Morgunblaðið - 01.10.1999, Síða 3

Morgunblaðið - 01.10.1999, Síða 3
IKUR MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1999 C 3 ÍÞRÓTTIR verði og ég tel að við höfum sterka leikmenn í flestum stöðum. Ef við spilum sem ein liðsheild eins og við gerðum í kvöld getum við unnið hvaða lið sem er.“ Stórsigur hjá Keflvíkingum Islandsmeistarar Keflvíkinga unnu stórsigur á Skallagrími frá Borg- amesi í fyrsta leik sínum í úrvals- ■■■■■■I deildinni í Keflavík í Björn gærkvöldi. Lokatölur Blönda' leiksins urðu 107:76 eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 60:39. Leikurinn bauð ekki upp á mikla spennu, til þess voru yfirburðir heimamanna of miklir. Ekki er hægt að segja með sanni að leikur- inn hafi fangað huga áhorfenda. Talsvert var um óagaðan leik en þó brá fyrir ágætum glefsum. Keflvíkingar voru fljótir að ná tökum á Borgnesingum og eftir stutta stund var munurinn orðinn 10 stig, síðan 20 og í hálfleik munaði 21 stigi. 1 síðari hálfleik héldu gest- irnir lengi vel í Keflvíkinga eða allt þar til á síðustu mínútunum að heimamenn sprettu úr spori og juku muninn í 31 stig. Lið Keflavíkur er mikið breytt frá síðustu leiktíð þar sem reynslu- miklir og raunar lykilmenn eins og Falur Harðarson og Birgir Öm Birgisson róa nú á öðram miðum. En maður kemur í manns stað og í ungu leikmennirnir sem hafa tekið stöður þeirra lofa góðu. Lið Skalla- gríms náði aldrei að ógna meistur- unum og ljóst að með slíkri frammi- stöðu mun liðið ekki keppa um efstu sætin. Létt hjá Grindavík Við vissum náttúrlega að við vær- um betri en það þarf að sýna það í leiknum og það gerðum við. Það er búið að taka Garðar Páll broddinn úr Skagalið- vi9niss°n jnu en þeir mega eiga sk það að þeir héldu áfram allan tímann og með þessari baráttu munu þeir upp- skera sigra. Það var margt gott í okkar leik og margt slæmt en nú eru það kandídatarnir á sunnudag- inn þegar við föram til Njarðvíkur og þá hefst alvaran," sagði Einar Einarsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir að lið hans hafði lagt ÍA, 96:54. Leikurinn hófst með miklum lát- um, heimamenn skoraðu þriggja stiga körfu en strax á eftir fylgdi þriggja stiga karfa frá gestunum en þessi fjörlega byrjun var bara tál- sýn því leikurinn varð aldrei nein skemmtun. Munurinn á þessum lið- um var nákvæmlega eins og lokatöl- urnar gefa til kynna, 96:54 fyrir heimamenn. Skagamenn byrjuðu þó þokkalega og voru inni í leiknum fyrstu 8-9 mínútumar en svo tóku heimamenn rispu og leiðir skildu. Staðan í hálfleik var 47:23 fyrir heimamenn. Munurinn hélt áfram að aukast og var í lokin orðinn 42 Stig. : Það sem gladdi augað vai- góður leikur Guðmundar Asgeirssonar í liði heimamanna og þá áttu félagar hans i Brenton Birmingham og Bjarni Magnússon þokkalegan leik. I liði gestanna var lítið um að menn sköruðu fram úr en liðið barðist all- Morgunblaðið/Kristinn Chris Dade, bandarískur leikmaður í liði Hauka, lék vel fyrir Hafnarfjarðarliðið og skoraði 31 stig í sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni. Haukar áttu ekki ( miklum erfiðleikum með Tindastól og unnu 88:70. Grétar og Ármann til Lillestrom LÍKLEGT er að tveir íslenskir knattspymumenn til viðbótar bætist í leikmannahóp norska úrvalsd(‘ildarfélagsins Lil- lcstrom. Grétar Hjartarson, sem leikið hefur með Grind- víkingum, hefúr samþykkt þriggja ára tilboð norska liðs- iiis. Þá hefúr Lillestrom boðið Ármanni Smára Bjömssyni, leikmanni 2. deildarliðs Sindra, að æfa með því í vetur. Grétar fer í læknisskoðun á þriðjudag. Hann sagði að ef læknisskoðun gengi eftir áætlun gæti hann skrifað und- ir hjá félaginu. Þá færi hann út til Noregs alfarinn 1. des- ember. Ármann Smári, sem nýlega var valinn í landslið 18 ára og yngri, fékk tilboð sem felst í því að hann æfi með norska liðinu í sex mánuði frá 1. des- ember. Að þeim tíma liðnum færi hann aftur til Islands og léki knattspyrnu þar næsta sumar. Hann sagði ekki ör- uggt að hann yrði áfram með Sindra. Hann sagði að eftir næsta sumar hygðust fom- ráðamenn norska liðsins bjóða honum nýjan samning. Ármann Smári sagði að sér litist vel á tilboð norska liðs- ins en ætlaði að skoða það með fjölskyldu sinni næstu daga. Tveir íslendingar leika með Lillestrom; Rúnar Kristinsson og Heiðar Helguson. Helgi skoraði HELGI Sigurðsson skoraði fyrra mark gríska liðsins Pan- athinaikos í 2:0 sigri á Gorica frá Slóveníu í síðari leik lið- amia í annarri umferð Evrópu- keppni félagsliða, en leikið var í Aþenu í gær. Helgi gerði mark sitt á 38. mínútu. Helgi og félagar unnu einnig fyrri leikinn, þá 1:0, og em þar með komnir áfram í aðra umferð keppninnar. an tímann og spilaði þokkalega vöm lengstum. Það er kannski ekki við meira að búast því með- alaldurinn náði ekki 21 ári. KR-ingar fögnuðu KR-ingar fögnuðu sigri í sínum fyrsta leik í deildinni í vetur þegar að þeir lögðu KFI með 83 stigum gegn 66 í hinu nýja glæsilega íþróttahúsi sínu við Frostaskjól. Guðmundur H. Það var fátt sem reyndist KR-lið- Þorsteinsson inu ofviða í leiknum en leikmenn skrifar liðsins voru fullir sjálfstrausts frá fyrstu mínútu þrátt fyrir að þeir Ólafur Ormsson og Jónatan Bow væru utan vallar, Jónatan í leikbanni en félagaskipti Ólafs hafa ekki enn verið samþykkt. KR-ingar voru yfirleitt skrefinu á undan gestunum með fjögurra til fimm stiga forskot utan einu sinni er KFÍ komst yfir 32:31, en KR hafði yfir í leikhléi 38:34. Steinar Kaldal sýndi sérstaklega skemmtilega tilburði fyrir KR í fyrri hálfleik og átti meðal annars ágæta troðslu, en hjá KFÍ var Clifton Bush atkvæða- mestur í vörn sem sókn.í seinni hálfleik seig hægt og bítandi á ógæfuhliðina hjá KFI eftir því sem Clifton þreyttist og leikmenn liðsins áttu heldur ekkert svar við hröðum leik KR- inga sem hreinlega skiptu um gír og nýttu sér mikla breidd í leikmannahópnum. Það var sama hver kom inn á, allir stóðu vel fyrir sínu, en danski leikstjórnandinn Jesper Winter Sören- sen var samt besti maður KR í leiknum, sívinn- andi og útsjónarsamur. Það er þó ekki hægt að gera upp leik sem þennan án þess að geta frammistöðu ungu strákanna í KR, þeirra Sveins Blöndals sem gerði 12 stig og Ólafs Æg- issonar sem gerði 6, en þeir eru báðir 18 ára og Jakobs Arnar Sigurðssonar, 17 ára, sem gerði 8 stig. Leikur KFI mæddi of mikið á einum manni, Clifton, sem var búinn að skora 25 af 48 stigum liðsins eftir 30 mínútna leik og það kann ekki góðri lukku að stýra. ÚT5ALA - GOLFVÖRUR Ein stærsta sportvöruverslun landsins l/erslunin 7M4RI D 10-50% afsláttur Golfsett járn 3-SW og tré 1 -3 frá kr. 18.500, m/poka, pútter og kerru kr. 28.500 Graphide sett kr. 27.000, m/poka, pútter og kerru 37.000, 1 /2 sett fullorðins m/poka kr. 14.000 Stök járn frá kr. 1.880 Pútterar frá kr. 1.330 Graphide tré verð frá kr. 3.700 Golfkerrur verð frá kr. 3.900 Rafmagnskerrur frá kr. 45.000 Standpokar frá kr. 6.900 Golfskór 20-50% afsláttur Golfkúlur í heilum kössum 20% afsl. Golfsett: HIPPO - HOWSON Golffatnaður frá HIPPO - NIKE - ADIDAS - GREG NORMAN - OZON - GALVIN GREEN - DAVID SAX Ármúla 40 Símar 553 5320, 568 8860

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.