Morgunblaðið - 08.10.1999, Page 7

Morgunblaðið - 08.10.1999, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ H DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 B 7 -1 í ur afar brýnt að nýta þann tíma sem best. Mörgum skólasystkinum Helenu Daggar hafði farið mikið fram þegar klippt vai’ á skólagöngu þeirra. Augljóst ætti að vera að þeir sem minna mega sín þurfa a.m.k. jafnlanga, helst lengri, skólavist og heilbrigðum ungmenn- um stendur til boða.“ Skýrar reglur og líf í föstum skorðum Undir samræðum er Hel- ena Dögg farin að ókyrrast svolítið og spyr pabba sinn í hálfum hljóðum hvort gestur- inn ætli að sitja mikið lengur „... klukkan sé nefnilega orðin hálfþrjú“. Áður en ráðrúm gefst til að afsaka langa viðdvöl útskýrir Örn að skýrar reglur og líf í föstum skorðum sé ein- hverfum mikilvægara en flest annað. „Við hjónin vinnum úti, Bryndís til fjögur, ég lengur en er heima frá eitt til tvö þegar Helena Dögg kemur heim í hádeginu. Hún er því ein þar til mamma hennar kemur heim. Henni er ekkert gefið um að þessari reglu sé raskað,“ segir Örn og kímir en biður gestinn endilega að sitja áfram. Bryndís bætir við að einveran hugnist Helenu Dögg einum of vel og þau hjónin verði alltaf að vera vakandi fyrir að grípa í taumana vilji hún loka sig af. „Hjá Helenu Dögg er sá alla jafna góði eiginleiki að vera sjálfri sér nóg nokkuð tví- eggjaður. Því er mjög brýnt að finna leiðir til að hún og aðrir þroskaheftir geti verið þátttakend- ur í almennu skólastarfi og síðar atvinnulífinu. Heima reynum við að hafa ofan af fyrir henni á ýmsa lund til að veita henni ekki svigrúm til einangrunar." Vegna þess m.a. er spilamennsk- an í algleymingi á heimilinu og oft er farið í bfltúr. Þó helst ekki á fréttatíma Sjónvarpsins því Helena Dögg vill alls ekki missa af fréttun- um. Skilninginn skortir stundum en hún fylgist vel með, sérstaklega mannanöfnunum, sem fréttahauk- urinn les upp. Þau skráir hún sam- viskusamlega niður og heldur þeim til haga ásamt öðrum nöfnum sem hún pikkar upp héðan og þaðan. Foreldrarnir segja atferlið helgast af áráttuhneigð, sem hún eins og margir einhverfír sé haldin. „Þessi þráhyggja er búin að vara í um tvö ár, en hver árátta gengur yfir á mislöngum tíma og þá tekur önnur DAGUR í LÍFI HELENU DAGGAR Morgunblaðið/Golli í Fullorðinsfræðsla fatlaðra tvisvar í viku. Morgunblaðið/Halldór I Örva, sem er starfsþjálfunarstaður fyrir fatlaða, vinnur Helena Dögg m a. við að líma miða á vörur, setja þær í poka og steypa plastmót. leitt að um 25 ára aldur verði hún tilbúin að flytja á sambýli „... eða öllu heldur við að láta hana frá okkur,“ segja þau. Ef menntunar- skilyi-ði fyrir þroskahefta væru í betri farvegi eru þau sannfærð um að hún yrði hæfari til að takast á við daglegt líf og gæti hæglega starfað á almennum vinnumarkaði, enda segja þau stúlkuna nokkuð laghenta og búa yfir ýmsum hæfi- leikum. „Núna blasa einungis skammtímalausnir við. Eftir grunnskólanám í Öskjuhlíðarskóla fékk Helena Dögg ásamt sjö þroskaheftum inni í Borgarholts- skóla og útskrifaðist þaðan í vor. Hún var heppin að fá tvö ár í fram- haldsskóla eftir grunnskólann, því skemmst er að minnast drengj- anna tveggja sem ekki fengu skóla- vist einfaldlega vegna þess að skól- inn ákvað að taka bara inn átta ungmenni en ekki öll tíu, sem luku námi úr Öskjuhlíðarskóla,“ segja Bryndís og Örn. Þau vonast til að senn láti menntamálaráðunéytið til skarar skríða og veiti þroskaheft- um jafnan rétt og aðrir hafa. Þeim finnst aðkallandi að slíkt jafnréttismál nái fram að ganga sem fyrst. Þau segja að fyrir suma gæti tveggja ára nám til viðbótar hugsanlega skorið úr um hvort þroskaheftir geti, þrátt fyrir tak- markanir sínar, orðið virkir þjóðfé- lagsþegnar. „Við erum mjög upp- tekin af þessu máli núna,“ segja þau svolítið afsakandi „enda teljum við framtíð dóttur okkar og hinna Eftir hádegi hjólar Helena Dögg í vinnuna. við. Okkur öllum til mikils léttis er Helena Dögg nýbúin að fá sjón- varp inn í herbergið sitt. Áður þoldi hún illa að sitja hjá okkur í stofunni og horfa á sjónvarpið, enda á hún erfitt með að einbeita sér ef of mikið áreiti er í umhverf- inu. Samtöl, glamur í diskum og þessháttar geta komið henni al- gjörlega úr jafnvægi." Svo mikið að framan af átti Örn erfitt með að kyngja því að hegð- unin væri vegna fötlunar hennar. Hann viðurkennir að á stundum hafi hann látið nokkur vel valin orð falla um óþekkt og frekjugang. „Ég hélt að agi og ákveðni dygði en sá fljótt að mjúka leiðin hennar Bryndísar gafst betur,“ segir Örn og bætir við að geðsveiflur Helenu Daggar hafi minnkað til muna. Skammtímalausnir Eldri börn þeirra hjóna eru flutt að heiman og Helena Dögg ein eft- ir í kotinu hjá pabba og mömmu. Þannig mun hátta til enn um sinn en Bryndís og Örn telja ekki frá- ftl sem standa í sömu sporum vera í húfi. Við, ásamt foreldrum níu bama, skólasystkina úr Öskjuhlíðar- skólanum, skrifuðum menntamála- ráðherra bréf 4. nóvember 1998 og síðan tvö önnur 9. mars sl„ þar sem ‘ við fórum fram á úrlausn í mennta- málum þroskaheftra og óskuðum eftir að þeim yrði gefinn kostur á fjögurra ára framhaldsmenntun eins og öðrum nemendum." Enn hafa engin svör borist frá ráðuneytinu og ljóst að Helena Dögg fer ekki í skóla þetta árið. Bryndís og Örn vonast til að úr rætist fyrir næsta skólaár. Þau segjast þó gera sér grein fyrir ýmsum vanda, sem fylgi kennslu fatlaðra í almennum framhalds- skólum. Hver og einn þurfi til dæmis sérstaka námskrá sam- kvæmt getu sinni og þroska og efa- lítið þurfi að ráða sérmenntaða kennara til að sinna slíkum nem- endum. En á meðan þau bíða - og vona eru skammtímalausnir eina úrræð- ið. Bryndís og Örn kappkosta að skipuleggja líf Helenu Daggar eins langt fram í tímann og hægt er. „Jafnvel lítilsháttar breytingar á lífsmynstrinu eru henni erfiðar. Við verðum að undirbúa hana vel og tímanlega ef fyrirsjáanlegt er að einhver röskun verði á högum hennar. Núna vinnur hún hálfan daginn við að líma miða á vörur, setja þær í poka, steypa plastmót og fleira þess háttar í Örva, sem í rauninni er starfsþjálfunarstaður fatlaðra áður en þeir fara út á al- mennan vinnumarkað. Vegna þess að enginn verndaður vinnustaður er starfræktur í Reykjanesum- dæmi hefur Örvi jafnframt gegnt því hlutverki. Við vitum ekki hversu lengi Helena Dögg heldur vinnunni þvi færri komast að en vilja og senn má búast við að aðrir knýi á dyr. Hún sækir líka nám- skeið hjá Fullorðinsfræðslu fatl- aðra tvisvar í viku, en starfsemin er á vegum menntamálaráðuneyt- isins. Við vonumst til að henni verði tryggður rekstrargrundvöll- ur til frambúðar og verði kjölfesta í þjálfun fatlaðra." Klukkan er að verða þrjú. Skipu- lagðri dagskrá Helenu Daggar hef- ur verið raskað um tæpan klukku- tíma og hún spyr hvort við ætlum að tala mikið lengur ... hún þurfí nefnilega að fara að hlusta á geisla- diskana sína „... helst Land og syni og Skítamóral". I braut 3 og 4. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ hefur verið með braut fyrir þroskahefta (þar á meðal ein- hverfa nemendur). Menntaskólinn í Kópavogi hóf í haust kennslu ein- hverfra nemenda. Verkaskipting er markmið í starfi framhaldsskólanna eftir því sem unnt er að skipuleggja hana, því að ekki er alls staðar unnt að tryggja þá sérhæfingu sem þarf til að ná besta árangri. Mennta- málai’áðuneytið hefur fylgst náið með málefnum þroskaheftra og rætt þau við einstaka skólameistara auk þess sem ráðuneytið skiptir fjármunum til kennslu þeirra á milli skólanna.“ Telur þú möguleika á að knýja á um að einh veriirMztmhalilsskólar bjóði upp á fjöguri%-ára uám fyrir þroskahefta, þ.e, þurftu mjög mikla sérí(þnjni§líi í grunn- skóla, voru i Öskjuhlíðarskóla eða öðrum sérskólum, eða hafa lokið tveggja ára námi í framhaldsskóla'! Hvenær'! Unnið hefur verið að uppbygg- ingu sérdeilda fyrir fjölfatlaða og þroskahefta nemendur í fram- haldsskólum á undanförnum ái’um j og nú þegar er nokkur reynsla kom- in á starfsemi þeirra. Til að byrja Ímeð vai’ stefnan sett á tveggja ára námsbrautir en nú er hafinn undir- búningur að fjögurra ára náms- brautum fyrir þennan hóp nemenda. Þessi lenging námsins kemur til framkvæmda á næstu tveimur til þremur árum eftir því sem fjárveit- ingar og aðstæður skólanna leyfa. Á næstunni verður gefin út endur- skoðuð námskrá fyi’ir fyrstu tvö árin og í vor verða væntanlega tilbúin drög að námskrá fyrir næstu tvö ár. Allt starf ráðuneytisins miðar að því, að fleiri en tvö ár verði í boði fýrir þroskahefta, enda falli þjón- usta við þá að skilyrðum í námskrá. Að undanförnu hefur ráðgjafar- nefnd um kennslu fatlaðra starfað með ráðuneytinu að uppbyggingu náms fyrir fatlaða nemendur í fram- haldsskólum. I nefndinni eiga sæti fulltrúi frá Þroskahjálp, Umhyggju og Skólameistarafélagi íslands auk ráðuneytisins.11 Finnst þér að þroáþgheflir, sem sýna vilja til að Ifvra, eigi að bjóð- ast skólagaiiga,fj£m§>iörg ár og öðrum stendur til mwíaf Mér finnst að koma megi til móts við áhuga þessara nem- enda eins og annarra eftir því sem unnt er á grundvelli námskrár og þess svigrúms sem einstakir skólar hafa. Skólar geta ekki boðið allt sem kann að vekja áhuga einstakra nemenda, hvort heldur þeir eru þroskaheftir eða ekki. Námsbrautir í framhaldsskólum eru auk þess mislangar og það er sjálfstætt markmið að stytta námstíma þar í þrjú ár. Þessi meginsjónarmið verða menn að hafa í huga, þegar rætt er um skólagöngu þroska- heftra að loknum grunnskóla.“ f ^okkum oj >&okkabuxum Jrá Decoj Decoy er rétta merkiö fyrir þig ♦ einstaklega mjúkar ♦ falleg áferö ♦ sterkar og endingargóðar ♦ gott verð Njóttu þess að vera í Decoy - og þú nýtur þess besta! DecoY Umboðsaðili: Rún heildverslun Vatnagarðar14 • Sími 568 0656 -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.