Morgunblaðið - 30.10.1999, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 30.10.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 B 3 ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Kristinn Val léku Framstúlkur grátt að Hlíðarenda. Brynja sækir hér að og systurnar Björk og Katrín Tómasdætur búast til varnar. KÖRFUKNATTLEIKUR Meðalmennskan allsráðandi Lið KFÍ brast kjarkinn GOLF Birgi Leifi Hafþórssyni gekk vel á Spáni Var stað- ráðinn í að kom- ast áfram BIRGIR Leifur Hafþórsson var himinlifandi er Morgunblaðið náði tali af honum í gær, eftir að Ijóst var að hann hefði komist áfram úr öðrum áfanga undankeppni að evrópsku PGA-mótaröðinni og tryggt sér sæti í lokaúrtökumóti hennar, sem fer fram á Spáni í næsta mánuði. „Þetta er mikiil léttir. Það var mikil spenna og ég var svolítið taugaóstyrkur,“ sagði Birgir Leifur. Slæmur lokakafli varð KFÍ að falli er liðið mætti Tindastóli frá Sauðárkróki á ísafirði í gær- kvöld. Sauðkræking- Magnús ar höfðu tögl og Gíslason hagldir lengst af í skrifar leiknum en KFÍ tókst að jafna skömmu fyrir leikslok. En þá tóku gestimir öll völd á vellinum og skoruðu 13 stig í röð og tryggðu sér sigur: 73:58. Leikmenn KFÍ voru lítt stemmd- ir í upphafi leiks og áttu í nokkrum vandamálum, bæði í vöm og sókn. Talsvert bar á einstaklingsframtaki innan liðsins sem skilaði því ltilu, en helst bar á Clifton Bush í fyrri hálf- leik. Leikmenn Tindastóls léku hins vegar prýðilega saman framan af og á sex mínútna leikkafla breyttu þeir stöðunni úr 7:6 í 7:21 sér í hag. Leikmenn KFÍ tóku sig saman í andlitinu í síðari hálfleik og tókst að jafna leikinn en þá kom bakslag í leik liðsins. Öll orka leikmanna virt- ist hafa farið í að minnka forskot gestanna og svo virtist sem heima- menn hefðu einfaldlega ekki trú á að þeir gætu unnið, eftir marga tapleiki að undanfómu. Stólarnir gengu því á lagið og tryggðu sér sigur. Hjá Tindastóli bar mest á Kristni Friðrikssyni, sem lék vel í síðari hálfleik, skoraði mikilvægar körfur og lék félaga sína uppi. Þá var Lár- us Pálsson atkvæðamikill og skor- aði meðal annars þrjár þriggja stiga körfur. Enginn stóð uppúr í liði KFÍ en þar var meðalmennskan hins vegar allsráðandi. Er Birgir Leifur hóf leik í gær- morgun var hann einu höggi á undan síðasta sætinu, sem gaf þátt- ■HBi tökurétt í lokaúr- Eftir tökumótinu. Það Edwin breyttist þó fljótt í Rögnvaldsson gær er j,ann fyj^j níu holumar á tveim- ur höggum yfir pari, hafði skyndi- lega fallið úr úrvalshópnum. Hann sneri þó blaðinu við og lék síðari níu brautimar á fjóram höggum undir pari - lék hringinn á sjötíu höggum. Hefði hann slegið tvö högg tii við- bótar hefði hann þurft að fara í bráðabana um laus sæti. „Við stóðum þetta af okkur sam- an,“ sagði Birgir Leifur, en hann naut fulltingis unnustu sinnar, Elísabetar Halldórsdóttur, sem bar kylfur hans. „Eg var bara staðráð- inn í að komast áfram og stappaði í mig stálinu. Um leið fékk ég fleiri færi á fuglum, sem ég gerði ekki á fyrri níu holunum. Þá fóra púttin að ganga,“ sagði hann. En lagði hann síðasta hringinn upp með öðram hætti en hina þrjá, þar sem hann var þegar á meðal þeirra tuttugu og níu efstu? „Nei, engan veginn. Það var svo skammt stórra högga á milli. Það þýðir ekki að fara út í eitthvað vamargolf eða neitt því um líkt. Samt má maður ekki vera of aðgangsharður - þarf að finna hinn gullna meðálveg," sagði Bii-gir Leifur, sem var al- mennt ánægður með leik sinn á öðr- um áfanga forkeppninnar. Þrívegis hefur Birgir Leifur hafið leik í forkeppninni og ávallt hefur hann komist í lokamótið. Hingað tO hefur honum þó ekki tekist að stíga skrefið til fulls. En að sögn Birgis Leifs, var sett langtímamarkmið að hann kæmist á aðalmótaröðina í þriðju tilraun er stofnað var hluta- félag um hann. „Eg ætla mér að standa við það,“ sagði hann. „Reiknað var með að hin tvö árin færa í að öðlast reynslu. Núna veit ég hvað þarf til. Ég legg leik minn upp öðruvísi. Maður á ekki að taka óþarfa áhættu í svona mótum, held- ur leika af öi-yggi og reyna að hitta sem flestar flatir - vera sáttur við par og fuglamir koma af sjálfu sér. Hvert högg skiptir svo rosalega miklu máli. Ef menn reyna of mikið og gera mistök, getur það kostað tvö högg. Það er líka mjög orku- frekt. I næsta móti þarf að ég að eiga sex góða daga. Það verður mjög strembið," segir Birgir Leifur, sem komst „skrambalaust" frá mót- inu, þ.e. lék enga holu á tveimur höggum yfir pari. „Það er mjög já- kvætt. Það hefur ekki gerst hjá mér í háa herrans tíð.“ I lokamótinu í næsta mánuði verða fjórir hringir leiknir á tveimur völlum, en kepp- endum síðan fækkað og þeim gert að leika tvo hringi til viðbótar um laus sæti á evrópsku mótaröðinni. Með því að komast áfram úr öðr- um áfanga forkeppninnar hefur Birgir Leifur í það minnsta tryggt sér nær ótakmarkaða þátttöku á „áskorendamótaröðinni", öðra nafni Challenge Tour, á næsta ári. Því var nánast öfugt farið í ár, þar sem hann var í sífellu á biðlista þátttak- enda og fékk litla keppnisæfingu. Þótt Birgir Leifur sé ungur að ár- um, aðeins 23 ára, hefur hann þegar öðlast töluverða reynslu af þátttöku sinni á forkeppni að evrópsku móta- röðinni. „Ég kannaðist við nánast hvert einasta andlit hérna. Hér era margir þekktir og sterkir kylfing- ar,“ sagði hann. Kunnir kappar vora á meðal þátttakenda á öðrum áfanga undankeppninnar. Justin Rose, sem sló í gegn í opna breska mótinu í fyrra, lék á Emporda-vell- inum og fer öragglega áfram í loka- úrtökumótið. Trevor Immelman, Suður-Afríkubúinn sem lék alla fjóra hringina í bandarísku meist- arakeppninni, Masters, síðastliðið vor, komst einnig áfram, en hann lék á Pals-vellinum nærri Barcelona. Auk þess komst Eng- lendingurinn Scott Henderson áfram, en hann var valinn nýliði árs- ins á aðalmótaröðinni fyrir tveimur árum. Birgir Leifur hefur verið við æf- ingar hjá Amari Má Olafssyni, golf- kennara í Þýskalandi, og mun búa sig undir að gera þriðju tilraun sína við að komast inn á evrópsku PGA- mótaröðina, þar sem margir þekkt- ustu og færustu kylfingar álfunnar etja kappi vikulega. ■ DENNIS Bergkmnp segir það vera mestu vonbrigði ferils síns til þessa að Arsenal skuli ekki hafa tekist að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar að þessu sinni. ■ ÞAÐ hefur einnig í fór með sér veralegan tekjumissi fyrir Arsenal að félagið náði ekki lengra í keppn- inni. Er áætlað að félagið verði af tekjum upp á um 950 milljónir-' króna. ■ JOHN Carew, markahrókur Ros- enborg, er litinn hýra auga af nokkrum félagsliðum sunnar í Evr- ópu, m.a. AC Milan og Intern- azionale. Talið er að félögin séu reiðubúin að greiða um hálfan ann- an milljarð fyrir pilt sem kom til fé- lagsins í vor þegar Rosenborg seldi annan markheppinn leikmann, Sig- urd Rushfeld. ■ DALEY Thompson, fyrrverandi heimsmethafi í tugþraut, er Egil „Drillo“ Olsen til aðstoðar við þrek- þjálfun hjá Wimbledon. Segir Olsen samstarf þeirra vera með ágætum. ■ BIÐSTAÐA er í kaupum Derby á^ Skotanum Colin Hendry frá Ran- gers sökum þess að Hendry er meiddur á hné. Jim Smith, knatt- spymustjóri Derby, segist hafa áhuga á leikmanninum, en kaupin séu í salti á meðan Hendry hafi ekki náð fullri heilsu. ■ HENDRY er einnig undir smá- sjánni hjá Sheffield Wednesday um þessar mundir. ■ AVI Nimni, miðvallarleikmaður ísraelska landsliðsins, er við æfing- ar hjá Derby um þessar mundir eft-^ ir að hann losnaði undan samningi hjá Atletico Madrid. Jim Smith segir framtíð Nimni hjá Derby vera óvissa. ■ GRAEME Le Saux æfir af fullum krafti um þessar mundir eftir að hafa átt í ökklameiðslum, en hann gerir sér vonir um að hljóta náð fyr- ir augum Kevins Keegans, lands- liðsþjálfara Englendinga, er hann velur landslið sitt fyrir leikina við Skota í undankeppni EM í næstu viku. Ljóst er að Le Saux getur ekki leikið með Chelsea um helgina gegn Derby. Ginanluca Vialli segist vonast til þess að Le Saux verði klár í slaginn eftir rúma viku, en hvort það nægi Keegan kemur í ljós í næstu viku. ■ THOMAS Sorensen markvörður Sunderland gæti þurft að leysa Pet- er Schmeichel af í marki danska landsliðsins sem mætir ísrael um laus sæti í lokakeppni EM í knatt- spyrnu næsta sumar. ■ SCHMEICHEL meiddist á kálfa á æfingu hjá Sporting Lissabon í gær og era meiðslin það alvarlega að alls er óvíst hvort hann geti leik- ið leikina tvo með danska landslið- inu. ■ BO Johansson segist treysta Sorensen fullkomlega til þess að standa á milli stangana í leikjunum tveimur enda hafi hann leikið vel með Sunderland á leiktíðinni. Sveit GR í fjór- tánda sæti á Ítalíu SVEIT Golfklúbbs Reykjavíkur fór úr tólfta sæti í það fjórtánda á þriðja og næstsíðasta keppnisdegi á Evrópumóti golfklúbba á Parco de Medici-vellinum í Rómarborg í gær. Þorsteinn Hall- grímsson lék á 77 höggum, Hjalti Pálmason á 79 og Örn Sölvi a Haildórsson á 81. Höggafjöldi hans gildir ekki. Sveitin er á 451 höggi samanlagt fyrir síðasta hringinn, sem leikinn verður í dag. GR er einu höggi á eftir Genfarklúbbnum frá Sviss og sex höggum á eftir Vestfold-golfklúbbnum frá Noregi, sem er í tólfta sæti. Englendingar eru í forystu, eða sveit Royal Mid-Sur- rey, en hún hefur slegið 424 högg og hefur eins höggs forskot á Frakkana í Touraine-klúbbnum. 22 sveitir taka þátt í mótinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.