Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.10.1999, Blaðsíða 8
#8 B FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Andlitsduld í landi svipbrigðaleysis Ein af auglýsingum Morgunblaðsins frá öldinni sem er að líða. Vilt þú ná árangri á nýrri öld? AUGLÝSINGADEILD MORGUNBLAÐSINS | sími 569 1111, augl@mbl.is, bréfasími 569 1110 þar til nú. „Hugurinn skiptir máli, ekki ásjónan," segir gamalt jap- anskt orðatiltæki en nú er öldin önnur. Andlitsathuganir kváðu vera orðnar efni tuga bóka og til umfjöllunar í tímaritum og sjón- varpi og þá er búið að stofna fé- lag, eða akademíu, tileinkað and- litsrannsóknum. Félagið er hið eina sinnar tegundar í heiminum og liðsmenn um 700 talsins, meðal annars úr röðum tannlækna, sál-, mann-, tölvu- og förðunarfræð- inga. „Að mati nútíma Japana eru svipbrigði andlitsins samskipta- máti, sem þeir hafa hingað til far- ið á mis við og ekki verið innrætt að beita,“ er haft eftir Hiroshi Harashima prófessor og stjórn- anda Andlitsrannsókna-akademí- unnar. Einnig segir að ímynd hins svipbrigðalausa, æðrulausa Japana sé nú að verða jafn úrelt og hugmyndir um hið almáttuga efnahagslíf landsins. Japanir séu sífellt að gera sér betur grein fyrir því að vilji þeir teljast sam- keppnisfær- ir á alþjóða- markaði verði þeir Japanskir að auka tjá- glímukappar skiptahæfni eiga að sína. Gestir vekja ugg sýningar- wmmmmmmmmmmmm innar geta meðal annars fylgst með kynn- ingu á klassískri, japanskri leik- hefð, noh, þar sem leikarinn lætur í ljós ýmiss konar tilfinningar með örlítilli hreyfingu á hvítri, svip- brigðalausri grímu. „Þessar hreyfingar eru of óljósar fyrir flest önnur menningarsamfélög," bætir Harashima við. „Vestur- landabúar kvarta gjarnan yfir því að erfitt sé að átta sig á því hvað Japanir séu raunverulega að hugsa.“ Andlítsþorsti á tækniöld Harashima telur það jafnframt enga tilviljun að áhugi á andlitum fari vaxandi á sama tíma og svip- brigðalaus samskipti færist í vöxt, það er með tölvupósti, eftir spjall- rásum og í gegnum farsíma. Fólk sé einfaldlega farið að þyrsta í ásýnd annarra. Auk þessa hafi áhersla á útlit og yfírbragð farið vaxandi í Japan með auknu atvinnuleysi, því sé mikilvægara en nokkru sinni að koma vel fyrir þegar leitað sé að starfi. Greint er frá því að sala snyrtivara fyi-ir karlmenn hafi aukist um 34% á síðasta ári og að þekkt keðja snyrtistofa hafi opnað útibú fyrir karlmenn eingöngu í nýtískulegu Shibuya-hverfi Tókíó-borgar. Loks segir í Newsweek að fólk í leit að starfi skuli ekki láta hjá líða að skoða sýninguna þar sem einnig gefi að líta tölvumyndir af „erkitýpum" úr hinum og þessum starfsgreinum; bankastarfsmönn- um, glímuköppum, leikurum, flug- liðum og stjórnmálamönnum. Samkvæmt þeim eiga svipbrigði glímukappans að vekja ugg og andlitsdrættir bankamannsins að bera iðni og góðri ástundun vitni, svo dæmi sé tekið. Síðast en ekki síst má nefna samsetta tölvumynd af andliti 10 þekktra stjórn- málaforingja, þar sem slægðin drýpur af hverjum drætti. mor^unkaf f inu, Japanir kváðu nú hafa nieiri áhuga á andlitum en nokkru sinni fyrr. UMTALAÐASTA uppákoman í Japan um þessar mundir er „Stóra andlitssýningin“ sem opn- uð var í vísindasafni Tókíó í júlí síðastliðnum og kvað þegar hafa laðað til sín um 120.000 gesti. Vikuritið Newsweek gerir sýning- una að umfjöllunarefni og segir að gestir geti breytt eigin andlitum í tölvu, skoðað helgrímur Abra- hams Lincoln og Napóleons Bónaparte, kynnt sér breytingar á japönskum andlitum í aldanna rás og þegið leiðbeiningar um förðun, svo eitthvað sé nefnt. Vinsældir sýningarinnar þykja til marks um aukið dálæti Japana á andlitum, sem reyndar er líkt við þráhyggju, en hermt er að aldrei hafi verið til siðs í Japan að tala um ásjónu fólks, sérstaklega meðal karlmanna. Það er að segja hke

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.