Morgunblaðið - 03.11.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 23
ERLENT
Reuters
Dominique Strauss-Kahn yfirgefur fréttamannafundinn í París í
gær, þar sem hann tilkynnti um afsögn sína, ásamt eiginkonu
sinni, Anne Sinclair.
Strauss-Kahn
var táknmynd
efnahagsbatans
París. AFP, Reuters.
DOMINIQUE Strauss-Kahn,
sem sagði af sér sem fjármála-
ráðherra Frakklands í gær, hef-
ur verið eignaður heiðurinn af
þeim verulega efnahagsbata,
sem orðið hefur í landinu á síð-
ustu tveimur árum. Hefur hann
meðal annars staðið fyrir aukinni
einkavæðingu ríkisfyrirtækja og
þykir hafa stýrt Frökkum ör-
ugglega inn í myntbandalag Evr-
ópu.
Strauss-Kahn er fimmtugur
að aldri og er af vel stæðri fjöl-
skyldu í Neuilly, einu af úthverf-
um Parísar. Hann hlaut víð-
feðma menntun og hefur meðal
annars doktorsgráðu í hagvísind-
um, og framgangur hans í pró-
fessorsstöðu var skjótur.
Strauss-Kahn gekk í franska
Sósíalistaflokkinn um miðjan átt-
unda áratuginn og hefur gegnt
ýmsum störfum á vegum flokks-
ins. Hann var skipaður aðstoðar-
ráðherra iðnaðar og utanríkis-
verslunar árið 1991, og tók við
embætti fjármálaráðherra árið
1997.
Strauss-Kahn er sagður vin-
gjarnlegur og almennt vel met-
inn. Hann þykir leiftursnjall
ræðumaður og hnyttinn í tilsvör-
um, og ýmsir höfðu leitt getum
að því að hann stefndi að því að
verða formaður flokksins eða
borgarstjóri í París.
Einn af hornsteinum
stjórnarinnar
Traust tengsl Strauss-Kahns
við viðskiptalífið gerðu það að
verkum að hann var einn af
hornsteinum ríkisstjórnar Lion-
els Jospins. Hann hefur verið
álitinn leiðtogi frjálslynda
armsins í Sósíalistaflokknum,
og átt stóran þátt í því að
Jospin hefur öðlast traust fjár-
málageirans. Það hefur á hinn
bóginn kallað yfir hann gagn-
rýni frá kommúnistum í sam-
steypustjórninni.
I tíð Strauss-Kahns í fjármóla-
ráðuneytinu hefur hagvöxtur
verið meiri en tíðkaðist um langt
skeið, og atvinnuleysi hefur
minnkað stöðugt. Undir hans
stjórn hafa mörg af stærstu rík-
isfyrirtækjum Frakklands verið
einkavædd, þar á meðal Air
France, France Telecom, Aer-
ospatiale og Credit Lyonnais-
bankinn. Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn hrósaði frönsku stjórninni
í síðasta mánuði fyrir „framúr-
skarandi árangur" í efnahags-
málum, sem ekki þykir leika vafi
á að Strauss-Kahn eigi mesta
heiðurinn af.
Garzon fer fram á að Videla
og Galtieri verði handteknir
Madrid. Reuters.
SPÆNSKI ddmarinn Baltasar
Garzon lagði í gær fram ákæru á
hendur 12 fyrrverandi félögum í
herforingjaklíkunni sem réð lög-
um og Iofum í Argentínu árin
1976-1983. Yfir 80 liðsforingjar
að auki eru ákærðir og hefur
Garzon farið fram á það við þjdð-
ir heims að mennirnir verði hand-
teknir.
Meðal mannanna eru hershöfð-
ingjamir Leopoldo Galtieri, fyrr-
verandi fcrseti og Jorge Videla
sem stjdmaði valdaráninu 1976.
Garzon segir mennina hafa staðið
fyrh' pyntingum, hryðjuverkum
og þjdðarmorði í „Skítuga stríð-
inu“ svokallaða sem herforingj-
arnir háðu gegn andstæðingum
Reuters
Baltasar Garzon
sínum. Herforingjamir vom 1983
dæmdir í fangelsi en síðar náðað-
ir.
Garzon lagði á sínum tíma fram
kröfu um að Augusto Pinochet,
fyiTverandi einræðisherra í Chile,
yrði handtekinn í Bretlandi og
fékk því framgengt. Mannrétt-
indahdpar báðu Garzon að kanna
ásakanir á hendur argentínsku
herforingjunum um að þeir hefðu
átt sök á dauða allt að 30.000 pdli-
tískra anddfsmanna og hefur
rannsdknin staðið í þrjú ár.
Mál Pinochets hefur valdið deil-
um milli sljdma Bretlands og
Chile og er nú talið að svipuð
deila geta verið í aðsigi milli
Spánveija og Argentínumanna.
il. 61. árg, 2. nóvember,
iUilJJJj1
JJJilJJU
ifnrTTflhT i T
5 ó^Oó^l'ZOOOOS1
að sanna sig
Ný framhaldssaga eftir
Ertu fuilorðin eða siungP - Rómantik enn í fuliu gildi
Skammdegishunglyndíð tirakíð á draut - Ettirlet föðurnum forræðið
íslenskar konur i Prag - Oöskar og djásn - íiiöreðir sifa siáffsheil ,
\ n • 1 1 iTiji < 1 T i
I * T | n ?-r> J [uT B f f • fi n i
Tækifæri til að kaupa miða
í Víkingaiottóinu fram til kl. 5 í dag
Nú lengist sölutími Víkingalottósins á miðvikudögum um eina klukkustund
í samræmi við vetrartíma annars staðar á Norðurlöndum.
Fáðu þér miða... fyrir fimm!
VÍK I N G A
LOTT#
Til mikils að vinna!