Morgunblaðið - 10.10.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.10.1999, Qupperneq 1
MAZDA PREMACY REYNSLUEKIÐ - CONTINENTAL KYNNIR VETRARDEKK Á LANGJÖKLI - BMW Z9 SPORTBÍLLINN - M-JEPPIMEÐ DÍSILVÉL Um 30% tekjuaukning hjá Scania BETRI markaðshlutdeild í Evrópu og auk- in sala leiddu til nærri 30% tekjuaukningar hjá Scania á fyrri helmingi ársins. Skýring- ar eru að einhverju leyti stöðugra verðlag í Evrópu og áframhaldandi söluaukning í löndum í austurhluta álfunnar. Alls seldi Scania 24.710 rútur og vörubfla á fyrri helmingi ársins en 22.433 á sama tíma í fyrra. Salan jókst úr 18,9 milljörðum sænskra króna í 22 milljarða á sama tíma- bili. Pantanir í vörubíla af stærri gerðinni jukust á tímabilinu um 20% í Evrópulönd- um og er markaðshlutdeild Scania nú um 15,2% í Evrópu. Hún hefur heldur lækkað í Suður-Ameríku eða úr 41,5% í 33% og segja forráðamenn verksmiðjanna það stafa af breytingum á framleiðslunni og minni afkastagetu á meðan. |Htf0ttnUnMk Citroen Pluriel CITROÉN hefur kynnt hugmyndabílinn Pluriel sem er arftaki Citroen braggans, 2CV. Talið er hugsanlegt að framleiðsla á bílnum hefjist innan tveggja ára. Pluriel er blæjubfll byggður á C3 hugmyndabíln- um sem fyrst var sýndur á bílasýningunni í París 1998 og kynntur sem arftaki Braggans. Blæjan er rafstýrð og rennur ofan í farangursrýmið ásamt afturrúð- unni. Einnig er hægt að breyta bflnum í lítinn, opinn pallbíl með því að fella aftur- sætin fram. SUNNUDAGUR 10. OKTOBER 1999 BLAÐ Honda S2000 verður til sýnis hjá Honda umboðinu um helgina. Honda S2000 á 4,5 milljónir kr. HONDA umboðið á íslandi frum- sýnir um helgina Honda S2000 sportbflinn sem nýlega er kominn á markað. Bfllinn hefur fengið sér- lega eftirtektarverðar móttökur í erlendum fjölmiðlum allt frá því Honda sendi frá sér fyrstu upplýs- ingamar í desember sl. Banda- rísku bílablöðin tala um S2000 sem draumabílinn, líkja honum við eld- flaug en segja jafnframt að hann sé á tombóluverði. Honda hefur lagt til við umboðsaðila að bíllinn verði seldur á um 31 þúsund doll- ara. Hérlendis er verðið 4.575.000 krónur. Aðeins 5 þúsund bilor á úri Honda verksmiðjurnar ráðgera að smíða ekki fleiri 5.000 bfla á ári og er því búist við að umboðsaðilar nýti sér umframeftirspurn til að hækka verðið. S2000 er tveggja sæta blæjubíll og vélin skilar 240 hestöflum til afturhjólanna. Hann er byggður á SSM hugmynda- sportbflnum sem frumsýndur var árið 1995 á bflasýningunni í Tókíó. Vél, burðarvirki og fjöðrun var hönnuð frá grunni fyrir þennan bíl. Vélina hönnuðu sömu verk- fræðingar og unnu við Formula 1 vélar Honda sem skiluðu fyrirtæk- inu sex heimsmeistaratitlum í röð. Með þessari vél hefur Honda sett heimsmet í vélarafli miðað við slagrými í forþjöppulausum bfl. 120 hestöfl á hvem lítra í slagrými hefur aldrei náðst áður. 120 hestöfl á hvern lítro slagrýntis Petta er tveggja lítra, fjögurra strokka VTEC-vél sem skilar há- marksafli við 8.300 snúninga á mínútu. Snúa má vélinni allt upp 9 þúsund snúninga sem vekur furðu því flestir fjöldaframleiddir bílar eru með rauðu striki á snún- ingshraðamæli í kringum 6 þús- und. Bfllinn er með sex gíra hand- skiptum gírkassa með þéttum gír- hlutföllum og spólvörn sem skilar vélaraflinu til afturhjólanna. Vélin er fyrir framan afturöxul sem tryggir jafna þyngdardreifingu á milli fram- og afturöxla. Bíllinn er Morgunblaðið/Árni Sæberg S2000 er 5,8 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða. 5,8 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða. Sjúlfstæð fjöðrun Honda þróaði einnig nýja kyn- slóð fjöðrunar sjálfstæðrar fjöðr- unar fyrir öll hjól fyrir S2000. Fjöðrunin er samsett úr tvöföldu klofajárni, gormum, gashöggdeyf- um og jafnvægisstöngum að fram- an og aftan sem gerir bflinn afar stöðugan í hröðum beygjum. Fjöðrunin er sögð svo fyrirferðar- lítil að hún sé nær öll inni í hjólun- um. Smæðin er sögð gera hana ná- kvæmari. Að innan er bfllinn leðurklædd- ur og uppsetning mælaborðsins tekur mið af mælaborði í Formula 1 bílum. Bfllinn er gangsettur með því að þrýsta á rauðan START hnapp. Stjómtæki era öll staðsett þannig að ökumaður þarf vart að taka hendur af stýri nema til að skipta um gír. PORSCHE SMIÐAÐUR I LEIPZIG PORSCHE hefur tilkynnt að sportjeppi fyrirtækisins, sem á að koma á markað árið 2001-2002, verði fram- leiddur í Leipzig í Þýskalandi. Nýlega birtust myndir af frumgerð bflsins þar sem verið var að prófa hana í þrú- unarmiðstöð Porsche í Weissach. Líklegt þykir að bfllinn verði í fyrstu boðinn með þremur gerðum véla. Sú minnsta verður 3,2 lítra útfærsla af V6 vél VW, 24 ventla, sem skilar 240 hestöflum. Þá verður í boði ný vél Porsche, 4,5 lítra, V8, 32 ventla með tveimur yfirliggjandi knastásum og breytileg- um ventlaopnunartíma. Hún er sögð skila 340 hestöflum. Loks verður V8 vélin í boði með tveimur forþjöppum og milli- kælum sem sögð er vera 450 hestafla. Þessi mynd hefur víða birst af frumgerð Porsche- jeppans. Eins og sjá má er allt gert til að villa um fyrir forvitnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.