Morgunblaðið - 25.08.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 25.08.1999, Síða 4
Jón Arnar telur rétt að hafa haldið utan til þátttöku í Sevilla Viðkvæmari en ella sökum veikindanna Anja hætt DANSKA handknattleikskon- an Anja Andersen er hætt keppni vegna hjartabilunar. Andersen, sem hefur um ára- bil verið ein fremsta hand- knattleikskona heims, hneig niður öðru sinni á árinu og komust sérfræðingar að þeirri niðurstöðu að hún ætti við hjartakvilla að stríða sem gæti riðið henni að fullu ef hún héldi keppni áfram. Akvörðun Andersen vakti mikla athygli í Noregi, þar sem hún hefur leikið með Bakkelaget undanfarin ár, og í Danmörku, en í báðum þess- um löndum er handknattleik kvenna veitt mikii eftirtekt. Anja, sem er þri'tug að aldri, er ekki hætt afskiptum af handknattleik, en hún hyggst taka að sér þjálfun. „NU var ég búinn að jafna mig á hnémeiðslunum, en sennilega hef ég verið viðkvæmari en ella í keppninni sökum veikind- anna sem sóttu á mig í nótt, þótt ekki sé hægt að segja að veikindin séu bein sök, en þau gerðu mig viðkvæmari,“ sagði Jón Arnar Magnússon tugþrautarmaður eftir að hann hafði hætt keppni vegna tognunar í nára í fyrstu grein, 100 metra hlaupi. Fyrirfram var ég nokkuð bjart- sýnn þar sem ég var orðinn laus við hnémeiðslin og hafði náð upp hraða og snerpu ha^enedHT- á nýjan leik auk þess son Skrifar sem aðrar greinar frá Sevilla gengu vel.“ Þess vegna telur þú rétt að koma hingað og keppa? „Já, ég taldi það því ég fann ekki fyrir neinum meiðslum, a.m.k. ekki þannig að ég gæti ekki verið með af fullum krafti." Hafðir þú ekkert orðið var við þessi nárameiðsli á lokasprettin- um? „Eg hafði aðeins fundið fyrir þeim fyrir þremur vikum er ég var í æfingabúðum hér á Spáni, en síð- an hurfu þau á einum til tyeimur dögum, en ég fann lengur íyrir tognun sem ég varð fyrir í kviðn- um.“ Hvað með þessi veikindi sem voru að hrjá þig nóttina fyrir keppnina? „Eg set þau í samband við heift- arlegt mýbit sem ég varð fyrir í Portúgal á sunnudaginn og í fram- . haldi af þeim bólgnaði ég mjög bæðýá framhandleggjum og á fót- um. I nótt svaf ég og undir morg- un leið mér illa og kastaði meðal annars upp. Eftir það var ég flutt- ur til læknis sem skoðaði mig og gaf mér sprautu. Það sló mjög á og þegar ég kom út á völl til þess að hita upp leið mér ágætlega, en var eflaust svolítið dasaður." Verð að læra af þessari erfiðu reynslu Þetta er óhappaár, hefur það þannig áhrif á þig að þú komir til með að hætta í íþróttum nú og fá þér einhverja aðra vinnu, eða hef- ur það öfug áhrif og hvetur þig til þess að halda áfram til þess að sanna að þú sért ekki búinn að vera sem íþróttamaður? „Eg á eitt ár eftir af samningum mínum við ýmsa aðila, þar á meðal íþróttahreyfinguna, og það stend- ur ekkert annað til hjá mér en að standa við þá. Þess í stað verður maður að læra af þessari erfiðu reynslu sem ég hef fengið á þessu ári og koma sterkari til leiks en áð- ur á næsta ári,“ segir Jón Arnar Magnússon. IP|W Morgunblaðið/Kristinn JÓN ARNAR hleypur samsíða Þjóðverjanum Frank Busemann, sem varð einnig að hætta keppni. Litið á það sem uppgjöf „ÉG tel ekki að þetta brottfall Jóns Arnars úr þrautinni sýni að hann hafi ekki átt erindi á mótið,“ sagði Gísli Sigurðsson, þjálf- ari Jóns Arnars Magnússonar tugþrautarmanns, eftir að Jón féll úr keppni vegna meiðsla í nára eftir fyrstu grein tugþraut- arinnar, 100 metra hlaup, á heimsmeistaramótinu í Sevilla snemma í gærmorgun. „Hins vegar kom þessi lasleiki sem hrjáði hann í nótt og í morgun i opna skjöldu og tognunin sem hann varð fyrir í lærinu vona ég að sé minniháttar, en ég veit að hann fann einnig fyrir þegar hann tognaði í kviðnum í æf- ingabúðunum hér á Spáni fyrir þremur vikum. En það var minniháttar og þá fann hann ekki fyrir verkjum nema í einn eða tvo daga í mesta lagi í tengslum við ákveðnar æfingar. Nú tengi ég þetta saman við það hvernig hann vaknaði til dagsins og spennunnar í kringum það allt.“ Hljóm- sveit Erki Nool Stuðningsmannaklúbbur eistneska tugþrautarmanns- ins Erki Nools fylgir að sjálf- sögðu sínum manni á heims- meistaramútið í Sevilla. Húp- urinn telur á milli eitt og tvö hundruð manns og hefur hann oft sett mjög skemmti- legan svip á alþjúðleg frjálsí- þrúttamút á síðustu árum. Þetta eru landar Nools, sem koma til að styðja hann og njúta skemmtunar utan vall- ar sem innan, hvar sem keppt er. Meðal annars eru ágætir hljúðfæraleikarar í húpnum sem leika þekkta slagara úr ýmsum áttum hvenær sem kostur gefst. • T.d. slú sveitin á Iútta strengi til að heiðra sigurvegarann í 10 þús. metra hlaupi karla, Haile Gebrselassie, er hann hljúp sigurhring sinn í gær- kvöld. Gísli segir að Jón hafi vaknað upp lasinn í nótt sem sé líklega af- leiðing af miklu mýflugnabiti sem hann varð fyrir á ívar Benedikts- Bunnudaginn Þá var ™ ^krifar strax gTipið i taumana MSevt og fengið krem og vonaðist Gísli til þess að það væri úr sögunni. Annað kom á daginn í morgun og var þá kallaður til læknir sem gaf Jóni Arnari sprautu eftir að hann hafði kastað upp. Nú hefur þetta ár frá því á HM innanhúss verið erfítt og einkennst af sífelldum meiðslum. Hefði í ljósi þess ekki verið skynsamlegra að vera heima í stað þess að koma til Sevilla? „AUs ekki, það hefði að mínu mati verið afar óskynsamlegt að sleppa þessu móti þrátt fyrir það sem á undan er gengið. Ég hefði litið á það sem uppgjöf, meiri uppgjöf en ég hefði sætt mig við. Miðað við stöðuna hjá Jóni íyrir þremur vikum þegar við vorum að ljúka við erfiðasta hluta æfingaáætlunar okkar, og hún fór fram á Spáni, benti ekkert til þess að hann gæti ekki keppt hér. Þá hefði það hreint og beint verið heimsku- legt og allt að því hlægilegt að hætta við. Þá voru engar efasemdir vegna hnésins sem hefur valdið okkur vanda. Jón var orðinn góður og stökk tvo metra í hástökki og gekk vel í langstökki. Það var ákveðinn sigur en vissulega getur það ekki talist sigur að falla úr keppni á stór- móti sem þessu. Vonandi eru hné- meiðslin að baki en því miður erum við ekki vissir þar sem það reyndi aldrei á það.“ Telurþú að þetta erfíða ár verði til þess að slá hann út af laginu og hafí áhrif á framtíð hans ííþróttunum nú þegar Olympíuár er framundan? „Það vona ég svo sannarlega ekki. Ég vænti þess hins vegar að þetta hafi áhrif á hann og sýni honum að meiðsli og glíma við þau séu hluti af því að vera afreksmaður í íþróttum alveg eins og að keppa við heimsmet- hafa. Síðan okkar samstarf hófst fyr- ir nokkrum árum hefur hann siglt áfram áfallalaust. Hann hefur lent í ýmsum smávægilegum meiðslum, en ekki orðið fyrir neinum sem teljast meiriháttar og hamla meiriháttar æfingum um langan tíma. Að sjálfsögðu vonast ég til þess að Jón komi upp sterkari eftir þetta erfiða tímabil en hann hefur áður verið. Þetta allt saman á að geta þroskað hann sem íþróttamann. En það er áfall fyrir hann, að falla úr leik á stórmóti, hvenær sem það ger- ist. Nú fer hins vegar að styttast í hinn skilgreinda endapunkt okkar, Ólympíuleikana í Sydney. Ég veit að ég er með íþróttamann í höndunum sem getur hlaupið enn hraðar í 100, 400 og 1.500 metra hlaupi. Einnig vil ég að hann nái að minnsta kosti að jafna sinn besta árangur í kringlu- kasti, spjótkasti og kúluvarpi og geri enn betur í stökkum. Þetta vil ég að sjálfsögðu sjá gerast á næstu Ólymp- íuleikum og eins og málum háttar nú sé ég ekkert sem ætti að vera því til fyrirstöðu. Það væri að mínu mati meiriháttar vitleysa að gefast upp núna þótt hann hafi gengið í gegnum meiðsla- öldu á þessu ári. Jón hefur aldrei lent í meiriháttar meiðslum og því hafa allir verkir afar slæm áhrif á hann.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.