Morgunblaðið - 19.09.1999, Qupperneq 2
Getum við
spornað gegn
sjúkdómum og
hrörnun?
Andoxunarefni er hópur
vítamína, steinefna og
fæðubótaefna sem vinna
gegn frumuskemmandi á-
hrifum sindurefna. Sindurefni eru
afar óstöðug, eyðileggjandi og hvarf-
gjörn súrefnismólikúl. Þau ráðast á,
skaða og eyðileggja næstum því allt
efni og þar sem þau umleika líkama
okkar á hverjum degi hafa þau afar
slæm áhrif á heilsu okkar og það al-
varleg áhrif. Þau valda frumu-
skemmdum, krabbameini, margvís-
legum hrörnunarsjúkdómum svo sem
hjarta- og æðasjúkdómum, auk þess
sem þau veikja ónæmiskerfið.
Vísindamenn telja að sindurefni or-
saki ótímabæra öldrun og sumir
þeirra taka svo djúpt í árinni að rekja
60 til 80 af algengustu heilsufars-
vandamálum vestrænna samfélaga til
áhrifa þeirra á líkama okkar. Andox-
unarefni eru talin vernda vefi líkam-
ans með því að hindra efnahvörf sem
annars framleiða skaðleg sindurefni.
Til að standast árásir sindurefna am-
leiðir líkaminn ensím sem eyða þeim
úr líkama okkar. Þrátt fyrir það
þörfnumst við andoxunarefna í formi
fæðu eða fæðubótarefna. Umhverfi
okkar framleiðir stöðugt engandi
sindurefni.
Þetta fylgiblað er gefið út af Heilsuhúsinu.
Útgefandi: Heilsuhúsið,
skrifstofusími: 533 3232
Ábyrgðarnmaður: Örn Svavarsson
Hönnun og umbrot: Kraftaverk
Prentun og dreifing: Morgunblaðið
Sígarettureykur, mikil sól, geislun,
eiturefni, og ýmiskonar innri efna-
hvörf, svo sem umbreyting fitu í
orku, allt fjölgar þetta sindurefnum í
líkama okkar.
Á sama tíma og vísindamenn rann-
saka á hvern hátt mismunandi ndox-
unarefnivernda líkama okkar gegn
eyðandi áhrifum sindurefna, reynum
við að finna öflugri andoxunarefni til
að verja okkur með. Þekktust eru
beta-karótín, C-vítamín, E-vítamín,
sink, selen, kóensím Q-10, glútatíon,
ginkgo biloba og þrúgukjarnaþykkni.
Ýmsar fæðutegundir eins og tómatar,
spergilkál og grænt te eru rík af
andoxunarefnum.
Dr. Andrew Wfeil, höfundur bókar-
innar Lækningarmáttur líkamans,
ráðleggur sjúklingum sínum að taka
inn „andoxunarkokteil" sem sam-
anstendur af C-vítamíni, E-vítamíni,
seleni og beta-karótíni til að vinna
gegn sindurefnum. Hann segir: „Ég
vil að þú byrjir að taka inn ofantalin
efni og haldir því áfram stöðuglega.
Þau geta ekki gert þér neitt illt en
vemda hins vegar ónæmiskerfi þitt
og seinka öldrun ásamt því að verja
þig fyrir krabbameini. Mundu að
þegar þú tekur inn þessi fæðubótar-
efni ert þú að gera eitthvað raunhæft
til að minnka hættu á krabbameini."
Bókin Lækningamáttur líkamans
fæst í Heilsuhúsinu.
Safa-bar í endurnýiuðu Heilsuhúsi
Heilsuhúsið í Kringlunni hefur verið endurnýjað
algerlega og skartar núveglegum safa-bar. Þar er boðið
upp á nýpressaða ávaxtasafa og grænmetissafa og
blöndur af þessum söfum, einnig hveitigrassafann
kjarnmikla sem þotuliðið í Hollywood hefur gert
vinsælan. Hveitigrassafinn er pressaður úr hveitigrasi
sem klippt er og pressað eftir hendinni.
Hann er hlaðinn bætiefnum, ensímum, amínósýrum og
bráðhollri blaðgrænu, svo segja má að lítið glas af þessum
safa sé algert orkuskot. Einnig eru í honum öflug
andoxunarefni. Vinsælt er að blanda honum saman við
ávaxta eða grænmetissafa. Auk þess eru í boði á
safa-barnum aðrir næringardrykkir sem margir fá sér
í stað samloku í hádeginu.
íbúar
Heilsuhússins
Meðlimaklúbbur Heilsuhússins, íbúar
Heilsuhússins hefur nú verið starfrækt-
ur í hartnær 4 ár. Meðlimir fá mánað-
arlega fréttabréfið Heilsupóstinn. í
honum eru greinar um heilsu, mat,
lífsstíl, sælkeravörur, vítamín og önnur
bætiefni svo eitthvað sé nefnt. Félags-
mönnum standa til boða vegleg tilboð
í hverjum mánuði og einn afsláttar-
dagur er í mánuði þar sem þeim býðst
verulegur afsláttur af öllum vörum
verslunarinnar. Ekkert meðlimagjald er
hjá (búum Heilsuhússins auk þess sem
áskrift Heilsupóstsins er þeim að
kostnaðarlausu.
Þú getur gerst meðlimur með því að
versla fyrir kr. 3.000,-
í einni af verslunum Heilsuhússins.
http://www.heilsa.is
Viðskiptavinir eru hvattir til að koma í
heimsókn. Netfangið er www.heilsa.is.
Þar er að finna sögu Heilsuhússins,
umfjallanir um náttúrulækningar,
gagnsemi bætiefna, gömul húsráð,
upplýsingar um baunir, uppskriftir,
greinar úr Heilsupóstinum og margt
margt fleira. Einnig er þar vöru- og
verðlisti yfir bætiefnin sem fást í
Heilsuhúsinu. Þar erum við með
skilaboðaskjóðu sem þið getið sent
fyrirspurnir í og einnig eru
upplýsingar, reynslusögur og
ábendingar frá ykkur vel þegnar.
Aðrar forvitnilegar netsíður sem
eru algerar alfræðisíður um
heilsumál eru:
mothernature.com og
prevention.com, einnig er
metalab.unc.edu/herbmed frábær
síða um lækningajurtir og kryddjurtir.
Brauð og olíur
frá okkur
fást í
Heilsuhúsinu
Mosfellsbæ & Grensásvegi 48 Reykjavík
Póstsendingar
Þeir sem ekki komast í verslanir okkar
geta lagt þar inn pantanir á
heimasíðu okkar eða hringt í búðirnar
og pantað vöru með póstkröfu.
Margir kjósa að greiða með kreditkorti
við pöntun og spara sér kröfukostnað-
inn. Þá bætist aðeins burðargjaldið
við vörukaupin.
Verslanir Heilsuhússins eru
á eftirtöldum þremur stöðum:
Skólavörðustíg 552 2966,,
Kringlunni 568 9266,
Smáratorgi 564 5666.