Morgunblaðið - 08.10.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.10.1999, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 DAGLEGT LIF MORGUNBLAÐIÐ fyrir gistingu EG LIFI mig algerlega inn í skúringakonuhlut- verkið," segir Guð- mundur Aðalsteinn af sannfæringu að loknum 14 tíma þrifum eftir norskan „krakkaskara“. Lítil putta- og lófaför á húsgögnum og veggjum og ýmiss konar krot munu víst hafa vikið auðveldlega fyrir tuskunni. Ekki svo að skilja að honum sé illa við smáfólkið. „Eg var forvitinn að sjá hvort herbergin stæðust þessa prófraun og er hæstánægður með útkomuna," segir hann en bömin sjö fylgdu þremur norskum fjölskyldum sem nýverið gistu Grettisgötuna. „Börn eru hjartanlega velkomin hingað og mér fannst þessi heim- sókn kærkomið tækifæri til þess að sjá hvað húsnæðið þyldi. Ef gisti- hússreksturinn gengur ekki gæti vel farið svo að ég færi út í að reka barnaheimili. Eg hef mjög gaman af börnum,“ segir hann. Guðmundur hefur átt heimili í húsi númer 6 við Grettisgötu í tvö og hálft ár en festi nýverið, ásamt eiginmanni sínum, kaup á hæðinni fyrir neðan sig þar sem gistiheimilið Tower eða Turninn er rekið. Var hugmyndin sú að opna það formlega 1. ágúst. „Kunningi okkar, sem rek- ur annað gistiheimili, hringdi og spurði hvort við treystum okkur til þess að opna 23. júh' í staðinn. Svo hringdi hann þremur dögum seinna og spurði hvort við gætum mögu- lega opnað 16. júlí. Gestirnir komu klukkan fjögur síðdegis og þá vant- aði gardínur og mublurnar voru ekki komnar. Þetta voru Þjóðverjar á vegum Nýlistasafnsins, sem fengu hreinlega taugaáfall þegar þeir sáu aðstöðuna. Við sögðum bara við þá: „Heyrið þið, Edda er á saumavélinni eins og hún eigi lífíð að leysa og hús- gögnin eru á leiðinni. Þetta verður allt í lagi.“ Þeir komu síðan aftur um ellefu- leytið og þá var búið að redda hús- næðinu; festa upp gardínur og fínna rúmábreiður og púða. Holið var komið í stand og baðherbergið og eldhúsið. Eina sem þau höfðu til Guðmundur Aðalsteinn Þorvarðarson best þekktur sem Bói í Ráð- húsblómum en er nú orðinn gistihússeigandi við Grettisgötu. Helga Kristín Einarsdóttir og Ásdis Ásgeirsdóttir ljósmyndari hittu Guð- mund á gúmmíhönsk- unum, himinlifandi yfir því að vera kominn í skúringarnar. málanna að leggja var: „Vá,“ sem þau endurtóku nokkrum sinnum. Það var betra en skelfingarsvipur- inn sem var á þeim klukkan fjögur," segir Guðmundur. Fáséð hvít húsgögn Húsið var byggt árið 1946 og hef- ur íbúðin sem geymir gistiaðstöð- una, þrjú herbergi, stofu og eldhús, ekki verið máluð í 20 ár, enda olíu- máluð með pensli á sínum tíma. „Hálfan mánuð“ tók svo að gera húsnæðið tilbúið. „Málningin er alveg eins og ný og mestur tími hjá mér fór í raun og veru í það að fínna húsgögn sem passa þeirri umgjörð sem fyrir er. Ég vildi alls ekki breyta henni, enda er hún svo ofboðslega vel gerð. Ég var búinn að fara um allt og kom hvarvetna að tómum kofanum, því ég vildi ekkert annað en hvítt. Viðmótið var gjaman: „Je minn, þú ert sá fyrsti sem hefur spurt um hvít húsgögn síðastliðin 15 ár.“ Loks var ég svo lánsamur að finna verslun- ina Lín og léreft sem er ein sú allra fallegasta í Reykjavík. Þar keypti ég allar mublurnar," segir hann. Nýtingin hjá Turninum hefur ver- ið góð þetta fyrsta sumar og hafa 99% gestanna að sögn verið útlend- ingar. „Eina íslenska bókunin sem við höfum fengið vai- fyrir Akureyr- ing sem kom í bæinn út af Sjávarút- vegssýningunni," bætir Guðmundur við. Ekki telur hann ástæðu til þess að kynna sig sérstaklega með auglýs- ingum, frekar en fyrri daginn. Af heimspekilegum ástæðum. „Viðhorf mitt er hið sama og ég hef haft í verslunarrekstri til þessa. Ég trúi á góða vöru og þjónustu og reyni á minn hátt að standa mig betur en þeir sem eru í samkeppni við mig. Reynslan af þeim íýrir- tækjum sem ég hef rekið er sú að viðskiptavinir mínir eru bæði skemmtilegri og traustari. Sam- skiptin eru eingöngu jákvæð, þannig hafa þau að minnsta kosti verið til þessa í gistiheimilinu og hið sama gilti um blómabúðina. Auglýsingar eru allt í lagi svo langt sem þær ná en ef maður nýtir þær til þess að vekja athygli á lágu verði eða vöru á einhvern hátt fær maður til sín viðskiptavini á öðrum for- sendum en ella. Tengslin við kúnn- ann verða öðruvísi ef hann velur að koma til mín á sínum forsendum. Mér hefur alltaf þótt gaman í vinn- unni og lifí mig mjög inn í skúring- arnar um þessar mundir, þótt ég sé og verði sennilega aldrei laus við blómin. Það er fagurfræði í þessum rekstri líka,“ segir hann. Röntgenmynd í brúðkaupsgjöf Guðmundur sinnir enn skreyting- um fyrir ýmis stærri fyrirtæki og stofnanir, allt fastakúnna úr Banka- strætinu, og vinnur ýmist heima eða nýtir sér lánsaðstöðu úti í bæ. Ekki segir hann hafa verið markmiðið að taka gamla viðskiptavini frá nýjum eiganda Ráðhúsblóma, en að sumir þeirra hafí kosið að fylgja honum eftir þegar ástæða þótti til þess að láta „reka illa anda“ í beinni sjón- varpsútsendingu úr húsnæði versl- unarinnar vegna samkynhneigðar hans. „Margir urðu eiginlega sár- móðgaðir fyrir mína hönd,“ segir hann. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og Þórhildur Ólafsdóttir blessuðu samvist Guðmundar og sambýlis- manns hans, Vilhjálms Jóns Guð- jónssonar stoðtækjasmiðs, í sumar, nánar tiltekið hinn 27. júh' síðastlið- inn, einu ári eftir að þeir kynntust. Upp á dag. Veislan var auðvitað haldin á Grettisgötunni þar sem gistiheimilið er nú. Kveikja umræðunnai' um þessi tímamót er röntgenmynd af hryggj- arliðum sem geymd er úti í stofu- glugga. „Þetta er brúðkaupsgjöf frá Kristjáni [Þorsteinssyni] í Humar- húsinu,“ segir Guðmundur leyndar- dómsfullur. Tilefnið er bijósklos sem Kristján varð fyrir á ferðalagi í ókunnu landi og neitaði að láta flytja sig í burtu í sjúkrabíl. „Hann vissi hvers kyns var og vildi alls ekki láta færa sig og þurftum við því að berja frá honum hvem sjúkraflutningahóp- inn á fætur öðrum vegna tungumála- örðugleika, þar til hægt var að fínna mann sem gat tjáð sig á máli inn- fæddra. Við hlúðum að honum úti á götu í næstum sólarhring þar til hann komst undir læknishendur.11 Útlönd gegnum afgangana Guðmundi fínnst ekki bara gaman að vera með tuskuna stöðugt á lofti og segir ánægjulegt að hitta allt fólkið sem gistir í Turninum. Gestirnir eru með sitt eldhús, sjá um sig sjálfir í mat og drykk og geta því haft sína hentisemi með fótaferðatíma. Samskiptin eru mjög per-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.