-18 ára: 1. Helga Rut Svanbergsdóttir, Kili....239 2. Nína Björk Geirsdóttir, Kili ......249 3. Katrín Dögg Hilmarsdóttir, Kili....251 I KVOLD Knattspyrna Efsta deild karla Vestmannaeyjar: IBV - Valur.....18 Firmakeppni Firma- og hópakeppni Hauka í knattspyrnu fer fram á Asvöllum 28. og 29. ágúst. Skráning og upplýsingar í síma 897 0143 HM I SEVILLA IÞROTTIR Enn sigrar Eyðimerkurprinsinn í 1.500 m hlaupi Enginn ógnaði El Gueirouj ÞRJÚ mótsmet voru sett á fimmta keppnisdegi heimsmeist- aramótsins þegar keppt var til úrslita í sex greinum. Það gerðu Anthony Washington, Bandaríkjunum, sem sigraði óvænt í kringlukasti, Marokkómaðurinn Hicham El Guerrouj, sem stórbætti mótsmetið í 1.500 metra hlaupi er hann sigr- aði í greininni og Michaela Melinte setti einnig met er hún sigraði í sleggjukasti kvenna. Eyðimerkurprinsinum, Hicham I Ivar Benediktsson skrífar frá Sevilla El Guerrouj, heimsmethafa í 1.500 metra hlaupi og mfluhlaupi, var ekki ógnað í úr- slitum 1.500 metra hlaupsins í gær. Landi hans, Adil Ka- ouch, hélt hraðanum upp fyrri hluta hlaupsins en þá tók E1 Guerrouj við og bætti í seglin hvenær sem einhver andstæðinga hans reyndi að ógna honum. Ekk- ert virtist geta komið í veg fyrir sigur Marokkómannsins á síðustu 200 til 300 metrunum. Sigurtíminn var 3.27,65 mínútur og þar með bætti E1 Guerroj gamla mótsmetið um fimm sekúndur. Það átti Noureddine Morceli frá HM í Tókíó 1991. Morceli var með að þessu sinni en heltist úr lestinni. Kenýamaðurinn Noah Ngeny varð annar á 3.28,73, Kenýameti og Spánverjinn Estévez varð þriðji á 3.30,57. „Mér fannst þetta vera létt og mér flaug aldrei í hug fyrirfram annað en ég myndi vinna örugg- lega,“ sagði E1 Guerrouj, sem þama vann 1.500 metra hlaup á þriðja heimsmeistaramótinu í röð. Fyrstu gullverðlaun dagsins fóru til Rúmeníu þegar Mihaela Melinte kastaði kvenna lengst í sleggjukasti, 75,20 metra, en eins og í stangarstökki kvenna var nú keppt í sleggjukasti í fyrsta sinn í kvennaflokki. Sigur Melinte var mjög öruggur, hún var 77 sentí- metrum frá eigin heimsmeti og 2,7 metrum á undan fyrrverandi heimsmethafa, Olgu Kuzenhovu, Rússlandi, er varð önnur. Tékkinn kom á óvart Óhætt er að segja að óvæntustu úrslit dagsins hafi verið sigur Tékkans Ludmilu Formanovu, í 800 metra hlaupi kvenna. Fyrir- fram var vitað að hún væri sterk en flestir hölluðust að því að annað- hvort rússneski ólympíumeistarinn Svetlana Masterkova eða heims- meistarinn frá því í Stuttgart, Maria Mutola, myndu fara með sigur af hólmi enda marga fjöruna sopið á stórmótum. Jeal Miles Cl- ark frá Bandaríkjunum hafði for- ystu fyrstu 400 metrana. Þegar komið var inn á beinu brautina nálgaðist Formanova fremstu keppendur, sótti að Masterkovu, sem virtist stífna og átti ekkert svar. Á lokametrunum stakk For- manova sér fram og krækti í gullið, var fjórum hundraðshlutum á und- an Mutolu á tímanum 1.56,68 mín- útu. Masterkova var þriðja á 1.56,93. „Auðvitað mætti ég til leiks til þess að vinna verðlaun, en frómt frá sagt taldi ég möguleikann á gulli ekki vera fyrir hendi, raun- hæft væri að sækjast eftir brons- inu,“ sagði Formanova, er hún hafði kastað mæðinni. „Þegar ég kom út úr síðustu beygjunni fékk ég olnbogaskot frá einum andstæð- inga minna, þá taldi ég möguleik- ann á verðlaunum vera úr sögunni. En skyndilega opnaðist fyrir mér og ég tók á sprett sem entist alla leið í markið. Það var hins vegar ekki fyrr en tilkynnt var í hátalara- kerfinu að ég hefði unnið sem ég gerði mér grein fyrir að gullið hefði fallið mér í skaut.“ Sigurganga Riedels stöðvuð Endir var bundinn á sigurgöngu Þjóðverjans Lars Riedels í kringlu- kasti á heimsmeistaramóti í gær. Riedel, sem hefur unnið kringlu- kastið á undanförnum femum heimsmeistaramótum náði sér ekki á sama strik og oft áður og varð að gera sér þriðja sætið að góðu. Bandaríkjamaðurinn Anthony Washington sigraði á nýju móts- meti sem hann setti í síðustu um- ferð, 69,08 metrar. Fram til þess var Washington í fimmta sæti með 66,29 metra. Heimsmethafinn, Jurgen Schults, varð annar, kastaðí 68,18 í fyrstu umferð og hafði forystu allt þar til kom að Washington. I síðustu umferðinni gerði Riedel ógilt en Schults gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að hrifsa til sín gullið en allt kom fyrir ekki og það mældist aðeins 65,05. Fáum kom hins vegar á óvart að ekki tókst að binda endi á sigur- göngu Haile Gebrselassie, Eþíópíu, er hann reyndi sig við 29 aðra Morgunblaðið/Kristinn Eyðimerkurprinsinn frá Marokkó, Hicham El Guerrouj, liggur á hlaupabrautinni á Ólympíuleikvanginum í Sevilla og fagnar sigri i 1.500 m hlaupi. hlaupara í 10.000 metra hlaupi. Gebrselassie sem ekki hefur tapað hlaupi svo árum skiptir hljóp eins og sá sem valdið hefur og kom brosandi út að eyrum er hann kom í mark á 27.57,27 mínútu, sem ekki þykir sértakur tími nú til dags. Ánnar varð paul Tergat, Kenýa, á 27.58,56 og landi Gebrselassie, Assefa Mezgebu, varð þriðji á 27.59,15. Gebrselassie hefur nú unnið gullverðlaun í 10 km hlaupi á fernum mótum í röð. Brautin í Sevilla er hörð KEPPENDUR í lengri hlaupum á heimsmeistaramótinu hafa kvartað nokkuð yfir því hve hörð hlaupabrautin er og við lagningu hennar hafi aðeins verið hugsað um spretthlaupara. Er þetta sama gagnrýni og kom fram um hlaupabrautina á Ólympíuvellinum í Atlanta 1996. Neituðu þá nokkrir hlauparar, sem voru skráðir í fleiri en eina grein, að hlaupa nema í einni. Harðar brautir henta mjög vel til spretthlaupa því þær gefa tækifæri á hraðari hlaupum, en þegar komið er út í lengri hlaup, þá eiga hlauparai' það á hættu m.a. að fá beinhimnubólgu sé hlaupið á harðri braut. Það eru hins vegar ekki aðeins lang- hlauparar sem láta illa af brautinni. Silf- urverðlaunahafinn í hástökki karla, Kanadamaðurinn Mark Boswell, sagði eftir keppnina í fyrrakvöld að brautin hentaði alls ekki fyrir hástökk, svo hörð væri hún. GOLF James valdi Coltart MARK James, liðsstjóri Ryder-liðs Evrópu, kom gervöllum golf- heiminum á óvart er hann valdi Skotann Andrew Coltart í lið Evrópu, sem mætir Bandaríkjamönnum í Ryder-keppninni í Massachusettsríki í næsta mánuði. Coltart hefur aldrei áður leikið í keppninni, sem og sex aðrir kylfingar, sem raunar unnu sér rétt til þátttökunnar eftir stigakeppni, sem lauk eftir mót helgarinnar á evrópsku mótaröðinni í Munchen í Þýskalandi. Hinir nýliðamir sex í sveit Evr- ópu, sem skipuð er tólf kylfing- um, eru Skotinn Paul Lawrie, sem sigraði á Opna breska mótinu í Camoustie, Miguel Angel Jimenez frá Spáni, landi hans Sergio Garcia sem varð annar í PGA-meistara- mótinu í Bandaríkjunum fyrir rúmri viku, Svíinn Jarmo Sandelin, Frakkinn Jean Van de Velde sem varð frægm' er hann missti af sigrinum í Opna breska mótinu, og Irinn Padraig Harrington. Aðrii’ þrír kylfingar hafa aðeins leikið einu sinni í Ryder-keppninni; Lee Westwood frá Englandi, Norð- ur-írinn Darren Clarke og hinn sænski Jesper Parnevik, hinn kylfingurinn sem James valdi í liðið, en liðsstjórinn fær að velja tvo kylfinga tfl viðbótar við þá tíu sem vinna sér sess í liðinu í stigakeppn- inni. Því hafa aðeins tveir iiðsmenn Evi'ópu leikið oftar en einu sinni í Ryder-keppninni, sem fer fram annað hvert ár. Það er Skotinn Col- in Montgomerie og Jose Maria 01- azabal frá Spáni, sem er sá eini í lið- inu sem hefur unnið sigur á stór- Bubka ekki með ÞEGAR keppt verður til úrslita í stang- arstökki karla á heimsmeistaramótinu lýkur einstökum kafla heimsmethafans, Sergeis Bubka, í greininni. Hann hefur unnið stangarstökkskeppnina á öllum sex heimsmeislaramótunuin sem haldin hafa verið en fyrsta mótið fór fram í Helsinki 1983. Bubka var ekki með í undankeppninni í gær og ver því ekki titii sinn í enn eitt skiptið. Erfiðlega hef- ur gengið að fá upplýsingar um hvemig á því stendur en vitað er Bubka hefúr glimt við meiðsl í hásinum undanfarin ár og hefur af þeim sökum lítið sem ekkert keppt frá HM í Aþenu fyrir tveimur ár- Dvorák á góðu róli Knattspyrnudeild Hauka HEIMSMETHAFINN í tugþraut karla, Tékkinn Tomás Dvorák, hefur forystu eftir fyrri dag tugþrautarinn- ar, með 4.582 stig, sem er 64 stigum færri en þegar hann setti heims- met sitt, 8994 stig, í Prag fyrstu helgina í júlí sl. Annar í þrautinni er ungur Breti, Dean Macey, með 4.546 stig, en Macey er að koma sterkur til leiks eft- ir að hafa verið fjarri keppni í tvö ár vegna meiðsla. Bandaríkjamaðurinn Ivar Benediktsson skrífar frá Sevilla Chris Hufffins er þriðji með 4.463 stig og Erki Nool, Eistlandi, er fjórði, hef- ur önglað saman 4.416 stigum. Rúss- inn Lev Lobodin er fimmti með 4.356 stig. Dvorák hljóp 100 metrana á 10,60 sekúndum, stökk 7,98 metra í lang- stökki og hefur aldrei gert betur. Þá varpaði hann kúlu 16,49, stökk 2 metra í hástökki og hljóp 400 metrana á 48,42 sekúndum. Haldi Dvorák sínu striki er ekki ósennilegt að hann verji tign sína sem heimsmeistari, en hvort hann bætir heimsmetið er erfitt að segja um. Það mun verulega ráðast á árangri hans í stangarstökki, en hann hefur verið brokkgengur í þeirri grein undanfarin ár. Huffins virkaði áhuga- lítill síðari hluta dagsins og stökk að- eins 2 metra í hástökki sem er langt frá hans besta. Erki Nool er ekki nærri því eins sterkur og á Evrópu- meistaramótinu í fyrra, en enginn skyldi afskifa hann enn sem komið er þar sem sterkasta grein hans, stang- arstökk, er eftir. Oft er betur heima setið en af stað farið Þegar íþrótta- menn eru í fremstu röð í heim- inum og keppa á meðal þeirra bestu á stórmótum íþróttanna hljóta þeir að gera ríkar kröfur til sjálfra sín. Gildir þá einu hvort þeir eru að taka þátt í hóp- eða einstaklingsíþróttum. Krafan er um árangur og að taka framför- um, uppskera laun erfiðis síns eftir þrotlausar æfingar. Með góðum árangri íþróttamanna eykst áhugi almennings og fjöl- miðla á viðkomandi og efalaust finna menn fyrir auknum kröfum um leið. Kannski ekki óeðlilegt þar sem fremstu íþróttamenn heims eru atvinnumenn, geta ein- beitt sér að æfingum og keppni, það er þeirra vinna. Enginn hefur neytt þá til starfans. Enginn krefst þess heldur að íþróttamað- ur, sem ekki gengur heill til skóg- ar, taki þátt í erfiðu móti eða keppni þar sem kastljósið beinist að honum. Vilji hann vera þátt- takandi hlýtur það að vera af SEVILLABREF þeirri ástæðu að hann langar til þess. Þá vill hann um leið sanna sig og sýna að hann hafi eitthvað fram að færa. Iþróttamaður sem er meiddur hefur sjaldnast nokk- uð fram að færa og síst þegar hann hefur ekki trú á sjálfum sér og að hann geti náð árangri þrátt fyrir meiðslin. Þegar svo er kom- ið er best að halda sig til hlés, gróa sára sinna og reyna að hugsa um önnur atriði sem koma íþróttinni við. Keppni í fremstu röð snýst nefnilega ekki eingöngu um hæfileika og líkamlegan styrk, hún snýst einnig um and- legan styrk. Sumir ná aldrei að sýna sitt rétta andlit á stórmót- um, þegar hvað mest er lagt und- ir og undirbúningur hefur verið vandaður sem aldrei fyrr. Til eru um þetta fjölmörg dæmi, bæði meðal íslenskra íþróttamann og erlendra. Sé krafan um þátttöku, þrátt fyrir meiðsli eða veikindi, komin frá styrktaraðilum eða öðrum þeim sem að baki íþróttamannsins standa er Ijóst að ekki er allt með felldu. Þá eru allir á villigötum en því miður er það svo að peningar eru víða famir að leika alltof stórt hlutverk í íþróttum í heiminum. Á stórmót íþróttanna, Ólympíu- leika, heimsmeitaramót, Evrópu- mót, fara atvinnumenn í fremstu röð til þess að vinna; gamli ung- mennafélagsandinn, að vera ein- ungis með, á ekki við. Hann átti kannski við í árdaga Ólympíuleika, en ekki lengur, og vart er hægt að segja að sá andi eigi enn við lands- mót ungmennafélaganna, hvað þá meira. Atvinnumenn sem hugsa á þann hátt eiga að halda sig heima. Gangi menn ekki heilir til skóg- ar eiga þeir ekkert erindi á stór- mót, hvort sem þeir keppa í hóp eða sem einstaklingar. Um leið eiga þeir að vera hreinskilnh' við sjálfa sig og aðra með því að leggja spilin á borðið og segja hreint út að þeir geti ekki keppt. Þar með eru engar vonir byggðar upp, vonir sem eru reistar á ein- tómum sandi. Slíkt er ekki til þess fallið að auka á trúverðugleika íþróttahreyfingarinnar eða íþróttamanna. Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum stendur nú yfir í Sevilla. Þangað fóru íslenskir íþróttamenn sem höfðu ekki heilsu til þess að keppa og ná þeim ái'angri sem reiknað var af þeim. Vissulega hafa meiðsl verið að hrjá þá suma, en úr því að þeir gáfu kost á sér tfl að keppa, og létu jafnvel allvel af sér, var von til þess að þeir gætu staðið sig í stykkinu. Því miður var ekki svo og því miður er þetta ekki í fyrsta skipti sem það á sér stað. Aldrei virðast íþróttamenn, eða þeir sem næstir þeim standa, ætla að læra að kapp er best með forsjá. Á stórmótum reiknast það ekki að vera einvörðungu með. Oft er betur heima setið en af stað far- ið. Kveðja frá Andalúsíu, fvar Benediktsson móti - tvívegis í bandarísku meist- arakeppninni, öðru nafni Masters, í Augusta í Georgíuríki. Sveit Banda- ríkjanna hefur sigrað á samtals tíu stórmótum. Það vekur athygli að Mark James valdi ekki Bernhard Langer, eins og flestir bjuggust við, Nick Faldo, sem hefur ávallt verið í liðinu síðan 1979, eða Svíana Per-Ulrik Johans- son eða Robert Karlsson, sem Par- nevik átti von á að yrði í liðinu. James heltist sjálfur úr lestinni Evrópa hefur hampað Ryder-bik- amum tvisvar í röð - á Oak Hill í Bandaríkjunum 1995 og á Vald- errama á Spáni í hitteðfyrra. Þá var heimamaðurinn Severiano Bal- lesteros liðsstjóri, en hann gaf ekki kost á sér fyrir keppnina í ár. Því var Mark James valinn til starfans og hefur hann nú þegar verið harð- lega gagm-ýndur fyrir val sitt á Coltart, auk þess sem hann dró lengi þá ákvörðun sína hvort hann myndi leika með liðinu ef hann ynni sér sjálfur þátttökurétt í keppninni. Lengi vel leit út fyrir að hann yrði á meðal þeirra tíu sem komast sjálf- krafa í liðið, en hann heltist úr lest-. inni á móti helgarinnar í Miinchen. Þriðja heimsmet Thorpes ÁSTRALSKI táningurinn Ian Thoiiie setti heimsmet í 200 m skriðsundi karia á sund- meistaramóti Kyrrahafsþjóða í gær en mútið fer fram í Sid- ney í heimalandi piltsins. Thorpe, sem er aðeins sextán ára, synti á 1,46 mín. - bætti þannig eigið met frá undan- rásunum í fyrradag um rúina þijá tíunduhluta úr sekúndu. Thorpe setti einnig heimsmet í 400 m skriðsundi í úrslitum á sunnudag, bætti þá eldra metið um tæpar tvær sekúnd- ur. „Ég hef aldrei upplifað annað eins og mun líklega ekki gera það í bráð,“ sagði Thorpe. Þá setti Bandaríkjamaður- inn Lenny Krayzelburg heim- set í 100 m baksundi í gær er hann kom í mark á 53,60 sek. Eldra metið var 53,86 sek. en það setti landi hans, Jeff Rou- se, á Ólympíuieikunum í Barcelona 1992.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.