Morgunblaðið - 01.10.1999, Side 4
BADMINTON
Broddi og Ami Þór hættir
ÁRNI Þór Hallgrímsson, TBR,
sem hefur verið annar helming-
urinn í fremsta tvíliðaleikspari
landsins í badminton karla til
margra ára, hefur lagt keppnis-
spaðann að mestu á hilluna.
Árni Þór og félagi hans, Broddi
Kristjánsson, hafa verið ósigr-
andi í tvfliðaleik á Islandi í
mörg ár og margoft orðið ís-
Iandsmeistarar. Þá hafa þeir
einnig náð góðum árangri á
mótum erlendis, en m.a. voru
þeir þátttakendur í tvfliðaleik á
Ólympíuleikunum í Barcelona
1992.
Með þessari ákvörðun Árna
Þórs er Ijóst. að úti er um sam-
starf þeirra félaga og frekari
afrek þeirra í tvfliðaleik á bad-
minton-vellinum. Veikir það
væntanlega landsliðið eitthvað,
en það vann sér þátttökurétt á
heimsmeistaramótinu næsta vor
með glæsilegum sigri í B-heims-
meistarakeppninni sl. vor.
Broddi hefur alls ekki lagt
spaðann alveg á hilluna. Hann
er landsliðsþjálfari og hyggst
halda áfram að taka þátt í mót-
um innanlands.
Þrír stefha
á Syndey
ÞRÍR íslenskir badmintonmenn stefna að því að keppa á Ólymp-
íuleikunum í Sydney næsta haust. Það eru Brynja Pétursdóttir,
Sveinn Sölvason og Tómas Viborg, en til þess að eiga möguleika
verða þau að keppa á alþjóðlegum stigamótum sem gefa stig inn
á heimslista badmintonmanna sem gildir frá 1. maí á þessu ári
til og með 30. apríl á næsta ári. Staða á heimslistanum 1. maí á
næsta ári mun síðan ráða því hverjir öðlast þátttökurétt í bad-
mintonkeppni Ólympíuleikanna í Syndey. Af þessum sökum hafa
þremenningarnir sett stefnuna á að taka þátt í a.m.k. fimmtán
alþjóðlegum mótum í vetur og næsta vor.
Morgunblaðið/Golli
íslandsmeistarinn Tómas Viborg er búsettur í Malmö.
Að mínu mati er ekki óraunhæft
að tveir af þessum þremur kepp-
endum komist á 01ympíuleikana,“
segir Jafet Ólafssoon,
Ivar formaður Badminton-
Benediktsson sambands íslands.
skrifar „En yj þegs ag þejr n£j
takmarki sínu verða
þeir að einbeita sér að æfmgum og
keppni og í raun að gera lítið annað,“
segir Jafet ennfremur. „Að öðrum
kosti er þetta ekki með góðu móti
mögulegt því ferðirnar eru margar
auk þess sem það verður að æfa af
enn meiri krafti en áður.“
Tómas býr í Malmö í Svíþjóð en
keppir með einu allra sterkasta liði
Svíþjóðar sem er frá bænum Umeá í
N-Svíþjóð. Brynja og Sveinn eru
hins vegar við æfingar og keppni
með félagsliðum í Danmörku. Brynja
í Árósum og Sveinn í Álaborg auk
þess sem hann æfir einnig í Kaup-
mannahöfn.
Til þess að vinna sér inn þátttöku-
rétt í badmintonkeppni Ólympíuleik-
anna er nauðsynlegt að vera sem
fremst á heimslistanum 1. maí nk. og
til þess að ná því takmarki þarf að
keppa á sem flestum þeirra móta
sem gefa stig á listann. Áðeins keppa
29 badmintonmenn í einliðaleik karla
og kvenna á Ólympíuleikum svo
dæmi sé tekið og því er hart barist
um sætin. Hefur keppendum í ein-
liðaleik og tvíliðaleik verið fækkað
eftir að keppni í tvenndarleik var
tekin upp á síðustu leikum. Hins
vegar má hver þjóð aðeins senda
þrjá keppendur í hverri grein sem
gerir að verkum að þjóðir sem eiga
marga góða badmintonmenn, t.d.
þjóðir SA-Asíu, sitja ekki einar að
keppninni, kannski ásamt Dönum
sem eru fremstir Evrópubúa eins og
hætta væri á ef ekki væri beitt
fjöldatakmörkunum. Þar af leiðir að
svo getur farið að badmintonmaður
sem er t.d. í fertugasta til fimmtug-
asta sæti heimslistans næsta vor
komist á leikana. Sveinn stendur
best að vígi íslensku badminton-
mannanna skv. heimslistanum, hann
er í 96. sæti í einliðaleik karla.
„Það er algjört lágmark að keppa
á átta stigamótum," segir Broddi
Kristjánsson, landsliðsþjálfari í bad-
minton. „Þá gildir árangurinn af öll-
um mótunum inn á listann. Ef keppt
er á tíu stigamótum er tekið meðal-
tal af árangri þeirra en um leið og
verið er með í tólf mótum er hægt að
strika út þau mót sem lakastur ár-
angur heftir náðst á,“ segir Broddi
ennfremur."
Kostnaður, ferðir og uppihald bad-
mintonmannanna þriggja á keppnis-
tímabilinu sem framundan er er
áætlað um ein milljón króna. Alþjóða
badmintonsambandið og Ólympíu-
samhjálpin standa straum af öllum
kostnaði vegna Sveins, en Badmint-
onsamband Islands og afreksmanna-
sjóður íþrótta- og Ólympíusambands
íslands greiða ferðir og uppihald
Brynju og Tómasar.
Áð sögn Jafets kom einnig til
greina að systkinin, Elsa og Tryggvi
Nielsen, gerðu tilraun til að komast
á leikana en bæði hættu þau við sök-
um anna við nám og störf.
Fyrst var keppt í badminton á
Ólympíuleikunum í Barcelona 1992
og þá unnu þrír íslendingar sér inn
þátttökurétt, Elsa Nielsen í einliða-
leik og Árni Þór Hallgrímsson og
Broddi Kristjánsson í tvíliðaleik.
Elsa var síðan eini_ fulltrúi íslands í
badmintonkeppni Ólympíuleikanna í
Atlanta 1996.
■ SÆVAR Sigursteinsson, fyrr-
verandi landsliðsmaður í júdó úr
KA, hefur skrifað undis samning
við Ármann sem þjálfari meistara-
flokks Ármenninga.
■ GARY Megnson, knattspyrnu-
stjóri Stoke City, hefur verið út-
nefndur stjóri septembermánaðar.
Stoke hefur gengið vel undir stjórn
Magsons og situr liðið nú í 6. sæti
deildarinnar.
■ MEGSON tók við stjórn Stoke í
sumar eftir að Brian Little hætti
og fór til WBA. Erfíðlega gekk í
fyrstu leikjunum á leiktíðinni, en
betur hefur gengið eftir að Megson
brá á það ráð að láta liðið sækja
meira eftir leikaðferðinni 4-3-3.
■ / GÆR kom enn fram á spjall-
síðu Stoke á Netinu að leikmenn
og áhangendur Stoke City vilji
halda Megson við stjórnvölinn hjá
liðinu, en 1 tengslum við tilboð ís-
lenskra fjárfesta í knattspymufé-
lagið er talið líklegt að Guðjón
Þórðarson, landsliðsþjálfari, taki
að sér stjórn liðsins.
■ STEVE McManaman verður frá
keppni næstu þrjár vikur vegna
meiðsla í læri sem hann hlaut í leik
Real Madrid og Porto á þriðjudag-
inn. Hann verður því af vináttuleik
Englendinga og Belga og viður-
eignum við Valencia og Barcelona
með Real Madrid.
■ STEFÁN Arnaldsson og Gunn-
ar Vignisson, milliríkjadómarar í
handknattleik, hafa fengið tvö
verkefni í Evrópukeppninni. Þeir
dæma leik GOG Gudme og rúm-
enska liðsins Fibrex Savinesti i
EHF-keppni karla í Danmörku 3.
október og tvo leiki norska liðsins
Tærtnes og Partizan Kocevo frá
Makedóníu í EHF-keppni kvenna,
sem fara fram í Noregi.
■ GJJÐJÓN L. Sigurðsson og
Ólafur Örn Haraldsson dæma leik
sænska liðsins Alingsas og Pick
Szeged í EHF-keppni karla í Sví-
þjóð 9. október.
■ FJÓRIR eftirlitsmenn frá fs-
landi verða að störfum á leikjum í
október. Gunnar K. Gunnarsson á
leik danska liðsins Kolding og Lu-
koil Dynamo frá Rússlandi í Evr-
ópukeppni bikarhafa 2. október.
■ ÓLI Olsen fer til Færeyja og
fylgist með tveimur viðureignum
Stjörnunnar og Zalau frá Rúmeníu
í EHF-keppni kvenna.
■ BJÖRN Jóhannesson fer til
Noregs og verður þar eftirlitsmað-
ur á viðureign Runar og Meiitopol
frá Úkraínu í borgarkeppni karla.
■ HÁKON Sigurjónsson fer til
Svíþjóðar til að fylgjast með viður-
eign Skövde og Metadurg frá Ma-
kedóníu í borgarkeppni karla.
Bjarni þjálf-
ar Fylki
KNATTSPYRNUDEILD
Fylkis hefur ráðið Bjarna
Jóhannsson þjálfara meist-
araflokks karlaliðsins til
tveggja ára. Bjarni, sem
þjálfaði ÍBV síðastliðin þrjú
ár, sagði það ögrandi verk-
efni að taka við Fylkisliðinu,
sem hefur þrívegis farið upp
í efstu deild en jafnharðan
, fallið niður, og koma liðinu í
fremstu röð.
Bjarni, sem þjálfaði Fylki
árið 1994, taldi sig taka við
góðu búi og kvaðst ætla að
undirbúa liðið vel fyrir átök-
in næsta sumar.
Dagsetn.: Mótsstaður: Brynja Tómas Sveinn
30. sept.-3. okt. Opna tékkn. meistaram. .Æ, 30. sept.-3. okt. Kastrup, Danmörku 9,-12. okt. Sao Paulo, Brasilíu 14.-17. okt. Buenos Aires, Argentínu rt. 28.-31.okt. Búdapest, Ungverjalandi rÆ, 28,- 31. okt Höjberg, Danmörku t t A
4.- 7. nóv. Moss, Noregi 11.-14. nóv. Reykjavík, íslandi rtí 18.- 21. nóv. Sevilla, Spáni 25.- 28. nóv. Edinborg, Skotlandi «? 25.- 28. nóv. Gvatemala 1
2.- 5. des. Cardiff, Wales 2.- 5. des. Mexíkó 9.-12. des. Dublin, írlandi rrA A
13.-16. jan. Portúgal (jji
10.-13. feb. La Chaux de Fonds, SvissoA 13,- 20. feb. Sofia, Búlgariu 13.-20. feb. Nýja Dehli, Indlandi aék á JL
15.-19. mars París, Frakklandi Æk 30. mars- 2. ap. Groningen, Hollandi ■ 6.- 9. april Zagreb, Króatíu Æ 30. ap,- 6. mai Glasgow, Skotlandi rœk A