Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ -T DAGLEGT LÍF F.AKKARINN Jóhann Sig- fússon er nýfluttur heim eftir alls átta ára dvöl er- lendis. Eftir að hafa verið einn yngsti nemandinn sem lauk kvikmyndagerðarnámi frá London International Film School bjó hann í fimm ár í Danmörku og hefur víða farið með tökuvélina á öxlinni. Nú síðast dvaldi hann um fimm vikna skeið við tökur í Taílandi þar sem hann var aðaltökumaður í barna- mynd eftir danska leikstjórann Peter Ringgaard. Vinnutitill mynd- arinnar er Billy in Bangkok og verður hún sýnd í kvikmyndahús- um í Danmörku og sjónvarpsstöðv- um í ýmsum löndum. Monsúnregn og mútur Billy in Bangkok er engin venju- leg mynd því í aðalhlutverkum eru tíu ára drengur og indverskur fíll, báðir með öllu reynslulausir í kvik- myndaleik. Tökur fóru annars veg- ar fram í 6 milljóna manna stórborg og hins vegar meðal villtra frum- skógardýra í 40 gráða hita í ágúst, á miðjum monsún-regntímanum. „Kvikmyndaleikstjórinn John Hou- ston sagði einhvern tímann að menn skyldu aldrei reyna að gera mynd með dýrum eða bömum. Við gerðum hvort tveggja og það gekk eins og í kraftaverki," segir Jóhann sem mætir til viðtalsins klyfjaður myndum og minningum frá Aust- urlöndum fjær. Hann útskýrir að vegna anna hafi tökur frestast fram í ágúst, sem er heitasti árstíminn í Taílandi, og á hverjum degi hafi rignt í minnst klukkutírna eins og hellt væri úr fötu. „Á meðan skýfallið varði var tekið stutt matarhlé en innfæddir aðstoðarmenn tökuliðs- ins vildu þó helst taka tveggja tíma hvfld á dag. Við máttum ekki við því vegna þröngrar tímaáætlunar og þurftum þess vegna að tala fólkið til. Sem betur fór gekk það vonum framar, enda þeir Taflendingar sem við kynntumst einstaklega glaðlegt fólk sem gerði ávallt það besta úr öllu.“ Taflenskt skrifræði fær hins veg- ar nánast falleinkunn hjá Jóhanni en af völdum þess og ýmissa ófyrir- séðra aðstæðna þurfti stundum að hnika handritinu til. „Oft þurftum við að beita mútum til þess að fá að mynda á opinberum stöðum og tryggja okkur velvild lögreglu. Slíkt tíðkast víst á þessum slóðum, Stjörnuleikur fíls í stórborginni Það er ekki lítil fyrir- höfn að taka upp kvikmynd sem gerist á víxl í taílenskum frumskógi og mið- borg Bangkok - hvað þá þegar aðal- leikarinn er fíll. Sigurbjörg Þrastar- dóttir skráði ævin- týrafrásögn Jóhanns Sigfússonar kvik- myndatökumanns sem enn ber ör eftir asískar blóðsugur. jafnvel í búddamusterunum en við fengum einmitt að mynda í einu slíku gegn „framlagi" til munk- anna.“ Fillinn var hörkuleikari Kvikmyndin, sem nú er í eftir- vinnslu, fjallar í stuttu máli um taí- lenskan dreng, Billy, sem heldur í fyrsta sinn til höfuðborgarinnar Bangkok frá heimahéraðinu Zurin ásamt bróður sínum, fullorðnum frænda og fflnum Gin. Tilgangur félaganna er að vinna sér inn fé með hjálp fflsins, en slíkir leið- angi-ar sveitafólks hafa að sögn Jó- hanns lengi tíðkast í taflenskum borgum. „Þá röltir fólk um aðalgöt- urnar ásamt fíl sem ber ávaxta- Morgunblaðið/Þorkell Eftir alls átta ára fjarveru var Jóhann Sigfússon farinn að sakna lands og þjóðar og er nú fluttur heim.“ körfu á bakinu. Túristar kaupa svo ávextina gegn því að fá að mata ffl- inn með þessum sömu ávöxtum, en það þykir ferðafólkinu afar spenn- andi og um leið sniðugt myndefni fyrir fjölskyldualbúmin." Jóhann segir að nú sé búið að banna slíkan fílarekstur í miðborg Bangkok og því hafi þurft sérstakt leyfi fyrir fíl- inn Gin og tökuliðið. „Hins vegar sáum við í það minnsta einn fíl á dag ásamt ekli, sem sýnir að lög- reglan lokar augunum viljandi fyrir ýmsu.“ Jóhann bendir á að vaxandi um- ferð, mengun og hávaði stórborg- arinnar hugnist fílunum illa og að því sé vikið í myndinni. Glögglega sé sýnt hvernig Gin verður sífellt órólegi'i í Bangkok og hafi leikarafíllinn í þeim atriðum sýnt stórbrotinn skapgerðarleik. „Ffllinn sem við vorum með var al- veg frábær,“ upplýsir Jóhann og tekst sem snöggvast á loft í sætinu. „Þegar hann átti að tryllast úti á götu gerði hann það og þegar hann átti að sýna þvermóðsku stóð hann grafkyrr. Hann hreinlega hreyfði sig ekki, sama hversu harkalega bflamir flautuðu. Ffllinn gerði ná- kvæmlega allt sem við báðum um. Eigandi hans, maðurinn sem lék frænda drengsins myndinni, hélt því Vasadiskó til eyrna almennijig LITLU munaði að vasa- diskóin svokölluðu bærust ■ aldrei til eyrna almennings. ZSZ Söguna á bak við, að margra mati, eina af merkustu upp- götvun Sony-fyrirtækisins, má rekja tvo áratugi aftur í ^j tímann. Hún þykir sígild v dæmisaga um hvemig snjöll- um tæknimönnum getur ^ brugðist bogalistin þegar o þeir koma ekki auga á þýð- g* ingarmikið gildi uppfinning- ar sinnar. Highiife, flugtímarit Brit- ish Airways, segir fyrirrennara vasadiskósins vera lítið, einrása segulbandsupptökutæki, sem tæknimenn Sony hafi þróað og gefið nafnið „pressman" eða blaðamaður, enda upphaflega ætlað þeirri stétt manna. Árið 1978 gerðu þeir tilraunir til að ljá „blaðamanninum“ tví- rása hljóm. Þeim tókst ekki að koma tæknibúnaðinum fyrir tví- rásina í tækið án þess að fjar- lægja upptökubúnaðinn og sátu í lokin uppi með „upptökutæki“ sem ekki var hægt að taka upp á. „Tvírása blaðamaður hefði hvort sem er einnig þurft tvo hljóðnema, tvo hátalara og að öllum líkindum framlengingarsnúru," mölduðu þeir í móinn. Óöruggir um framvinduna ákváðu þeir að leggja verk- efnið á hilluna. Líka á hilluna í rannsóknarstofunni, því frumgerð vasadiskósins gegndi lengi því eina hlutverki að sjá starfsmönnum fyrir tónlist við vinnuna. Út í hött Eða allt þar til Masaru Ibuka, sem stofnaði fyrirtækið árið 1946 og látið hafði af störfum fyrir ald- urs sakir, átti leið um. Hann lagði við hlustir og spurði hönnuðina hvort þeir hefðu í hyggju að framleiða tæki sem hefði enga upptökumöguleika. I leiðinni upplýsti hann þá um að önnur Sony-rannsóknarstofa hefði þróað fíngerð heyrnartól, sem hægt væri að tengja við þetta „ekki-upptökutæki“. Tæknimennirnir þökkuðu Ibuka pent fyrir en veltust um af hlátri þegar sá gamli var farinn. raunar fram að fílar hefðu þroska á við sex ára börn - ég sel það ekki dýrar en ég keypti það!“ Barnastjarna f undin á munaðarleysingjahæli Jóhann gerði sér far um að kynn- ast fílnum strax vel vegna hinnar nánu samvinnu sem framundan var. „Þar sem ég þurfti stöðugt að atast í kringum fílinn með tökuvél- ina var nauðsynlegt að ég næði fljótt trausti hans. Fflai- eiga það nefnilega til að sparka í fólk og geta hæglega drepið. Fyrsta dag- inn sem ég hitti fílinn hafði ég fullan poka af banönum meðferðis og á hverjum degi eftir það kom ég með eitt- hvað handa honum að maula. Þegar á leið urðum við fíllinn miklir mátar og undir lokin var hann meira að segja far- inn að heilsa mér með „handabandi" á hverjum morgni." Segja má að fíflinn Gin sé stórleikari í bókstaflegri merkingu því hann vegur eitt og hálft tonn. „Hann þurfti að borða 350 kíló af fæðu á dag þannig að með í för allan tímann var heill vörubfll full- ur af ávöxtum og annarri uppáhaldsfæðu leikarans,“ segir Jóhann kíminn. Drenginn í hlutverk Billys fundu þeir Jóhann og Peter leikstjóri á munaðar- leysingjahæli, 100 kílómetra frá Bangkok. „Við prófuðum að minnsta kosti fjörutíu drengi í aðalhlutverkið en Kanin, eins og hann heitir í verunni, var áberandi bestur. Hann var auk þess sá eini sem tal- aði ensku, en munaðarleysingja- hælið þar sem hann býr er í umsjá írsks prests." Kanin litla fannst mikil upplifun að fá að taka þátt í gerð kvikmynd- arinnar og fékk að auki álitlega fjárupphæð að launum sem bíður hans í banka þar til hann verður 16 ára. Strídið við blóðsugurnar Meðal ævintýra í Bangkok var heimsókn á öskuhauga borgarinnar þar sem Jóhann kveðst hafa komist í tæri við þær stærstu rottur sem hann hafi á ævinni séð. En þó svo að sitthvað eftirminnilegt hafi gerst við tökur í borginni segir Jóhann að 5 Enda fannst þeim segulbands- tæki án hátalara og upptöku- möguleika vera algjörlega út í hött og ekki væri nokkur maður líklegur til að kaupa slíkan grip. Öllum hlyti að vera ljóst að heyrnartól væru aðeins fyrir tæki með hátölurum. Þar fyrir utan væri ótvíræður ókostur að aðeins ein manneskja gæti hlustað. En Ibuka var ekki af baki dottinn. Hann fór á fund Akio Morita, stjórnarfor- manns Sony, og tálaði hann inn á „að láta setja saman svona hlut og kanna hljóminn". Að verki loknu gengu Ibuka og Morita með tækin á sér hvert sem þeir fóru 1 og líkaði prýðilega. I Svo vel að Morita ■ ákvað að hefja fram- leiðslu á tækinu sem ■ þá hafði fengið nafn- V ið „walkman" eða V göngumaður. Stjórn- endur segul- bandsdeildarinnar voru lítt hrifnir af tiltækinu. Þeir spáðu stórtapi og sögðu fyrirætlanir um framleiðslu hreina geggjun. Ásamt fislétt- um heyrnartólum hafði þeim reiknast til að útsöluverðið yrði um 250 bandaríkjadalir (um 17.800 kr.), sem væri mun hærra verð en á seg- ulbandsupptökutæki með hátölurum. Auk þess sögðu þeir að markhóp- urinn, táningarnir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.