Morgunblaðið - 01.10.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1999 pJtrgmtiWtaMSi ■ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER BLAÐ Birkir til Lustenau BIRKIR Kristinsson, markvörður IBV og ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur verið leigður til austurríska 1. deildarliðsins Lustenau um tíma, en að sögn Jóhannesar Olafssonar, for- manns knattspyrnudeildar ÍBV, er óvíst hversu lengi Birkir verður hjá Lustenau. Þetta er sama lið og Helgi Kolviðsson, landsliðsmaður, lék með áður en hann flutti sig yfir iandamærin til þýska liðsins Mainz. Aðalmarkvörður Lustenau er meiddur og verður frá um tíma og því vantaði liðið mark- vörð til þess að fylla skarð hans. Reiknað er með að Birkir leiki sinn fyrsta leik með Lustenau um næstu helgi. Liðið er um þessar mundir í 8. sæti deildarinnar sem í ieika tíu lið, hefur fengið 14 stig úr 13 leikjum á keppnistimabiiinu. Hermann ekki á tombólu- verði RON Noades, eig- andi og knattspyrnu- stjóri enska 2. deild- arliðsins Brentford, hefur lýst því yfir að Hermann Hreiðars- son sé svo sannarlega til sölu frá liðinú - en aðeins íyrir rétt verð. Hermann hefur í vikunni verið bendl- aður við úrvalsdeild- arliðin Tottenham og Wimbledon, en Noa- des segir að lið geti gleymt því að sækja frábæra leikmenn til Brentford og greiða fyrir þá eitthvert tombóluverð. „Þetta er ekki Disneyland og hér eru engin Mikka músar-verð í gangi,“ sagði Noades, sem vill fá ríflega 300 milljónir fyrir hann. Bjarki reiðubú- inn að bíða BJARKI Gunnlaugs- son, sem kominn er til liðs við enska 2. deildarliðið Preston North End frá KR, kveðst reiðubúinn að bíða eftir tækifæri í aðalliðinu. Fjórir framherjar bítast um sæti í byrjunarliðinu. „Eg veit að sæti í byrjunarliðinu er ekki sjálfsagður hlut- ur, en ég hyggst bíða eftir tækifærinu og grípa það þá,“ segir Bjarki á heimasíðu félagsins. „Það er að- eins jákvætt að liðin búi yfir stórum leik- mannahópi, enda er keppnistímabilið langt og álagið mikið. Ég hef ekki fengið frí eftir heilt tímabil á Islandi, en ég hef sloppið við meiðsl og lánast að skora mörg mörk. Vonandi verð- ur hið sama upp á teningnum hjá Preston," segir Bjarki. Reuters Alan Shearer skoraði fyrra mark Newcastle gegn CSKA Sofiu á St. James’ Park, 2:2, sem innsiglaði áfram haldandi þátttöku Newcastle í Evrópukeppninni. _______________________________ ■ Leikirnir / C2 Newcastle hættir við að kaupa Eið Smára SVO virðist sem enska úr- valsdeildarliðið Newcastle United hafi hætt við að reyna að kaupa Eið Smára Guðjohnsen frá Bolton Wanderers. Á spjallsíðu beggja liða á Netinu er haft eftir Bobby Robson, stjóra Newcastle, að hann hafi reynt að kaupa framherja fyrir helgina, en þeir sem til greina komi séu annað hvort of dýrir eða alls ekki á lausu. Talið er að Bolton vilji fá tæpar 200 milljónir króna fyrir Eið og samkvæmt fréttum frá liðinu er alls ekki loku fyrir það skotið að hann verði seldur innan skamms. Bolton á enn í miklum fjárhagserfiðleikum og Eið- ur er sá leikmaður liðsins sem mestur áhugi virðist á. Annað úrvalsdeildarlið, Sunderland, er enn sagt á höttunum eftir íslenska landsliðsmanninum. Átta dagar í stórleikinn gegn heimsmeisturunum á þjóðarleikvanginum í París Lama mun veija mark Frakka gegn íslendingum HEIMSMEISTARAR Frakka gera nokkrar breytingar á ieikmanna- hópi sínum fyrir lokaleikinn í 4. undanriðli EM í knattspyrnu - gegn íslendingum í París annan laugardag. Markvörðurinn reynslumikli, Bernard Lama, kemur í stað Fabien Barthez sem er í leikbanni og framherjinn David Trezeguet kemur í stað Nicolas Anelkas, sem ekki hefur enn fundið sig í upphafi leiktíðar á Spáni. íslenski hópurinn verður kynntur í dag. Roger Lemerre, þjálfari Frakka, kynnti hópinn á blaðamannafundi í gær og hann bað landa sína að gleyma heimsmeistaratitlinum um stund. „Nú skiptir þessi einu leikur öllu máli, sigur eða tap og allir verða að leggjast á eitt til að uppskera. Að- eins eitt er öruggt: „Barátta og vinnu- semi er nauðsynleg til að vinna þenn- an leik. Allir verða að gera sitt allra besta fyrir liðið,“ sagði Lemeire. Trezeguet er markahæsti leikmað- ur frönsku úrvalsdeildarinnar, hefur skorað níu mörk og þótt leika geysi- vel. Lama er orðinn 36 ára og lék ekki á HM, en hefur tvívegis síðan verið valinn í franska liðið - gegn Andorra og Rússlandi. Tveir sterkir og sókn- djarfir leikmenn eru í banni auk mai’kvarðarins Barthez, þeir Christophe Dugarry og Thierry Hemy. Lemerre hefur því aðeins úr fjórum sóknarmönnum að velja; Trezeguet, Tony Vairelles og sóknar- tvennu Bordeaux, þeim Lilian Las- landes og Sylvain Wiltord. Á hinn bóginn kemur hinn sterki miðvallar- leikmaður Alain Boghossian aftur inn í landsliðshópinn eftir meiðsli. Franski landsliðshópurinn gegn Is- lendingum er annars þannig skipaður: Markverðir: Bernard Lama (Paris St Germain), Stephane Porato (Marseille). Varnarmenn: Laurent Blanc (Inter Milan), Marcel Desailly (Chelsea), Christian Karembeu (Real Madrid), Franck Leboeuf (Chelsea), Bixente Lizarazu (Bayern Munchen), Lilian Thuram (Parma). Miðvallarleikmenn: Alain Boghossian (Parma), Didier Deschamps (Chelsea), Youri Djorkaeff (Kaiserslautern), Jo- han Micoud (Bordeaux), Patrick Vieira (Arsenal), Zinedine Zidane (Juventus). Framherjar: Lilian Laslandes (Bor- deaux), David Trezeguet (Mónakó), Tony Vairelles (Lyon), Sylvain Wiltord (Bordeaux). BADMINTON: BRODDI OG ÁRNI ÞÓR ERU HÆTTIR/C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.