Morgunblaðið - 27.10.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.10.1999, Blaðsíða 28
sannleikans i Sjónvarpinu Vinir og óvinir ræðast við yfir pottunum Sigmar B. Hauksson er umsjónarmaður Eldhúss sannleikans Eldhús sannleikans er vikulegur matreiðslu- og spjallþáttur sem verður á dagskrá Sjðn- varpsins á föstudögum kl. 19.45 í vetur. Umhverfi þátt- anna er mjög heimilislegt og því ættu þeir tveir gestir sem Sigmar B. Hauksson umsjón- armaður fær til sín hverju sinni að geta rætt I rólegheit- unum um hversdagsleg mál- efni sem umdeildustu þjóð- mál. „Gestirnir geta veriö vin- ir, óvinir, átt eitthvað sérstakt sameiginlegt eða jafnvel verið óvenjulega ólíkir. En þeir eiga það þó sameiginlegt að vera sælkerar," segir Sigmar. „Þetta eru nefnilega ekki ein- göngu matreiðsluþættir þótt við endum nú í eldhúsinu og eldum saman." Maturinn spilar því stórt hlutverk í þáttunum og að sögn Sigmars verður einnig rætt um góð vín sem passa með hverju sinni. „Gestirnir fá yfirleitt að velja það sem er á boöstólum og þvf veröur eld- aður matur úr ýmsum áttum." Grænmetisætur, veiöimenn og almennir matgæðingar munu HOLLT NASL Sólþurrkaðir tómatar (fást í Heilsuhúsinu) Snelð af reyktum laxi eða silungi. Ögn af gráðosti (1/2 teskeið) Aðferð: Fiskurinn lagður á tómatana og gráðosturinn þar ofan á. Ekki sakar aö hafa lítiö rauðvfnsglas með. leiöa saman hesta sína f þáttunum í vetur. LÍFIÐ OG TILVERAN Eins og áður segir munu vinir jafnt sem óvinir mætast í þættinum svo oft gæti um- ræðan oröið ansi fjörug. „Ég fæ stundum til mín fólk sem er ekki endilega sam- mála um lífiö og tilveruna," segir Sigmar en þættirnir verða þó alltaf á léttum og kurteisislegum nótum. Sigmar er félagsfræöingur aö mennt en hefur margsinnis staðið yfir pottunum með landsmönnum f sjónvarpinu á undanförnum árum. „Ég hef mikinn áhuga á matreiöslu og einnig mikiö gaman af þessu þó ég hafi enga sérstaka menntun á þessu sviöi," segir Sigmar. En lumar þú á einhverri góðri og einfaldri uppskrift fyrir lesendur Dagskárinnar? „Aö góðu skapi? Já, það er aö fara í sundlaugina annað slagið og fá sér svo stórt vatnsglas að baðinu loknu," fullyrðir Sigmar og hlær. „Það er alveg óbrigöult ráð." - En hvað með eitthvað gott með sjónvarpinu, kannski köku? „Köku?" spyr Sigmar forviöa. „Við viljum ekki vera að láta fólk borða sætar kökur yfir sjónvarpinu heldur miklu frekar hoilt nasl og svo gjarn- an glas af góðu víni, því rauö- vín lengir lífið eins og þú veist." Uppskrift að holla naslinu fylgir með hér á síðunni en þær uppskriftir sem matreitt er eftir í þættinum Eldhús sannleikans verða birtar á textavarpi Sjónvarpsins. □ FófJc Verður framhald á Vinum • Svo gæti fariö að dagar kattar- fýlunnar í laginu „Smelly Cat" væru á enda. Leikkonan Lisa Kudrow er spurð að því í viðtali við New York Daity News hvort hún sé farin að fá leiöa á hlut- verki sínu í Vinum. „Ég er ekki alveg viss," svarar Kudrow, sem fer með hlutverk hinnar söngelsku Phoebe. „Þannig var það alls ekki fyrstu fimm árin," bætir hún við. Ef til vill er hún bara að setja pressu á framleiðendur þáttanna, Warn- er Bros., en samningaviðræö- ur við leikarana f Vinum eru á næsta leiti. Allir samningarnir renna út í lok yfirstandandi tímabils vestanhafs og munu leikararnir fara fram á 250 þúsund dollara fyrir aö fram- lengja þá. Vonandi bara að all- ir geti haldist vinir. Kossafiens Aliy McBeal • Framleiðand- inn David E. Kelley er allt í öllu í framhalds- þáttum vestan- hafs. í vetur virð- ist hann ætla að fara áður ótroðn- ar slóöir og gætti þess fyrst í nýlegum þætti Chicago Hope þar sem orðbragöiö tók út yfir allan þjófabálk svo siðapostul- um blöskraði. Hann lætur ekki þar við sitja. Þótt Ally McBeal (Calista Flockhart) og Ling (Lucy Liu) hefi ekki verið vel til vina fram að þessu kyssast þær í þætti sem sýndur veröur vestra 1. nóv. McBeal hefur tvisvar áður kysst stöllur sín- ar, Elaine (Jane Krakowski) og Georgiu (Courtney Thorne- Smith), en þá var þaö til að fæla burt ágenga karlmenn. 28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.